Feykir - 20.09.1995, Blaðsíða 1
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Steinullarverksmiðjan 10 ára:
Ráðuneytið styður þróunar-
verkefni í verksmiðjunni
16,5 milljóna hagnaður fyrstu átta mánuði ársins
Hagnaður Steinllarverksmiðj-
unnar fyrstu átta mánuði árs-
ins er 16,5 milljónir í sam-
anburði við 3 milljónir á sama
tímabili í fyrra. Tekjur fyrir-
tækisins fyrstu 8 mánuðina
nema 376 milljónum, sem er
30% aukning frá liðnu ári.
Sl. föstudag var þess minnst í
Steinullarverksmiðjunni að 10 ár
voru liðin frá því aö ofn verk-
smiðjunnar var ræstur í fyrsta
sinn. í tilefni afmælisins bauð
stjóm verksmiðjunnar Finni Ing-
ólfssyni iðnaðarráðherra í heim-
sókn til fyrirtækisins, en allir
iönaðarráðherrar hafa komió í
verksmiðjuna, enda ríkissjóður
stærsti eignaraðili fyrirtækisins.
Á fundi með starfsmönnum
Steinullarverksmiðjunnar í gær-
morgun tilkynnti ráðherrann þá
ákvörðun iðnaðarráðuneytis að
styðja við þróunarverkefni verk-
smiðjunnar, er miöar að fram-
leiðslu og markaðssetningu ým-
iss vamings sem unninn er úr
steinull.
Ráðherra vék að þrautsegju
stjómenda Steinullarverksmiðj-
unnar hvemig þeir hefðu mætt
þeim erfiðleikum sem rekstur
verksmiðjunnar mætti fyrstu
árin. Stuðningur iðnaðarráóu-
neytisins i þróunarverkefni
Steinullarverksmiðjunnar felst í
greiðslu hluta launa starfsmanns
sem að verkefninu vinnur. Einar
Einarsson framkvæmdastjóri
Steinullarverksmiðjunnar segir
að þessi stuðningur sé mjög
mikilvægur verksmiðjunni. Ein-
ar sagði starfsmenn oft hafa
nefnt möguleika á ffekari ffam-
leiðslu vamings úr steinullinni
og menn vissu af því að erleridis
væm ffamleiddar ýmsar vömr af
þessu tagi, s.s. mottur undir
ræktun í gróðurhúsum, einangr-
un á pípulagnir og fleira. Lengi
vel hefði verksmiöjan ekki haff
bolmagn til að sinna þessum
þætti. Baráttan hefði ætíð beinst
að því að ráða vió alltof mikla
skuldsemingu fyrirtækisins og
mikill árangur hefði náðst á því
sviði síðustu árin.
Skíðamenn á Siglufirði:
Smala Héðinsfjörð
„Það smalaðist mjög vel hjá
okkur og veðrið var alveg frá-
bært bæði á föstudag og laug-
ardag. Síðan kom hvellur á
laugardagskvöldið og það var
ansi hvasst þegar við rákum
yfir í Siglufjörð á sunnudag-
inn. Þá var varla stætt á Hest-
skarðinu“, sagði Egill Rögn-
valdsson á Siglufirði, en
skíðamenn í bænum tóku að
sér göngur í Héðinsfirði nú
eins og síðustu 12-13 árin.
Þykir þetta góð fjáröflun fyrir
starfsemi Skíðafélagsins.
Að sögn Egils þurfti sam-
kvæmt gangnaseðli aó útvega
12 menn í fyrri göngur og sex í
þær seinni. Engum vandkvæð-
um var bundið að fá menn í
göngurnar og fór 20 manna
flokkur ffá Siglufirði. Farið var
með bát til Héðinsfjarðar um
hádegi á föstudag og smalað
þann dag Músadal og Víkurdal
og réttað um kvöldið. Afféttin í
Héðinsfirðinum var síðan geng-
in á laugardag og safnið svo
rekið yfir Hestskarðið til Siglu-
Qarðar á sunnudagsmorgun.
Gárungamir á Siglufirði tala
um að ýmsar hefðir fylgi göng-
um í Héðinsfirði. Menn séu
alltaf með sömu tegundir matar
í nestismalnum og í sömu föt-
unum ár eftir ár. Þannig gangi
það mann ffam að manni og að-
algangnamennimir nú séu famir
að ala synina upp í þessu, en
það em Egill og Andrés Stef-
ánsson sem em gangnaforingjar.
„Já það er eitthvað til í
þessu. Eg hef t.d. verið með
sömu húfuna í göngunum síðan
1981. Sonur minn fór með í
fyrsta skipti núna og Andrés er
kominn meó tvo syni sína með
sér. Síðan er það víst alveg skil-
yrði að gangnamenn eigi að
leggja steinvölu á svokallaðan
Gangnamannastein sem er varða
fremst í afréttinni. Geri menn
það á smölunin að ganga vel og
menn geiöu það alveg svikalaust
aö þessu sinni“, sagði Egill.
Um 100 fjár eiga sumarhaga
í Héðinsfirði, úr Ólafsfirði og
Fljótum. Ekki hefur siglfirsk
kind gengið í Héðinsfirði til
fjölda ára, að sögn Egils.
Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra ræsir nýja og fullkomna
steinullarsög sem tekin var í notkun í Steinullarverksmiðjunni
í gær. Finni á vinstri hönd er Guðmundur Örn Guðmundsson
framleiðslustjóri, en þá Einar Einarsson framkvæmdastjóri
og stjórnarmennirnir Arni Guðmundsson, Sigurður
Ágústsson og Guðmundur Guðmundsson.
Ovænt innlegg í rafveitumálið:
Ráðherra ætlar
ekki að
kaup á
„Ég mun ekki heimila Rarik
uppkaup á fleiri rafveitum í
landinu en þegar hefúr verið
gert“, sagði Finnur Ingólfsson
iðnaðarráðherra á fúndi í Kafli
Krók á Sauðárkróki í fyrra-
kvöld. Þar með virðast tillögur
flokksbræðra Finns í bæjar-
stjórn Sauðárkróks, um að
óska eftir viðræðum við Rarik
um kaup á rafveitunni, vera
fallnar um sjálfa sig.
Svar Finns kom í framhaldi af
spumingu Sigurðar Ágústssonar
rafveitustjóra Rafveitu Sauðár-
króks þar sem Siguiður lýsti eftir
skoðun ráðherra á orkudreifingar-
málum í landinu, hvort hann sæi
fyrir sér að raforkudreifingin
mundi þróast áfram á þann rúss-
heimila
veitum
neska máta sem borið hefði á
undanfarin misseri, með upp-
kaupum Rariks á oikuveitum um
landið. Ráðherra svaraði því til
að raforkudreifingarmálin væru í
endurskoðun.
Báðir bæjarfulltrúar fram-
sóknarmanna, Bjarni Ragnar
Brynjólfsson og Stefán Logi Har-
aldsson vom á fundinum í Kaffi
Krók, sem og Bjöm Sigurbjöms-
son bæjarfúlltrúi Alþýðuflokks.
Stefán Guömundsson alþingis-
maður sló á létta strengi í lok
fundarins og kvað Sigurð
Ágústsson rafveitustjóra geta sof-
ið vel í nótt eftir þetta svar ráð-
herra og líklega mundi hann stika
létt yfir Faxatorgið til vinnu í
fyrramálið.
—ICTeH?ífl —
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, bílas. 853 1419, íax 453 6019
Almenn verktakaþjónusta,
Frysti- og kœliþjónusta,
Bíla- og skiparafmagn,
Véla- og verkfœraþjónusta
/IKl
bílaverkstæði
Sími 453 5141
Sœmundargötu 16 Sauöárkróki íax: 453 6140
Bíloviðgerðir Hjólbarðaverkstœði
Réttingar Sprautun