Feykir - 11.01.1995, Blaðsíða 8
11. janúar 1995,2. tölublað 15. árgangur.
AMSlýsing í Feyki fer vícAa!
gbigib
Það komast allir í Gengið
unglingaklúbb Landsbankans
Sláðu til og komdu í Gengið
1 Pottþéttur klúbbur!
iW Landsbanki
Sími 35300 Mk ís,ands
MLJk Banki allra landsmanna
Mikil hátíð var á Hvammstanga
sl. laugardag þegar haldið var
upp á 75 ára afmæli sjúkrahúss-
ins á staðnum. Um leið var því
fagnað að nýlega var lokið við
gagngerar endurbætur og
breytingar á húsnæði stofnun-
arinnar. Fjöldi fólks var saman-
komið til að taka þátt í sam-
komu á sjúkrahúsinu af þessu
tilefni.
Húsið var formlega tekið í
notkun aö nýju á þessum tímamót-
um og flutt blessun af þeim séra
Guðna Þór Olafssyni prófasti og
séra Kristjáni Bjömssyni sóknar-
presti. Segja má að sjúkrahúsið
hafi verið endurbyggt írá grunni.
Það væsir því ekki um eldri íbúa II,uti samkomugesta er frignuðu 75 ára afmæli sjúkrahússins og
héraðsins sem búa á dvalarheimil- Því að nýtt °8 endurbætt húsnæði stofnunarinnar var tekið
inu sem einnig er til húsa í stofh- formlega í notkun
Hátíð á sjúkrahúsinu á Hvammstanga:
Nýju og endurbættu húsnæði
og 75 ára afmæli fagnað
uninni né sjúklinga, sem þangað
þurfa að koma til lengri og
skemmri dvalar. Framkvæmdim-
ar hafa kostað 39 milljónir.
Einnig eru hafhar framkvæmd-
ir við stækkun þjónusturýmis við
sjúkrahúsið sem mun gjörbreyta
allri vinnuaðstöðu starfsfólks á
staðnum. Þar verður eldhús, búr,
borðsalur, kapella, líkhús, sjúkra-
lyfta og búningsaðstaða fyrir
starfsfólk. Fullbúið mun sjúkra-
húsið vera með 35 sjúkrarúmum.
Að sjúkrahúsinu standa öll
sveitarfélög í V.-Hún. auk Bæja-
hrepps í Strandasýslu. Fyrir hönd
heilbrigðisráðherra mætti á stað-
inn Sigfús Jónsson aðstoðarmaður
hans og frá landlæknisembættinu
kom Matthías Halldórsson aðstoð-
arlandlæknir, sem var læknir á
Hvammstanga í allmörg ár.
Einnig mættu á staðinn alþingis-
mennimir Páll Pétursson og Stef-
án Guðmundsson.
Mikill fjöldi gjafa barst sjúkra-
húsinu í tilefhi afmælisins frá ein-
staklingum, félagasamtökum og
fyrirtækjum. í stjóm sjúkrahússins
eiga sæti: Heimir Agústsson, Egill
Gunnlaugsson og Guöni Þór
Olafsson skipaðir af héraðsnefhd,
Guðrún Benónýsdóttir frá starfs-
mönnum og Oddur Sigurðsson
skipaður af ráðherra, en hann er
jafhffamt formaður. EA.
Kvennalistinn boðar
til opins fundar
„Það er öruggt að við bjóðum
fram og það er sóknarhugur í
okkur. Við höfum ákveðið að
blása tíl opins kvennafundar í
næstu viku og þá verður
ákveðið hvernig framboðs-
málunum verður hagað, en
listinn er ekki tilbúinn“, sagði
Anna Dóra Antonsdóttir
kennari frá Frostastöðum,
þegar hún var ynnt eftir
framboðsmálum Kvennalist-
ans hér í kjördæminu.
Anna Dóra sagði að greini-
legur sóknarhugur væri meðal
kvennalistakvenna í kjördæm-
inu og ekki veitti af, þar sem
nær útséð væri að konur yrðu
ekki í öruggum sætum á fram-
boðslistum flokkanna fyrir
þingkosningamar. Það væri því
kominn tími til þess að Kvenna-
listinn kæmi inn manni hér í
kjördæminu. Fyrir síðustu þing-
kosningar skipaði Guðrún L.
Ásgeirsdóttir prestsfrú á Prest-
bakka efsta sæti listans í kjör-
dæminu.
TM tryggingar
þegar mest á reynir
Söluumboð á Sauðárkróki:
Bókabúð Brynjars, sími 35950.
Ekki velkst í vafa
um hver huldu-
maðurinn sé
Það er uppi í hverjum kjafti í
Húnaþingi að „frammari“ sá
sem auglýst hefur grimmt í
sjónvarpsdagskrárbiaðinu
Glugganum á Blönduósi að
undanförnu, sé Valdimar Guð-
mannsson í Bakkakoti. Fólk
virðist í svo mikilli vissu hver
þessi huldumaður er að útgef-
endur Gluggans hafa algjörlega
sloppið við spurningar forvit-
inna héraðsbúa. ,,I»að er eins og
alfir viti hver þetta er, en við
munum aldrei gefa það upp“,
sagði Unnar Agnarsson annar
útgefanda Gluggans. Valdimar
hvorki játar því né neitar að
hann sé „ffammarinn“, og seg-
ir þetta saklaust, fyrr hafi ver-
ið auglýst í blöðum fyrir kosn-
ingar.
I síðasta Glugga eru tvær aug-
lýsingar, á annarri er haldið áfram
að fylla út prófkjörseðilinn og
bætt þar við tveim nöfnum. Enn
vantar nafh Páls Péturssonar á
listann og einnig Sverris Sveins-
sonar á Siglufirði, en Valdimar í
Bakkakoti er einmitt sagður hafa
verið einn helsti hvatamaður þess
að Elín Líndal var færð upp í
þriðja sæti listans á sínum tíma á
kostnað Sverris. Uppröðun
„frammarans" fyrir fyrstu fjögur
sætin lítur sem fyrr út þannig að
Stefán er efstur, þá Elín, Magnús
Jónsson á Skagaströnd og Herdís
Sæmundardóttir á Sauðárkróki.
Því næst kemur Valur Gunnars-
son á Hvammstanga í fimmta
sætinu og Gunnar Bragi Sveins-
son á Sauðárkróki í því sjötta.
I hinni auglýsingunni er
krossapróf, þar sem spurt er hvar
Páll Pétursson hafi verið staddur
þegar talning fór fram í síðustu
þingkosningum, en þá hafi verið
Trygginga-
miðstöðin hf.
Telja má fullvíst að Valdimar
í Bakkakoti sé ekki talinn til
dýrlinga í herbúðum stuðn-
ingsmanna Páls Péturssonar.
mikil stemmning fyrirútslitunum
í A.-Hún. Var Magnús meðal
stuðningsmanna sinna þar, eða
meðal framsóknarfólks í Reykja-
vík, er spurt í krossaprófinu og
sagt að svar muni birtast í næsta
Glugga. I sama blaði mun
„frammarinn“ væntanlega loka
kjörseðlinum og það kæmi ekki á
óvart að Páll á Höllustöðum yrói
þar neðstur á blaði.
Stuðningsmenn Páls Péturs-
sonar á Blönduósi og nágrenni
telja að þessar auglýsingar hafi
fremur þjappað fólki um Pál ffek-
ar en hitt og vom glaðhlakkalegir
yfir því að við álfabrennu sem
ungmennafélagið Vorboóinn
gekkst fyrir á þrettándanum, að
þar lýsti talverður hópur yfir
stuðningi við Pál, en álfabrennan
fór einmitt fram í landareign
Valla í Bakkakoti.
Oddvitinn
Kötturinn á Bakka(koti)
er til alls vís.