Feykir - 24.11.1993, Blaðsíða 2
2 FEYKIR 41/1993
Kemur út á mióvikudögum vikulega. Útgefandi
Feykir hf. Skrifstofa: Aðalgata 2, Sauöárkróki.
Póstfang: Pósthólf 4, 550 Sauóárkróki. Símar:
95-35757 og 95-36703. Myndsími 95-36703.
Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson. Fréttaritarar:
Magnús Olafsson Austur - Húnavatnssýslu og
Eggert Antonsson Vestur - Húnavatnssýslu.
Blaóstjóm: Jón F. Hjartarson, Guóbrandur Þ.
Guðbrandsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður
Ágústsson og Stefán Ámason. Áskriftarverð
137 krónur hvert tölublaó með viróisaukask..
Lausasöluverð: 150 krónur meó virðisaukask.
Setning og umbrot: Feykir. Prentun: Sást hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs-
fréttablaða.
„Hakkavélakaup ekki
vegna svartrar sölu"
segir Þórey húsfreyja í Keflavík
„Saindrátturinn og tekjumissir-
inn honum samfara, gerir það
að verkum að sveitafólki er
beinlínis nauðsynlegt að nýta
sína framleiðslu sem best og
vera sjálfu sér nægt um marga
hluti. I*að tíðkast t.d. að heimili
eigi saman stórar hakkavélar
og útbúi sínar kjötvörur sjálf.
I»etta er ekkert nema sjálfsagð-
ur hlutur og við höfum hingað
til ekki haft stórar áhyggjur af
því að verða stimplaðir stóraf-
brotamenn, en manni sýnist
vera farið að styttast í að það
verði gert“, sagði Þórey Jóns-
dóttir húsfreyja í Keflavík en
henni blöskar harðar ásakanir í
garð bænda um heimaslátrun
og svartamarkaðssölu undan-
farið.
Þórey segir að það tíðkist
einnig að kvenfélög kaupi tæki til
matvælagcrðar og slík tækjakaup
tengist á engan hátt svartamark-
aðssölu. Þetta sé bara viðleitni hjá
fólki að sinna sjálfsþurftarbú-
skapnum, sem gerist nú æ nauð-
synlegri við aukinn samdrátt í
framleiðslunni. „Ég er hræddur
um að mörg húsmóðurin yrði fljót
að bræða úr litlu hakkavélinni
sem fylgir hrærivélinni, með því
að hakka kjöt í henni. Síðan á fólk
saman hamborgarapressu og fleiri
tæki. Þetta munar ákaflega miklu
að geta sparað svona varóandi
matarinnkaup.
Ég hef ekki trú á því að ncinn
bóndi sem ætlar sér að lifa af bú-
skapnum og hefur sitt búmark, sé
að standa í þessu svartamarkaðs-
braski. Hagsmunimir sem í húfi
eru bjóða ekki upp á slíkt, og því
held ég að fregnimar af svarta
markaðs sölunni séu stórlega ýkt-
af', segir Þórey Jónsdóttir í Kefla-
vík.
Almanak Þroskahjálpar!
Sjálfboöalióa vantar til að selja
happdræddisalmanak Þroskahjálpar.
Hafió samband viö Þórhall á Feyki í síma
35757 í vinnunni eóa 35729 heima.
Hefuröu gaman
að körfubolta?
Hef til sölu tölvuleiki og fjölskylduþrautir.
Hafió samband viö Finn í síma 95-35578
frákl. 17,00-19,00.
Nýjar verslanir við Aðalgötuna
Stöðugar breytingar hafa átt
sér stað í versiunarrýmum við
Aðalgötuna á Sauðárkróki síð-
ustu mánuðina. Ný starfsemi
hefiir hafist í nokkrum versl-
unarhúsum við götuna eða nýir
húsbændur tekið við stjórn.
Þannig komu nokkur ný fyrir-
tæki að Aðalgötu 20 þar sem
Hreinn Sigurðsson var áður til
húsa: Verslunin ísold flutti um
set nýlega þangað sem Sauðár-
króksapótek var áður, Stefán
úrsmiður er fluttur þangað sem
ísold var áður, að Aðalgötu 3,
nýr rekstraraðili tók við fata-
versluninni Sýn á liðnu sumri
og þannig mætti áfram telja.
Og þessir nýju atvinnurek-
endur em ekki bangnir og bjóða
þeirri þjónustu sem fyrir er á
staðnum byrginn. Svo mætti að
Jenný Ragnardóttir í Aðalblómi ásamt aðstoðarmanneskju
sinni, Brynhildi Sigtryggsdóttur.
minnsta kosti ætla með Jenný
Ragnarsdóttur sem nýlega opnaði
blómabúð að Aðalgötu 20, Aðal-
blóm hf. Er það önnur blómabúðin
í bænum, fyrir er Blóma- og gjafa-
búðin.
Jenný segist samt ekki vera í
beinni samkeppni við þá verslun.
, J»etta em ólíkar vömr sem versl-
animar em með. Ég er með potta-
blóm, afskorin blóm, þurrskreyt-
ingar og lifandi skreytingar, og
svo jóla- og aðventuskreytingar
núna. Einnig sel ég ýmsa gjafa-
vöm, t.d. frá Tékk-kristal, Dux og
Gegnum glerið".
Jenný lagði stund á blóma-
skreytingar meðan hún bjó í
Reykjavík í nokkur ár. Hún segir
að sig hafi ekki langað til að opna
blómabúð í Reykjavík, í allri
Anna Sigríður Stefánsdóttir
í Tískuhúsinu.
þcirri mergð blómabúða sem þar
em. „Ég var ákveóin í að koma á
fót verslun þegar ég fiytti aftur
norður. Ég get ekki sagt íinnað en
okkur hafa verið tekið vel. Ég
held þaó hafi líka sýnt sig nú
þegar að tvær blómaverslanir geti
dafnað hér í bænum", sagði Jenný.
Margur hefði haldið að nóg
væri af fataverslunum í bænum.
Anna Sigríður Stefánsdóttir var
þó á öðm máli þegar hún opnaði
verslunina Tískuhúsið í sumar.
„Ég legg höfuðáherslu á
tískufatnað fyrir ungt fólk og er
því mcð klæðnað talsvert frá-
bmgðnum þeim sem hinar versl-
animar em meó. Þetta hefúr farið
ágætlega af stað, miklu bctur en
ég þorði að vona. Þetta er gamall
draumur að rætast hjá mérí', sagói
Anna Sigríður.
Fleiri nýjum fyrirtækjum vió
Aðalgötuna verður geiö skil síóar.
Kannast þú við gamla vísu?
Ágæti lcsandi!
Ég stunda nám í þjóðfræði
við Háskóla Islands, og er m.a.
að rannsaka sögu vísu einnar,
sem ég lærði ungur. Ef þú
kannast við hana og telur þig
vita eitthvað um hana, þætti
mér vænt um að þú skrifaðir
mér, þar sem fram kæmi allt
sem þú veist, eins og t.d. nafn
höfundar (og helst eitthvað
meir um hann), aðdraganda að
gerð vísunnar, hvenær hún er
samin, og hvernig hún er
„rétt". Vinsamlegast láttu þess
cinnig getið hvar þú sást þessa
fyrirspum mína, því hún er birt
í fleiri blöðum um landið. Ég
lærói vísuna svona:
Djöfull er hann drullugur.
Duglega þarfað skaf 'ann.
Ljótur bæði’ og lélegur,
líkur þeim sem gafann.
Með fyrirfram þökk.
Sigurður Ægisson box 146
8770 Træna, Norge
Frá Bridsfélagi
Sauðárkróks
Úrslit í hjóna- og parabrids-
keppni urðu þessi. Mótið fór
fram á tveim kvöldum og lauk
því í fyirakvöld.
1. Ágústa Jónsdóttir og
Kristján Blöndal 264 stig.
2. Sigrún Angantýsdóttir
og Sigurgeir Angantýsson
247 stig.
3. Erla Guðjónsdóttir og
Haukur Haraldsson 237 stig.
Faxnúmer
Feykiser 36703
Ibúð til leigu!
Tveggja herbergja íbúó á Sauöárkróki til leigu
strax. Upplýsingar í síma 35381 eftir kl. 17,00.
Munið áskriftargjöldin!
Þeim sem einhverra hluta vegna hefur láðst aö greiða
áskriftargjaldió og eiga í fórum sínum gamla ógreidda
gíróseðla, em beónir aó greióa hió allra fyrsta. Þeim sem
glatað hafa gíróseðli skal bent á aö hægt er aö millifæra
áskriftargjaldió á reikning Feykis nr. 8029 í útibúi
Búnaðarbankans á Sauðárkróki.