Feykir - 28.08.1996, Síða 2
2FEYKIR 27/1996
Bændur bjóða heim:
Á annað hundrað manns
komu að Ytri-Reykjum
Á annað hundrað manns
komu að Ytri-Reykjum í
VW Golf 2000 GTI 12 venúa,
árg. 92., ekinn 73 þús. km. Verð
1.260.000. Fallegurbfll.
Hyundai Accent 1500 GLSI,
H/B, árg. '95, ekinn 26 þús.
km.Verð 1.050.000.
■*, » t « • •• .
VW Golf 1400 GL, árg. '91,
ekinn 5 þús. km. Verð
1.350.000. Nýrbfll.
Toyota double Cab disel turbo
intercool áig. 91, ekinn 112 þús.
km.Veið 1.590.000.
Mazda 323 1600 Wagon 4X4,
áig. 93, ekinn 57 þús. km. Verð
1.040.000.
BÍLASALA/BÍLALEIGA
SKAGAFJARÐAR SE
Löggild bílasala
Borgarflöt 5, Sauðárkróki,
sími 453 6050 og 453 6399.
Heimasími sölumanns 453 5410.
Vestur-Húnavatnssýslu á
dögunum „þegar bændur
buðu heim“, en heimilisfólk á
bænum tók þá þátt í þessu
kynningarátaki bændasam-
takanna í fyrsta sinn. l>að var
auðheyrt á gestum á Ytri-
Reykjum að þeir kunna vel að
meta móttökurnar sem þeir
fengu hjá heimilisfólki.
Gerður Ólafsdóttir bóndi tók
á móti gestum og afhenti þeim
merki og bæklinga varðandi
kynningarátakið. Þar vom einnig
að finna greinagóðar upplýsingar
varðandi jöróina, búskap, um-
hverfi o.fl. Þá var gengið um úti-
hús á jörðinni og litið á svín,
hross og sauðfé og þvínæst haldið
í íbúðarhúsið og það skoðað hátt
og lágt. Á eftir var svo gestum
boðið að smakka á framleiðslu-
Það fjölgar á Króknum um
næstu helgi þegar nemendur
Fjölbrautaskólans mæta að
loknu sumarleyfi. Skólastarf
hefst á mánudagsmorgun með
því að nýnemar koma í skól-
ann og fá afhentar stunda-
skrár. Kennsla hefst síðan að
fullu á þriðjudagsmorgun.
Tæplega 450 nemendur
stunda nám við skólann á
haustönn. Fimm nýir kennar-
ar koma til starfa við Fjöl-
brautaskóla Norðurlands
vestra í haust.
Aó sögn Jóns F. Hjartarsonar
skólameistara er um aó ræða
venjubundna fjölgun nemenda í
heimavist og þurfti að útvega
mörgum húsnæði úti í bæ, m.a.
tók skólinn Hótel Torg á.leigu.
Alls sóttu um 230 nemendur um
á heimavist en hægt var að verða
við umsóknum 184, þar af tekur
heimavistin vió skólann 140.
Um þessar mundir er á vegum
menntamálaráðuneytisins unnið
að úttekt á þörf fyrir heimavistar-
rými við framhaldsskóla á lands-
byggðinni, og segir Jón Hjartar-
son skólameistari að vonir standi
til þess að framkvæmdir hefjist
vörum búsins. Þar var á boð-
stólum grillað lamba- og svína-
kjöt ásamt grænmeti. I lokin
voru svo gestir leistir út með
rabbabarasultu sem að sjálf-
sögðu var heimaframleiðsla.
Gerður Ólafsdóttir sagðist
vera nokkuð ánægö með hvemig
til hefði tekist. Hún hefði ekki
tekið þátt í þessu áður og því
ekki vitað nákvæmlega hvað hún
var að fara útí. Hún sagðist telja
að það markmið bændasam-
takanna að gefa þéttbýlisfólki
kost á að komast í snertingu við
náttúruna og lífió í sveitinni
hefði tekist. Hún sagðist hafa
heyrt á fólki að það teldi jákvætt
og áhugavert aö eiga þess kost
að heimsækja sveitabýli og
kynnast þeirri starfsemi sem þar
fer fram. ÖÞ.
við viðbyggingu heimavistarinn-
ar á næsta ári.
Þetta er hún Árdís Elva
Guðmundsdóttir. Þótt hún
sé aðeins 5 ára safnaði hún
nýlega 1.650 krónum og gaf
Rauða krossinum.
Fjölbrautaskólinn
byrjar eftir helgina
Grísirnir vöktu forvitni yngstu gestanna. Gestgjafninn Gerður
Ólafsdóttir fylgist með.
Útibússtjóraskipti
hjá Landsbankanum
Nýlega urðu útibússtjóra-
skipti hjá Landsbankanum á
Sauðárkróki. Sigmundur
Guðmundsson iét þá af
störfúm, en hann er að flytja
ásamt fjölskyldu sinni til
Akureyrar og mun starfa þar
áfram hjá Landsbankanum.
Við starfi Sigmundar á
Króknum tók Þröstur Frið-
finnsson sem verið hefur
útbibússtjóri á Kópaskeri firá
ársbyrjun 1989.
Þröstur er fæddur á Húsavík
og er 35 ára gamall. Hann er
stúdent frá Samvinnuskólanum
á Bifröst og starfaði um skeið
hjá Samvinnubankanum sáluga
og Samvinnulífeyrissjóðnum.
Aðspurður hvemig sér litist á
nýja starfið á Króknum, sagði
Þröstur að það væri spennandi.
Sín biði það verkefni að efla og
Guðmundur Vilhelmsson Sævarlandi, Valgeir Bjarnason
Hólum og Bjarni Ragnar Brynjólfsson Sauðárkróki íhugulir á
þingi SSNV.
Þröstur Friðfinnson nýr
útibússtjóri á Sauðárkróki.
treysta rekstur útibúsins.
Sambýliskona Þrastar er Elín
Sigurðardóttir frá Akureyri.
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi
Feykir hf. Skrifstofa Aðalgötu 2, Sauðárkróki.
Póstfang: Pósthólf 4, 550 Sauðárkróki. Sími
45 35757. Myndsími 45 36703. Ritstjóri Þór-
hallur Ásmundsson. Fréttaritarar: Eggert
Antonsson og Óm Þórarinsson. Blaðstjóm: Jón
F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guðbrandsson,
Sæmundur ^Hcrmannsson, Sigurður Ágústsson
og Stefán Ámason. Áskriftarverð 160 krónur
hvert tölublað m/vsk. Lausasöluverð 180 kr.
m/vsk. Setning og umbrot Feykir. Prentun
Sást hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og
héraðsfréttablaða.