Feykir


Feykir - 17.01.1996, Blaðsíða 4

Feykir - 17.01.1996, Blaðsíða 4
4FEYKIR 2/1996 Gamlar kvöldvökur fyrir tréskurðarjárn og pensil Á kvöldin, einkum að haust- lagi, sést stöku sinnum í Möóru- dal maður með þykka bók í höndum og lukt í enni og mjak- aðist fótgangandi yfir sölnaóa möðruvelli, niðursokkinn í lest- ur. Og luktarlampinn sveiflast af síðunum niður í jarðdimmuna, og sumir telja sig hafa séö orð hrökkva af bókarsíðunum og falla í moldarflag - en fátt vex af haustsáningu. Þennan lesandi mann er ekki hægt að nálgast, hann er sífellt jafnlangt undan, sama hvemig farið er að honum. Og myrkrið í Möðrudal er hon- um skjól; aóeins grannur geisl- inn sást falla á draumfölt andlit og hvítar bókarsíður. Mönnum ber ekki saman þegar þeir lýsa andlitinu, enda hefur enginn séð hann nema rétt í svip. Sumir kalla hann Möórudalsengillinn, en aðrir efast um að það sé vel til fundið og benda á að fötin eru húmdökk og alveg óvíst um helgi ritsins. Það er ekki svo langt síðan menn fóru að sjá þennan mann - ef hann er maóur. Hann fór að koma inn í ljósakeilur bíla sem voru á ferð gegnum Möðrudal- inn, augnablik, altekinn af bók- inni, og svo var hann horfinn. Þannig vill til að vinur minn einn var meðal þeirra íyrstu sem sáu hann. Fjölskyldan á leið austur á Norðfjörð og áliðið kvölds, þau yrðu ekki komin þangað fyrr en um nóttina. Ljós í Möómdalskirkjunni, eins og þar ætti að verða næturmessa. Skammt fyrir austan byggðina kom hann í ljósgeisla bílsins. Hann virtist stefha á kiricjuna. „Pabbi, pabbi, sjáðu mann- inn!“ kallaói fimm ára gömul dóttir hans upp yfir sig, hún hafði losað af sér öryggisbeltið og hékk milli ffamsætanna. )rJá, ég sé hann, farðu í sætið þitt stelpa," hafði hann sagt, og látið sem ekkert væri, en í raun brá honum svo mikið við þetta að hann var rétt búinn að keyra útaf í lausamölinni og konan hans jesúsaöi sig hástöfum í þrí- gang, og taldi sig þó trúlausa konu, áður en afturhjólin spól- uðu sig tryggilega inn á veginn aftur. A meðan höfðu ljósin rás- að yfir gróðurlitla sléttuna, en þar var ekkert sjáanlegt. Þegar hann var seinna spurður um hvað honum hefði bmgðið mest við í fari þessa manns, svaraði hann hiklaust að það væri þetta með bókina, hann væri svo óvanur að sjá menn með bók að næturlagi í auðnarlegum dal, og þá hefði hann vitað að þetta væri ekki einn af okkur. Þá var hann spurður hvemig hann skilgreindi „einn af okkuri', en hann svaraði því ekki, enda af bændaættum og blessunarlega lítið fyrir skil- greiningar. Síðan hafa margir séð hann. Svo virðist sem eftir á leiki flest- um forvitni á að vita hvað mað- urinn sé að lesa, með þessa lukt í enni. Margir álíta að þetta sé Heilög Ritning, aðrir em sem fyrr segir vantrúaðir á það og nefna frekar Þjóðsögur Jóns Amasonar. „Og hvaða bindi af þeim?“ spyrja þá biblíufylgjendur heldur meinlega. Enn aðrir nefna Heimsljós eða Fjallkirkjuna, en þá taka ritningarmenn og þjóð- sagnafólk höndum saman og fullyróa að svona maður, hver sem hann nú er, lesi ekki nú- tímabókmenntir. „Það væri þá helst Sálmurinn um blómið,“ segir þetta fólk og hristir höfuðið. Eldri menn segja að nú sé hlutunum illa aftur farið, að „svona menn“ séu famir að lesa bækur. I fyrrahaust var ég einn á ferð gegnum Möðmdal að kvöldlagi, komið í lok september, og ég ætlaði að dveljast nokkra daga á Egilsstöðum. Aftur var ljós í kirkjunni, ég stöðvaði bílinn og drap á honum, gekk sem snöggvast að guðshúsinu og leit inn um gluggann, á Jesús sem enn var að halda Fjallræðuna og einmitt að fara að segja „sælir em einfaldiri', en þá byrjar hann að renna niður fagurgræna brekkuna. Það var nöpur gola og ég flýtti mér aftur inn í bílinn og setti miðstöðina á fúllt. fægar ég hafði ekið spölkom inn í dal- myrlcrið, kom hann skyndilega inn í birtusvið ljósanna. Hann var með bókina, en mér fannst vera þreytusvipur á honum, og göngulagið ekki eins svífandi og ég hef heyrt lýst. Eg beit á jaxl- inn og hélt fast í stýrið, enda vissi ég svo sem að ekkert var að óttast. Samt var ég hálfsmeykur um að hann mundi ætla að flytja mér einhver skilaboð, jafhvel þó hann væri sendiboði úr ljósinu handan myrkursins. Hann hvarf jafh snögglega og hann kom og ég ók áffam. En svo fór ég aö finna fyrir nærvem í bílnum. Einhver sat í aftursætinu og fletti í bók. Það skrjáfaöi í síðunum á allt annan hátt en í síðum jarðneskra bóka. Eg leit í baksýnisspegilinn og kipraði augun jjegar hann leit upp á móti og luktargeislamir af enni hans blinduöu mig í speglinum. Hann fylgdi mér þögull nióur á Jökuldal og las alla leiðina. Ég ók hægt, tók þann kost að láta sem ég væri einn í bílnum, blístraði lög úr útvarpinu og þvældi eitthvað við sjálfan mig. En þegar hann var farinn, sá ég hálfvegis eftir að hafa ekki spurt hann hvað hann væri að lesa. Að hinu leytinu var ég þó feginn aö hafa stillt mig um það. Síðan hef ég ekki farió um Möðrudal. Gyrðir á unglingsárum sínum á Króknum, íhugull í göngu- túr á Borgarsandi. Gyrðir í fremstu röð Gyröir Elíasson ffá Sauöárkróki hefur á síðari árum skip- aó sér á bekk fremstu skálda og rithöfúnda hér á landi. Þaó er ekki aóeins aó Gyrðir njóti álits vegna snilldar sinnar við skáldskapinn heldur þykir meóferö hans á íslensku máli meó miklum ágætum og hefur hann hlotið sérstaka viður- kenningu lyrir þann eiginleika sinn. Nú um áramótin hlaut Gyróir verólaun úr rithöfúndasjóði Ríkisútvaipsins, en það hefiir þótt um tíóina talsverð viðurkenning aó njóta þeirrar úthlutunar. Gyróir er reyndar fæddur í Reykjavík 1961, en flutti meó foreldrum sínum tíl Sauðárkróks tveim árum síóar og bjó síóan á Króknum í 20 ár. Síðustu árin hefur Gyróir að mestu búið á Akranesi og stundaó sín ritstörf þar. Hann hefiir notíó starfslauna síðustu 11 árin og á þeim tíma getað helgað sig ritstörfunum einvörðungu. Skáldverk eftir Gyrói hafa komió út nánast öll þessi ár. Síóasta bókin kom út núna fyrir jólin. Kvöld í ljóstuminum heitir hún og geymir 22 stuttar sögur, eins og Gyrðir kýs að kalla þær. Hér birtist meó góófúslegu leyft Gyróis ein þessara sagna, en hún er skrifuð út ffá mynd sem Sigurlaugur bróóir hans gerði. Vill virkja Jökulsárnar og stofna fyrirtæki er veiti Skagfirðingum og Siglfirðingum vinnu A fundinum með Finni Ing- ólfssyni iðnaðarráðheira á Sauð- árkróki varpaði Sverrir Sveinsson veitustjóri á Siglufirði fram þeirri íyrirspum til ráðherrans, hvort að hugsanlegt væri að RARIK fengi að virkja og þá kannski í sam- vinnu við aðra aðila, td. Rafveitu Sauðárkróks. Sverrir sagðist lengi hafa hugsað til virkjunar Jök- ulsánna í Skagafirði og mögu- leika í framhaldi af því til upp- setningar meðalstórs fyrirtækis, sem skapaði bæði Skagfirðingum og Siglfirðingum atvinnu. Tilval- in staðsetning þess væri að sínu mati á Straumnesinu yst í Sléttu- hlíð. Þar væri líka heita vatnið á Reykjarhóli innan seilingar og nóg vatn úr Stafánni. Þá væri að- staða til hafnargerðar góð við Straumnesið. Ráðherrann sagði t svari sínu að raforkumálin í heild sinni væru í endurskoöun. Sverrir lagði í máli sínu áherslu á mikilvægi þess að ráða yfir nægri raforku. í því sambandi minntist hann þess að þegar Sigl- firðingar fengu danskan ráðgjafa til að vinna fyrir sig að könnun ýmissa möguleika að verkefnum í atvinnumálum fyrir nokkrum árum, að þá kom fyrirspum frá aðila um kaup á 800 kw af raf- orku vegna uppsetningar fyrir- tækis á Siglufirði. „Því miður hafði Rafveita Siglufjarðar ekki jressa raforku aflögu þrátt fyrir að á jressum tíma væri búið að virkja neðra svæðið við Skeiðsfoss. Ég hef grun um að þetta fyrirtæki hafí verið það sama og Alpan, fyrirtæki sem hefur verið talsvert í fféttum og var sett niður á Eyr- arbakka. Framleiðsla sem byggir á mótun úr áli, pottar, pönnur o.fl. Ég tel einmitt talsveröa mögu- leika fólgna í úrvinnslu á áli hér á landi“, sagði Sverrir Sveinsson á fundinum með iðnaóarráóherra fyrir helgina. „Nýlega bárust fréttir af há- hitasvæði í Brennisteinsfjöllum rétt hjá Reykjavík, þar sem talið er aó virkja megi um 100 mw til raforkuvinnslu. Mikil umræða hefur verið um virkjunarkosti noróan Vatnajökuls og er unnið að umhverfisathugun á hinum ýmsu valkostum. I riti iðnarráóu- neytisins Innlendar orkulindir til vinnslu raforku sem út kom 1994 er sagt frá ýmsum kostum virkj- ana bæði vatnsafli og jaróhita. Þar er sagt m.a. frá virkjun Jök- ulsánna í Skagafirði við Villinga- nes um 100 mw og orkufram- leiðsla 570 gwst á ári. Ég nefni þennan möguleika sem hagstæða stæró virkjunar sem Rafmagnsveitur ríkisins gætu tekist á við ef það yrði raun- in að Landsvirkjun yrði skipt upp á milli eigenda. Orkukaup Raf- magnsveitnanna eru um 150 mw og milli 800-900 gwsL á ári, fyrir- tækið fengi allt aðra samnings- stöðu um þá viðbótarorku sem það keypti af öðrum ef eigin orkuframleiðsla væri orðin 70% Sverrir Sveinsson. af heildamotkuninni. Ef ráðist yrði í þessa fram- kvæmd væri hún dæmi jress að stjómvöld ætluðu að beita sér fyrir uppbyggingu á landsbyggðinni með þeim væntingum sem því fylgir. Þeir kostir sem kæmu á eftir væru að Skagafjörður væri orðinn fýsilegur til staðsetningar meðal- stórs fyrirtækis sem notaði raforku að verulegu marici til sinnar ffam- leiðslu“, segir Sverrir Sveinsson.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.