Feykir - 11.07.1995, Blaðsíða 6
6FEYKIR 27/1995
*7ei6*t: ^<z£*ftc
07extc: “PónJí. s4<u*tu*tcC&&.
49. Ingimundur á frekari orðastað vió Finnuna:
(>Eg hef einhugsað að koma aldrei á þann stað og eigi
verð eg góður kaupmaður ef eg sel áttjarðir mínar
margar og góðar en fari í eyðibyggðir þær.“
Finnan svaran (>Þetta mun fram koma sem eg segi
og það til marks að hlutur er horftnn úr pússi þínum,
sá er Haraldur konungur gaf þér í HafursFirói, og er
hann nú kominn í holt það er þú munt byggja og er á
hlutunum markaður Freyr af silfri. Og þá er þú reisir
bæ þinn mun saga mín sannast. Gríms eru forlög
þangað og svo bróður hans Hróðmundar og munu
þeir báðir verða gildir bændur.“
51. Ingimundur sagði að þar mundi skilja með
þeim. Grímur sigldi út um sumarið og báðir þeir
bræður, komu í Borgarfjörð og lögðu inn að
Hvanneyri. Grímur tók sér landnám svo mikið að þar
eru nú bæir margir í hans landareign. Hróðmundur
kvaðst mundu leita upp til fjalla og kvaðst þar mundu
yndi nema í fjallaendum. Grímur kvað þaó vel efnað
að þeir hefðu bæði jarðkost fjallanna og þó neyti af
sjónum. Hrómundur nam Þverárhlíó og þótti vera
merkismaður og kynsæll. Frá honum er kominn
Illugi svarti. Grímur varð og kynsæll og kom margt
göfugmenni frá honum þótt hér séu eigi nefndir.
52. Þaö sumar er þeir bræður fóru til íslands fór
50. Um morguninn eftir leitaði Ingimundur
hlutarins og fann eigi. Það þótti honum eigi góðs viti.
Ingjaldur bað hann vera glaðan og láta þetta eigi á sig
bíta eða fyrir gleói standa og kvað marga ágæta
menn láta sér nú sóma að fara til Islands. Síðan fer
Ingimundur heim til föður síns og var þar um
veturinn. Er voraði spurði hann fóstbræður sína um
ferðimar hvað þeim sýndist. Grímur kvað þá bræður
ætla til Islands. Þar gengi fé sjálfala á vetrum en
fiskur í hverju vatni, skógar miklir en frjálsir af
ágangi konunga og illræðismanna.
Ingimundur til föður síns og var með honum.
Þorsteinn faðir hans tók að eldast. Eitt sinn mælti
hann til Ingimundan „Gott er nú að deyja og vita son
sinn slíkan hamingjumann. Uni eg því best við ævi
mína að eg hefi verið engi ágangsmaður við menn.
Er og líkast að meó þeim enda slitni ævi mín því að
eg kenni nú sóttar. Nú vil eg þér ffændi í kunnleika
gera fjárfar mitt hvert er en eigi þykir mér kynlegt
þótt þér svífi af þessum ættjörðum og læt eg mér eigi
að því þykja.“ Ingimundur kvaðst mundu breyta eftir
hans fyrirsögn. Þorsteinn segir honum þá marga hluti
fyrir og brátt eftir það andaðist hann.
Ókeypssmaar
Á vit ævintýranna
Til sölu!
Til sölu Yamaha píanó. Upp-
lýsingar í síma 453 5891.
Hlutir óskast!
Góöur einnar hásingar tjaldvagn
óskast. Upplýsingar í síma 452
4473.
Oska eftir aö kaupa Kuhn hey-
þyrlu, árgerö 1980 eöa eldri. Þarf
ekki aö vera í lagi. Upplýsingar í
síma 453 8866.
Atvinna óskast!
Rúmlega fertugur maóur óskar
eftir atvinnu. Allt kemur til gteina.
Er með meirapróf. Upplýsingar í
síma 453 6337.
í haust halda þrjú ungmenni úr Skagaftröi út í hinn stóra heim á vit
ævintýranna á vegum skiptinemasamtaka AFS. „Viö víkkum sjón-
deildarhringinn. Lifum í öömvísi menningu, eignumst nýja vini og
læmm framandi tungumál. Með því að fara sem skiptinemi nálgast
maóur menningu landsins á annan hátt, ekki sem ferðamaður heldur
sem innfæddur. Viö ætlum bara aö hafa gaman af þessu“, segir Alma
Bjömsdóttir einn þriggja Skagfiröinganna sem fara.
Ódýr veiðileyfi til sölu!
✓
Odýr veióileyfi fást í Blöndulón, Galtará og
Haugakvísl á Eyvindarstaóaheiði. Næg
gistiaóstaóa á staðnum. Upplýsingar hjá
skálavöröum á Eyvindarstaóaheiöi í síma
853 0269 eða í síma 452 7112.
Söngveisla í
Miðgarði
Mánudaginn 5. júní sl. var
haldin mikil söngveisla í Mið-
garði. Þar komu fram einsöngv-
arar úr Skagafirði og víðar aö
ásamt undirleikumm. Margrét á
Löngumýri formaður Tónlistar-
félags Skagafjarðarsýslu bauö
gesti velkomna og greindi frá
aðdraganda tónleikanna. Gat
hún þess að tónleikamir væru
haldnir í því skyni að afla fjár til
kaupa á nýja flyglinum, sem
húsið eignaðist nú í vetur og er
hið glæsilegasta hljóðfæri.
Kynnti hún síðan dagskrána.
Fyrstir á sviðið voru þeir
Álftagerðisbræður: Sigfús, Pét-
ur, Oskar og Gísli. Sungu þeir
nokkur lög af sinni alkunnu
snilld og sönggleði, m.a. „O,
Sole Álftagerðis“ (O, Sole Mio),
sem vakti mikinn fögnuð áheyr-
enda. Undirleikari þeirra var
Stefán R. Gíslason.
Þá sté á svið Helga Rós Ind-
riðadóttir. Hún söng fjögur lög.
Helga hefur mikla rödd, sem
naut sín vel í öllum lögunum,
ekki síst í laginu Síðasti dansinn.
Næstur á dagskrá var Ásgeir
Eiríksson. Ásgeir söng fjögur
lög. Hin mikla og djúpa
baritonsrödd hans naut sín eink-
ar vel í lögunum: O, Isis und Os-
iris og On the road to Mandaley.
Því næst söng Margrét Stef-
ánsdóttir. Margrét hefúr afar fín-
lega rödd, sem hún beitir af mik-
illi smekkvísi. Hún söng einnig
fjögur lög, innlend og erlend.
Þær Helga og Mrgrét sungu
einnig dúett í einu lagi. Undir-
leikari þeirra Helgu, Ásgeirs og
Margrétar var Gróa Hreinsdóttir
sem fyrir nokkmm ámm starfaði
sem tónlistarkennari í Varma-
hlíð. Skilaði hún hlutverki sínu
með mikilli prýði.
Þá var röðin komin að Oskari
Péturssyni tenór frá Álftagerði.
Oskar söng fjögur lög við undir-
leik Guðrúnar Kristinsdóttur,
hins þekkta píanóleikara. Óskar
er mikill og bjartur tenór og
tókst sannarlega að slá á við-
kvæma strengi í brjóstum áheyr-
enda, ekki síst þegar hann söng
lagið í fjarlægð eftir Karl O.
Runólfsson.
Að loknum söng Óskars sté á
svió Björg Þórhallsdóttir söng-
kona frá Akureyri. Björg hefur
feiknamikla rödd, sem hún fer
vel með og beitir af mikilli list.
Undirritaður hefur ekki fyrr átt
þess kost að heyra Björgu
syngja, en það duldist engum,
sem á hlýddi, að þar fer mikil
söngkona. Undirleikari Bjargar
var Guórún Kristinsdóttir. Þau
Björg og Óskar sungu síðan
dúett í laginu „Ég sé þig aðeins
eina“, við mikinn fögnuð áheyr-
enda.
Síðastur á söngskránni var
tenórinn Guðmundur Sigurðs-
son, Njarðvík, aóalsöngvari með
Skagfirsku söngsveitinni. Guð-
mundur söng þrjú lög með und-
irleik konu sinnar Gróu Hreins-
dóttur. Var söngur hans
skemmtilegur lokapunktur á
annars ágætri tónlistardagskrá.
Áheyrendur fögnuóu söngfólki
með dynjandi lófaklappi, sem
seint ætlaði að linna, og urðu
þau öll að syngja aukalög. Var
þeim öllum færóur blómvöndur
frá Tónlistarfélaginu að lokum.
Þaö var eftirminnileg stund
að hlýða á söng þessa ágæta tón-
listarfólks í Miðgarði og sýnir
svo ekki verður um villst, að
Norólendingar eiga nú sem íyrr
margt ungra og upprennandi
söngvara sem vænta má mikils
af í framtíðinni. Hafi þau öll
heila þökk fyrir ógleymanlega
söngskemmtun. Því miður vom
áheyrendur í Miðgarði of fáir
þennan 2. hvítasunnudag, eða
aðeins um 80.
Þeir sem heima sátu misstu af
góðri skemmtun og tækifæri til
að styója gott málefhi, eða eins og
Margrét á Löngumýri oróaði
það: „Þegar ég horfi á auðu sætin
héma íyrir framan þá get ég sam-
hryggst þeim sem heima sitja“.
Ólafúr Þ. Ilallgrímsson.
Alma ætlar að fara til Ekvador í Suður - Ameríku. Það er reyndar
komin hefð á að skiptinemar séu í fjölskyldu Ölmu, en báðar systur
hennar hafa verið skiptinemar. Reynhildur Karlsdóttir, sem er frá
Sauðárkróki eins og Alma, fer til Venezuela í Suður - Ameríku. Guð-
mundur Einarsson frá Veðramóti ætlar til Bandaríkjanna.
Sú vinna sem fram fer í samtökunum er að mestum hluta sjálf-
boðastarf. Eitt af vandamálum AFS er að fá fólk til þess að opna
hjarta sitt og heimili fyrir skiptinemum. Sem dæmi má nefna að
deildin á Sauðárkróki hefur sent 18 nema en hefur einungis fengió 5
nema hingað á svæðið. Nú er ætlunin að gera bragarbót þar á og
steína að því að fá fjölskyldur íyrir 2 nema. Annar nemanna er stelpa
ffá Svíþjóð og er ekki enn búið að finna fjölskyldu lyrir hana. Hún
hefúr mikinn áhuga á hestum og á sjálf tvo íslenska. Ef þið lesendur
góóir hafið áhuga á að opna heimili ykkar og víkka sjóndeildarhring-
inn, hafið þá samband vió Ásdísi í síma 453 5045, eða Debbie í sím-
um453 6097 og 453 6281.
AFS skiptinemasamtökin voru upphaflega samtök sjúkraflutn-
ingabílstjóra í seinni heimstyrjöldinni. Eftir harmasögu heimstyrjald-
arinnar ákváðu þeir að leggja sitt af mörkum til friðar í heiminum
með því að hefja skiptinemastarf sem hefur staðió með blóma síóan.