Feykir - 07.06.1995, Page 1
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Blönduós:
Nýir eigendur
taka við hótelinu
umferðarfræðsla fyrir 5-6 ára börn á Sauðárkróki var mjög vel sótt og eins og sjá má
ieynir áhuginn sér ekki. Það er lögreglan, Sauðárkróksbær og Umferðarráð sem standa að
fræðslunni, sem fram fór í bamaskólanum fyrir helgina.
Fiskvinnslan að stöðvast
í lok síðustu viku var gengið
frá eigendaskiptum á Hótel
Blönduósi og hafa nýir eigend-
ur taka við rekstri hótelsins.
Hjónin Oskar Húnfjörð og
Brynja Ingibersdóttir hafa
keypt eignarhlut Asrúnar Ó-
lafsdóttur, sem er um 60%
hlutafjár. Nafnverð þess eign-
arhlutar er rúmar 8 milljónir,
en Asrún keypti hann fyrir
nokkrum misserum af Sölufé-
lagi Austur - Húnvetninga,
sem þá dró sig út úr rekstri
hótelsins.
Óskar Húnfjörð sagði í sam-
tali við Feyki að vissulega væri
að vænta einhverra breytinga í
rekstri hótelsins, sem trúlega
færu að sjást með haustinu. „Við
munum kappkosta að auka gisti-
rými hótelsins, þannig að unnt
verði að taka á móti stærri hóp-
um til gistingar. Gystirými í dag
er fyrir tæplega 40 manns, sem
er of lítió. Ferðahópar em allt að
60 manns og fyrir ráðstefnugesti
er þetta líka of lítið. Með kaup-
um á hótelinu sjáum við einnig
fram á möguleika að geta nýtt
betur eignir fjölskyldunnar þama
í nágrenninu", sagði Óskar Hún-
fjörð.
Óskar segðist munu beita sér
fyrir því að samræmdri stefnu-
mörkun í uppbyggingu ferða-
þjónstu í héraðinu yrði hraðað.
„Ég beitti mér fyrir þessum mál-
um þegar ég sat í bæjarstjóm
Blönduóss og mun halda því á-
fram. Blönduós og sýslan eiga
þama mikla möguleika, en það
verður að stilla saman kraftana
og skipuleggja hlutina. T.d. er
mikilsvert að afþreying fyrir
ferðamenn verði aukin og þar tel
ég að Blönduósbær hafi bmgðst
með því að hafa ekki gert gang-
skör að byggingu nýrrar sund-
laugar. Það er að mínu mati al-
gjört forgangsatriði að boðleg
sundlaug sé í bænum. Gamla
sundlaugin stenst ekki þær kröf-
ur", sagói Óskar.
Rekstur Hótel Blönduóss hef-
ur undanfarin ár verið í jámum,
en engu að síður hefur átt sér
stað uppbygging í rekstrinum,
þar sem úrbætur hafa verið gerð-
ar á gistiaðstöðu. Ásrún Ólafs-
dóttir íyrrverandi eigandi hótels-
ins og hótelstjóri hefur fallist á
að starfa með þeim Óskari og
Brynju næstu vikur og mánuði,
meðan nýir eigendur eru að
kynnast þessum rekstri.
Það verður rólegt yfir hlutun-
um í fiskvinnsluhúsunum á
næstunni vegna verkfalls sjó-
manna, sem ekki er útlit fyrir
að leysist fyrir sjómannadag.
Hráefni kláraðist í rækju-
vinnslu Hólaness á Skaga-
strönd fyrir helgi. Síðasti
vinnsludagur í frystihúsum
Fiskiðjunnar á Sauðárkróki
og Hofsósi í bili var í gær.
Rækljuvinnslan Særún á
Blönduósi virðist standa best
hvað hráefni varðar. Særúnar-
menn eiga frosna rækju sem
væntanlega endist út næstu
viku.
Þýski togarinn Europa land-
aði 150 tonnum á Sauðárkróki í
síðustu viku og það varð m.a. til
þess að tókst að halda uppi
vinnslu fram á gærdaginn. Vinna
í saltfiski og skreió veróur út
þessa viku.
Rækjan kláraðist hjá Meleyri
á Hvammstanga um miðja síð-
ustu viku og þar er nú stór hluú
vinnuaflsins kominn á atvinnu-
leysisskrá. Þessa dagana og trú-
lega út næstu viku verður unnió
að verkun grálúðu í Meleyri.
Fyrirtækið hefur keypt grálúðu
af frystitogumm og einnig legg-
ur upp hjá Meleyri ein trilla sem
hefur verið að fá ágætan afla. 15-
18 manns vinna í fiskvinnslunni
hjá Meleyri. Fyrirtækið byrjaói
að vinna fisk meó rækjunni sl.
vor, og segir Guðmundur Sig-
urðsson framkvæmdastjóri að
það hafi komið ágætlega út. Nýt-
ing á vinnuafli, húsakosti og
tækjum hafi batnað.
Rækjuvinnslan Dögun á
Sauðárkróki er að verða uppi-
skroppa með hráefni. Ágúst
Guómundsson framkvæmda-
stjóri sagðist búast við aó það
entist fram í miöja vikuna.
Hundar enn óhreinsaðir í Lýtingsstaðahreppi
Hreppsnefnd Lýtingsstaðahrepps sendi
nýlega frá sér kvörtun til yfirdýralæknis.
Er kvörtunin fram sett sökum þess að enn
hefúr ekki verið lokið við að hreinsa hunda
í hreppnum, cn slíkt átti að gcrast sl. haust.
Einnig hefur dýralæknir viðkomandi
svæðis ekki sinnt því að bólusctja fé á
nokkrum bæjum við garnaveiki, en dýra-
læknirinn hafði tekið það verk að sér.
Bóndi einn í Lýtingsstaðahreppi sagði í
samtali við Feyki mikla óánægju í hreppn-
um varðandi þetta mál.
Elín Sigurðardóttir oddviti sagöi að fram
að síðasta hausti hefói aðili úr hreppnum séð
um hreinsun hunda, en þar sem vart hafði
oróið bráðs smits í hundum í landinu var talið
rétt að fela dýralækni hreinsun hundanna.
Elín vildi að öðru leyú ekki tjá sig um málið,
enda væri hreppsnefndina að vinna aó lausn
þess.
Brynjólfúr Sandholt yfirdýralæknir sagðist
vera búinn að svara bréfi hreppsnefndar og
hann mundi ræða við viðkomandi dýralækni.
Aðspurður sagði Brynjólfur að það væri afar
slæmt ef hundar væru ekki hreinsaðir á sama
tíma og æskilegt væri að sú hreinsun færi
fram að hausúnu, t.d. í lok sláturúðar.
Enn mun vera óhreinsaður tíundi hver
hundur í Lýúngsstaðahreppi, og eins og áður
segir á þriöja hundrað fjár óbólusett vió
garnaveiki. Ekki náðst í Einar Otta Guð-
mundsson dýralækni í gær.
—KTen^itl lijDI—
Aðalgötu 24 Skr. sími 35519, bílas. 985-31419, fax 36019
Almenn verktakaþjónusta,
Frysti- og kœliþjónusta,
Bíla- og skiparafmagn,
Véla- og verkfœraþjónusta
Æl
bílaverkstæði
sími: 95-35141
Sœmundargötu 16 Sauöárkróki íax: 36140
Bílaviðgerðir Hjólbarðaverkstœði
Réttingar Sprautun