Feykir


Feykir - 20.09.1995, Blaðsíða 4

Feykir - 20.09.1995, Blaðsíða 4
4FEYKIR 32/1995 Nítján ára unglingur reið á vaðið í rafvæðingu bæjarins Gamla stíflan í Sauðárvirkjun. Stíflunni hefur verið haldið við, enda merkt mannvirki í sögu bæjarins. Málefni Rafveitu Sauðár- króks hafa verið talsvert tii umræðu að undanförnu í kjölfar tillögu bæjafulltrúa framsóknarmanna í bæjar- stjórn Sauðárkróks um við- ræður við Rarik um hugs- anleg kaup á rafveitunni. Haft hefur verið á orði að þessi umræða sé um of á til- flnningalegum nótum. Hvað um það. A þessum tíma- punkti er líklega ekki út í bláinn að líta um öxl og skoða þróun raforkumála á Sauðárkróki. Agæta saman- tekt um sögu rafvæðingar á Sauðárkróki er að finna í því merka uppflettiriti Sögu Sauðárkróks. Hér á eftir kemur útdráttur úr þessari samantekt Kristmundar Bjarnasonar fræðimanns á Sjávarborg, ásamt innskot- um blaðamanns Feykis. A ýmsum mannamótum, sem fram fóru á Sauðárkróki á ámnum 1905-1913, „kom oft til tals, hvort ekki væri framkvæm- anlegt aó setja upp aflstöð til þess að framleiða rafafl til ljósa á Sauðárkróki, en ekkert var gert til þess að undirbúa málið eða koma því á rekspöl þar til 1913. Þá fékk hreppsnefnd Sauðár- krókshrepps Jón Isleifsson verk- fræðing til að athuga skilyrði fyrir vatnsaflsstöó. í ágúst fynr- greint ár mældi hann Sauðá og Gönguskarðsá, en hana taldi hann líklega til orkuvinnslu. At- hugun fór fram á: vatnsmagni árinnar, stíflustæði og legu leiðslu, stöðvarhúsi og affennsli, og vegalengd til þorpsins. Pétur Sighvatsson símstjóri var honum til aðstoðar. Hreppsnefnd hafði hug á að taka rafveitumálið til rækilegrar íhugunar veturinn eftir, en þá bregður svo við að fram- kvæmdaáætlun og uppdráttur af virkjunni berst ekki frá Jóni eins og hann hafði lofað, og komu þau plögg aldrei. Á sömu lund fór með Guðmund Hlíðar verk- fræðing sem fenginn var til að athuga virkjunarskilyrðin. Vatnsmælingum var þó haldið áfram af Pétri Sighvats um ára- bil og hreppsnefndin kannaði oikuþörfma í hreppnum með því t.d. að kanna steinolíueyðsluna. Reyndist hún vera um 112 föt árlega. Árið 1917 var fimm manna nefnd kosin til undirbúnings framkvæmda í málinu. Kosn- ingu hlutu Magnús Guðmunds- son sýslumaður, sr. Hálfdán Guðjónsson, Pétur Sighvatsson og Pálmi Pétursson. Á vegum nefhdarinnar fóru ffarn mæling- ar og athuganir á Sauðá, Göngu- skarðsá, Fagranesá, Hólakotsá og Hraksíöuá. Sýnt þótti að ekk- ert gæti orðið úr virkjun meðan styrjöldin geysaði, en ákveðið að nota tímann vel til undirbúnings málinu. Nefhdin fékk til liðs við sig Halldór Guðmundsson raf- ffæðing. Hann kannaði aðstæður við fyrrgreindar ár árið 1919 og gerði áætlun um virkjun Göngu- skarðsár með 16 metra hárri stíflu við elsta brúarstæði árinn- ar, um 2800 metra ffá sjó. Þetta hefði orðið 800-1000 hestafla stöð, en slík framkvæmd var hreppsfélaginu ofviða. Mælti þá Halldór helst með virkjun Hóla- kotsár á Reykjaströnd, ef síðar kæmi vióbótarvirkjun í Fagra- nesánni. Ekki þótt fært að hefja virkj- unarframkvæmdir sökum erfiðs fjárhags. Mælingum var þó haldið áfram af Pétri Sighvats. Jónas Kristjánsson læknir kom einnig mjög við sögu, en hann hafði mikinn áhuga á að koma upp ljósalækningastofu. Jónas átti sæti í rafveitunefhd. Björgvin kemur Síósumars 1922 gerðist það aó maður að nafni Björgvin Bjarnason frá ísafirði, síðar þjóðkunnur athafnamaður í út- vegsmálum, kemur til bæjarins og býðst til að koma upp vél- arrafstöð, en hann hafði unnið mikið við rafvirkjun. Hinn 20. ágúst var boðað til borgarafund- ar: „Tilefni fundarins er að raf- magnsfræðingur frá Isafirði hr. Björgvin Bjamason hafði látið í ljósi við hreppsnefnd hér að svara mundi kostnaði að koma hér upp rafmagnsstöð rekinni af steinolíumótorvél. Svo varð endir þessa máls að samningar tókust með Björgvin og Sauðkrækingum (Rafmagns- notendafélagi Sauðárkróks) hinn 2. september. Átti hann að koma upp rafstöð ásamt dreifikerfi og starfrækja síðan fyrirtækið á eig- in ábyrgð, en það átti að vera komið svo vel á veg fyrir haustið 1923 aö allir bæjarbúar er þess óskuðu gætu fengið rafmagn til Ijósa. Björgvin hóf þegar fram- kvæmdir, tók á leigu húsnæði í eigu Sölva Jónssonar jámsmiðs fyrir rafstöð, og áöur en langt um leið hafði hann keypt rafstöð úr Isafoldarprentsmiðju í Reykjavík, sem ætla má að hafi verið fyrsta rafstöðin á íslandi. Um stærð hennar fer tvennum sögum. Kristinn P. Briem, sem var eigandi hennar um skeið, tel- ur hana hafa verið 7-8 hestöfl, aðrirnefha 10-12. Haustið 1922 hafði Björgvin Bjamason lagt nokkrar útileiðsl- ur og fyrir jól var komið raf- magn í fáein hús, en rafmagns- mæliar engir og greiðsla því áætluð kr. 0.75 á kilowattstund. Stöðvarstjóri var ráðinn Sölvi Jónsson jámsmiður. Hjá ísleifi kaupmanni ísleifur Gíslason kaupmaður var í hópi þeirra sern fyrst fengu rafmagn til ljósa. Sveitamenn og aðrir, er engin kynni höföu áður haft af rafmagni komu í búðina til Isleifs og varð tíðrætt um þetta tækniundur og vildu kynna sér eðli þess, til að mynda sjá ljós kvikna á loftperunni og slokkna. ísleifur kvað kvikna á perunni þegar hann bæði um þaö og talaði skýrt og greinilega. Því til sönnunar hallaði hann sér upp að veggnum þar sem slökkvarinn var og kallaði: Verði ljós“ - og það varð. Stuttu eftir að Björgvin gerði raforkusamninginn, lét hann að því hníga að hann hefði hug á að gera fyrirtækið að hlutafélagi. Kristinn P. Briem studdi fyrir- tækið með hlutafé og þegar ljóst var snemma árs 1923 að Björgin skorti fé til að reka það áffarn, keypti Briem rafveituna. Björgv- in hvarf alfarið úr bænum. Ekki er undarlegt þótt félítill 19 ára unglingur yrði að gefa upp á bát- inn að verða Sauðkrækingum yl- og birtugjafi; þeim reyndist það harðsótt sem við tóku af honum. Briem útvegaói rafmagns- mæla, en straumurinn var 110 volta jafnstraumur. Hann sá um gerð raflagna utan húss og innan og keypti nú tæki til stöðvarinn- ar. Mikill halli varð á rekstri raf- veitunnar. í febrúar 1925 til- kynnti Briem að hann mundi hætta starfrækslu hennar meö vorinu. Bauð hann hreppnum til kaups Rafmagnsstöð Sauðár- króks, eins og rafveitan hét þá. Reglugerð gefin út Hreppsnefnd og húsráóend- um á Sauðárkróki var mikill vandi á höndum. Ur ráði varð að fela séra Hálfdani Guðjónssyni að skrifa Steingrími Jónssyni verkffæðingi og leita álits hans. Þegar hér var komið sögu var 18-22 hesta rafmótor í notkun á Króknum. Eftir var að leggja rafmagn í um 20 hús, og voru flest lítil. Götuljós voru tíu að tölu og annar götuljósapóllinn tekinn úr húsi Haraldar Júlíus- sonar kaupmanns, en þaðan greindist kerfið um rofa til beggja átta. Steingrímur Jónsson raf- magnsveitustjóri réð Sauðkræk- ingum til að kaupa rafstöð Kr. Briems, þar eð kostnaður við vatnsvirkjun væri meiri en svo að hreppurinn gæti staðið undir honum að svo stöddu. Var horf- ið að þessu ráði og varð Stein- grímur síðan um langt árabil helsti ráðunautur Sauðkrækinga í raforkumálum. Hinn 5. júní 1925 keypti hreppsfélagið rafstöóina og dreifikerfið af Briem. Sumarið 1927, hinn 7. júlí, var reglugeró um meðferð og notkun raf- magns á Sauðárkróki staðfest af stjómarráði svo og gjaldskrá raf- veitunnar. I 2. grein segir að veitan selji rafmagn innan jjess- ara takmarka: „að sunnan frá Grænuklauf og norður á móts við nyrðra hom á Gránuklauf‘. I reglugerðinni er einnig kveðið svo á, að rafmagnið sé fyrst og fremst ætlað til lýsingar og rekstrartími stöóvarinnar sé ffá 15. ágúst til 1. maí ár hvert. Raf- veitan hafði og einkasölu á öll- um raftækjum á rafveitusvæð- inu. Dýrara að sjóða en lýsa íbúum Sauðárkróks fjölgaði um 300 á árabilinu 1923-1933. Raforkuþörf fór vaxandi. Árið 1932 var orkuþörfinni ekki leng- ur fullnægt. Hreppsnefnd ákvað þá að koma á stofn vatnsafls- virkjun. Eiríkur Ormsson raf- virkjameistari var hreppsnefnd til ráðuneytis og á almennum borgarafundi 6. mars 1933 var eindregið mælt með virkjun Sauðár. Var Stefán Runólfsson rafvirki fenginn til að sjá um framkvæmdir. Erlingur Elling- sen verkffæðingur hafói yfimm- sjón með verkinu, en verkstjóri úti við var Albert, sonur Sölva jámsmiðs Jónssonar. Stöðvarhúsi Sauðárvirkjunar var valinn staður neðst í mynni Grjótklaufar og stendur það enn, hefur undanfarin ár verið notaó sem áhaldageymsla bæjarins vegna skólagarða. Vegalengdin frá stíflu að stöðvaibúsi er 1200 metrar. Fyrsti rafali stöóvarinnar var 440 V rakstraumsrafali. I styrjaldarbyrjun þótti auð- sætt að vatnsaflstöðin yrði brátt of lítil vaxandi kauptúni. Árið 1943 urðu neytendur að draga verulega úr rafmagnsnotkun. Þá var og gripið til þess ráðs að hækka raforkuverð til suðu og átti það að tryggja næga raforku til ljósa. Rafveitunefnd lét og skipta um perur í götuljósum, 40 W perur settar í stað 100 W pera. Haustið 1945 var keypt 90 kw díselvélasamstæða til að létta á Sauðárvirkjun, og einnig var skipt um rafala fyrir vatnsvél Sauðárstöðvar. Þá fyrst komst riðstraumskerfi í notkun. Dísel- vélasamstæðunni var komið fyr- ir í ffystihúsinu. Notkun hennar fór sívaxandi, þótt íbúum fjölg- aði dræmt á þessum ámm. Þótti því sýnt, að enn þyrfti úrbóta við, og því var farið að vinna að undirbúningi Gönguskarðsár- virkjunar. Hinn 8. desember 1949 var straumnum þaóan hleypt á bæjarkerfið, og var þá fengin stórbætt aöstaða til iðnað- ar á Sauðárkróki.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.