Feykir - 17.01.1996, Side 6
6FEYKIR 2/1996
7^ciC**tc fló4tá.á*>H-
“yextc: Póxd. s4á*ftUKáUá
89. Oddur kvaðst ætla að honum mundi eigi svo
þykja ef það yrði gert „en þar er þó sá maður er við
alla vill illt eiga og virða menn þig til að eigi er að
gert“. Oddur fór heim.
Uni mælti: „Svo þykir mér sem Hrolleifur láti
eigi af sinum ferðum og þætti mér til þín koma
Oddur frændi því að þú ert nú maður ungur og til
alls vel fær en eg er örvasi fyrir aldurs sakir. Nú þótt
hann sé harður maður en móðir hans margkynnig
þá má þó eigi svo búið vera“.
Oddur svarar og kvaðst mundu í leita nokkurs.
90. Eitt kvöld bjóst Oddur við fimmta mann í
fyrirsát við Hrolleif en þeir fóru tveir saman og
spratt Oddur upp og mælti: „Nú má vera að stöðvist
ferð þín að sinni Hrolleifur. Mætti og verða að nú
settist illska þín og vefjist þér um fætur“.
Hrolleifur kvað enn ósýnt hver mest mætti fagna
að þeirra skilnaði „þótt þér séuð fjölmennari en eg.
Ætla eg nú eigi illa þótt einhverjum blæði“. Síðan
hlaupu þeir og börðust. Hrolleifur var harður maður
og afreynndur af afli. Hann hafði og kyrtil þann er
móóur hans hafði gert honum og eigi festi jám á.
fylgdarmann Hrolleifs en gekk síðan mót Hrolleifi
og mælti: „Illa bíta þig vopnin Hrolleifur og alls
konar er þér illa farið, bæði fjölkunnugur og þó að
öðru illa siðaður." Síðan slæmdi Oddur á fót
Hrolleifi og beit þar er kyrtillinn tók eigi. Þá mælti
Oddur: „Eigi hlífði þér nú gemingastakkurinn."
Hrolleifur hjó þá til Odds og veitti honum banasár
og annan mann til drap hann en þrír komust á flótta.
92. Það var síð um kveld upp frá bæ Una.
Hrolleifur kom heim og sagði móður sinni að þeim
hefði illa vegnað er í mót vom. Hún lét vel yfir því
að eigi réðu búkarlar eða synir þeirra ferðum hans,
Hrolleifur kvaðst nú hafa launað Oddi það „er
hann hrakti mig mest og kvað mig að öllu
ósamjafnan dugandi mönnum en eg spáði honum
það sem nú er fram komið að vaxa mundi hans
svívirðing af okkar fundi.
Uni fór á fund Höfða-Þórðar og sagði honum sín
vandræði um víg Odds sonar sínar „og vildi eg hafa
þitt liðsinni að rétta mitt mál. Liggur þar og mjög
við þín sæmd að óeirðamenn hefjist eigi hér í
héraði.“ Þórður kvað hann satt segja og mikill vandi
er oss að hendi kominn en þó er Sæmundur
skyldastur að leysa óhæfu frænda síns og færa hann
úr héraði."
DHL-deildin heldur áfram annaðkvöld:
Skallagrímsmenn í heimsókn
„Þetta er mjög mikilvægur
leikur fyrir okkur. Við höfum
enn ekki tryggt okkur sæti í
úrslitakeppninni, stöndum
ennþá í baráttu við Þór og ÍR.
Við verðum endilega að vinna
þennan leik og gera betur en í
Borgarnesi, þar sem við
töpuðum með 19 stiga mun í
lélegasta leik liðsins í vetur“,
segir Páll Kolbeinsson þjálfari
úrvalsdeildarliðs Tindastóls í
körfuboltanum, en deildar-
keppnin heldur áfram annað
kvöld, fimmtudag. Þá koma
Skallagrímsmenn í heimsókn í
Síkið.
Reikna má með hörku-
spennandi leik þessara liða, sem
telja verður áþekk að styrkleika,
eins og reyndar staða þeirra í
deildinni gefur tilefni til að ætla.
Skallagrímur er í 5. sæti meö 24
stig og Tindastóll í því sjötta
með 22 stig, og reyndar em KR-
ingar með sömu stigatölu en
útkoma Tindastóls er betri í
innbyrðisviðureignum liðanna.
En það er ekki einungis sæti í
úrvalsdeildinni sem Tinda-
stólsmenn stefna að. Þeir vilja
helst komast upp úr 6. sæti
deildarinnar. Eins og staðan er í
deildinni í dag mundu Tinda-
stólsmenn lenda á móti Grind-
víkingum í útslitakeppninni og
það er ljóst að Grindvíkingar eru
ekki óskamótherjar Tindastóls í
úrslitunum. Þótt efstu lið
deildarinnar séu öll af svipuðum
styrkleika, er ljóst að Tinda-
stólsmenn vildu síst mæta Grind-
víkingum . Tindastóll hefur ætíö
átt í brösum með Grindvík-
ingana og það er örsjaldan sem
þeim hefur tekist að leggja
Suöumesjaliðið af velli.
Tindastóli hefur gengið vel í
tveimur síðustu leikjum sínum.
Strákarnir voru óheppnir að
leggja ekki Haukana að velli
syðra og síðan vannst ömggur
sigur á IA á Skaganum.
Allir í Síkið annað kvöld!
Körfubolti 1. deild kvenna:
Sigur á Skagastúlkum
í skemmtilegum leik
Tindastólsstúlkurnar unnu
góðan sigur á Skagastúlkum í
1. deildinni á Króknum sl.
laugardag. Lokatölur í fjör-
ugum leik voru 60:52, en
Skagamenn velgdu Tindastóli
svo sannarlega undir uggum
og voru vel inni í leiknum allan
tímann, enda eru í liðinu
nokkrar ágætar körfubolta-
konur sem flestar eiga upp-
runa sinn í vöggu körfuboltans
á Vesturlandi, Stykkishólm.
Þetta var fjórði sigur Tinda-
stóls í deildinni í vetur.
Eftir einbeitingarleysi í byrjun
náðu Tindastólsstúlkumar ffurn-
kvæðinu í leiknum og komumst
um tíma í 10 stiga mun, en þá
þurftu bæði Codner og Kristín
að yfirgefa völlinn og gestimir
voru búnir að minnka þennan
mun í fimm stig áður en blásið
var til leikhlés, en þá var staðan
27:22.
Gestimir byrjuðu seinni hálf-
leikinn vel og náðu að jafna
34:34. Tindastóll náði aftur fimm
stiga fomstu, en Skagamenn náðu
aftur aó jafna 43:43. Tindastóll
náði aftur að hrista gestina af sér,
og þrátt fyrir að Skagastúlkur
tæku enn eina skorpuna og
löguðu stöðuna í 52:54, tókst
Tindastóli að innbyrða ömggan
sigur í lokin.
Það háði Tindastóli greinilega
í leiknum að bandaríska stúlkan
Audrey Codner er enn slæm af
hnémeiðslum og var ekki nema
hálf manneskja í leiknum. Þrátt
fyrir það var hún stigahæst í
Tindastólsliðinu með 17 stig og
stóð fyrir sínu. Þá gekk Kristín
Magnúsdóttir ekki heldur heil til
skógar, en hún var samt næst
stigahæst með 15 stig. Sandra
Guðlaugsdóttir, Sigrún Skarp-
héðinsdóttir og Rúna Birna
Finnsdóttir áttu góðar skorpur í
leiknum. Sandra gerði 10 stig,
Sigrún 8 og Rúna 6. Eygló
Agnarsdóttir stóó sig einnig vel,
skoraði m.a. 4 stig, og Guðbjörg
Tryggvadóttir barðist vel.
Sportveiðiblaðið
gefið út á Blönduósi
Sportveiðiblaðið er veglegt
sérrit sem gefið er út lit-
prentað tvisvar sinnum á ári.
Blaðið er nú geflð út frá
Blönduósi eftir að ritstjóri þess
Gunnar Bender flutti þangað
á liðnu hausti. Nýlega kom út
seinna tölublað Sportveiði-
blaðsins 1995 og er blaðið Qöl-
breytt af efni að vanda og 84
síður að stærð. Þarna fá allir
veiðimenn eitthvert efni við sitt
hæfi.
A forsíðu blaðsins er mynd af
milljónamæringnum Hasso,
einum ríkasta manni heims, við
laxveiðar í Brynjudalsá og er
vitnað í einkaviðtal vió Hasso í
blaðinu. Margar ljósmyndir em
frá veiðisumrinu 1995. Asta
Ólafsdóttir ræðir við Palla í
Veiðihúsinu, Einar Pál Garðars-
son, í viðtali sem heitir „Með
veiðieðli í blóðinu“. Greint er ffá
fréttaþáttum Stöðvar 2 í vetur,
Sporðaköstum, en 96 vióureignir
vom festar á filmu síðasta sumar.
Bjöm Jóhann Bjömsson ræóir
við Agnar Guðjónsson byssu-
smið, sem orðið hefur fyrir
vopnuðu ráni, eldsvoða og hand-
leggsbroti. Viðtal er við Ólaf
Friðriksson fréttamann sem
gefið hefur út ítarlegt alffæðirit
um skotveiðar, byssur og
íslenska náttúm með teikningum
eftir Brian Pilkington. Þá er
einnig rætt viö Ólaf G. Einarsson
forseta Alþingis, sem er mikill
laxveiðiáhugamaður. Svo er líka
með Tóta í Staldrinu, Þórarinn
Ragnarsson fyrrverandi hand-
boltakappa úr FH. Itarlegt viðtal
er við kúlusalann í Staldrinu í
Sportveiðiblaðinu.
Vísa í Blöndubókinni ekki
eftir Sigurgeir í Stekkjardal
í nýútkominni bók „Lýðræði
í viðjum valds“ sem er í megin-
dráttum samantekt á gögnum
varöandi Blönduvirkjun og
deilur sem urðu um undirbúning
og framkvæmd hennar, er birt
ein vísa sem þar er eignuð mér.
Þar sem hér er um vandað
heimildarit aó ræða vil ég láta
koma fram að ég á ekkert í
þessari ágætu hringhendu. Hitt er
annað mál að ég kannast við
vísuna en get ekki munað fyrir
víst hver orti. Úr því sem orðið
er teldi ég best að eigandinn gæfi
sig fram í þessu blaði, sem
kemur víða á því svæði sem
bókin selst væntanlega mesL
Með þökk fyrir birtinguna,
SigurgeirHannesson, Stekkjardal.