Feykir - 08.03.1995, Blaðsíða 6
6FEYKIR 10/1995
Heilir og sælir lesendur góðir. Þrátt
íyrir ýmsa erfiðleika sem tengjast því
auma tíðarfari sem ríkt hefur í vetur, renn-
ur tíminn sitt skeið og áfram þokast dag-
amir einn af öðrum. Þegar þetta er ritað er
tími þorrablóta að mestu liðinn. Fyrsta
vísan að þessu sinni er gerð við lok einn-
ar slíkrar samkomu. Höfundur er Jón
Gissurarson bóndi í Víðimýrarseli.
Allri burtu víkjum vá,
víns ei dreggjar þrjóti.
Brátt við hittumst aftur á
öðru þorrablóti.
Onnur falleg vísa kemur hér eftir Jón.
Finnur lundin Ijúfan straum,
lífs er blundar garri.
Óðs við bundinn er ég taum,
ama stundinfjarri.
Þá langar mig til að biðja lesendur að
gefa mér upplýsingar um höfund eftirfar-
andi vísu ef þeir kannast við hana.
Oft mig kól á kinnarnar,
kuldagjólu sleginn,
og í skóla œvinnar
aldrei sólarmegin.
Eins og margir hafa eflaust heyrt hef-
ur verið talsveró umræða nú í vetur um
snjóalög á þeim nýja vegarkafla sem tek-
inn var í notkun á sl. hausti og liggur um
Botnastaðabrekkur hér í mynni Svartár-
dals. Tvær næstu vísur segja raunar allt
sem segja þarf um stöðu mála í dag á
þeim vettvangi. Höfundur er Sigurður
Guðmundsson bóndi á Fossum í Svartár-
dal.
Glöpin snjallir gjörðu stór
glitrar á mjallar strenginn.
Minnstur halli og mestur snjór
má hér kalla fenginn.
höndum. Þó vissulega séu í nútímanum til
ýmis ráð og betri möguleikar til að bjarga
sér út úr slíkum hörmungum heldur en
hafa verið þegar eftirfarandi vísa var ort
og lýsir hún vel þeim köldu kjömm sem
margir fátækir bændur bjuggu við á fyrri
hluta þessarar aldar. Höfundur er Bjami
Jónsson, áður bóndi á Bollastöðum í
Blöndudal.
Enn er dapurt út að sjá,
allt er hulið hjarni.
Hryggum augum horfir á
heyjaforðann Bjami.
Bráðum yljar okkur mar
engum dyljast vorin.
Grimmir byljir góunnar
gömlu hylja sporin.
Það mun hafa verið Rósberg G. Snæ-
dal sem orti svo eftir að hafa heyrt kunn-
ingja sinn kvarta sáran undan skattheimt-
unni.
Bág er œvi eljumanns
og ekki launin beysin.
Obbinnfer til oddvitans
eða í ríkismeisinn.
Önnur vísa kemur hér sem mun einnig
vera eftir Rósberg.
Oft við bama agg og suð
ergjast manmui og pabbi
og heyrnardaujur gerist guð
gagnvart okkar kvabbi.
Þá er góður kostur að enda þáttinn
með vísu eftir Jónas Tryggvason ffá
Finnstungu sem mun vera gerð 8. febrúar
1950.
Þótt mig ekki þjaki ár
þarfei vitna að leita.
Eg er orðin iljasár
œvigöngu að þreyta.
Veriði þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum,
541 Blönduósi, sími 27154.
Lítill hríðar leiðingur
leggur á ferðir hófið.
Snjóakistu sneiðingur
sníkir mjallar kófið.
Þá kemur hér næst vísa sem ég veit að
er mörgum kunn. Langar mig til að biðja
lesendur og þá kannski helst Skagfirðinga
að gefa mér upplýsingar um höfund
hennar. Oft hef ég velt fyrir mér hver höf-
undur hennar væri og nú fengið þær upp-
lýsingar að það muni vera Gísli Bjöms-
son áður bóndi á Vöglum í Blönduhlíð.
Hér er drengja hópur stór,
hér má lengja vöku.
Inn ég geng í kvœða kór,
kann þó engva stöku.
Þegar svo blæs eins og nú hefur gert
síðustu mánuði, verður mörgum bóndan-
um hugsað til fóðurbirgða fyrir þann bú-
pening sem hver og einn hefur undir
Bjartari dagur hefúr verið framundan
hjá Bjama þegar þessi vísa varð til.
Fátœktin ei finnst mér þung,
flesta þó hún beygi.
Eg á konu og jóðin ung,
ég er á gróða vegi.
Ein vísa kemur hér enn sem mig
minnir að ég hafi heyrt að væri eftir
Bjama.
Uppfylling efundan bar
óska og vona minna,
var þá gott að vita hvar
vini mátti finna.
Veturinn 1952 mun hafa verið erfiður
sökum illviðra og snjóa, sérstaklega mun
hafa verið mikil ótíð á góunni. Um það
leyti mun Gissur Jónsson í Valadal hafa
ort þessa laglegu hringhendu.
Tindastóll hársbreidd frá því
að komast í úrslitakeppnina
Betri árangur liðsins í vetur en menn dreymdi um í upphafi vertíðar
Alþjóðlegur baráttu-
dagur kvenna
Samverustund verður á Kaffi Krók
miðvikudaginn 8. mars kl. 20,30.
Dagskrá:
1. Avarp meó sögulegu ívafi, Anna Dóra
Antonsdóttir Kvennalista.
2. Kvennaréttindi/mannréttindi, Herdís
Sæmundardóttir Framsóknarflokki.
3. Nýútkomin skýrsla um launamyndun og
kynjabundinn launamun, Anna Kristín
Gunnarsdóttir Alþýóubandalagi.
4. Lokaorð, Steinunn Hjartardóttir
Sjálfstæöisflokki.
Anna Sigríður Helgadóttir syngur.
Allar konur eru hvattar til aö mæta.
Nefndin.
Leiðrétting
„Ég get varla verið annað en
ánægður með þennan leik.
Ungu strákarnir stóðu sig al-
veg frábærlega og eru að taka
við þessu“, sagði Páll Kolbeins-
son þjálfari Tindastóls eftir að
liðið hafði lagt ÍR-inga að velli
sl. fimmtudagskvöld í hörku-
leik, einum þeim fjörugasta og
skemmtilegasta sem fram hef-
ur farið á Króknum. Já, Tinda-
stólsmenn geta svo sannarlega
verið ángæðir með þennan
endi í deildinni, þótt litlu mun-
aði að liðið kæmist í úrslita-
keppnina. Arangur liðsins
heftir verið frábær í vetur og í
raun hefði liðið verðskuldað
sæti í úrslitakeppninni.
Tindastóll og Haukar urðu
jöfn í 8.-9. sæti með 22 stig, en
Haukar teljast ofar á betri út-
komu í innbyrðis viðureignum
liðanna. Það fer ekki á milli mála
að Tindastóll lék í mun erfiðari
riðli en Haukamir. Haukamir
fengu t.d. 8 af 22 stigum sínum
gegn neðsta liði deildarinnar,
Snæfelli, en Tindastóll fékk
einungis tvívegis tækifæri til að
mæta Stykkishólmsbúum og
hlaut því einungis 4 stig þar.
Tindastólsliðið lék frábærlega
vel í síðasta leik sínum gegn ÍR,
en var þó án sinna tveggja styrk-
ustu stoða Páls Kolbeinssonar og
Hinriks Gunnarssonar sem eiga
við meisli að stríða.
Leikurinn fór fjörlega af stað,
og það voru heimamenn sem
vom strax í upphafi ákveðnari og
baráttan skein úr andliti Tinda-
stólsmanna. Leikurinn var ákaf-
lega jafn og skemmtilegur alveg
ffá upphafi og góóur körfubolti
sem boðið var upp á. Mestu
munaði 6-7 stigum á liðunum í
fyrri hálfleiknum í sitt hvora átt-
ina og í leikhléi var Tindastóll
tveim stigum yfir.
Heimamenn byrjuðu einnig
betur í seinni hálfleiknum en það
sama var upp á teningnum og í
þeim fyrri, hnífjafn leikur. IR-
ingar komust í vandræði þegar
John Rhodes fékk dæmdar á sig
þrjá tvær villur snemma í seinni
hálfleik til viðbótar tveimur sem
hann fékk í fyrri hálfleiknum og
þessi snjalli leikmaður fékk sína
fimmtu villu þegar 12 mínútur
voru eftir að leiknum. En barátt-
an hélt áfram og ljóst að úrsliún
mundi ekki ráðast fyrir en á síð-
ustu stundu. Það voru Tinda-
stólsmenn sem kláruðu leikinn
betur og höfðu öruggan sigur í
lokin.
Torrey John átti enn einn
stórleikinn fyrir Tindastól, en
liðsheildin var mjög góð. Sigur-
vin lék sinn besta leik í vetur,
Amar var sterkur og Lárus hafði
góðar gætur á Herbert, þrátt fyrir
að sá síðamefndi kæmi út sem
besti maður gestanna.
Stig Tindastóls: Torrey 37,
Sigurvin 16, Lárus 11, Amar 9,
Óli Bardal 6 og Baldur Einars-
son 2. Langstigahæstur hjá ÍR
var Herbert með 32 stig.
Þriggja stiga skot: Tindastóll:
Tonrey 7, Sigurvin 3, Óli 2. ÍR:
Herbert 5, Jón Öm 2.
Gangur leiksins: 7:0, 9:9,
15:20, 26:26, 32:26, (37:35),
42:35, 46:45, 53:50, 61:65 ,
71:71,76:72 (83:77)
J~/Wun/ð efti~J
I smáfugl- j
I unum! I
I I
Eitthvað fór samanburðarlest-
ur úr skolum á grein Rúnars
Kristjánssonar í Undir borginni í
síðasta blaði. Þar urðu villur í
tveim semingum. I fyrsta lagi á
setning í lok annarrar máls-
greinar að hljóða svo: Þar sem
„buddunnar lífæð í brjóstinu
slæf' er ekki að vænta þjóðlegrar
hugsunar né skilnings á íslensk-
umveruleika.
I síðustu línu miðdálks og
efstu línum þess afstasta á að
standa: Þeir vildu ekki búa við
ófrelsi og kúgun og sú afstaða
þeirra leiddi til landnámsins eins
og það er þekkt úr sögunni.
Rúnar og lesendur blaðsins
em beðnir velvirðingar á þessum
mistökum.