Feykir - 15.02.1995, Page 3
6/1995 FEYKIR 3
Allaballar birta
framboðslistann
Kjördæmisráð Alþýðubanda-
lagsins á Norðurlandi vestra
samþykkti á fundi sínum sl.
sunnudag framboðslista AI-
þýðubandalagsins og óháðra,
eins og framboð flokksins heit-
ir á landsvísu, í kjördæminu
við alþingiskosningarnar 8.
aprO nk. Ragnar Arnalds skip-
ar sem fyrr efsta sæti listans,
Sigurður Hlöðversson tækni-
fræðingur á Siglufirði er í öðru
sæti og Anna Kristín Gunn-
arsdóttir bæjarfulltrúi og
skipulagsstjóri á Sauðárkróki
er í þriðja sætinu.
Sem kunnugt er var haldið
forval hjá Alþýðubandalaginu í
síðasta mánuði. Fyrir forvalið
hafði félögum í Alþýðubanda-
lagsfélagi Siglufjarðar fjölgað
mjög og varð það til þess að Sig-
urður Hlöðversson komast upp í
annað sætið. Anna hefur engu aö
síður ákveðið að taka þriðja sæt-
ið og gerði ekki veóur út af hlut-
unum á fundi kjördæmisráðsins
umhelgina.
í fjórða sæti framboóslistans
verður Valgerður Jakopsdóttir
kennari á Hvammstanga, þá
Guðmundur Ingi Leifsson
ffæðslustjóri á Blönduósi, Ríkey
Anna Kristín Gunnars-
dóttir ætlar að taka þriðja
sæti listans.
Sigurbjörnsdóttir húsmóðir
Siglufirói er í 6. sætinu, Hall-
grímur Björgvinsson ffamhalds-
skólanemi ffá Skagaströnd er í 7.
sæti, þá Jón Bjamason skóla-
stjóri á Hólum í Hjaltadal, Ingi-
björg Hafstað kennari og bóndi
Vík Skagafirði og Þorsteinn H.
Gunnarsson bóndi á Reykjum
A.-Hún. er í heiðurssæti listans,
því U'unda.
□
Eric Cantona helsta fyrirmyndin
Hjá Steindóri Birgissyni frá Siglifirði
Fullt nafn: Steindór Birgisson.
Fæddur: lO.júlí 1975.
Foreldrar: Birgir Steindórsson og Asta Gunnars-
dóttir.
Systkini: Jónas, Halldór og Þórður.
Deild í FNV: Eðlisfrœðibraut.
Bifreið: Engin.
Þrjú lýsingarorð sem lýsa þér best:
Oþolinmóður, ákveðinn og samviskusamur.
Hvar finnst þér best að vera: Heima, efmamma
er ekki heima.
Hvernig líka þér að vera hérna í skóla: Mjög
vel.
Uppáhaldsnámsgrein: Stœrðfrœði.
Hvað finnst þér best við skólann: Stutt frá
heimavistinni í skólann.
Hvað finnst þér verst við Sauðárkrók: Rokið og
miklar vegalengdir.
Helstu áhugamál: íþróttir.
Uppáhaldsmatur: Plokkfiskur.
Besta kvikmynd sem þú hefur séð: Nýtt líf.
Hvaða þekktri persónu vildurðu helst kynnast:
Pele.
Hvað er það versta sem gæti komið fyrir þig:
Að ég mundi slasast svo illa að ég gœti ekki
stundað íþróttir.
Hvað gleður þig mest: Þegar Björn vinur minn
Þórðarson fer að tala um skíði.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: KS.
fásarinn...
Hvaða íþróttamann tekurðu þér helst til fyrir-
myndar: Eric Cantona.
Em félagsvera: Já, en fer eftir því í hvaða félags-
skap ég er.
Skrítnasti félaginn: Renzo Passaro.
Uppáhalds tónlist: Alœta á tónlist.
Uppáhalds teiknimyndapersóna: Högni hrekk-
vísi.
Uppáhalds stjómmálamaðun Eyþór Einarssonfrá
Syðra-Skörðugili.
Draumatakmark: Fara með KS upp í 3. deild.
Lífsregla: Hlusta aldrei á Björn Þórðarson.
Hvað mundurðu gera ef þú ynnir milljón í
happdrætti: Leggja hana inn í banka og geyma
til mögru áranna.
Snéri sjálfum Frisinett við í spilagöldrum, 7 ára
Ási galdró, er Ásmundur Pálsson frá Siglufirði kallaður í Vest-
mannaeyjum
Hérna í eina tíð bárust fregnir af
mönnum sem brutu af sér hlekki,
leystu sig úr handjárnum lög-
reglu og gerðu margar aðrar
kúnstir sem gjarnan var líkt við
galdra. Á sjöunda áratugnum
fréttist af ungum Siglfirðingi, af
skagfiskum ættum, sem væri að
gera það sér til gamans að brjóta
af sér handjárn hjá lögreglunni
í Reykjavík. Þessi strákur hét
Ásmundur Pálsson, sonur Páls
hótelstjóra á Hótel Höfn. Ás-
mundur þessi, sem um árabil
var í sveit hjá föðurbróður
sínum, Runólfi á Brúarlandi í
Deildardal, er nú meindýraeyðir
í Vestmannaeyjum. Nýlega var
viðtal við hann í blaðinu Frétt-
um í Eyjum þar sem segir meðal
annars:
Þeir sem hafa séð til Ásmundar
sýna leikni sína í töifabrögðum em
á því að þar fari sannkallaður
galdramaður sem gefi hinum
þekktari ekkert eftir. Ásmunudur
vill sjálfúr ekki gera mikið úr af-
rekum sínum á þessum vettvangi
en segist hafa verið töluvert í þessu
áður fyrr og varó reyndar lands-
þekktur fyrir töfrabrögð sín.
„Ég sýndi t.d. í Háskólabíói
1960 fyrir kjaftfullu húsi í tilefni
söfhunar vegna sjóslyss og svo aft-
ur í Austurbæjarbíói 1964 ásamt
50 íslenskum skemmtikröftum. Ég
man eftir því að það skapaðist um-
ferðaröngþveiti í miðbænum þeg-
ar ég stoppaói þar og ræddi við
mann að vestan sem ég kannaðist
við. Eftir sýninguna í Austurbæj-
arbíói varð ég nokkuð þekktur
enda vakti þetta athygli og mikió
skrifað um þaó í blöóunum. En ég
kom í fyrsta skipti ffarn á Siglu-
firði 16 ára. Þá hef ég sýnt í Ólafs-
vík, Norðfirði, Aratungu, Kefla-
vík, Biskupstungum, Stokkseyri,
Eyrarbakka og fleiri stöðum. Ég
gerði nú út á þetta á tímabili“, seg-
ir Ásmundur sem var fjögurra ára
þegar hann lærði fyrsta spilagald-
urinn.
„Föðurbróðir minn og karlinn
hann pabbi voru töluvert í töfra-
brögðum og ég hef líklega smitast
af þeim. Þegar ég var sjö ára snéri
ég hinum heimsffæga Érisinett al-
gjörlega við í spilagöldrum. Hann
kom og var aó sýna á Siglufirði og
pabbi var með hótelið á staðnum.
Ég hitti Frisinett og kenndi honum
nokkra spilagaldra og hann kenndi
mér önnur brögð á móti. Hann var
mjög hrifinn af þessu karlinn og
hafði gaman af‘.
Ásmundur segist einnig hafa
fengist við dáleiðslu eins og
Frisinett. Hann dáleiddi töluvert á
Austfjörðum þegar hann var þar á
síldinni. Þetta var helst gert til
skemmtunar. Ásmundur segir dá-
leiðslu byggjast á því að komast að
undirmeðvitundinni og þannig sé
hægt að fá ótrúlegustu hlud upp úr
fólki, jafnvel það sem fólk veit
ekkert um. Hann dáleiddi töluvert
eftir aó hann kom fyrst út dl Eyja
fyrir rúmum 30 árum en hefur
ekkert fengist við það r seinni tíð.
Hvaóa augum varstu litinn af
fólkiþegar þú varst á kafi í þessu?
„Ég man þaö nú ekki. Það hef-
ur eflaust verið misjafnt eins og
gengur. Einhverjir vom nú smeyk-
ir við mig á tímabili. Annars er
jretta spuming um æfinguna. Þaö
er hún sem skapar meistarann.
Þetta er spumingin um að blekkja
augaó“, segir Ásmundur Pálsson
meindýraeyðir í Eyjum.
Öskudagurinn nálgast
Vorum að taka upp
öskudagsföt og grímur
Skagfíróingabúð