Feykir


Feykir - 28.08.1996, Side 4

Feykir - 28.08.1996, Side 4
4FEYKIR 27/1996 Fjögur súpersláturhús ekki líkleg til lækkunar milliliðakostnaðar Ágrip úr erindi Jóns Magnússonar um atvinnumál á þingi SSNV A undanfömum þremur ámm hefur Byggðastofnun lagt aukna áherslu á lán- og styrkveitingar til ferðaþjónustu þá ekki síst hérna í kjördæminu. Stefnan undanfarið hefur verið að lána síóur til uppbyggingar gistirým- is, þess í stað að deila styrkjum og útlánum til þeirra aðila sem vilja koma á fót afþreyingu fyrir ferðafólk. Nokkuð hefur verið lánað til iðnaðar, einna helst til byggingar iðnaðarhúsnæðis. Ef litið er til stöðu atvinnu- veganna hér í kjördæminu, þá ber fyrst að nefna landbúnað og þau vandræði sem greinin hefur átt við að etja á undanfömum ámm, sérstaklega í sauðfjárrækt- inni. Ljóst er að þróunin er í þá átt að smærri búum mun fækka þrátt fyrir lítilsháttar framleiðslu- aukningu, því ffamleiðslueining- amar munu stækka talsvert. Þetta má einnig segja um mjólkuriðn- aðinn, þó með þeirri undantekn- ingu að framleiðsluaukning hef- ur orðið talsverð hér í Skagafirði vegna kaupa á mjólkurkvóta til héraðsins. Mann fari offari Það hefur verið horft mikiö til útflutnings á lambakjöti sem lausn fyrir sauðfjárbændur í þessu kjördæmi jafnt sem í land- inu í heild. Ég tel hinsvegar að menn fari offari í þessum efnum, ekki hvað síst vegna þess að fyrir dymm stendur að ráðast í tug eða hundraða milljóna fjárfest- ingu til uppbyggingar fjögurra útflutningssláturhúsa í landinu. Stefna stjórnvalda varðandi stuðning vió fjögur útflutnings- sláturhús verður að byggjast á raunverulegum hagkvæmnis- sjónarmiðum og ígmndaðri rök- semdafærslu. Með stefnu stjóm- valda verður að tryggja að sam- keppnisstaða verði ekki skert á þann veg að lítil eða meðalstór sláturhús sem hafa sveigjanleika varðandi þarfir markaðarins leggist af eða verði gjaldþrota. Mjög brýnt er því að skoða stöóu sláturhúsa í landinu í dag með tilliti til hagkvæmni í rekstri og þarfir markaðarins. Einnig ber að kanna raunvemlegan pólitískan vilja fyrir uppbyggingu fjögunra sláturhúsa áður en ráóist er í slíka fjárfestingu. Það er degin- um ljósara að sú breyting sem orðið hefur á sölukcrfi sauðfjár- afurða meó nýjum búvömsamn- ingi og markar á vissan hátt tímamót nú á þessu hausti mun færa bændur nær hinum al- menna neytanda. Því hefúr verið haldið fram að með auknu ffjáls- ræði með sölu á dilkakjöti muni skapast hér lögmál fmmskógar- ins og að bændur fari að niður- bjóða hvor fyrir öðmm, en ég tcl að sá ótti eigi ekki við rök aö styðjast, einfaldlega vegna þess að það mun enginn kjötheildsali leggja í þá vinnu sem í því felst. Þessi breyting gerir miklar kröf- ur til sauðfjárbænda um hagræð- ingu á sínum búum og ekki hvað síst mun stuðla að mikilli sam- keppni milli sláturhúsa, vegna þess að slátur- og milliliðakostn- aður er sá þáttur sem verður að minnka vemlega. Fjögur súper- sláturhús tel ég ekki vel til þess fallin að lækka milliliðakostnað til bænda, eða að þau hafi mögu- leika á að laga sig að erlendum markaði svo aó nokkm nemi. Sjávarútvegur Varóandi sjávarútveg, þá em tvö stærstu sjávarútvegsfyrirtæk- in á Siglufirði og Sauðárkróki, og stærsta bolfiskvinnslan er staðsett á Sauðárkróki. Það sem hinsvegar hefur breyst á síðustu ámm er það að rækjuvinnsla er orðin langstærsta fiskvinnsla á svæðinu. Segja má að góð dreif- ing sé á þessari starfsemi, rækju- vinnsla á nær hverjum þéttbýlis- stað. Það gleðilega er að á síó- ustu tveimur ámm hefur rækju- vinnslan skilað mjög góðri fram- legð. En vissulega er verðfall á rækju nú stórt áhyggjuefni. Rækjuverksmiðjumar hafa stað- ið þétt saman að nýsköpun í greininni. Þá má nefna samstarf þeirra og nokkurra sveitarfélaga að koma á fót rækjumjölsverk- smiðju á Hvammstanga. Þessi vinnsla sýnir sig í að vera mjög arðbær. Hráefni til mjölvinnsl- unnar er verðlaust rækjuhrat, sem tekist hefur að vinna úr gæðamjöl sem auðvelt er að selja fyrir gott verð. Framleiðsl- an stuðlar aö því að gera verð- mæti úr verðlausu hráefhi og um leið að stuðla að umhverfis- vernd, með því að hætta að henda rækjuúrgangi í náttúmna. Ég ætlaði reyndar að hlífa Sigl- firðingum við þessari síðustu at- hugasemd. ( Hér hlógu fundar- menn). Inaður Varðandi iðnað er ljóst að sú atvinnugrein er ekki fyrirferðar- mikil í kjördæminu samanborið við t.d. höfuðborgarsvæðið. At- hyglisvert er einnig að þegar skoðuð er atvinnuskipting í kjör- dæminu nokkur ár aftur í tímann, þá er staðreynd að störfum í iðn- aði hefur fækkað nokkuð að undanfömu. Orsakimar má að nokkm leyti rekja til fækkunar starfa í sláturiðnaði, einnig til hagræðingar og vélvæðingar sem orðið hefur í greininni. Ljóst er að til einhverra aðgeróa verð- ur að grípa til að forráðamenn meðalstórra fyrirtækja líti á það sem vænlegan kost að hefja starfsemi á svæðinu. Ferðaþjónusta Sú atvinnugrein sem vaxið hefur hvað mest í kjördæminu síóustu árin er ferðaþjónusta. Það er á vissan hátt gæfa svæðis- ins hvað sveitarstjómarmenn hér hafa verið opnir fyrir þeim möguleikum sem ferðaþjónusta hefur upp á að bjóða í atvinnu- legu tilliti. I sumra augum hefur ferðaþjónustan ekki hlotið verð- ugan sess og má það að ein- hverju leyti rekja til þess að störf og tekjur í ferðaþjónustu em oft Jón Magnússon starfsmaður útibús Byggðastofnunar á SauðárkrókL á tíðum ekki eins sýnileg og í öðmm atvinnugreinum. I sambandi við atvinnu- og byggðaáætlun í V.-Húnavatns- sýslu var gerð nokkuð nákvæm úttekt á störfum og tekjum af ferðaþjónustu í sýslunni. Kom þar fram að hún skilaði heldur meiri tekjum en nettóafkoma sauófjárræktar í sýslunni. Það sem hinsvegar hefur skort á er samvinna milli aðila, þá er ekki átt við samvinnu ferðamálafé- laga, heldur samvinnu einstakra hagsmunaaðila er veita þjónustu til ferðamanna. Þetta má rekja til þess misskilnings að menn virð- ast halda að þeir séu að slást um síðustu krónur ferðamannsins. Nú er svo komið að í kjördæm- inu eru afþreyingarmöguleikar orðnir svo miklir að ferðamenn gætu dvalist hér í margar vikur án þess aó verða uppiskroppa með viðfangsefni. Tel ég að þjónusta við ferðamenn eigi eftir aö eflast hér enn frekar og tekjur aukast af greininni. HJindiaæ IBw^nma Sjáðu nú til karlinn Eftir forsetakosningarnar heimsótti ég vin minn Ólaf Vís- mann, sem nýkominn var heim af sjúkrahúsi, þar sem hann hafði dvalið um tíma sér til heilsubótar. Þaö var samt ekki að sjá á honum að hann hefði átt við lasleika að stríða, því það bókstaflega sindraði af honum þegar forseta- kjöriö kom til umræðu. Hann bauð mér strax fram í eldhús og settist þar ábúðarmikill á messustólinn. Ég sá að hann iðaði allur af áhuga, enda tók hann þeg- ar til máls af fullum krafti og þurfú ég ekki aö gera mér neinar vonir um að komast að í bráðina. Já sjáðu nú til karlinn minn, byrjaði hann. Ég vissi alveg frá byrjun að nafni yrði kjörinn. Þetta er svo skolli klár maður og ekki spillir konan fyrir honum og þá ekki dætumar, þessar gullfallegu hnátur. Þaö var svo sem auðvitað aó nafni viðhefði tvöfalda inn- spýtingu þegar hann hófst handa við að Ijölga mannkyninu. Það er svo sem kraftur í öllu sem hann gerir. Það sést eins og svart á hvítu. Nafni minn er ekta heimsmað- ur og hann þekkir íslensku þjóð- arsálina út í gegn. Bara þaö að lýsa yfir framboði í huggulegheit- um heima í stofu, bræddi fólk út um allar Uissur. Kvenfélagskerl- ingar og allra handa þjóðleg batt- erí máttu ekki vatni halda af hrifn- ingu og lofsungu nafna hástöfum. Sumir gerðu þaö þó ekkert hefði verið fjær þeim nokkrum vikum áöur. Þetta var sálrænt gegn- umbrot hjá nafna mínum, þaul- hugsuð leikflétta. Fólk féll fyrir þessu út um allt land, ó hann er svo heimilislegur, svo íslenskur í sér. Ég kýs hann og engan annan! Forusta Sjálfstæðisflokksins var náttúrulega ekki hrifin af nafna, enda hefúr hann oft reynst minn þeim herrum sem þar ráða erfiður viðfangs, svo ekki sé meira sagL En nú er nafni ekki lengur að hugsa um þetta pólitíska hana- og hænuat. Hann er kominn meó hugann á miklu hærra plan. Og þú mátt bera mig fyrir því að þeir eru fáir pólitíkusamir sem hefja sig upp á efstu skör þjóólegs ágætis eins og nafni minn. Hann fór létt meó þetta, eldklár og landsföður- Iegur á allan máta. Þessir forstjórar hjálpuðu hon- um svo á lokasprettínum, þó önn- ur væri ætlunin. Pétur átti nefni- lega aldrei neina möguleika, þó hann sé sjálfsagt vænsti maður. Guðrún hélt aó hún ættí einhverja möguleika, einkum eftír að nafna hennar sá hag sinn í því að hætta, en blússandi lensið hannar skilaði sér hreint ekki. Svo er fólk vitan- lega orðið þreytt á þessu eilífa jafnréttisröfli. Þessar háskóla- menntuðu skeljahrífur sem em í Þótt langt sé um liðið ber forsetakosningar á góma í pistli Rúnars Kristjánssonar. fomstu í þessu jafnréttisbatteríi þarna fyrir sunnan eru bara að hugsa um að koma sér á framfæri. Þessi jafnréttíshugsjón er svo sem ekki verra tæki tíl þess en annað. Þær fá kannski þingsætí út á þetta og verða ósköp miklar í munnin- um, en þær koma aldrei tíl meó að gera nokkum skapaóan hluL Það er löngu orðið ljósL En við vomm að tala um for- setakosningarnar. Já þær setja merkilega síðu inn í íslandssög- una. Fyrir svo sem 20 ámm máttí formaður Alþýðubandalagsins ekki einu sinni fá stjómarumboð, það var nánast landráðasök í aug- um sumra. Nú kýs þjóðin sér for- seta sem er nýhættur sem formaó- ur þessa flokks og kærir sig koll- ótta um kaldastríðstal og komm- únisma. Og nafni vinnur í öllum kjördæmunum. Það sýnir að þjóó- in er jafngáfuð um allt land. Ég Olafur Vísmann er því hreykinn af því að vera Islendingur og nafni minn á eftir að gera okkur öll hálfu hreyknari af því sem við emm í dag. Það er mín skoðun að hún er rétt því Ólafur Vísmann fer ekki með fleipur. Þannig lauk vinur minn tali sínu eða öllu heldur ræðu, því hann sagðist þurfa að haska sér tíl læknis, því hann væri undir eftír- liti hvítsloppa á æóstu stöðum, sem vektu yfir heilsufari hans. Ég kvaddi því minn flugmælska vin, enda hafði ég um nóg að hugsa eftir þessa kraftræðu hans sem söng í eyrunum á mér lengi á eft- ir. 15. júlí 1996. Rúnar Kristjánsson.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.