Feykir - 11.01.1995, Side 2
2FEYKIR 2/1995
Skip Skagfirðings
seldu fyrir 105 millj.
Fjögur skip Skagfirðings
hafa í upphafi árs selt afla
sinn á erlendum mörkuðum
fyrir alls 105 milljónir. Skipin
hafa gert góðar sölur, sér-
staklega þau sem seldu fyrst
á árinu, en verðin eru að
dumpa þessa dagana. Þannig
var meðalverðið sem Hegra-
nesið fékk í Bremerhafen í
morgun tæpum 30 krónum
lægra en Skagfirðingur fékk
á mánudag.
Hegranes seldi 144 tonn af
karfa fyrir 23,5 milljónir og var
meðalverðið 163 krónur. Á
mánudag seldi Skagfirðingur í
Bremerhafen 145 tonn af karfa
fyrir 28 milljónir eða 192,70
króna meðalverð. Sama dag
seldi Drangey bolfisk í Hull,
120 tonn fyrir 22 milljónir,
meðalverð var 183 krónur. Um
miðja síðustu viku seldi Skafti
fyrstur skagfirsku skipanna,
160 tonn af bolfiski í Hull fyrir
30,9 milljónir eða 192,70 króna
meðalverö.
„Við erum ákaflega ánægðir
og ég held að það séu allir sem
tóku þátt í þessu ævintýri, að
minnsta kosti þeir sem ég hef
heyrt í. Þetta er gífurleg búbót
fyrir okkur og fyrir sjómennina
sem vonandi fá þama sann-
gjöm laun erfiöis síns“, sagði
Gísli Svan Einarsson útgerðar-
stjóri Skagfirðings.
Þess má geta að í þau ár sem
skip Skagfirðings hafa verið á
veiðum yfir hátíðar hefur verið
leitast við að gefa þeim skip-
verjum frí sem þess hafa óskað.
Enginn veit hvað átt
hefur fyrr en misst hefur
Vetur í Gamla bœnum.
Allaballar
á Sigló
tvöfalda
Síðari hlutí forvals hjá Alþýðu-
bandalagsmönnum í kjör-
dæminu fer fram nk. laugar-
dag. Þar er baráttan talin standa
um annað sæti listans milli
Sigurðar Hlöðverssonar á
Siglufirði og Önnu Kristínar
Gunnardóttur á Sauðárkróki.
Sigurður haíði nauman sigur í
fyrri hluta forvalsins.
Siglfirðingar leggja mikla
áherslu á að ná öðru sætinu og
það er því líklega engin tilviljun,
að undanfarið hefur félögum í
Alþýðubandalagsfélaginu þar
fjölgað um helming, úr rúmum
50 í rúmt 100. Á sama tíma hefúr
félögum í Sauóárkróksfélaginu
fjölgað um átta, í rúmt sextíu.
Fjölgunin í Siglufjarðarfélaginu
gerir það að verkum að nú ráða
Siglfiröingar yfir tæpum helm-
ing atkvæða, en aðeins flokks-
bundnir mega kjósa.
FISK kaupir meirihlutann í HG
Nú stendur fyrir dymm enn
eitt prófkjörið á Noröurlandi
vestra. Hvað þaö skilur eftir sig
er erfitt að sjá. En víst er að það
verða sárindi og ekki verða allir
sáttir. Við munum hvemig Vil-
hjálmi mínum var hafnað og
hræddur er ég að þeim þing-
manni sem hvað mest hefur
unnið fyrir kjördæmi sitt verði
hafnað um næstu helgi. Við
Stefán höfum ekki alltaf verið
sammála og verðum sjálfsagt
aldrei en hitt veit ég aó allt það
sem Stefán hefur gert fyrir kjör-
dæmið er ekki lítið og kósendur
hvar sem í flokki sem þeir em
ættu að meta það mikils að hafa
þingmann sem Stefán.
Það gæti reynst okkur dýr-
keypt ef Stefán kæmist ekki á
þing því við skulum gera okkur
grein fyrir því að stefnt er að
því að fækka þingmönnum
þessa lands. Það er gott að búa
á Norðurlandi vestra og Stefán
Guðmundsson á stóran þátt í
því. Hann hefur haldið tengsl-
um við okkur og veit hvað er
að gerast hjá okkur. Aðrir þing-
menn okkar hafa allir flúið til
höfuðborgarinnar og koma
hingað þegar þeim hentar, sér-
staklega þegar mikið stendur
til, t.d. kosningar. Það minnsta
sem við kjósendur getum gert
er að fjölmenna á kjörstað og
kjósa Stefán Guðmundsson í
fyrsta sæti. Hann hefur of lengi
verió í skugga Páls Péturssonar.
Stefán Guðmundsson hefur
óskað eftir því að fá að leiða
lista framsóknarmanna í kjör-
dæminu. Stefán er vel að því
kominn og hefur sannað sig
betur en aðrir þingmenn okkar
að hann er sá þingmaður sem
kjósendur geta treyst á.
En því miður veit ég að
margir, og þar fremstir í fokki
bændur í Skagafirði, hafa und-
anfarið unnið að því fullum fet-
um aó halda Stefáni í öðm sæti.
Þeir vilja frekar atkvæði sitt til
Reykjavíkur en að treysta á
Stefán sem þó hefur hvað
manna mest unnið fyrir og með
sínu fólki. Þetta er nú þakklæt-
ið. Þakklæti heimamanna ef
svo mætti segja.
Hvað emö þið að hugsa? Ég
hef ekki stutt Framsóknarflokk-
in í kosningum og mun ekki
gera, en Stefán Guðmundsson
mun ég styðja af fullum krafti
því ég hef gert mér grein fyrir
því hvað það þýðir fyrir okkur
að geta ckki leitað til hans.
Vöknum af Þymirósarsvelni
og kjósum Stefán í fyrsta sætið.
Þökkum honum fyrir þau verk
sem hann hefur unnið. Ég
treysti engum betur til að vera í
forsvari fyrir kjördæmið mitt.
Kjósandi.
Fiskiðjan keypti í gær hluta-
bréf þróunarsjóðs í Hraðfrystí-
húsi Grundarfjarðar, og á
Fiskiðjan nú orðið meirihlut-
ann í HG. Fyrir áttí Fiskiðjan
33% hlutaQár og bréf Þróun-
arsjóðs eru 23% af hlutafé í
HG, nafhverð bréfanna og það
verð sem Fiskiðjan keypti
bréfin á er 53,5 milljónir. Ein-
ar Svansson framkvæmda-
stjóri Fiskiðjunnar segir þessi
kaup lið í að styrkja fyrirtækið
í þeirri harðnandi samkeppni
sem framundan er í fisk-
vinnslu og útgerð.
Hraðfrystihús Gmndafjarðar
ræður yfir 9000 þorskígildis-
tonna kvóta, og Einar segir að
þarna sé kominn kvótapottur
sem fyrirtækin sameiginlega eigi
aó geta staðið sig með í harðn-
andi samkeppni á næstu ámm.
HG rekur stórt frystihús þar sem
mikið er lagt upp úr karfa-
vinnslu, og einnig er í tengslum
við ffystihúsið starfrækt skelfisk-
og rækjuvinnsla, og beinaverk-
smiðja er einnig starfrækt hjá
fyrirtækinu. HG á tvo togara
Klakk og Drang og til stendur að
lögð verði aukin áhersla á út-
hafskarfaveiðar.
Aóspurður sagði Einar að á
þeim tveim ámm sem liðin em
ffá því Fiskiójan keypti hlut í HG
hafi átti sér stað talsverð miðlun
á hráefhi milli fyrirtækjanna. Til
dæmis hefur beinum verði ekið
vestur frá vinnslunum í Skaga-
firói frá því beinaverksmiðjan á
Króknum var lögð niður fyrir ári.
Hingað hafa aftur á móti verið
fluttir þoskhausar til þurrkunar,
um 800 tonn á síðasta ári.
Fiskiðjan og Skagfirðingur
hafa staðið í gífúrlegum fjárfest-
ingum síðustu misseri og ár. Ein-
Vegna hríðar og dimmviðris
varð fjöldi fólks að snúa við á
leið sinni til Þrettándagleði
Karlakórsins Heimis sem
ffarn fór í Miðgarði sl. laug-
ardag. Vegna þessa hafa
Heimismenn ákveðið að end-
urtaka söngskemmtunina nk.
föstudag og mun Omar
Ragnarsson einnig mæta,
sem og Hjálmar Jónsson, en
Omar ljóðaði mikið á Hjálm-
ar á söngskemmtuninni sl.
Iaugardag. Nú ætlar sóknar-
presturinn og frambjóðand-
inn að svara fyrir sig.
„Það var gjörsamlega fullt
hús hjá okkur á skemmtuninni,
þannig að vió hefðum oróið að
vísa frá fjölda fólks ef veðrið
ar Svansson framkvæmdastjóri
segir að það sé fjarri lagi aó
menn séu að taka einhverja óþarla
áhættu sem geti kollsteypt öllum
rekstrinum, heldur komi þessar
fjárfestingar til með að styrkja og
efla rekstur fyrirtækjanna á
næstu árum, enda hafi ákvarðan-
ir verðið teknar að vel yfirlögðu
ráói.
hefði ekki verið svona", sagði
Þorvaldur G. Óskarsson stjóm-
arformaður Heimis. Allur ágóði
aö söngskemmtuninni nk. laug-
ardag mun renna til greiðslu á
nýja flyglinum sem félags-
heimilið Miðgarður festi kaup á
nýlega og nýtast mun í tónlist-
arstarfi í héraðinu um ókomna
áratugi og aldir.
Söngur Heimis sl. laugardag
fékk feykigóðar viðtökur sem
og skemmtiatriðin. Söng-
skemmtunin nk. föstudag mun
hefjast kl. 21 og er vonandi að
betur viðri þá en sl. laugardags-
kvöld, því að sjálfsögðu verður
skemmtuninni aflýst, ef veður
og ófærð torveldar fólki að
komast á samkomustað.
Heimismenn ætla að
endurtaka sönginn
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi
Feykir hf. Skrifstofa Aðalgötu 2, Sauðárkróki.
Póstfang: Pósthólf 4, 550 Sauðárkróki. Sími
95-35757. Myndsími 95-36703. Ritstjóri Þór-
hallur Ásmundsson. Fréttaritarar: Magnús
Olafsson A.-Hún. og Eggert Antonsson V.-Hún.
Blaðstjóm: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ.
Guðbrandsson, Sæmundur Hermannson,
Sigurður Ágústsson og Stefán Árnason.
Áskriftarverð 137 krónur hvert tölublað
m/vsk. Lausasöluverð 150 kr. m/vsk. Setning
og umbrot Feykir. Prentun Sást hf. Feykir á
aðild að Samtökum bæja- og héraðsfrétta-
blaða.