Feykir - 24.03.1993, Síða 6
6FEYKIR 9/1993
GRETTISSAGA
Texti: Kristján J. Gunnarss.
Teikningar: Halldór Péturss.
49. Nú leió aó aðlangadag jóla. Glámur stóð
snemma upp og kallaði til matar síns.
Húsfreyjan sagöi þaö ekki kristinna manna hátt
aó matast þann dag.
Hann svarar: „Marga hindurvitni hafið þér. Þótti
mér þá betri siður, er menn voru heiónir kallaöir, og
vil ég hafa mat minn, en cngar rcfjar“.
Húsfreyja mælti: „Víst veit ég, aö þér mun illa
farast í dag, ef þú tekur þetta illbrigði til“. Hún þorði
eigi annaó, en aö gera sem hann vildi, og cr hann
var mettur, gekk hann út og var heldur gustillur.
Leiö nú fram að dagsetri. Eigi kom Glámur hcim.
Þá var hríó á og niðamyrkur, svo hans varð eigið leitað.
50. A jóladag fóru menn í leitina og fundu féð
víða í fönnum. Því næst komu þeir á traðk mikinn
ofarlega í dalnum. Þótti þeim því líkt, sem þar hefði
glímt verið heldur stcrklega, því að grjótið var víða
upp leyst og svo jörðin. I>eir sáu, hvar Glámur lá skammt
í brott frá þeim. Hann var dauður og blár sem hel, cn
digur sem naut. Þeim hraus hugur við honum, en leit-
uðust þó vió að færa hann til kirkju og gátu ekki
komió honum nema á cinn gilsþröm þar skammt
frá. Fóru þeir heim við svo búið og sögðu bónda
þennan atburð.
51. Annan daga jóla var farið að leitast við enn
að færa Glám til kirkju. Váru eykir fyrir beittir og gátu
þeir hvergi fært hann, þegar sléttlendi var og eigi
forbrekkis aö fara. Gengu nú frá við svo búiö. Hinn
þriðja dag fór prestur með þcim og leituóu allan
daginn, og fannst Glámur eigi. Eigi vildi prestur oftar
til fara, en sauðamaður fíuinst, þegar prestur var eigi í
ferð. Létu þeir þá fyrir vinnast að færa hann til kirkju
og dysjuðu hann þar, sem þá var hann kominn.
52. Litlu síðar urðu menn varir við það, að
Glámur lá eigi kyrr. Varð mönnum að því mikið mein,
svo aó margir féllu í óvit, ef þeir sáu hann, en sumir
héldu eigi vitinu. Stukku þá margir menn í brott.
Því næst tók Glámur að ríða húsum um nætur, svo
að lá við brotum. Gekk hann þá nálega nætur og
daga. Varla þoróu mcnn að fara upp í dalinn, þó aó
ættu nóg erindi. Þótti mönnum þar í héraðinu mikið
mein að þessu.
Góð ferð Grósku á íslandsmót
íþróttafélagið Gróska í Skaga-
firði sendi 13 keppendur á Is-
landsmót íþróttasambands fatl-
aðra sem fram fór í íþróttahúsinu
í Kaplakrika í Hafnarfirði 12. -
14. mars sl. Þessi keppnisferð
Gróskufólks þótti ákaflega vel
heppnuð, árangurinn mjög góður
og mótið hið skemmtilegasta að
sögn Gróskufelaga sein voru mjög
ánægðir við hcimkomuna, og
ekki spillti ánægjunni að fjöldi
vcrðlauna vannst á mótinu.
Gróskulolk keppti eingöngu í
Boccia, sem er boltaíþrótt. Félagið
eignaðisteinn Islandsmeistara, Aðal-
heiði Báru Stcinsdóttur sem keppti
í svokölluðum Sérflokki, en þarer
notuð sérstök rcnna sem hjálp-
artæki vegna fötlunar. Þá hlaut
Jóhann Jónsson silfurverðlaun í U-
fiokki, ófatlaðra. I sveitakeppninni
vann A-sveit Grósku til silfur-
verðlauna í 3. deild, og í U-flokki
urðu sveitir Grósku í I. og 3. sæti.
Þátttaka í mótinu var mjög
kostnaðarsöm og sýndu fjórir ungir
félagar í Grósku frábæran dugnað cr
þeir söfnuðu í vikunni fyrir mótið
glerjum og dósum aó andvirði 30
þúsund króna. Þeir félagarnir:
Sveinn, Jóhann, Om og Rafn vilja
endilega koma á framfæri þakk-
læti til allra þeirra sem gáfu þeim
gler og dósir.og sérstakar þakkir
fær starfsfólk Abæjar sem var mjög
örlátt á glerin og dósimar. Þessir
strákar, sem allir eru ófatlaðir, taka
þátt í starfi Grósku af miklum áhuga
og dugnaði. Þá vilja fararstjórar og
stjómarmenn Grósku koma á fram-
færi sérstöku þakklæti til Jóns Sig-
urðssonar bílstjóra Suóurleiða sem
sýndi einstaka lipurð og velvilja
allt frá því að lagt var af stað á
föstudagsmogun og komið heim
á mánudag.
A fyrsta aðalfundi Grósku, sem
haldinn var sl. laugardag, var af-
hentur svokallaður Hvatningabikar,
viðurkenningarbikar sem Iþrótta-
samband fatlaðra gaf og veitist
þeim Gróskufélaga sem þótt hefur
sýna besta ástundun og framfarir
á árinu. Að þcssu sinni hlaut bik-
arinn Rökkvi Sitiurlaucsson. Fram
kom á fundinum að fyrsta starfsár
Grósku hefur verið talsvert blómlegt,
og áttu sér stað líflegar umræður
um starfið framundan á þeim þrem
tímum sem fundurinn stóð. Sjö
nýir félagar bættust í hópinn og
eru Gróskufélagar nú orónir um
50 talsins.
Það var vel mætt á glímukynningu hjá Knattspyrnufélaginu
Þrym nýlega, en um svipað leyti var glímuíþróttin einnig
kynnt í skólunum á Sauðárkróki og á Laugarbakka.
Forráðamenn GLÍ vilja þakka útbreiðslustarfið í skólum og
íþróttafélögunum þann rnikla áhuga sem skapast hefur
fyrir glímunni á seinni árum.
Glímumót grunnskóla
og Landsflokkaglíman
á Laugarbakka
Fyrsta meiriháttar íþrótta-
kcppnin fór fram í íþrótta-
liúsinu á Laugarbakka um helg-
ina. A laugardag fór frani
glímumót grunnskóla lands-
ins þar sem að mættir voru
118 keppendur til leiks, þar
af32 nemendur Laugarbakka-
skóla og sjö frá grunnskól-
unum á Sauðárkróki. A sunnu-
dag fór síðan fram sjálf Lands-
flokkaglínian og þar voru meðal
annarra mættir til leiks Qórir
glímumenn frá Knattspyrnu-
félaginu Þrym á Sauðárkróki,
en glímudeild félagsins hefur
staðið fyrir reglubundnum
glímuæfingum í vetur.
„Það var mjög ánægjulegt
að sjá góða þátttöku krakkanna
á Laugarbakka í mótinu, og mjög
góða frammistöðu þcirra miðað
við að þama voru nýliöar á fcrð.
Þá var ganian að sjá kcppcndur
frá Sauðárkróki og þcir stóðu
sig bara bærilcga, cn cins og
öðrum nýliðum háði rcynslu-
lcysið þcim nokkuð", sagði Jón
Ivarsson stjómarmaður Glímu-
sambands Islands í samtali við
Fcyki.
Þrír krakkar úr Laugarbakka-
skóla kræktu í bronsverðlaun í
sínum aldursflokkum. Perla Ósk
Kjartansdóttir í 8. bckk hrcppti sín
verðlaun eftir að hafa þurft að
kcppa um þau við tvær aðrar
stúlkur scm cinnig lcntu í þriðja
sæti. Aðrir bronsverðlaunahafar
Laugarbakkaskóla vom 10. bckk-
ingamir Edit Unnstcinsdóttir og
Þorvaldur Hjaltason. Af Sauð-
krækingunum sjö sem sóttu mót-
ið stóð Tinna Guðmundsdóttir
í 4. bckk sig best. Hún náði 4.
sætinu af 10 kcppcndum.
Kcppt var á þrem völlum
samtímis. Gckk hún fljótt og vel
fyrir sig og stóð á fimmta tíma
sinn hvom daginn. Það var glímu-
sambandið sem sá um skipu-
lagninu mótins og nutu þcir að-
stoðar heimamanna við fram-
kvæmdina. Skarphéðinsmcnn
og Þingeyingar vom sigursælastir
að þessu sinni. Þrymsmcnn kom-
ust þó á verðlaunapall í cinum
tlokki, rnínus 60 kílóa flokki þar
scm Oddbjöm Magnússon varð í
2. sæti og Þórir Sigurðsson í því
þriðja. I mínus 81 kílóa flokki
urðu Arni Friðriksson í 8. sæti
og Páll Friðriksson í því 9. Attu
þcir Ami og Páll við öfluga mót-
hcrja að etja og þóttu standa
sig vcl.
Stærsti liluti hópsins sem fór á íslandsmótið samankominn fyrir utan Svcinsbúð sl. laugardag.