Feykir


Feykir - 17.01.1996, Side 1

Feykir - 17.01.1996, Side 1
rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU 1 SAUÐÁRKRÓKI Skagafjörður: Alvara í samein- ingarviðræðunum Svo virðist sem talsverð alvara sé komin í sameiningaviðræð- ur sveitarfélaga í Skagafirði. Fulltrúar já-hreppanna svo- nefhdu komu saman til fúnd- ar nokkru fyrir jól og annar fúndur þessara aðila er á dag- skrá í dag. Fljótamenn, sem samþykktu ekki sameiningu á sínum tíma, óskuðu eftir að vera með í þessum viðræðum og nú hefur borist beiðni frá Seylhreppingum sem væntan- lega verður tekin fyrir á fúnd- inum í dag. Þegar kosið var um samein- ingu Skagafjarðar í eitt sveitar- félag á haustdögum 1993 var það samþykkt á Sauðárkróki, í Skefilsstaðahreppi, Staðar- hreppi, Viðvíkurhreppi, Hóla- hreppi og Hofshreppi, en fellt í Skaróshreppi, Rípurhreppi, Fljótahreppi, Seyluhreppi, Lýt- ingsstaðahreppi og Akrahreppi. „Ég held að menn séu famir að sjá að það verður að fara að taka öðru vísi á málum en gert hefur verið hingað til. Miklar breytingar hafa orðió í sveitun- um á undanfömum árum, at- vinnulíf hefur raskast þar mjög og ég held að það séu þær breyt- ingar fyrst og fremst sem kalla á stækkun sveitarfélaga“, segir Snorri Bjöm Sigurðsson bæjar- stjóri á Sauðárkróki. Aðspuróur hvort að lögin um yfirfærslu grunnskólans til sveitarfélag- anna virkaði sem hvatning til sameiningar sveitarfélaga, sagði hann að sjálfsagt hefði það ein- hver áhrif. Skagaströnd: Sameining fyrir- tækja á næsta leyti „Það stefnir í það að af þess- ari sameiningu verði. Eftir er þó að ganga frá ýmsum málum og þaö er aldrei hægt að fullyrða neitt fyrr en undirskrift liggur fyrir“, segir Magnús Jónsson sveitarstjóri Höfðahrepps, en flest bendir nú til þess að Skagstendingur og Hólanes verði sameinuð, og að Skag- strendingur kaupi hlutabréfin í Hólanesi sem Höfðahreppur keypti af Landsbankanum á liðnu hausti. A dögunum kom fyrirspum í þessi hlutabréf frá aðila syðra, Islenskum útflytjendum, en svo virðist sem áhugi Skagstrend- ings á bréfunum í Hólanesi sé mun meiri, og hefur fram- kvæmdastjóri Skagstrendings, Oskar Þórðarson, lýst yfir áhuga þeirra Skagstrendingsmanna fyr- ir sameiningu fyrirtækjanna. Von er á Helgu Björg HU-7, grænlenska rækjutogaranum sem Skagstrendingar keyptu á síöasta hausti, í fyrsta skipti til Skagastrandar í vikunni. Skipið hefúr verið í slipp á Akureyri en á Skagaströnd veröur veiðarfær- um komið um borð og fljótlega mun það halda til veiða. Fundir sem iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið stóðu fyrir á Sauðárkróki og Blönduósi fyrir helgina voru vel sóttir og sýnir að áhugi er mikill fyrir ýmsum ffamfaramálum á sviði atvinnulífsins í kjördæminu. Myndin er frá fúndinum á Sauðárkróki og frekar er greint frá fúndunum og heimsókn ráðherra á baksíðu blaðsins í dag. Sögulegt ár undir Nöfum? Ekkert framkvæmt fyrir opinbert fé á Króknum í ár Engar fjárveitingar koma úr ríkissjóði til opinberra fram- kvæmda á Sauðárkróki á þessu ári og verður þetta ár sögulegt að því leyti undir Nöfum. Snorri Björn Sigurðsson bæj- arstjóri segir hart að þessi staða skuli koma upp, sérstak- lega með tilliti til þess að um áraraðir hafi orðið fólksQölg- un langt yfir landsmeðaltali á Króknum. A síðasta ári var fjölgun á Sauðárkróki þreföld yfir landsmeðaltali. „Við höf- um haldið uppi háu þjónustu- stigi og ég held að við græðum á því, einfaldlega vegna þess að það leiðir til þess að fólk vill búa héma“, segir bæjarstjórinn. Snorri Bjöm bendir á nauð- synlegar framkvæmdir bæði í hafnar- og skólamálum, sem ekki verði unnt að ráðast í á þessu ári vegna vöntun fram- kvæmdafjár. Aðspurður hvort þama væri um aó kenna dugleysi þingmanna kjördæmisins, sagði bæjarstjórinn: „Ég ætla ekki að dæma um það. Maður hefur líka heyrt því kennt um að sveitar- stjómarmenn hér standi sig ekki nógu vel, en ég ætla ekki að ger- ast dómari í því afhverju þetta er svona“, segir Snorri Bjöm. Hann segir að tímabært sé orðió að ráðast í lengingu Norðurgarðs, það hafi sýnt sig aö í höfninni sé ekki nógu kyrrt. Þá sé orðið brýnt að stækka heimavist fjöl- brautaskólans, þannig að skólinn geti tekið við fleiri nemendum en nú er. Aóspurður um ffamkvæmdir á vegum bæjarins í sumar, sagði Snorri Bjöm að gerð fjárhags- áætlunar stæði nú yfir og á- kvörðun um framkvæmdir lægi því ekki fyrir. Ljóst væri þó að um einhverja gatnagerð yrói að ræða og bærinn þyrfti að ganga frá nokkmm byggingarlóðum. Minni líkur væm á því aó ffam- kvæmdir hæfust við stækkun íþróttahússins og kennsluhús- næðis við gagnfræðaskólann, sem þó er búið að vera á döfinni í mörg ár. —ICfcngiN 11$— Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, bQas. 853 1419, fax 453 6019 Almenn verktakaþjónusta, Frysti- og kœliþjónusta, Bíla- og skiparafmagn, Véla- og verkfœraþjónusta Sœmundargötu bílaverkstæði Sími 453 5141 16 Sauöárkióki iax: 453 6140 Bíloviðgerðir Hjólbarðaverkstœði Réttingar Sprautun

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.