Feykir - 17.01.1996, Síða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Skagafjörður:
Alvara í samein-
ingarviðræðunum
Svo virðist sem talsverð alvara
sé komin í sameiningaviðræð-
ur sveitarfélaga í Skagafirði.
Fulltrúar já-hreppanna svo-
nefhdu komu saman til fúnd-
ar nokkru fyrir jól og annar
fúndur þessara aðila er á dag-
skrá í dag. Fljótamenn, sem
samþykktu ekki sameiningu á
sínum tíma, óskuðu eftir að
vera með í þessum viðræðum
og nú hefur borist beiðni frá
Seylhreppingum sem væntan-
lega verður tekin fyrir á fúnd-
inum í dag.
Þegar kosið var um samein-
ingu Skagafjarðar í eitt sveitar-
félag á haustdögum 1993 var
það samþykkt á Sauðárkróki, í
Skefilsstaðahreppi, Staðar-
hreppi, Viðvíkurhreppi, Hóla-
hreppi og Hofshreppi, en fellt í
Skaróshreppi, Rípurhreppi,
Fljótahreppi, Seyluhreppi, Lýt-
ingsstaðahreppi og Akrahreppi.
„Ég held að menn séu famir
að sjá að það verður að fara að
taka öðru vísi á málum en gert
hefur verið hingað til. Miklar
breytingar hafa orðió í sveitun-
um á undanfömum árum, at-
vinnulíf hefur raskast þar mjög
og ég held að það séu þær breyt-
ingar fyrst og fremst sem kalla á
stækkun sveitarfélaga“, segir
Snorri Bjöm Sigurðsson bæjar-
stjóri á Sauðárkróki. Aðspuróur
hvort að lögin um yfirfærslu
grunnskólans til sveitarfélag-
anna virkaði sem hvatning til
sameiningar sveitarfélaga, sagði
hann að sjálfsagt hefði það ein-
hver áhrif.
Skagaströnd:
Sameining fyrir-
tækja á næsta leyti
„Það stefnir í það að af þess-
ari sameiningu verði. Eftir er þó
að ganga frá ýmsum málum og
þaö er aldrei hægt að fullyrða
neitt fyrr en undirskrift liggur
fyrir“, segir Magnús Jónsson
sveitarstjóri Höfðahrepps, en
flest bendir nú til þess að
Skagstendingur og Hólanes
verði sameinuð, og að Skag-
strendingur kaupi hlutabréfin í
Hólanesi sem Höfðahreppur
keypti af Landsbankanum á
liðnu hausti.
A dögunum kom fyrirspum í
þessi hlutabréf frá aðila syðra,
Islenskum útflytjendum, en svo
virðist sem áhugi Skagstrend-
ings á bréfunum í Hólanesi sé
mun meiri, og hefur fram-
kvæmdastjóri Skagstrendings,
Oskar Þórðarson, lýst yfir áhuga
þeirra Skagstrendingsmanna fyr-
ir sameiningu fyrirtækjanna.
Von er á Helgu Björg HU-7,
grænlenska rækjutogaranum
sem Skagstrendingar keyptu á
síöasta hausti, í fyrsta skipti til
Skagastrandar í vikunni. Skipið
hefúr verið í slipp á Akureyri en
á Skagaströnd veröur veiðarfær-
um komið um borð og fljótlega
mun það halda til veiða.
Fundir sem iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið stóðu fyrir á Sauðárkróki og Blönduósi fyrir helgina voru
vel sóttir og sýnir að áhugi er mikill fyrir ýmsum ffamfaramálum á sviði atvinnulífsins í kjördæminu.
Myndin er frá fúndinum á Sauðárkróki og frekar er greint frá fúndunum og heimsókn ráðherra á
baksíðu blaðsins í dag.
Sögulegt ár undir Nöfum?
Ekkert framkvæmt fyrir
opinbert fé á Króknum í ár
Engar fjárveitingar koma úr
ríkissjóði til opinberra fram-
kvæmda á Sauðárkróki á þessu
ári og verður þetta ár sögulegt
að því leyti undir Nöfum.
Snorri Björn Sigurðsson bæj-
arstjóri segir hart að þessi
staða skuli koma upp, sérstak-
lega með tilliti til þess að um
áraraðir hafi orðið fólksQölg-
un langt yfir landsmeðaltali á
Króknum. A síðasta ári var
fjölgun á Sauðárkróki þreföld
yfir landsmeðaltali. „Við höf-
um haldið uppi háu þjónustu-
stigi og ég held að við græðum
á því, einfaldlega vegna þess að
það leiðir til þess að fólk vill
búa héma“, segir bæjarstjórinn.
Snorri Bjöm bendir á nauð-
synlegar framkvæmdir bæði í
hafnar- og skólamálum, sem
ekki verði unnt að ráðast í á
þessu ári vegna vöntun fram-
kvæmdafjár. Aðspurður hvort
þama væri um aó kenna dugleysi
þingmanna kjördæmisins, sagði
bæjarstjórinn: „Ég ætla ekki að
dæma um það. Maður hefur líka
heyrt því kennt um að sveitar-
stjómarmenn hér standi sig ekki
nógu vel, en ég ætla ekki að ger-
ast dómari í því afhverju þetta er
svona“, segir Snorri Bjöm. Hann
segir að tímabært sé orðió að
ráðast í lengingu Norðurgarðs,
það hafi sýnt sig aö í höfninni sé
ekki nógu kyrrt. Þá sé orðið
brýnt að stækka heimavist fjöl-
brautaskólans, þannig að skólinn
geti tekið við fleiri nemendum
en nú er.
Aóspurður um ffamkvæmdir
á vegum bæjarins í sumar, sagði
Snorri Bjöm að gerð fjárhags-
áætlunar stæði nú yfir og á-
kvörðun um framkvæmdir lægi
því ekki fyrir. Ljóst væri þó að
um einhverja gatnagerð yrói að
ræða og bærinn þyrfti að ganga
frá nokkmm byggingarlóðum.
Minni líkur væm á því aó ffam-
kvæmdir hæfust við stækkun
íþróttahússins og kennsluhús-
næðis við gagnfræðaskólann,
sem þó er búið að vera á döfinni
í mörg ár.
—ICfcngiN 11$—
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, bQas. 853 1419, fax 453 6019
Almenn verktakaþjónusta,
Frysti- og kœliþjónusta,
Bíla- og skiparafmagn,
Véla- og verkfœraþjónusta
Sœmundargötu
bílaverkstæði
Sími 453 5141
16 Sauöárkióki iax: 453 6140
Bíloviðgerðir Hjólbarðaverkstœði
Réttingar Sprautun