Feykir - 11.07.1995, Blaðsíða 2
2 FEYKIR 27/1995
Hugmyndir
ingsskóla á
Hugmyndir um stofnun skóla
á háskólastigi á Sauðárkróki,
með útflutningsstarfsemi og
söiumennsku sem viðfangs-
efni, hefur verið kynnt fyrir
Toyota Carina E GL.I. 2000
L.B. ABS, árg. '93, ekinn 47
þús.Verð 1.650.000.
Lada 1500 station, árg. '92,
ekinn 69 þús. Verð 350 þús..
Upplagður vinnubíll.
Nissan Sunny Coupe SGX
1500, árg. '88, ekinn 128
þús. km. Verð 450.000.
MMC Galant 2000 turbo,
árg. '86, ekinn 125 þús.km.
Verð 550.000. Einn með öllu.
Subam Justi J 10 4x4, árgerð
'87, ekinn 120 þús km. Verð
290.000. Snyrtilegurbíll.
BÍLASALA/BÍLALEIGA
SKAGAFJARÐAR SF.
Borgartúni 8, Sauðárkróki,
sími 453 6050 og 453 6399.
um útflutn-
Sauðárkróki
Bimi Bjarnasyni menntamála-
ráðherra. Stefht er að því að
skóianum verði komið á fót
haustið 1996 og hann verði
rekinn í tengslum við Fjöl-
brautaskóla Norðurlands
vestra.
Það mun vera Þórólfur Gísla-
son kaupfélagsstjóri sem vakti
máls á þessari hugmynd og er
ekki að efa að hún gæti komið til
með aó efla ffamleiðsluatvinnu-
greinar í héraðinu og nágrenni, en
leiðbeinendur koma úr atvinnu-
lífmu og væntanlega munu nem-
endur vinna að verkefnum í
tengslum við framleiðslu- og
útflutningslyrirtæki á svæðinu.
Fyriihugað er að sníða skólann
að skóla með sama viðfangsefni í
Heming í Danmörku. Reiknað er
með að námið taki tvo vetur, sex
mánuði í senn og að nemendur
verði til að byija með á bilinu 10-
15 . Talió er að húsnæói sé nægj-
anlegt á Sauðáikióki fýrir skólann,
og þar horft bæði til bóknáms-
hússins og efstu hæðar í Artorgi 1,
en þar em ónýttar kennslustofúr.
Aurskriður í Gönguskörðum
Talsvert hefur verið um það
að aurskriður hafi fallið í leys-
ingunum Norðanlands að und-
anförnu. Aðfaranótt sl. mið-
vikudags féll stór skriða í
Gönguskörðum skammt vest-
an Sauðárkróks, nánar tiltekið
við bæinn Heiði. Skriðan er
yfir 200 metrar að lengd og vel
80 metrar þar sem hún er
breiðust. Mikill framburður
fylgdi skriðuhlaupinu sem féll
á tún og bithaga. Minni skriða
féll þarna skammt frá í hlýj-
indunum á dögunum, og
skriður hafa fallið á þessu
svæði áður, en það er sunnan
bæjarhúsa á Heiði og hafa þau
aldrei verið í hættu
Búi Agnarsson bóndi á Heiði.
Að baki hans er stærsti hluti
aurskriðunnar.
Fólkið á Heiði varö þess ekki
vart þegar skrióan féll. Búi Agn-
arsson bóndi á Heiði sagði í
samtali við blaðamann Feykis
aö skriðuföllin nú hefðu ollið
miklu tjóni. Um tveir hektarar
túns fóru undir aur auk beitar-
lands. Lambfé er þama á beit en
ekki er ljóst hvort kindur lentu
undir skriðunni, en Búi segir féð
oft leita skjóls í hvömmunum á
neðsta hluta svæðins sem skrið-
an féll. Ljóst er að mikið vatn
hefúr safnast fyrir uppi í fjallinu,
vestan í Tindastóli. Jörö fór ó-
frosin undir snjó á síðasta hausti
og fannkyngió var mikið í vetur.
Enn eru skaflar í hlíðum. Mikið
rigndi kvöldið áður og fram á
nóttina og hefur það líklega ver-
ió dropinn sem fyllti mælinn.
Keppnin í 4. deild hálfnuð
Tindastólsmenn lcntu í kröpp-
um dansi þegar SM kom í heim-
sókn á föstudagskvöldið. Hvat-
armenn voru mun betri aðilinn í
leiknum gegn Magna á Blöndu-
ósi en það dugði ekki til sigurs.
Neisti vann öruggan sigur á
Þrym á Hofsósi. Þetta er það
FISKIÐ)AN • SKAGFIRÐINGUR
Aðalfundur Skagfirðings h.f. verður haldinn
föstudaginn 14. júlí 1995 kl. 16.00 í bóknámshúsi
Fjölbrautaskólans.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjómar
2. Arsreikningar lagðir fram til samþykktar
3. Ráðstöfun hagnaðar/taps
4. Tillögur um lagabreytingar
a) Breyting á nafni. Tillagan er Fiskiðjan Skagfirðingur
b) Breyting á samþykktum vegna nýrra hlutafjárlaga.
5. Kosning stjómar.
6. Kosning endurskoðenda.
7. Akvörðun stjómarlauna.
8. Onnur mál.
a) Staðfesting á sameiningu Djúphafs við Skagfirðing hf.
Ársreikningar 1994 og tillögur til lagabreytinga liggja
frammi á skrifstofu félagsins.
Allir hluthafar em hvattir til að mæta.
Sjóli HF-1 kemur til Sauðárkróks í fyrsta skipti að
morgni þriðjudags 11. júní og verður til sýnis og skoðunar
fyrir Skagfirðinga frá kl. 17-22 þann dag.
Eftir aðalfundinn verður Málmey SK-1 formlega skírð
og er áætlað að sú athöfn hefjist við brottför kl. 18,00.
Stjórnin.
hclsta sem gcrðist í síðustu um-
ferð fyrri hluta keppni í Norður-
landsriðli fjórðu deildar. Þegar
mótið er hálfiiað hefúr KS fullt
hús, 18 stig, TindastóII kcmur
næstur með 13, þá Magni með
11, Hvöt með 7, SM og Neisti
með 6 stig hvort felag og Þrym-
ur er enn án stiga.
Það vantaði ekki að Tindastóls-
menn fengju nóg af fæmnum til
að skora í fyrri hálfleiknum gegn
SM og heimamenn á Króknum
voru þá mun betri aðilinn. En eins
og oft áður gekk erfiðlega að
koma boltanum inn fyrir línuna og
var staðan í leikhléi 0:0.
En það vom síóan gestimir í
SM sem tóku öll völd í byrjun
seinni hálfleiks og hefðu þá hæg-
lega getaó gert út um leikinn. Þeg-
ar um 10 mínútur vom liðnar af
hálfleiknum sló þögn á áhorfendur
þegar SM náði forustunni og útlit-
ið var ekki bjart Stungubolti kom
inn fyrir vömina og Amar Krist-
insson afgreiddi boltann í markið.
Um miðjan hálfleikinn náðu síðan
Tindastólsmenn að rétta úr kútn-
um, einkum Guðbrandur Guð-
brandsson. Það var einkaframtak
hans sem skóp jöfnunarmarkið.
Gubbi lék þá á tvo vamarmenn
SM og sendi boltann af ömggi í
markió. Þetta gerðist á 23 mínútu
hálfleiksins. Síðasti hluti leiksins
var algjörlega eign Tindastóls og
ekki bætti úr skák fyrir gestina að
einum varnarmanna þeirra var
vikið af leikvelli. Þegar um 10
mínútur vom til leiksloka átti sér
stað misskilningur milli vamar-
manna SM. Guðbrandur nýtti sér
það, hirti boltann og skoraði. Leik-
urinn fjaraði síðan út án þess að
nokkuð markvert gerðist og
Tindastóll vann því 2:1.
Á sama tíma mætti Hvöt
Magna á Blönduósi. Að sögn
Pálma Sighvatssonar sem dæmi
leikinn, var hann mjög opinn og
skemmtilegur og eftir fæmnum að
dæma hefðu sanngjöm úrslit getað
orðið 11:7 fyrir Hvöt. Hvatarmenn
vom mun betri aðilinn og óheppn-
ir að ná aðeins einu stigi.
Það var ótrúlegt hvemig færin
fóm forgörðum hjá Hvatarmönn-
um strax í upphafi leiksins og
þvert gegn gangi leiksins náði
Magni fomstunni á 13. mínútu. En
það fór þó ekki svo að Hvöt næði
ekki að jafna fyrir leikhléið. Það
gerði Hörður Guðbjömsson beint
úr homspymu. Þar með em mörk-
in í leiknum upptalin. Færin fóm
öll forgörðum í seinni hálfleiknum
og lokatölur urðu 1:1.
Neistamenn unnu sinn annan
sigur í röð þegar þeir lögðu Þrym
á Hofsósi á laugardaginn. Þrymar-
ar fengu dauðafæri strax í upphafi
leiks, en þá em líka upptalin færi
þeirra í leiknum. Neistamenn réðu
lögum og lofum á vellinum en
Þrymarar vöröust vel. Það var þó
ekki langt liðið af leiknum þegar
Neisti skoraði sitt fyrsta mark og
annað kom um miðjan hálfleikinn.
Snemma í seinni hálfleiknum
bættu Neistamenn við þriðja
markinu og mark númer fjögur og
fimm komu síðan með 15 mínútna
millibili. Lokatölur urðu 5:0 og
skoraði Jón Þór Oskarsson tvö
markanna, það fyrsta og þriðja.
Reyndar fékk Jón góða aðstoð
Þiymara við seinna markiö. Bræð-
umir Magnús og Sigmundur Jó-
hannessynir frá Brekkukoti sprettu
úr spori að vanda og skoruðu sitt-
hvort markið og Haukur Þórðar-
son hélt áfram uppteknum hætti að
nýta vítaspymur sem Nesti fær.
Reyndar fiskaði Haukur sjálfur
vítið að þessu sinni.
Næstu leikir í riðlinum em, SM
og Hvöt á Melum nk. fimmtudags-
kvöld og á föstudagskvöld mætast
Tindastóll og Þrymur á Króknum
og líklega Neisti og KS á Hofsósi.
En líkur em á aö leiknum verói flýtt.
Óháö fréttablaö á Norðuriandi vestra
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi
Feykir hf. Skrifstofa Aðalgötu 2, Sauðárkróki.
Póstfang: Pósthólf 4, 550 Sauðárkróki. Sími
45 35757. Myndsími 45 36703. Ritstjóri Þór-
hallur Ásmundsson. Fréttaritarar: Eggert
Antonsson og Öm Þórarinsson. Blaðstjóm: Jón
F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guðbrandsson,
Sæmundur Hermannsson, Sigurður Ágústsson
og Stefán Ámason. Áskriftarverð 137 krónur
hvert tölublað m/vsk. Lausasöluverð 150 kr.
m/vsk. Setning og umbrot Feykir. Prentun
Sást hf.
Feykir á aðiid að Samtökum bæja- og
héraðsfréttablaða.