Feykir


Feykir - 17.01.1996, Page 6

Feykir - 17.01.1996, Page 6
6FEYKIR 2/1996 7^ciC**tc fló4tá.á*>H- “yextc: Póxd. s4á*ftUKáUá 89. Oddur kvaðst ætla að honum mundi eigi svo þykja ef það yrði gert „en þar er þó sá maður er við alla vill illt eiga og virða menn þig til að eigi er að gert“. Oddur fór heim. Uni mælti: „Svo þykir mér sem Hrolleifur láti eigi af sinum ferðum og þætti mér til þín koma Oddur frændi því að þú ert nú maður ungur og til alls vel fær en eg er örvasi fyrir aldurs sakir. Nú þótt hann sé harður maður en móðir hans margkynnig þá má þó eigi svo búið vera“. Oddur svarar og kvaðst mundu í leita nokkurs. 90. Eitt kvöld bjóst Oddur við fimmta mann í fyrirsát við Hrolleif en þeir fóru tveir saman og spratt Oddur upp og mælti: „Nú má vera að stöðvist ferð þín að sinni Hrolleifur. Mætti og verða að nú settist illska þín og vefjist þér um fætur“. Hrolleifur kvað enn ósýnt hver mest mætti fagna að þeirra skilnaði „þótt þér séuð fjölmennari en eg. Ætla eg nú eigi illa þótt einhverjum blæði“. Síðan hlaupu þeir og börðust. Hrolleifur var harður maður og afreynndur af afli. Hann hafði og kyrtil þann er móóur hans hafði gert honum og eigi festi jám á. fylgdarmann Hrolleifs en gekk síðan mót Hrolleifi og mælti: „Illa bíta þig vopnin Hrolleifur og alls konar er þér illa farið, bæði fjölkunnugur og þó að öðru illa siðaður." Síðan slæmdi Oddur á fót Hrolleifi og beit þar er kyrtillinn tók eigi. Þá mælti Oddur: „Eigi hlífði þér nú gemingastakkurinn." Hrolleifur hjó þá til Odds og veitti honum banasár og annan mann til drap hann en þrír komust á flótta. 92. Það var síð um kveld upp frá bæ Una. Hrolleifur kom heim og sagði móður sinni að þeim hefði illa vegnað er í mót vom. Hún lét vel yfir því að eigi réðu búkarlar eða synir þeirra ferðum hans, Hrolleifur kvaðst nú hafa launað Oddi það „er hann hrakti mig mest og kvað mig að öllu ósamjafnan dugandi mönnum en eg spáði honum það sem nú er fram komið að vaxa mundi hans svívirðing af okkar fundi. Uni fór á fund Höfða-Þórðar og sagði honum sín vandræði um víg Odds sonar sínar „og vildi eg hafa þitt liðsinni að rétta mitt mál. Liggur þar og mjög við þín sæmd að óeirðamenn hefjist eigi hér í héraði.“ Þórður kvað hann satt segja og mikill vandi er oss að hendi kominn en þó er Sæmundur skyldastur að leysa óhæfu frænda síns og færa hann úr héraði." DHL-deildin heldur áfram annaðkvöld: Skallagrímsmenn í heimsókn „Þetta er mjög mikilvægur leikur fyrir okkur. Við höfum enn ekki tryggt okkur sæti í úrslitakeppninni, stöndum ennþá í baráttu við Þór og ÍR. Við verðum endilega að vinna þennan leik og gera betur en í Borgarnesi, þar sem við töpuðum með 19 stiga mun í lélegasta leik liðsins í vetur“, segir Páll Kolbeinsson þjálfari úrvalsdeildarliðs Tindastóls í körfuboltanum, en deildar- keppnin heldur áfram annað kvöld, fimmtudag. Þá koma Skallagrímsmenn í heimsókn í Síkið. Reikna má með hörku- spennandi leik þessara liða, sem telja verður áþekk að styrkleika, eins og reyndar staða þeirra í deildinni gefur tilefni til að ætla. Skallagrímur er í 5. sæti meö 24 stig og Tindastóll í því sjötta með 22 stig, og reyndar em KR- ingar með sömu stigatölu en útkoma Tindastóls er betri í innbyrðisviðureignum liðanna. En það er ekki einungis sæti í úrvalsdeildinni sem Tinda- stólsmenn stefna að. Þeir vilja helst komast upp úr 6. sæti deildarinnar. Eins og staðan er í deildinni í dag mundu Tinda- stólsmenn lenda á móti Grind- víkingum í útslitakeppninni og það er ljóst að Grindvíkingar eru ekki óskamótherjar Tindastóls í úrslitunum. Þótt efstu lið deildarinnar séu öll af svipuðum styrkleika, er ljóst að Tinda- stólsmenn vildu síst mæta Grind- víkingum . Tindastóll hefur ætíö átt í brösum með Grindvík- ingana og það er örsjaldan sem þeim hefur tekist að leggja Suöumesjaliðið af velli. Tindastóli hefur gengið vel í tveimur síðustu leikjum sínum. Strákarnir voru óheppnir að leggja ekki Haukana að velli syðra og síðan vannst ömggur sigur á IA á Skaganum. Allir í Síkið annað kvöld! Körfubolti 1. deild kvenna: Sigur á Skagastúlkum í skemmtilegum leik Tindastólsstúlkurnar unnu góðan sigur á Skagastúlkum í 1. deildinni á Króknum sl. laugardag. Lokatölur í fjör- ugum leik voru 60:52, en Skagamenn velgdu Tindastóli svo sannarlega undir uggum og voru vel inni í leiknum allan tímann, enda eru í liðinu nokkrar ágætar körfubolta- konur sem flestar eiga upp- runa sinn í vöggu körfuboltans á Vesturlandi, Stykkishólm. Þetta var fjórði sigur Tinda- stóls í deildinni í vetur. Eftir einbeitingarleysi í byrjun náðu Tindastólsstúlkumar ffurn- kvæðinu í leiknum og komumst um tíma í 10 stiga mun, en þá þurftu bæði Codner og Kristín að yfirgefa völlinn og gestimir voru búnir að minnka þennan mun í fimm stig áður en blásið var til leikhlés, en þá var staðan 27:22. Gestimir byrjuðu seinni hálf- leikinn vel og náðu að jafna 34:34. Tindastóll náði aftur fimm stiga fomstu, en Skagamenn náðu aftur aó jafna 43:43. Tindastóll náði aftur að hrista gestina af sér, og þrátt fyrir að Skagastúlkur tæku enn eina skorpuna og löguðu stöðuna í 52:54, tókst Tindastóli að innbyrða ömggan sigur í lokin. Það háði Tindastóli greinilega í leiknum að bandaríska stúlkan Audrey Codner er enn slæm af hnémeiðslum og var ekki nema hálf manneskja í leiknum. Þrátt fyrir það var hún stigahæst í Tindastólsliðinu með 17 stig og stóð fyrir sínu. Þá gekk Kristín Magnúsdóttir ekki heldur heil til skógar, en hún var samt næst stigahæst með 15 stig. Sandra Guðlaugsdóttir, Sigrún Skarp- héðinsdóttir og Rúna Birna Finnsdóttir áttu góðar skorpur í leiknum. Sandra gerði 10 stig, Sigrún 8 og Rúna 6. Eygló Agnarsdóttir stóó sig einnig vel, skoraði m.a. 4 stig, og Guðbjörg Tryggvadóttir barðist vel. Sportveiðiblaðið gefið út á Blönduósi Sportveiðiblaðið er veglegt sérrit sem gefið er út lit- prentað tvisvar sinnum á ári. Blaðið er nú geflð út frá Blönduósi eftir að ritstjóri þess Gunnar Bender flutti þangað á liðnu hausti. Nýlega kom út seinna tölublað Sportveiði- blaðsins 1995 og er blaðið Qöl- breytt af efni að vanda og 84 síður að stærð. Þarna fá allir veiðimenn eitthvert efni við sitt hæfi. A forsíðu blaðsins er mynd af milljónamæringnum Hasso, einum ríkasta manni heims, við laxveiðar í Brynjudalsá og er vitnað í einkaviðtal vió Hasso í blaðinu. Margar ljósmyndir em frá veiðisumrinu 1995. Asta Ólafsdóttir ræðir við Palla í Veiðihúsinu, Einar Pál Garðars- son, í viðtali sem heitir „Með veiðieðli í blóðinu“. Greint er ffá fréttaþáttum Stöðvar 2 í vetur, Sporðaköstum, en 96 vióureignir vom festar á filmu síðasta sumar. Bjöm Jóhann Bjömsson ræóir við Agnar Guðjónsson byssu- smið, sem orðið hefur fyrir vopnuðu ráni, eldsvoða og hand- leggsbroti. Viðtal er við Ólaf Friðriksson fréttamann sem gefið hefur út ítarlegt alffæðirit um skotveiðar, byssur og íslenska náttúm með teikningum eftir Brian Pilkington. Þá er einnig rætt viö Ólaf G. Einarsson forseta Alþingis, sem er mikill laxveiðiáhugamaður. Svo er líka með Tóta í Staldrinu, Þórarinn Ragnarsson fyrrverandi hand- boltakappa úr FH. Itarlegt viðtal er við kúlusalann í Staldrinu í Sportveiðiblaðinu. Vísa í Blöndubókinni ekki eftir Sigurgeir í Stekkjardal í nýútkominni bók „Lýðræði í viðjum valds“ sem er í megin- dráttum samantekt á gögnum varöandi Blönduvirkjun og deilur sem urðu um undirbúning og framkvæmd hennar, er birt ein vísa sem þar er eignuð mér. Þar sem hér er um vandað heimildarit aó ræða vil ég láta koma fram að ég á ekkert í þessari ágætu hringhendu. Hitt er annað mál að ég kannast við vísuna en get ekki munað fyrir víst hver orti. Úr því sem orðið er teldi ég best að eigandinn gæfi sig fram í þessu blaði, sem kemur víða á því svæði sem bókin selst væntanlega mesL Með þökk fyrir birtinguna, SigurgeirHannesson, Stekkjardal.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.