Feykir - 11.07.1995, Blaðsíða 8
11. júlí 1995, 27. tölublað 15. árgangur.
Auglýsing í Feyki fer víða!
Það komast allir í Gengið
unglingaklúbb Landsbankans
Sláðu til og komdu í Gengið
Pottþéttur klúbbur!
m Landsbanki
Sími 453 5353 mi Lsla,ndí , „
■■ ÆmJtk Banki ailra landsmanna
Arnar HU-1 seldur frá Skagaströnd
Skagstrendingur ætlar að kaupa annað skip í stað Arnars.
Skagstrendingur hf. hefur selt
frystiskipið glæsilega Arnar
HU-1 til Grænlands. Félagið
mun áfram eiga Arnar gamla
HU-101 og Örvar HU-21 og
fyrirhuguð eru kaup á eldra
og minna frystiskipi í stað
Arnars. Er ákveðið skip í sigt-
inu í því sambandi, og standa
vonir til að það skip verði
komið til Skagastrandar í
haust þegar Arnar fer úr
landi, að sögn Óskars Þórðar-
sonar framkvæmdastjóra
Skagstrendings. I tilkynningu
frá stjórn fyrirtækisins segir
að söluverð Arnars sé mjög
ásættanlegt eða nálægt bók-
færðu verði skipsins. Með söl-
unni hyggst Skagstrendingur
lækka skuldir verulega án þess
að minnka umsvif felagsins.
Með þessum breytingum á
skipastóli er gert ráð fyrir að
skuldir Skagstrendings lækki um
a.m.k. 500 milljónir án þess að
kvótastaðan versni. Reiknað er
með óbreyttri framlegð þriggja
skipa, en afskriftir og vaxta-
kosmaður muni lækka um ná-
lægt 80 milljónir á ári. Mun þetta
gjörbreyta rekstrar- og greiðslu-
stöðu félagsins til batnaðar og
verður það svigrúm sem fæst
nýtt til að lækka skuldir og treysta
enn frekar rekstrargrundvöllinn.
Amar HU-1 er einn stærsti og
fiillkomnasti frystitogari flotans
og kom nýr til landsins í desem-
ber 1992. Skipið hefur náð mjög
góóum árangri á veiðum miðað
við þá möguleika sem eru á Is-
landsmiðum í dag og má nefna
að það var með mesta aflaverð-
mæti íslenskra frystiskipa kvóta-
árið 1993-94 og fyrstu fjóra
mánuði þessa árs. Hin mikla fjár-
festing sem í skipinu felst hefur
hinsvegar verið Skagstrendingi
mjög íþyngjandi sl. tvö og hálft ár.
Frá því ákvörðun var tekin
um smíði Amars hefur félagið
oröið fyrir skerðingu á þorsk-
kvóta sem nemur yfir þrjú þús-
und tonnum auk skerðingar í
öðrum tegundum. Hefur þetta
ásamt lækkandi verðum á sjó-
frystum afurðum kippt grund-
velli undan rekstri skipsins hjá
Skagstrendingi. Það var mat
stjórnar félagsins að rekstrar-
grundvöllur skipsins yrði ekki
tryggður hjá Skagstrendingi í
fyrirsjáanlegri ffamtíð.
Það er grænlensk/danska stór-
fyrirtækið Royal Greenland sem
keypti Amar. Fyrirtækið er þaó
langstærsta í útgerðar- og fisk-
vinnslu á Grænlandi og að
mestu í eigu landsstjómarinnar.
Það hefur yfir um 10 frystiskip-
um að ráða.
□
Sjóli, sem verður Málmey SK-1,
kemur í fyrsta skipti til Sauðárkróks í dag.
Skipið verður til sýnis frá kl. 17 til 22 í kvöld.
%Ak\