Feykir - 08.03.1995, Blaðsíða 2
2FEYKIR 10/1995
Það vorar nú senn
Alþingiskosningar eru á næsta leyti
opna
kosningaskrifstofur
Hver tilkynningin berst nú af
annarri um að framboðin
hafí opnað kosningaskrif-
stofur sínar. Þannig hafa á
síðustu dögum borist tilkynn-
ingar frá Kvennalista, Fram-
sóknarflokki og Alþýðubanda-
lagi um opnun skrifstofa á
Sauðárkróki.
I tilkynningu frá Kvenna-
listanum segir að húsfyllir hafi
verið þegar framboðið opnaði
kosningaskrifstofú á Sauðáikróki
þann 4. mars sl. „Mikill hugur er
nú í konum um að nú verði að
kjósa konu á þing fyrir kjör-
dæmið. Stefhuskráin var kynnt
og rætt um helstu baráttumál
komandi kosninga sem hljóta að
vera launa- og kjaramál meó til-
liti til þess gríðarlega launamunar
sem er á milli kynjanna. Einnig
verða atvinnumálin í brennidepli
þar sem mikið atvinnuleysi er
viðvarandi hér, sérstaklega hjá
konum, en í janúar sl. mældist
það um 13%“, segir í tilkynn-
ingunni. Kosningaskrifstofa
Kvennalistans verður opin viika
daga kl. 14-18 og um helgar kl.
14-17. Kosningastýra er Ingileif
Oddsdóttir.
Framsóknarmenn höfðu sam-
band við blaðið og kváðust hafa
opnað skrifstofú að Suðurgötu 3
(Framsóknarhúsinu). Þar verður
opið ffá klukkan tvö á daginn og
firam eftir kvöldi. ,Það er alltaf
heitt á könnunni og við hvetjum
stuðningsfólk til að líta inn“,
sagði Herdís Sæmundardóttir
kosningastjóri Framsóknar-
flokksins.
í gær barst tilkynning frá G-
listanum um að framboðió
hygðist opna kosningaskrifstofú
sína í Villunni nk. laugardag kl.
15,00. Skrifstofan verður opin
ffá kl. 13-22 alla daga. M veiður
nú á fimmtudagskvöldið al-
mennur fundur stuðningsfólks
G-listans í Villa Nova þar sem
fundarefnið veróur skipulag
kosningastarfsins.
Meleyri á Hvammstanga:
Rækjubátarnir koma
með góðan afla
Bæði Jöfur og Sigurborgin
komu með góðan afla til
Hvammstanga eftir helgina tii
vinnslu hjá Meleyri. Jöfúr var
með 32 tonn sem skipið hafði
veitt í Norðurkantinum á sex
sólarhringum og Sigurborgin
kom með 17 tonn sem veiðst
hafði á 4 dögum á Skaga-
Qarðargrunninu.
,J>etta er svo sem mjög gott
sérstaklega með tilliti til þess að
það hafur alltaf verið kolbijálað
verður“, segir Guðmundur Sig-
urðsson framkvæmdastjóri Mel-
eyrar. Þrátt fyrir að hráefnis-
öflun hafi gengi misjafnlega að
undanfömu hefúr tekist að halda
uppi fúllri vinnslu. „Við höfum
fyllt upp í annað slagið með
ffosinni rækjum sem vió höfum
keypt af frystiskipunum", segir
Muggur í Meleyri.
Ríkisstjóm Davíðs Oddssonar
er að ljúka störfúm eftir fjöguira
ára stjómarsamstarf Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðuflokks.
Það er ffóðlegt á slíkum tíma-
mótum að skyggnast um og
glöggva sig á því hvort núver-
andi stjómarflokkar hafi gengið
götuna til góðs, við hverju þeir
tóku og hverju þeir skila af sér.
Hér á best við að nota þeirra
eigin orð.
Davíð Oddsson sagði þegar
hann flutti sína fyrstu stefnuræðu
á Alþingi eftir að Sjálfstæðis-
flokkur og Alþýðuflokkur tóku
höndum saman um stjóm lands-
ins.
„Við Islendingar búum við
betri kjör enflestar aðrar þjóðir.
Við höfum brotist frá fátœkt til
bjargálna og stöndumst nú sam-
anburð við þœr þjóðir sem
fremstar standa. Hér hefur verið
um sigurgöngu að rœða fyrir ís-
lenska þjóð. “
Alþýðuflokkurinn hafði
einnig ákveöna skoðun á ástandi
þjóðmála á þessum tíma og
sagði á forsíðu Alþýðublaðsins
m.a:
„Arið 1991 er hagstœðara en
flesta hefur grunað. “
Þjóðhagsstofnun skoðaði að
sjálfsögðu stöðu þessara mála og
sagði:
„Arið 1991 er á margan hátt
hagstœtt ár, og mikil umskipti
hafa orðið til hins betra í ajkomu
atvinnuveganna, einkum í sjáv-
arútvegi og iðnaði, en í þessum
greinum er afkoman með því
besta sem verið hefur í áratugi. “
Þetta er sá dómur sem þessir
aðilar höfðu um viðskilnað ríkis-
stjómar Framsóknarflokksins.
Það er því ekki rétt að viðskiln-
aður ríkisstjórnar Steingríms
Hermannssonar hafi verið svo
slæmur að þar liggi rót þess
slæma ástands sem nú ríkir í
þjóðfélaginu.
Því miöur er það svo að nú-
verandi stjómarflokkum mistókst
að varðveita þann góða ávinning
sem áunnist hafði og á margan
hátt hefúr ríkisstjómin staðið fyr-
ir skemmdarverkum á því vel-
ferðarþjóðfélagi sem hér hafði
verið byggt upp.
Af þcssari stefnu hefur hlotist
margvíslegur vandi, svo sem
ógnvekjandi fjárhagserfiðleikar
einstaklinga og heimila, þar sem
skuldir heimilanna vaxa nú um
einn milljarö á hverjum þeim
mánuði sem þessi ríkisstjóm sit-
ur við völd.
Atvinnuvegimir hafa ekki far-
ið varhluta af þessari stefnu, þar
sem heilu starfsgreinamar í ís-
lenskum iðnaði heyra nú nánast
sögunni til og um 1500-2000
störf í iðnaði hafa tapast á valda-
tíma núverandi ríkisstjómar.
Islenskur landbúnaður hefur
trúlega aldrei staðið frammi fyrir
jafnmiklum erfiðleikum og nú.
Því miður skorti stjómvöld skiln-
ing á að styðja þær stoðgreinar
sem komió var á fót til styrktar í
sveitum landsins.
Ríkisstjómin hefúr bmgðist í
því aó treysta gmndvöll sjávarút-
vegsins og móta framsækna
stefnu í veiðum og vinnslu sjáv-
arfangs, þar sem milljarðar em í
ónýttum möguleikum.
Þegar skrifað hafði verið und-
ir kjarasamninga sagði talsmaður
vinnuveitenda:
„Þetta eru samningar um at-
vinnu. “
Staðreyndin er hinsvegar sú
að atvinnuleysi á íslandi hefur
aldrei mælst meira en í tíð núver-
andi ríkisstjómar. Atvinnuleysi á
íslandi er mikil uppgjöf og í raun
vantrú á möguleikum lands og
þjóðar. Atvinnuleysi er ekki að-
eins að missa atvinnuna, það er
nú notað sem vopn gegn kjara-
baráttu launafólks. Launþegum
er nú ógnað með því að ná rétti
sínum til mannsæmandi launa
með uppsögnum og atvinnuleysi
og til viðbótar þurfa þeir að fóma
kjarabótum sér til handa til aó
verja velferðarkerfið. Launamis-
réttið er orðið óskaplegt og óá-
sættanlegt.
Auðhyggjan hefúr ráðið ferð-
inni nú um sinn.
Þótt fjármagnið sé mikilvægt
má réttur þess til arðs aldrei
verða meiri en fólksins, það er
grundvallarmál.
Svona er þá Island í dag eftir
fjögurra ára stjórnarsamstarf
Sjálfstæðisflokks og Alþýðu-
flokks.
I komandi alþingiskosningum
mun verða tekist á um það hvort
það verður Sjálfstæðisflokkurinn
eða Framsóknarflokkurinn sem
leiða næstu ríkisstjóm. Þar getur
þitt atkvæði ráðið úrslitum.
Þeir sem nú em ánægðir með
stjóm landsins kjósa að sjálf-
sögðu Sjálfstæðisflokkinn.
Þeir sem vilja breytta stefhu:
Traustan grundvöll atvinnu-
vegarma.
Mannsœmandi laun.
Atvinnu í stað atvinnuleysis.
Aðgerðir í greiðsluerfiðleik-
um heimilanna.
Þeir sem þetta vilja eiga sam-
leið með Framsóknarflokknum í
komandi kosningum.
Stefan Guðmundsson.
Enn drepast hross
LJÓSRITUNARVÉLAR |
^ ) WSM
Við önnumst viðgerðir og þjónustu á ljósritunarvélum. 4 » Raftækni Tölvutækni
Eigum fyrirliggjandi allar helstu RKS
rekstrarvörur fyrir ljósritunarvélar. Borgarflöt 27 • 550 Sauöárkrókur
i'Tel: 354-5-36054 • Fax: 354-5-36049
Ný tilfelli hafa komið upp, þar sem grunur leikur
á að hross hafi drepist vegna eitrunar frá skemmdu
rúllubaggaheyi. Fella þurfti þrjú hross á Hof-
stöðum í Viðvíkursveit í síðustu viku og tvo
önnur hross í hjörðinni höfðu veikst.
Hrossunum á Hofstöðum hafði verið gefið fóóur
frá sama framleiðanda og hrossunum 11 sem drápust
á Sigríðarstöðum í Fljótum og 5 hrossum sem dráp-
ust í hesthúsi á Sauðárkróki. Alitið er að komist hafi
verið fyrir eitmnina á Sigríðarstöðum og á Króknum.
Alls hafa nú drepist 10 hross í hjörð sem er á
fóðrum uppi í Gönguskörðum, fjögur hross drápust
fyrir helgina.
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi
Feykir hf. Skrifstofa Aðalgötu 2, Sauðárkróki.
Póstfang: Pósthólf 4, 550 Sauðárkróki. Sími
95-35757. Myndsími 95-36703. Ritstjóri Þór-
hallur Asmundsson. Fréttaritarar: Magnús
Olafsson A.-Hún. og Eggert Antonsson V.-Hún.
Blaðstjóm: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ.
Guðbrandsson, Sæmundur Hermannson,
/ /
Sigurður Agústsson og Stefán Arnason.
Askriftarverð 137 krónur hvert tölublað
m/vsk. Lausasöluverð 150 kr. m/vsk. Setning
og umbrot Feykir. Prentun Sást hf. Feykir á
aðild að Samtökum bæja- og héraðsfrétta-
blaða.