Feykir - 11.11.1992, Qupperneq 2
2 FEYKIR 39/1992
IFEYIKIIR
. Óháö (réttablaö á Noröuriandi vestra
Kemur út á miövikudögum vikulega.
Útgefandi: Feykir hf. Skrifstofa: Aöalgata 2,
Sauöárkróki. Póstfang: Pósthólf 4, 550
Sauöárkróki. Símar: 95-35757 og 95-36703
Fax 95-36162. Ritstjóri: Þórhallur Ásmunds-
son. Fréttaritarar: Magnús Ólafsson A,-
Húnavatnssýslu og Eggert Antonsson V-
Húnavatnssýslu. Auglýsingastjóri: Hólmfríöur
Hjaltadóttir. Blaöstjórn: Jón F. Hjartarson, sr.
Hjálmar Jónsson, Sæmundur Hermannsson,
Siguröur Ágústsson og Stefán Árnason.
Áskriftarverö 110 krónur hvert tölublaö.
Lausasöluverö 120 krónur. Umbrot Feykir.
Setning og prentun: Sást sf. Feykir á aöild aö
Samtökum bæja- og héraösfréttablaöa.
Á hverjum
miðvikudegi...
II
Lýðræðið fótum troðið
Hingað til hefur lýðræðið varið talið einn
helsti hornsteinn íslensks stjórnskipulags
og vondandi verður svo um ókomna tíð.
Upp á síðkastið hefur hinsvegar brugðið
svo við, að leiða má að því rök að lýðræðið í
þessu landi sé fótum troðið af stjórnvöldum.
Er hér átt við dóm Alþingis sem kveðinn
var upp í síðustu viku, þess efnis að þjóðin
fái ekki að greiða atkvæði um aðild íslands
að hinu umdeilda EES.
Að margra mati er ákvörðun um
inngöngu í EES sú stærsta sem hérlend
stjórnvöld hafa staðið frammi fyrir, allt frá
stofnun lýðveldisins 1944. EES er óþekkt
stærð í dag, og eins og jafnan óttast fólk hið
óþekkta, jafnvel stjórnmálamenn sem
kappsamlega hafa sett sig inn í málin hljóta
einnig í þessu tilviki að bera nokkurn ugg í
brjósti. Það er því mikil ábyrgð sem
núverandi valdhafar taka á sig, ábyrgð sem
þeir samt sem áður koma ekki til með að
þurfa að standa undir, nema hugsanlega á
þann ódýra hátt, að ef ákvörðunin reynist
röng megi þeirra flokkar þola refsingu
kjósenda seinna meir. Pólitíkin er
hinsvegar svo margslungin að lengi virðist
vera hægt að koma sökinni á aðra, svo
trúlega hafa íhald og kratar heldur ekkert
að óttast í þessa veru.
Hingað til heí'ur lýðræðið verið túlkað á
þann máta, að meirihluti þjóðar fái
tækifæri til að ráða fram úr málum, altént
mikilvægum málum. Sama dag og
þjóðaratkvæði um EES var synjað á
Alþingi, birtist í DV niðurstaða skoðana-
könnunar. Hún upplýsti að 3/4 hluti
aðspurðra vildi fá að kjósa um EES,
einungis 1/4 kærði sig ekki um það. Það
hefur sýnt sig að niðurstaða skoðana-
kannana er aldrei langt frá hinu sanna, þar
getur einungis munað örfáum prósentum.
Hér er því um svo ótvíræða niðurstöðu að
ræða, að fullyrða má að meirihluti Alþingis
hafi gjörsamlega hundsað vilja þjóðarinnar.
Hér er um að ræða valdníðslu af hinu versta
tagi.
Ekki alls fyrir löngu var í skoðana-
könnun spurt um traust fólks á íslenskum
stjórnmálamönnum. Þar kom fram að
almenningur treystir pólitíkusum ekki of
vel. Niðurstaða Alþingis í síðustu viku
verður sjálfsagt ekki til að vega þar á móti.
Því hefur oft verið haldið fram að á Alþingi
sitji gáfaðasta og besta fólk þjóðarinnar.
Þingmennirnir sjálfir virðast ganga með
þær grillur, altént virðast þeir ekki treysta
sauðsvörtum almúganum til að velja í
mikilvægum málum eins og EES. þÁ.
Skagfirðingur enn með góða sölu
Æsispennandi lokamínútur
Naumt tap gegn Grindvíkingum í gær
Skagfirðingur gerði ágætis- því skipið seldi þar fyrir
sölu í Hremerhafen í fyrradag, fjórum vikum, en þá fékkst
seldi tæp 160 tonn af karfa þrem krónum betur fyrir
fyrir 125 krónur kílóið, sem er kílóið. „Þetta er mjög hverfull
besta verð á markaðnum frá markaður, og verðið hefur
FONDUR OG HANNYRÐIR
Nýkomid mikið úrval affóndurvöru
...t.d. marjjtfyrir jólaföndrið.
Einnig hannyrðir ojj heklugarn.
HEIMILISIÐNAÐUR
Góðar ullarpeysur og ullarsokkar.
Fallegar barnapeysur,
dúkkufatnaður og margt fleira.
ALLTÁ GÓÐU VERÐI!
LISTMUNIR • GJAFAVARA
•Grafíkmyndiv Sigurlaugs Elíassonar
•Málverk •ICeramikvara
•Handunnav nœluv
og eyvnalokkav
ALLTEKTA!
...ekkertfjöldafmmleitt!
*VERIÐ VELKOMIN*
Hólmfríður og Þuríður Gallerí Villa Nova, Aðalgötu 23,
sími 36430 - Umboðssala fyrir listmuni ojj heimilisiðnað.
undanfarið verið undir 100
krónunum. Það er lielst að
skipin frá okkur hafi lyft því”,
segir Gísli Svan Einarsson
útgerðarstjóri hjá Skagfirðingi.
Þegar Skafti seldi ytra fyrir
hálfum mánuði var gerð
tilraun með að setja fiskinn á
markað í kössum útgerðar-
innar, en hingað til hefur
verið hvolft úr þeim í kassa
markaðsins. Ráðuneytið gaf
leyfi fyrir tilrauninni í þessari
tilteknu viku og tvö skip
Granda lönduðu einnig með
þessu móti. Fulltrúar ráðu-
neytis fylgdust með hvernig
þessu reiddi af og munu síðar
ákveða hvort framhald verði
á. „Ef þetta verður leyft
áfram, þýðir það lækkun
löndunarkostnaðar talsvert.
Þá er ekki vafi að þetta fer
betur með fiskinn, það fer illa
með fískholdið þegar honum
er hent niðurájárngrindurtil
að hreinsa ísinn af. Fisk-
kaupandinn kemur síðan til
með að greiða hærra verð
fyrir betra hráefni.
Enn einu sinni reyndust
Grindvíkingar Tindastóls-
mönnum erfiðir, þegar
Suðurnesjamenn komu í
heimsókn í gærkveldi. Eftir
jafnan og spennandi leik,
þar sem jafnt var á flestum
tölum lokamínúturnar, náðu
gestirnir að skora sigur-
körfuna þrem sekúndum
fyrir leikslok. Lokatölur
urðu 84:86.
Mikil barátta einkcnndi
leikinn. Tindastóll byrjaói
betur, en gestirnir náðu fljót-
lega að jafna metin. Leikurinn
var síðan í járnum fram undir
leikhlé, að Tindatóll náði
forskoti. Staðan í hálflcik var
44:39.
Heimamenn byrjuðu betur
eftir hlé og náðu níu stiga
forskoti, 51:42. En gestirnir
voru ekki á því að gefast upp
og komust yfir fljótlega 54:53
og bættu um betur á næstu
mínútum, 68:61. Þá tóku
Túrbínan bilaði í Skafta
Túrbínan bilaði í Skafta þar sem hann var að veiðum fyrir
vestan Horn í fyrrinótt. Hegranesið, sem einnig var á
veiðum fyrir vestan, tók skipið í tog. Komu skipin til hafnar
á Sauðárkróki í nótt, en viðgerð fer þar fram.
„Það er lán annan daginn og ólán hinn. Það má reikna með að
viðgerðin taki 7-10 daga, en hún gæti tekið lengri eða styttri
tíma. Það hefði svo sem geta hist verr á. Ekki er fiskiríið núna og
allir söludagar hjá skipinu búnir á þessu ári”, sagði Einar
Svansson framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar.
Tindastólsmenn við sér að
nýju og tókst þeim að minnka
muninn. Lengi vcl var eins og
þriggja stiga munur og ekki
jafnt fyrr en í 80:80. Síðan var
jafnt allt til lciksloka eins og
áður var lýst.
Grindvíkingar börðust betur
í leiknum og höfðu yfir að
ráða sterkari liðsheild.
Haraldur Leifsson var einn
Tindastólsmanna er sýndi sitt
rétta andlit. Sóknarleikurinn
var óskaplega einhæfur á
köflum og varnarlcikurinn
líka köflóttur. „Við vorum
einfaldlega lélegir í scinni
hálfleiknum. Það vantaði í
okkur allan kraft", sagði Valur
Ingimundarson þjálfari að leik
loknum. Haraldur Leifsson
skoraði 25 stig fyrir Tindastól,
Valur 19, Chris Moore 17,
Pétur Vopni 9, Björgvin 6,
Ingi Þór Rúnarsson 2 og
Hinrik Gunnarsson 2. Krebbs
skoraði 20 stig fyrir Grinda-
vík, Marel og Guðmundur 15
hverog Hjálmar 12.
Tindastóll tapaði fyrir KR
syðra á sunnudagskvöldið,
90:100. Tindastóll hefur nú
átta stig að loknum níu leikj-
um og er um miðbik dcild-
arinnnar. Næsti leikur liðsins
verður gegn Haukum í
Hafnarfirði á laugardaginn og
nk. þriðjudagskvöld koma
síðan Njarðvíkingar í Síkið.