Feykir - 24.03.1993, Blaðsíða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
|l 1
Þó enn sé um einn og hálfur mánuður til sauðburðar eru komin tvö lömb á hús á Frostastöðum í
Akrahreppi. Kolla, níu vetra ær, bar sl. laugardagskvöld tveim lömbuni, en það var aldeilis
ekki samkvæmt áætlun, þar sem Kolla beiddi daginn fyrir Þorláksmessu, var þá haldið þrisvar
og stillt af með svampi, eins og tíðkast núorðið ef bændur vilja láta kindur sína bera á svip-
uðum tíma. Það hefur hinsvegar reynst vera óþarfaverk, því Ijóst er orðið að Kolla hefur
þá þegar verið lembd. Sveinn Sveinsson bóndi á Frostastöðum skilur ekkert í þessu hátta-
iagi kindarinnar á efri árum. Kolla var með lömbum sínum langt fram á haust, rígvænum
dilkum eins og hún hefur jafnan skilað. Það var eignandi Kollu, Teitur Már Sveinsson, sem
kom að henni nýborinni. Hér er Teitur í félagsskap Kollu og lambanna ásamt vinum sínum
frá næsta bæ, Hirti Inga og Magnúsi Magnússonum frá Þverá.
Verulega bætt skuldastaða KS
helsta ástæðan fyrir 41 milljón króna hagnaði í fyrra og góðri útkomu
félagsins í samdrættinum síðustu árin, að mati kaupfélagsstjóra
„Miðað við ytri skilyrði í
þjóðfélaginu getum við verið
þokkalega ánægðir með út-
komuna á síðasta ári, sem
varð betri en við reiknuðum
með“, segir Þórólfur Gísla-
son framkvæmdastjóri Kaup-
félags Skagfirðinga. Rekstrar-
hagnaður KS á síðasta ári var
41 milljón þegar tekið hefur
verið tillit til 23 milljóna króna
hagnaöar á rekstri Fiskiðj-
unnar, dótturfyrirtækis KS.
Þetta hefur komið fram á
deildafundum kaupfélagsins
sem haldnir hafa verið út um
héraðið undanfarið, og er sú
fundaröð um það bil hálfnuð.
Utkoma KS og Fiskiðjunnar
var nijög svipuð á síðasta ári
og árið á undan. Að sögn Þór-
ólfs kaupfélagsstjóra er öðru
frentur skýringin á sterkri út-
kontu KS síðustu árin að félagið
hefur náö að greiða niður skuldir
og hefur það kontið rekstri þess
til góða í samdrætti og crfiðum
ytri skilyrðum í þjóðfélaginu
síðustu ntisseri.
Velta síðasta árs var um fjórir
milljarðar króna og hafði aukist
lítillega. Eigið fé var í árslok
rétt rúmur milljarður og var
ciginfjárhlutfall unt 50%. Heild-
arskuldir félagsins voru rétt rúmur
milljarður og höfðu lækkað unt
200 ntilljónir frá árinu á undan,
sem skýrist að hluta til af lækkun
birgða landbúnaðarvara. Lausa-
fjárstaða félagsins batnaði veni-
lega á árinu, sent sést á því að
veltufjárhlutfall hækkaði um
5%. Heildarlaunagreiðslur KS
og Fiskiðjunnar voru 553 millj-
ónir á síðasta ári, til rúntlega
300 starfsmanna.
Ótryggt áætlunarflug á Krókinn í vetur:
Fleiri ferðir féllu niður
í febrúarmánuði en
venjulega á heilu ári
Óvenjumikið hefur verið um
að áætlunarflug til og frá Sauð-
árkróki hafi fallið niður í vetur.
í febrúar féllu t.d. niður um
10 ferðir sem er svipað og
kannski heldur meira en yfír-
leitt gerist yfir allt árið. Þá
féll niður föstudagsflug í þrjár
vikur í röð. Að sögn Arna
Blöndals umboðsmanns Flug-
leiða á Sauðárkróki er óhag-
stæð veðrátta í vetur aðal-
ástæðan fyrir niðurfellingu
áætlunarferða.
„Oft hefur þctta verið vegna
þess að ófært hefur verió fyrir
sunnan og einnig stundum sökum
þess að ekki hefur verið fær vara-
völlur hér fyrir norðan. Síðan
hcfur borið óvenjumikið á aur-
bleytu á vellinum í vetur og þurft
að fella niður fcrðir vegna þess.
Það em þessar sviftingar og óstöð-
uglciki í veðrinu sem hafa valdið
okkur crfiólcikum'1.
Aðspurður sagði Ami að tlug-
brautin væri farin að þarfnast
viðhalds, en viðhaldi hefur ekki
vcrið sinnt á brautinni til fjölda
ára. „Engin fjárveiting hcfur
fengist í viðhaldið til margra
ára. Það fýkur gjarnan svolítið
úr malarslitlaginu og síðan mylst
þaó niður og brotnar við völtun
og mokstur á vellinum. Svo
bíðum við vitaskuld langeygðir
cftir malbikinu á völlinn, sagði
Árni Blöndal.
Leikfélag Skagastrandar frumsýndi sl. laugardagskvöld leikritið
Stálblóm eftir Róbert Hartling við leikstjórn Jónasar Jónas-
sonar. Það er sex konur sem eru á leiksviðinu í Fellsborg á Skaga-
strönd. Þykir þeim takast vel upp í hlutverkum sínum og sýn-
ingin vera góð. Voru undirtektir á fruntsýningu mjög góðar. Hér
eru þær á æfíngu á Stálblóminu: Jensína Lýðsdóttir, Sigrún
Jónsdóttir og Lovísa Vatner. Næsta sýning er í kvöld.
—ICTc^ill — Aðalgötu 24 Sauðárkröki ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA SíMfJbílaverkstæði
J.JM. ^ * sími: 95-35141
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA Sæmundargata 1 b 550 Sauðórkrókur Fax: 36140
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA Bílavibgerbir * Hjólbaifeaverkstæ&i
SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019 RÉTTINGAR • SPRAUTUN