Feykir


Feykir - 24.11.1993, Page 5

Feykir - 24.11.1993, Page 5
41/1993 FEYKIR5 Björn á Mælifellsá Margir bæöi innan héraðs og utan kannast við þetta nafn, Bjöm á Mælifellsá. Hvað veldur? Þaó er margt sem veldur því, en þó einkum það, að þessi maður er ljúfur í lund og gestrisinn. Hann á alltaf tóbak og vín handa gestum, en brúkar það ekki sjálf- ur. Hann er ekki fæddur í gær heldur 7. desember 1903 og verður 90 ára innan tíðar. Hann er léttur í spori og gengur mig af sér á götunni. Hann á líka að vera á undan því hann er tveimur ámm eldri en ég. „Við Bjöm og ég“ eigum margt sameiginlegt. Við eigum sama hrepp og Hofsjökul í suðri og við eigum hin rismiklu fjöll og Mælifellshnjúk, vegna þess að við horfum á þau dags daglega. Lýður sem ekki nennir að tala, hefur gert okkur þann miska að nefna hreppinn oldcar Lýdó, sem er ónafn úr Reykjavík. Nú emm við Bjöm á Mælifellsá nágrannar höfum sitt herbergió, hvor við sama gang á neðstu hæð í Elli- heimilinu á Sauðárkróki og höf- um alltaf verið vinir. Bjöm á Mælifellsá fæddist á Breið 1903 eins og áður er ritað. Foreldrar hans vom Hjálmar Pét- ursson og kona hans Rósa Bjömsdóttir. Þau bjuggu á Bneið M 1901 til þess er Hjálmar and- aðist. Hann dó 30. desember 1907. Þegar Hjálmar féll fra áttu þau Rósa átta böm og það elsta 12 ára. Rósa bjó á Breið til 1911. Yngstu bömin hafði Rósa með sér næstu árin en þau eldri fóm í ýmsar áttir á góð heimili. Ég veit lítið um Hjálmar á Breið nema faðir minn og hann vom góóir vinir. Ég veit það líka að þegar ég fæddist á Sveinsstöðum sótti Hjálmar á Breið Sigurð lækni Pálsson út á Sauðárkrók og reið hart. Það var ekki í næsta hús að venda því þessi leið er 100 km til og frá. Hjálmar var naíhkenndur hestamaður og átti góða reið- hesta. Ljósmynd var ekki til af Hjálmari á Breið og leiði hans er týnt í Goðdalagarði. Þannig hverfa menn í straumi tímans. Rósa Bjömsdóttir varð há- öldmð. Þegar hún var áttræð var henni gerð góð veisla. Hún var þá á Hömrum hjá Efemíu dóttur sinni. Ég var í veislu þessari og flutti stutt ávarp. Þegar ég kvaddi Rósu sagði hún: Það var gott þú komst. Rósa var myndarkona, hlý í viðmóti og skipti ekki skapi. Þegar Bjöm Hjálmarsson var sex ára fluttist hann frá Breið að Ytri-Svartárdal tíl móðurbróður síns Ofeigs Bjömssonar bónda þar og var hjá honum fram yfir fermingu. Alllöngu síðar var Bjöm bóndi á Mælifellsá, víst ein 30 ár, og við þann bæ kenndur síðan. Hann var í röð betri bænda, en stóð ekki einn að því. Kona hans var Þorbjörg Olafs- dóttir ffá Svaðastöðum, mikil bú- sýslukona og vel gefin. Fyrir skömmu kom ég inn í SP /f títlb^ 6RDK1D oms w> '**mít.stWe utr *?.»•?» 'V „Gras af helgri grund“. Páll Ragnarsson tannlæknir hefur komið fyrir í afgreiðslu sinni, stráunum af Old Trafford, sem félagar hans í MILL-JÓN slitu upp 30. október sl. skólana í borginni og rekur félags- miðstöðvar og álíka tómstunda- starfsemi fyrir unglinga. För eiginkvenna giskaranna til Manchester hefúr haft í för með sér viðhorfsbreytingu hjá þeim gagnvart knattspymu og fót- boltaglápi á laugardögum. Vænt- anlega verða þær fastagestir á vell- inum næsta sumar, þótt knatt- spyman þar verði ekki í eins háum gæðaflokki og á Old Trafford. herbergi til nafna míns og sá enga bók hjá honum. Ég spurði hvort hann ætti ekki bækur. Hann svaraði: Ég er búinn að senda mitt dót fram að Mæli- fellsá og þar á það að grafast. A fyrri tíð átti ég talsvert af bókum, en las þær ekki, svo við Bjöm á Mælifellsá stöndum jafht að vígi, vitum svo að segja eldcert um menningu Vesturlanda. Þó vitum vió um Róm og Reykja- vík. Ég held það geri okkur ekkert tíl. Við emm eins og „Ekkjan við ána“. „Hún elskaði ekki landið aðeins þennan blett“. Okkar blettur er góður. Það er Krókurinn, Mekka norðursins. Krókurinn er höfuðstaður Skaga- fjarðarhéraðs. Héraðið á merki- lega sögu. Þar hafa verið nafn- kenndir menn einn og einn allt frá dögum Grettís. Bjöm á Mælifellsá hefur ýmsa yfirburði yfir mig. Hann er sigldur, hefur komið til Kaup- mannahafnar og séð konungs- höllina þar. Ég hef aldrei farið út yfirStórasjó og fer ekki. Ég veit ekki tíl að Bjöm á Mælifellsá hafi nokkum tíma skipt skapi en ég er ofsabráður að eðlisfari. Það hefur að vísu held- ur lagast eftir því sem þrekið minnkar. Það þarf þrek til að reiðast. Ég er handviss um að við Bjöm á Mælifellsá verðum ná- grannar og vinir í næstu jarðvist eftir svo sem 800 ár. Vináttubönd duga stundum lengi. Það skiptir ekki máli, hvort við verðum í Suður-Ameríku eða Kína og ekki heldur hvort við verðum rauðir eða gulir. Hvítí kynstofninn hef- ur ekki alltaf verið til fyrirmyndar. Skrifað 14. nóv. 1993 Bjöm Egilsson.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.