Feykir - 27.01.1993, Blaðsíða 2
2FEYKIR 3/1993
Bíll til sölu!
Mitsubishi L200 pickup 1991 4x4. Húsá palli.
Ekinn 29 þúsuncl km. Virðisaukaskattsbíll.
Upplýsingar á kvöldin í síma 95-35591.
Kemur út á miðvikudögum vikuiega.
Útgefandi: Feykir hf. Skrifstofa: Aðalgata 2,
Sauðárkróki. Póstfang: Pósthólf 4, 550
Sauðárkróki. Símar: 95-35757 og 95-36703
Fax 95-36162. Ritstjóri: Þórhallur
Ásmundsson. Fréttaritarar: Magnús Ólafsson
A.-Húnavatnssýslu og Eggert Antonsson V,-
Húnavatnssýslu. Auglýsingastjóri: Hóimfríður
Hjaltadóttir. Blaðstjórn: Jón F. Hjartarson, sr.
Hjálmar Jónsson, Sæmundur Hermannsson,
Sigurður Ágústsson og Stefán Árnason.
Áskriftarverð 110 krónur hvert tölublað.
Lausasöluverð 120 krónur. Umbrot: Feykir.
Setning og prentun: Sást sf.
Feykir á aöild aö Samtökum bæja-
og héraösfréttablaöa
Leikfélag Akureyrar
Stefnt á vaktavinnu
hjá Fiskiðjunni
Fiskiðjan hefur undanfarna
daga og vikur verið að bæta
við fólki, bæði í snyrtingu og
pökkun í frystihúsinu á
Sauðárkróki og í saltfisk-
verkunina. Hafa verið ráðnir
um 10 starfsmenn á hvorum
stað. Að sögn Einars Svans-
sonar framkvæmdastjóra á
hann allt eins von á því að
svipuðum fjölda, 20-30 manns,
verði bætt við í frystihúsinu
áður en langt um líður, ef
vaktafyrirkomulag verður
tekið upp í frystihúsinu. Það
ræðst á næstu tveim-þrem
vikum.
„Þetta fer mikið eftir því
hvernig vertíðin fer af stað,
hvort aö fiskast eitthvað, en við
kontum trúlega til með að
byggja vinnsluna að storum
hluta á vcrtíðarfiski, frá neta-
og línubátum, eins og við gerð-
um á síðasta ári'*, sagði Einar.
En í fyrra var afli togara Skag-
firðings aðeins um 35% af
hráefni er var unnið í frysti-
húsum Fiskiðjunnar, sem segir
að tæplega tveir þriðju hlutar
hráefnis voru fengnir af bátum
og frá markaði.
Fyrir unt ári náói Fiskiðjan
hagstæðum samningi við
veitingahúsakeðju á miðvestur-
svæði Bandaríkjanna, í Detroid
og grennd. Um er að ræða
sérunna bita úr þorski, og eru
þetta verðmætustu pakkningar
sem unnar eru í Fiskiðjunni.
„Við framleiðum stærsta hluta
þess sem flutt cr af þessari
vöru héðan til Bandaríkjanna. I
fyrra framleiddum við um 300
tonn, en reiknunt með að í ár
verði þetta 500 tonn", sagði
Einar Svansson í Fiskiðjunni.
Útlendingurinn
gamanleikur eftir Larry Shue.
Föstudaginn 29. janúar kl. 20,30
Laugardaginn 30. janúar kl. 20,30
Föstudaginn 5. febrúar kl. 20,30
Laugardaginn 6. febrúar kl. 20,30
Sunnudaginn 7. febrúar kl. 17,00
Miðasala er í Samkomuhúsinu, Hafnarstræti
57, alla virka daga nema mánudaga kl. 14 til 18
og sýningardaga fram að sýningu. Símsvari fyrir
miðapantanir allan sólarhringinn.
Greiðslukortaþjónusta. Sími í miðasölu:
(96)24073.
LETTH) YKKUR STÖRFIN
MED GÓEHJM HJÓLBÖRUM
Bændur, hestamenn,
húsbyggjendur,
garðeigendur og aðrir
athafnamenn.
Höfum hafið
framleiðslu og sölu á
hinum vel þekktu
íslensku hjólbörum,
sem Nýja Blikksmiðjan framleiddi áður.
Varahlutaþjónusta.
Stuðlaberg hf
Hofsósi
sími 95-37350,
myndsími 95-37950
FE11K1R
- Óháö trettabtaö á Noröuriandi vestra
Hvammstangi:
Hreppurinn
kaupir hluta-
bréf í Drífu
og Árbliki
Á fundi Byggðastofnunar
nýlega var ákveðið að selja
Hvammstangahreppi hluta-
bréf í ullarsölufyrirtækinu
Árbliki og prjónastofunni
Vöku á Hvammstanga, en
fyrir var Hvammstanga-
hreppur langstærsti hlut-
hafinn í Drífu.
Vegna slæmrar stöðu ullar-
vörumarkaðar höfóu hluta-
bréfin fallið talsvert í verði,
og söluverðið því nokkuð frá
upprunalcgu vcrði bréfanna.
Hreppsncfnd Hvammstanga-
hrepps hyggst skjóta sterkari
stoðum undir rekstur prjóna-
stofunnar Drífu og voru hluta-
bréfakaupin liður í þeirri við-
leitni. Drífa hefur lengi veitt at-
vinnu drjúgum hluta kvenna á
vinnumarkaði á Hvammstanga.
Nýfætt
folaldiö
lifði af
gaddinn
„Eg nuddaði nú bara á mér
augun á sunnudagsmorgun
þegar ég gekk til hrossanna,
og sá að nýfætt folald var í
hópnum. Eg ætlaði varla að
trúa því að nokkur skepna
hefði fæðst lifandi í því
frosti og kulda sem verið
hafði um nóttina og daginn
áður“, sagði Sigurjón
Sigurbergsson í Hamrahlíð
í Lýtingsstaðahreppi.
Við sífellda fjölgun í hrossa-
stofninum virðist orðið al-
gengara að hryssur kasti á
þessum árstíma. Vitað er til
þess að meri í eigu Gunn-
laugs Þórðarsonar á Ríp kast-
aði snemma árs, og slíkt hið
sama gerðist einnig með
hryssu austur á Héraði. I
báðuin tilfellum var talið
líklegt að um fyrsta folald
ársins væri að ræða.
Leiðrétting
Tölur misfórust aðeins í frétt
í fyrsta blaði ársins af barns-
fæðingum á síðasta ári. Rétt
er að 62 fæðingar voru á Sjúkra-
húsi Skagfirðinga, þar af ein
tvíburafæðing. Drengir voru
43 og stúlkur 20. Þá fæddu
sautján konur úr liéraðinu
annars staðar, án þess að vera
allar sendar burtu af læknis-
fræðilegum ástæðum, aö sögn
Birgittu Pálsdóttir hjá Sjúkra-
húsi Skagfirðinga.