Feykir - 28.08.1996, Side 3
27/1996 FEYKIR 3
Fjölmargir voru viðstaddir athöfnina við minnisvarðann í Bólu, m.a. forsetahjónin
Guðrún Katrín Þorbergsdóttir og Ólafur Ragnar Grímsson.
Minnst 200 ára fæðingar-
afmælis skáldsins frá Bólu
Fjárfrekar viðgerðir á
veginum í Langadal
Tekur til sín fé sem ætlað var við
viðhalds öðrum vegum í kjördæminu
Ekkert verður úr fyrirhug-
uðum lagfæringum á vcginum í
Stíflu í Fljótum og í Hrúta-
firðinum í sumar eins og ráð
var fyrir gert. Að sögn Arnar
Þórarinssonar oddvita Fljóta-
hrepps fékk hann þá skýringu á
frestun framkvæmdarinnar, að
taka hefði þurft viðhaldsfé sem
ætlað var í þá framkvæmd og
fleiri viðhaldsframkvæmdir í
kjördæminu, í mjög kostnaðar-
samar lagfæringar á þjóðvegi 1
í Langadal, sem varð fyrir
miklum skemmdum sl. vetur.
Talsvert snarpar umræður urðu
um samgöngumál á þingi Sam-
bands sveitarfélaga í Norðurlandi
vestra um helgina og voru
sveitarstjómarmenn óhressir meö
að viðhald á sveitavegum og
vegum utan þjóóvegar eitt hafi
verió vanrækt á síðustu árum. Við
lá að til orðahnippinga kæmi milli
sveitarstjórnarmanna og þing-
manna er staddir voru á þinginu.
Guðmundur Vilhelmsson á
Sævarlandi fulltrúi Skefilsstaða-
hrepps og formaður samgöngu-
nefndar héraðsnefndar Skagfirð-
inga sagói að það færi árversnandi
aó skipta sífellt lægri upphæð til
lengri og verri kafla í vegunum
sem þyrftu lagfæringar við.
Fjóröa ársþing SSNV mót-
mælti því harðlega að viðhald á
safn- og tengivegum hafi verió
vanrækt á undanförnum árum.
Þingið skorar á samgönguráð-
herra og samgöngu- og fjárlaga-
nefndir Alþingis að sjá til þess aó
ríkissjóður veiti það fé til safn-
vega sem um var samið við setn-
ingu laga um verkaskiptingu
ríkis- og sveitarfélaga er tóku
gildi 1. janúar 1990.
Köld svæði verði
aðstoðuð við jarðhitaleit
Mikið fjölmenni var saman-
komið í minningarreitnum um
Hjálmar Jónsson skáld við Bólu
í Blönduhlíð laugardaginn 10.
ágúst á afmælishátíð í tilefni 200
ára fæðingarafmælis skáldsins.
Jafnframt var haldið niðjamót af-
komenda Bólu-Hjálmars og
Guðnýjar konu hans. Meðal við-
staddra athöfnina við Bólu vom
forsetahjónin Ólafur Ragnar
Grímsson og Guðrún Katrín Þor-
bergsdóttir.
Athöfnin hófst með því að sr.
Hjálmar Jónsson flutti frum-
samið hátíðarljóð helgað minn-
ingu forfeóra sinna. Þá tók til
máls forseti Islands, Ólafur
Ragnar Grímsson. Vék hann að
vitnisburði þjóókunnra Islend-
inga og fræðimanna um skáldið
frá Bólu og sagði m.a.: ,J>að er
skemmtileg vísbending um þann
sess sem Hjálmar Jónsson frá
Bólu hefur átt með íslenskri þjóð
í röska öld að fyrsti ráðherra Is-
lands Hannes Hafstein og þriðji
forseti lýðveldisins Kristján Eld-
jám skuli báðir leggja okkur til
svo djúpvitrar og meitlaðar lýs-
ingar á ævi og verkum Hjálmars,
en hróður hins fátæka alþýðu-
skálds og hagleiksmanns á orð
og tré hefur borist víðar en um
íslenskar sveitir og sjávarbyggð-
ir. Sá merki fræðijöfttr Sigurður
Norddal greindi frá því í erindi
sem hann flutti á fræðslufundi í
verkamannafélaginu Dagsbrún
1942, að vorið 1918 þegar hild-
arleikur heimstyrjaldarinnar fyrri
hafði leikið Evrópu grátt, hefði
hann átt samræður í London við
prófessor Ker, sem var líklega
mesti bókmenntafræðingur Breta
á sinni tíð. Dr. Ker naut mikillar
frægðar vegna eindæma þekk-
ingar sinnar á bókmenntum álf-
unnar bæði fomum og nýjum. í
samræðum við Sigurð Norddal
greindi hann frá því að haustið
1914, þegar nemendur hans vinir
og frændur voru að fara til
Frakklands og snéru fæstir aftur
frá vígvellinum hefði honum
verið daprast í huga á ævinni. Þá
sagði dr. Ker „Mér var ekki eins
mikil fró af neinu og að hafa yfir
þessa vísu Bólu-Hjálmars:
Mínir vinir farafjöld
feigðin þessa heimtar köld
ég kem eftir, kannski í kvöld
með klofinn hjálm og rifinn
skjöld
brynju slitna, sundrað sverð og
syndagjöld.
Þá tók til máls sá fræðimaður
íslenskur sem mest hefur sinnt
rannsóknum á verkum Bólu-
Hjálmars, dr. Eysteinn Sigurös-
son og skýrði hann gestum og
nyðjum Bólu-Hjálmars frá ævi
skáldsins. Því næst fluttu tveir
þekktir skagfirskir hagyrðingar
og skáld ljóðmæli í tilefni dags-
ins, Jóhann Guömundsson frá
Stapa og Sigurður Hansen, en
Sigurður er ættingi Eiríks bónda
í Djúpadal er elti grátt silfur vió
Bólu-Hjálmar á sínum tíma. Má
segja að ljóó Sigurðar hafi falið í
sér sáttargjörð er nær bæði til þá-
tíðar og nútíðar, Sigurður taldi í
formála sínu að ljóðinu, að með
ádeildukveðskap sínum hefði
Bólu-Hjálmar kannski öðru
fremur veriö að deila á samtím-
ann.
Þá las Kristján Runólfsson á
Sauðárkróki ljóð sem hann fann
nýlega á gömlu handriti og talið
er fullvíst að sé eftir Bólu-
Hjálmar. Ljóðið fjallar um hetj-
una Gretti Asmundarson.
Stjómandi samkomunnar við
Bólu var einn afkomenda skálds-
ins, hinn kunni útvarpsmaður
Ævar Kjartansson. Niðjamót var
haldið í reitnum seinna um dag-
inn, kaffi drukkið í Varmahlíð
og borðað þar. Þá var kvöldvaka
í Miðgarói um kvöldið.
Fjórða ársþing SSNV að
Löngumýri ítrekar áskorun á
Alþingi og ríkisstjórn að efla
Orkusjóð og gera honum kleifl
að styrkja sveitarfelög á „köld-
um svæðum“ til jarðhitaleitar.
í greinargerö segir að sveitar-
félög sem ekki eigi aðgang að
jarðhita hafi farið halloka og verið
lakari kostur til búsetu og rekstrar
fyrirtækja. í Ijós hafi komið á síð-
ustu árum að virkjun jarðhita hef-
ur verið möguleg á svæðum sem
áður hafa verið skilgreind sem
,Jcöld“. Kostnaður við jarðhitaleit
er hins vegar gífurlegur og oft
lagður í töluverðri óvissu um ár-
angur.
Sigurjón frá Víðimel
slær í gegn á Ítalíu
Tenórinn Sigurjón Jóhannes-
son, sem gjarnan er kenndur
við Víðmel í Skagaflrði, og
mikið hefúr sungið með skag-
firsku söngvurunum Helgu
Rós Indriðadóttur frá Hvít-
eyrum, Margréti Stefánsdótt-
ur frá Víðidal og Asgeiri Ei-
ríkssyni frá Sauðárkróki, er
að gera það gott í söngnámi á
Ítalíu, samkvæmt umfjöllun
sem Feyki barst nýlega úr
ítalska blaðinu Liberta.
„Þar segir að hinir ungu og
efnilegu Islendingar, Sigurjón
Jóhannesson tenór og Aðalheið-
ur Pétursdóttir mezzosópran,
tóku þátt í tónleikum sem
haldnir voru í lok „Mater
Class“, námskeiðs í söng og
söngtúlkun að frumkvæði Eu-
geniu Ratti, hinnar frægu
sópransöngkonu við Scala leik-
húsið í Mílanó. Tónleikarnir
voru haldnir í tónleikasal
Heilags Jóhannesar í Mario
Mangia tónlistarskólanum í
Fierenzuola d’Arda (Piacenza),
undir yfirskriftinni „Fjarrænir
hljómar'". Hinum stórgóðu ís-
lensku söngvurum var klappað
mikið lof í lófa og hröfuharðir
söngunnendur meðal áheyrenda
kunnu vel að meta fágaðar radd-
ir og vandaða túlkun söngvar-
anna.
Söngvaramir tóku síðan að
boði próf. Massimo Cottica
kennara í kammartónlistarfræð-
um þátt í formlegum kvöldtón-
leikum þar sem á efnisskránni
var „Libeslieder Walzer op. 52“
eftir Jóhannes Brams. Tónleik-
arnir voru haldnir í hinum
glæsilega tónleikasal G. Nicol-
ini tónlistarskólans í Flórens, en
hin þekkta sópransöngkona Eu-
genia Ratti hefur kcnnt vió skól-
ann um árabil.
Skólastjóri skólans, tónsmið-
urinn og tónlistarkennarinn
Fabrizio Garilli, lauk miklu
lofsyrði á hina frábæm íslensku
söngvara eftir glæsta frammi-
Sigurjón Jóhannesson.
stöðu þeirra í hinu krefjandi
verki Brahms og kvaðst vonast
til að mega hlýða á þau að nýju
þegar þau kærnu aftur til Italíu á
komandi hausti.
Vió ítalskir áheyrendur von-
umst til að fá aö heyra þau
syngja á ný hið bráðasta og
gjaman heyra þau spreyta sig á
öðrum verkum af efnisskrá óp-
erutónlistarinnar, eins og til
dæmis Sigurjón sem Riccardo í
Grímudansleiknum e. Verdi,
eða Aðalheiði í Samson og
Dalila eftir Saint Saens“, segir
ítalska blaðakonan Janna
Basilio í umfjöllun sinni.
Leiðsögutæki til sölu!
Til sölu Koden KGP 911 GPS leiðsögutæki. Innbyggður
plotter og margt fleira. Stór og góður skjár. Hefúr verið notaður
í fjallabíl en hentar ekki síður í bát. Sanngjarnt verð.
Upplýsingar í síma 453 5421 eftir kl. 20.