Feykir - 13.09.1995, Side 3
31/1994 FEYKIR 3
Af götunni
Krókurinn í Þeytingu
Sjónvarpió ætlar á næsta
vetri að framleiða skemmti- og
fræðsluþætti sem teknir verða
upp á þéttbýlisstöðum hingað og
þangað um landió. Heimamenn
munu leita fanga við efnisöflun
og myndir verða sýndar í þáttun-
um frá viðkomandi stöðum.
Sjónvarpið hefur gert samning
við Sauðárkróksbæ um gerð
slíks þáttar og styrkti bærinn
þessa þáttagerð um 250 þúsund
krónur. Skemmtiþættimir heita
Þeyting og verða í umsjá Bjöms
Emilssonar. Þátturinn frá Sauó-
árkróki verður væntanlega sýnd-
ur í mars. Meðal þeirra sem und-
irbúið hafa þáttageróina af hálfu
heimamanna, eru bræðurnir
Hilmar og Viöar Sverrissynir og
Þorvaldur G. Óskarsson á
Sleitustöðum, formaður Karla-
kórsins Heimis.
Stórafmæli á næsta
og þar næsta ári
Næstu tvö ár veröa mikil af-
mælisár á Sauðárkróki og þegar
er byrjað að huga að hátíðum til
að halda upp á þessi afmæli með
viðeigandi hætti. A næsta ári á
Krókurinn 125 ára búsetuafmæli
og árið 1997 verða 50 ár frá því
að Sauðárkrókur fékk kaup-
staðarréttindi. Afmælisnefnd
hefur verið skipuð og em í henni,
Arni Ragnarsson formaður,
Brynjar Pálsson, Guðmundur
Guðmundsson og Ómar Bragi
Stefánsson. Nefhdin hefur þegar
komið saman og nokkrar hug-
myndir em komnar á blað varð-
andi tilhögun afmælishátíðanna.
Þegar einn hann bjó
Sagan segir af vísitasíu prests
eins í Húnaþingi sem nýlega
haföi tekið við sínu starfi. Prest-
urinn ferðaðist bæ frá bæ og
heilsaði upp á sóknarböm sín.
Hann kom til einsetumanns eins
á Skaganum, sem hafði gengið
myndarlega til verks og byggt
upp myndarbýli úr því sem áður
var eyóikot í nióumíðslu. Presti
þótti mikill sómi vera að verki
mannsins, en fannst ótrúlegt að
hann hefði gert slíkt upp á egin
spýtur og segir því: „Það er mik-
ió sem þú og guö hafið gert hér“.
Bóndi var snöggur til svars og
sagói: „Ja þú hefðir þá átt að
koma hingað þegar hann bjó hér
einn“.
...ljós punktur
í tilverunni....
Áningastaðurinn skammt austan nýju brúarinnar yflr Vesturósinn er mjög
snyrtilegur og þaðan er útsýni yfir nágrenni Sauðárkróks og út á Skagafjörö.
Fólkvangur við
Vesturós Héraðsvatna
Vegfarendur urðu væntanlega í sumar
varir við framkvæmdir skammt frá veg-
inum austan nýju brúarinnar yfir Vest-
urós Héraðsvatna. Þarna var Vegagerð
ríkisins að láta gera svokallaðan áninga-
stað. Einnig var unnið að lagfæringum á
gömlu brúnni yfír Vesturósinn og gerð
göngustígs frá áningastaðnum niður að
Héraðsvötnunum og að gömlu Vesturós-
brúnni. Vegagerðin kostar framkvæmd-
irnar við gerð þessa nýja fólksvangs í
nágrenni Sauðárkróks.
Að sögn Gísla Felixsonar hjá Vegagerð-
inni hefur verið ákveðið að varðveita gömlu
Vesturósbrúna og í sumar var henni komið í
upprunalegt horf með því að setja m.a. á
hana há handrið. Þannig þjónar hún mjög
vel því hlutverki sem henni er ætlað, það er
að vera tenging á göngu og reiðvegi við
Vötnin. Göngustígurinn tengir Óssvæóið
við áningarstaðinn sem gerður var skammt
frá nýja veginum í sumar.
„Það var unga fólkið okkar sem vann að
gerð stígsins í sumar og ég held að megi
segja að tekist hafi vel til. Þetta var mikið
verk og eiginlega allt unnið með handverk-
færum. Það var ekki fyrr en komið var niður
undir Ósinn aó unnt var að koma við tækj-
Göngustígur meðfram Héraðsvötnum
tengir áningastaðinn við gömlu brúna
yfir Héraðsvötn. I sumar var brúnni
komið í upprunalegt horf, m.a. sett á
hana há handrið.
um“, segir Gísli Felixson.
Göngustígurinn frá áningarstaðnum að
ósnum er 2-300 metra langur og eflaust
verður hann til þess að fleiri vegfarendur
stoppa en ella hefði orðið og taka á sig smá
krók á slóðir Jóns Ósmanns, en ffést hefúr
af því að Helgi Sigurðsson torfhleðslumaóur
frá Stóru-Ökrum í Blönduhlíð ætli að hafa
forgöngu um að ferjumannsskýlið verði
hlaðið upp í upprunalegri mynd.
Ný og góö ávöxtun
KS-bókin
hefur 5,50% vexti, er verðtryggð og
hefur tveggja ára binditíma.
Nafnvextir almennrar
Samvinnubókar eru 5,0%,
ársávöxtun 5,06%
Innlánsdeild