Feykir


Feykir - 21.04.1993, Page 6

Feykir - 21.04.1993, Page 6
6FEYKIR 14/1993 hagyrðingaþáttur 139 Heilir og sælir lescndur góöir. í síö- asta þætti var skorað á Maríu Helgadótt- ur á Stóru - Ökrum í Blönduhlíð. Hún svarar á eftirfarandi hátt. Þakka traustið þetta vil þrautin skerpir andann. En Arna Bjarna ekki skii að etja mér í vandann. Stórskáldum á fidlri ferð fráleitt er í lafi, en hreppsstjóranum hlýda verð held það, enginn vafi. Jafnréttisins raunhœf rök, rétt ég tel að kanna. Að ég hafi á þeim tök, öðrum fel að sanna. Er ég falaðist eftir flciri vísuni hjá Maríu fékk ég eftirfarandi svar. Þó ég hafi af þessu gaman, þykir vanta ýmiss frœði, ekki fara alltaf saman auðveldlega magn og gœði. María skorar á Guðríði Helgadóttur í Austurhlíð A. - Hún. aó láta heyra frá sér í næsta þætti. Nokkuð mikið hefur gengió á nú að undanfömu í svokölluðum Hrafnsmál- um. Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd yrkir svo. Filnui óspart fram á vor fjölmiðlanna klíkur, svo að marki niikil spor myndin „Hrafninnfýkur“. Svo þegar næsti kafli var lcikinn í þessari kostulegu mynd, fæddist þessi hjá Rúnari. Hrafninn fauk en hafhaði hœrra í stiga valdsins. Dýr í verði dafnaði draugur afturhaldsins. I síðasta þætti óskaði ég cftir upplýs- ingum um vísur er þar birtust og ortar cru um Bárðarbás. Nokkrir höfðu sam- band við mig vegna þcssarar fyrirspum- ar og kunnu þcir allir tvær fyrri vísumar, en könnuðust ekki við þá þriðju. Bar þeim saman um að vísumar væm ortar um Bárð Sigurðsson er var smiður og Ijósmyndari og bjó um skeið á Höfða við Mývatn. Einnig vom þeir sammála um að frænka Bárðar Þura í Garði hcfði ort umræddar vísur. Var ég nokkuð hróðugur mcð þessar upplýsingar og taldi mig hcppinn að þær væm svo sam- hljóða. En Adam var ckki lengi í Paradís cins og stundum cr sagt. Nokkm síðar hringir til mín maður úr Reykjavík og koma nú upplýsingar sem ekki passa sem bcst við þær fyrri. Kvaðst hann hafa dvalið í Skagafirói um og eftir 1930 og vísumar þá verið kunnar þar og taldar eftir Þum. Síðar hefði hann starfað með manni, sem var sonur umrædds Bárðar. Kunni hann umræddar vísur og taldi þær vcra cftir Baldvin Stefánsson sem mun hafa verió Mývetningur. Næst gerist það aó ég fæ mann til að fara fyrir mig í Landsbókasafnið og leita að útgcfnum skáldskap cftir Þum. Mun hún hafa gcfið út tvö vísnakver og vom þau bæði til þar. Flett var í gcgn um þau og er vísur þessar hvcrgi þar að finna. Að þessum upplýsingum fengnum datt mér í hug að hringja í Þorgrím Starra Björgvinsson bónda í Garði í Mývatns- sveit. Kannaðist hann vel við vísumar, cn taldi reyndar eina hendingu í þeirri seinni öðmvísi en hún birtist í þættinum en þó með söntu meiningu. Segir Starri íyrri vísuna eftir Hjálmar Stefánsson bónda í Brekku en hann var bróðir Baldvins Stefánssonar sem áður cr nefndur. Seinni vísuna segir Starri ör- ugglega vera cftir Þum og er hún gerð nokkm síðar þegar þannig ástæður vom orðnar á heimili Bárðar og um getur í henni. Eins og oft áður kemur í ljós við slíka eftirgrennslan að erfitt getur verið að komast að hinu rétta. Ekki vil ég full- yrða neitt að svo stöddu í þessu máli, en tel þó miklar líkur á að svo aldraður maður cins og Starri og kunnugur stað- háttum þar sem umræddar vísur urðu til, fari þar með rétt mál. Þá fáum við næst að hcyra frá Jóni Gissurarsyni í Víðimýrarseli, cn hann yrkir svo fallega til stökunnar. Ama hrinda lífs á leið Ijúfir skyndi fitndir, þínar binda böl og neyð blíðar yndisstundir. Það cr Grímur Sigurðsson frá Jökulsá sem er höfundur þeirra næstu og mun hann þar trúlega vera að ávarpa forna vinkonu. Efað legg ég arm um þig upphefst liðin saga, eldurfer unt allan mig eins ogforðum daga. I þeirri blíðu sem ríkt hefur nú að undanförnu er því ckki að leyna að hvarflað hefur að ýmsum að nú væri al- veg að koma vor. Ein af þcim er María Hclgadóttir sem við hcyrðum frá í upp- liafi þáttarins. Fcr vcl á því að lcita til hennar með lokavísuna. Grœnka balar, gróa tún, gleðjast sprund og halir. Lifna blómin, lyftistbrún, lífi fyllast dalir. Veriði þar mcð sæl að sinni. Guómundur Valtýsson, Eiríksstöðum. 541 Blönduósi, sími 95-27154. Brot í brot Feykisbikarinn: Hvöt með fullt hús Þaö cr nokkuó góö vist í Ncðra á Króknum. Ekki vantar þaö að matur er mikill og góð- ur, hvcrnig svo sem Jón Bald- vin fer að því að lcggja á skatta til að borga hann. Jafnaðarstcfna er góð. Það er cins og ég hef margsagt, að Krókurinn cr löðrandi í Krat- isma. Og það er lleira gott hér cn maturinn. Hiti kemur hér upp úr jöröinni af sjálfu sér og til- efnislaust að því er virðist. 011 íbúðarhús hér og jafnvcl hest- hús líka eru hituö mcó þessu sístreymandi vatni ncðan úr jöróinni. Enginn veit hvc langt að neðan heita vatnið kemur og sumir tala um að þar fyrir neð- an muni vcra eldur. Um cldinn niðri vantar sannanir og allt tal um hann dæmist því vera skol eins og Marka - Leifi komst að orði. Aöur fyrr var ég löngum andvaralaus á lygnum sjó, en nú er það breytt. Nú er ég á ólgusjó og vcrö að þola ágjöf og sitt hvað lleira. Það cr brot í brot. Það er búið að banna mér aó skrifa mcó þcirri röksemd aó ég sé hundgamall og út úr heiminum. Þaó er rétt að ég er hundgamall, en hvort ég cr út úr heiminum get ég ekki dæmt um sjálfur, en ég hcld nú samt að ég sé ekkert vitlausari nú en ég hcf alltaf verió. Hverjir hafa bannað þér að skrifa var spurt? Það er stór- höfðinginn Pétur og hálfbróðir hans Páll. Eg hef vanið mig á að gcra það sem mér er bannað og ætla að skrifa fram í rauðan dauðann. Eg er nú búinn aó skrifa blaðagreinar í 49 ár. Sumar hafa verið prcntaðar og farið í prcssuna, aðrar ekki. Kristín af Snæfellsnesi hef- ur eiginleika á breiðu sviói. Stundum er hún broshýr og stundum skass. Hún sagði við mig í fyrradag, að ég væri svo ljótur aö cnginn kvenmaður vildi sofa hjá mér, sem hún laug. Slík fullyrðing fær ckki staðist. Eg er háður því lögmáli, sem veriö hefur í gildi síðan á dögum Adams og Evu. Það cr eldgömul hefó, að karl og kona hvíla hlió við hliö og snerta hvort annað og snertingin veitir þeim lífsfyllingu, sem ekki er hægt að lýsa með orðum. Þótt Kristín af Snæfcllsnesi sé stundum hrjúf í viðmóti hcf- ur hún ckki hlotið sálarskaða í uppvexti, en á því var mikil hætta þar sem hún ólst upp á Ncsinu að sunnan, en þar var vont fólk á fyrri tíö. Hcimurinn fer batnandi smátt og smátt, hægt og hægt. Nú er svo komið, aó á öllu heila Snæfellsnesi er gott fólk, við hvcrn vog og hverja vík og í dalskorum upp í fjöllum. Þcgar ég hef lokið ferð minni yfir ólgusjó mannlcgs líi's, vænti ég þess að mér auönist mjúk lcnding viö Borg- arsand eilífðarinnar áöur cn Dómsdagur kemur. Þcir segja fyrir sunnan að Dómsdagur sé alveg aö koma. 28. mars 1993. Björn Egilsson. Hvöt hefur sigrað í báðum leikjum sínum í Feykisbik- arnum. Hvatarmenn lögðu Neistann að velli á Blöndu- ósi sl. laugardag, með þremur mörkum gegn einu. Neisti og KS gerðu jafntefli, 2:2. í leik á Hofsósi um páskana. Hvöt var áberandi sterkari aðilinn í leiknum á Blönduósi og reyndi lítið á scrbncska markvörðinn, Goran Dujíikovich sem nýlega kom til liðsins. Hörður Guðbjörnsson skoraði tvö ntarka Hvatar og Hcnnann Arason citt. Kristján Jónsson Síðasti körfuboltaleikur þessa tímabils fer fram í Síkinu í kvöld. Leiða þá saman hesta sína lið Tindastóls skipuð leikmönnum 30 ára og eldri og yngri kynslóðarinnar. Með gömlu leikmönnunum leikur Valur Ingimundar- son og má segja að þetta sé kveðjuleikur Vals, í bili að minnsta kosti, þar sem að hann hefur verið ráðinn þjálfari hjá Njarðvíkingum. Yngra lióið verður að sjálf- sögðu skipað þeim leikmönnum Tindastóls scm stóðu í cld- línunni í úrvalsdcildinni á minnkaði muninn fyrir Neista á síðustu mínútum leiksins. Leikur Ncista og KS var mjög jafn. Siglfirðingum tókst tvívcgis að komast yfir en Neisti svaraði jafnharðan. Helgi Torfa- son og Hafþór Kolbeinsson skoruðu fyrir KS og Hasseda Miralcm og Kristján Jónsson fyrir Neista. Leik KS og Þryms sem vera átti á Siglufirði um helgina varð að fresta vcgna slæms ástands vallarins við Túngötuna. Gert er ráð fyrir að hann fari fram á föstudagskvöld eða sunnudag. liónum vetri. Auk Vals verða í liói gamlingjanna ýmiss kunn nöfn úr körfuboltanum, svo scm Kári Marísson, Birgir Rafnsson og Rúnar Bjömsson, sem allir eiga að baki marga meistaraflokksleiki með Tinda- stóli í körfuboltanum. 1. maí n.k. verða síðan upp- skcruhátíðir Tindastóls, bæði í fullorðins og yngri flokkum, en árangur vctrarins vcrður að teljast harla góður, sérstak- lega í yngri flokkum þar sem að flestir flokkar komust í úrslit og þrír titlar unnust. Foreldrar eru hvattir til að mæta. Afmæli! Sjötugur veróur á morgun, 22. apríl, Haraldur Hermannsson frá Ysta - Mói. Hann tekur á móti gestum aó heimili sínu Barmahlíð 9 Sauóárkróki á afmælisdaginn. Kveðjuleikur Vals

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.