Feykir - 30.10.1996, Síða 2
2FEYKIR 36/1996
Snúum vörn í sókn
er.
Bæjarstjórn Blönduóss:
Rætt um stöðu og fram
tíðarhorfur bæjarins
Atvinnumál hafa verið í
brennidepli hér undanfarið og ekki
að ástæðulausu. Ekki er bjart
framundan í fiskvinnslunni og því
veitir okkur ekki af nýjum úrræð-
um. Við verðum öll að leggjast á
eitt í þeirri baráttu sem framundan
Toyota LandCruiser LX bensín,
stuttur, árg. '88, ekinn 152 þús.
km. Verð 1.050.000. Góður bfll.
MMC Pajero, bensín, stuttur,
árg. '88, ekinn 164 þús. km.
Veró 690.000.
MMC Galant GLXI2000 sedan,
4x4 árg. 91, ekinn 95 þús. km.
Venö 1.050.000. Fallegurbíll.
MMC Lancer GLX 1500 sedan,
sjálfsk. árg. '89, ekinn 89 þús.
km. Verð 600.000. Topp bfll.
Toyota Corolla 1300 XL L/B,
árg. '88, ekinn 116 þús. km.
Veið 490.000. Fallegurbfll.
BÍLASALA/BÍLALEIGA
SKAGAFJARÐAR SF.
Löggild bílasala
Borgarflöt 5, Sauðárkróki,
sími 453 6050 og 453 6399.
Heimasími sölumanns 453 5410.
Stjórn Verkalýðsfélagsins
Fram hefur ákveðið að hafa for-
göngu um átak í atvinnumálum
kvenna. Svipað átak var gert á
Vestfjörðum og kallaðist það
Snerpa. Það stóð í tvö ár og var
skipuð stjóm sem hafði yfirum-
sjón með verkefninu. Sú stjóm
réði atvinnuráðgjafa sem sá um
framkvæmd mála. Framkvæmdin
fólst í ráðgjöf til þeirra kvenna
sem höfðu hugmyndir að atvinnu-
sköpun. Ef hugmynd var talin góð
var hugað aó fjármögnun, sölu-
möguleikum og markaðssetningu.
Til aö gera langa sögu stutta
þá bárust um 80 fyrirspumir og
nokkur fyrirtæki voru stofnuð í
kjölfarið, svo sem haröfiskverk-
un, svepparækt og nokkur hand-
verkshús.
Hér í Skagafirði eru ótal tæki-
færi fyrir duglegt fólk með hug-
myndir, hvort sem um er aö ræða
smáiðnað, ferðaþjónustu eða
handverk svo fátt eitt sé nefnt. Nú
er lag að virkja það fólk sem hef-
ur hugmyndir en veit ekki hvemig
á að koma þeim í framkvæmd eða
hvort þær em yfirleitt ffamkvæm-
anlegar.
Ataksverkefni af þessu tagi er
framlag til frumkvæðis í atvinnu-
sköpun og hvetur konur til að
virkja sínar hugmyndir samfélag-
inu til góðs. Því boðar Verkalýðs-
félagið Fram til fundar um málið
sem verður haldinn að Sæmund-
argötu 7a (Ströndinni) Iaugardag-
inn 2. nóvember kl. 16,00. Við
viljum hvetja alla sem áhuga hafa
á málinu að mæta og taka þar
með þátt í að gera þetta átak að
veruleika.
Asdís Guðmundsdóttir, starfs-
maður Verkal.felagsins Fram.
Á fúndi bæjarstjórnar Blöndu-
óss á dögunum var rætt um
stöðu og ffamíðarhorfúr bæjar-
ins. Verulegar umræður urðu
um málið og tóku allir bæjar-
fulltrúar þátt í þeim. Fram kom
áhugi að kanna viðhorf bæjar-
búa til þessara mála og hugsan-
lega líka mcð hvaða hætti brott-
fluttir Blönduósingar sjái nú
bæinn og hvað þyrfti að gera til
þess að að þeir gætu hugsað sér
að flytja heim aftur.
Á fundinum voru lögð fram
gögn um fólksfjölgunarþróun,
aldursskiptingu, ársverk og at-
vinnuskiptingu í bænum. Pétur
Arnar Pétursson forseti bæjar-
stjómar lét þá skoðun sína í ljós að
fjögur atriði réðu öðm fremur um
hvar fólk kysi að búæ efnahagslegt
öryggi, góð samfélagsleg þjónusta,
tómstundaiókanir og átthagatengsl.
í máli Péturs Amars kom fram
að fjöldi ársverka hefði tapast á
síðustu 10-15 árum í Húnaþingi.
Harðast hefði þetta bitnað á dreif-
býlinu þar sem um 300 ársstörf
hefðu tapast á 10 árum vegna
samdráttar í hefðbundnum land-
búnaði. Þetta hefði síðan haft sín
áhrif í þjónustu- og úrvinnslu-
greinum á Blönduósi, auk þess að
gjaldþrot Pólarprjóns á sínum
tíma, þar sem um 50 störf glötuó-
ust, heföi verið slíkt reiðarslag íyr-
ir atvinnulíf bæjarins, að enn hefði
ekki náðst að vinna þaó upp. Þá
hefðu framkvæmdir við Blöndu á
sínum tíma ollió fráhvarfsein-
kennum í atvinnulífinu eftir á og
stjómvöld hefðu þar ekki staðið
viö sitt. Þá ylli það ráðamönnum á
landsbyggðinni áhyggjum, þær
stöðugu fréttir sem berast af á-
formum um stórkostlega atvinnu-
uppbygginu á suóvesturhominu.
I>ar sem ljóst væri að það vinnuafl
sem talað er um, um 2000 störf
strax á næsta ári, sé ekki til þar,
þýddi þetta ekkert annaó en
byggðarröskun.
Draumasveitarfélagið
Nú má spyrja hvaða eiginleikum
sveitarfélag þarf að vera gætt til að
rekstur þess teljist til fyrirmyndar.
Fyrir íbúana þarf skattheimtan að
vera sem lægst. Fjárfestingar þurfa
að vera nægjanlegar. Þjónusta þarf
að vera hagkvæm. Skuldir þurfa að
vera sem minnstar. Veltufjárhlutfall
þarf að vera kringum 1. Fjölgun íbúa
þarf að vera hófleg, því fækkun þýð-
ir verri nýtingu á þjónustu og mikil
fjölgun kallar á viðbætur.
Ef settur er upp mælikvarði sem
byggir á eftirfarandi forsendum:
Draumasveitafélagið fær einkunina
10. Skatttekjur pr. íbúa eru kvarðað-
ar 1-10 samkvæmt spönn skatttekna
hverju sinni. Heppilegt hlutfall mála-
flokka af tekjum er talið 75% en 1%
frávik í hvora átt sem er veldur 1 í
lækkun. Hlutfall fjárfestingar af tekj-
um er 25%, 1% frávik þýðir 2 í
lækkun. Skuldir pr. íbúa ættu að vera
0. Hver 10.000 kr. skuld þýðir 0,5 í
lækkun. Ef frávik veltufjárhlutfalls
fer yfir 10% frá 1,0 þá vegur 0,1 þar
umfram 0,1 í lækkun á einkunn. Ef
fjölgun/fækkun er umfram 2% þá
lækkar einkunn sem nemur 1 fyrir
hvert prósentustig breytingar um-
fram 2%. Ekki er gefin lægri einkun
en 0. Breytingar eru síðan vegnar
jafnt saman og reiknuð einkunn fyrir
hvert sveitarfélag. Þessi aðferð
byggir á mati, sem er ekki óraun-
hæft, en verður aldrei stóridómur. En
aðferðin getur gefið gagnlegar vís-
bendingar og til þess er leikurinn
gerður. (Vísbending 25. okt. 1996)
í fréttum um helgina, svæðisútvarps-
ins og síðan í aðalfréttatíma ríkisút-
varpsins, gat að heyra að Sauðárkrókur
hefði fengiö lægstu einkunn og reyndar
falleinkun í úttekt sem tímarit um við-
skipta- og efnahagsmál, Vísbending,
hefði gert um rekstur sveitarfélaga í
landinu á síðasta ári. I fréttinni sagði að
þrjú norðlensk sveitarfélög væru meðal
þeirra fimm sem Vísbending gæfi lægstu
einkunn í úttekt sem blaðið gerði á
rekstri 30 sveitarfélaga. Varðandi úttekt
á hvað væri svokallað „draumasveitarfé-
lag" í landinu fékk Sauðárkrókur hroða-
lega einkunn. Þetta hljómaði undarlega í
eyrum fyrir þá sem vissu að Sauðárkrók-
ur er eitt fárra sveitarfélaga í landinu þar
sem fjölgun íbúa hefur verið yfir lands-
meðaltal til fjölda ára.
Draumasveitarfélag, hvað þýðir það?,
hafa væntanlega þeir velt fyrir sér sem
heyrðu fréttina. Og trúlega hafa margir
slegið því föstu, að það hlyti að vera það
sveitarfélag sem fólk langaði til að flytja
til flytti það búferlum. Fyrir þá sem gáfu
sér það sem vissu að þessi frétt væri
óyggjandi tíðindi, hlýtur því Sauðár-
krókur að vera hræðilegur staður. -En
ansi er það þá skrýtið að fólk skuli hafa
verið svona vitlaust að flytja á þennan
stað mörg undanfarin ár! Eru Islendingar
þá svona vitlausir eftir allt saman?
Eflaust hafa Sauðkrækingar hrokkið
við að heyra þessa frétt, en í útreikning-
um Vísbendingarmanna á hvað sé
draumasveitarfélagið í landinu, fær
Sauðárkrókur ekki nema 3,3 í einkunn,
eða næstlægstu einkunn. Aðeins Sand-
gerði er með verri útkomu. Hagur Sauð-
árkróks hefur versnað í þessari könnun
Vísbendingar um 2,3 stig á einu ári. Ná-
grannar okkar á Blönduósi og Siglufirði
hafa hinsvegar báðir bætt sig frá fyrra
ári. Blönduós fær nú 5,8 í stað 4,8 í fyrra
og Siglfirðingar fá nú 6,4 í stað 6,1 í
fyrra. Akureyringar hinsvegar tróna á
toppnum, eða svo gott sem, með 8 í ein-
kunn eins og í fyrra. Kannski hefur það
líka snúið hnífnum í sárinu hjá Króksur-
um, því eins og kunnugt er hefur alla tíð
verið talsverður rígur á milli þessara
staða. En til hamingju Akureyringar, og
gott hjá ykkur Blönduósingar og Sigl-
firðingar að sýna þessar framfarir milli
ára.
En þó að í frétt útvarpsins hafi komió
fram, að í úttektinni hafi verið farið ná-
kvæmlega í stöðu þessara sveitarfélaga,
litið á skuldastöðuna, fjárfestingar og
fleira, þá hlýtur það að vera mikið álita-
mál, hversu réttur sá stuðull sé sem þeir
Vísbendingarmenn setja varðandi út-
reikninga á draumasveitarfélaginu.
Þennan stuðul gefur að líta í ramma hér
til hliðar, og eins og sjá má þar segir
orðrétt um þessa útreikninga: „Þessi að-
ferð byggir á mati sem ekki er óraun-
hæft, en verður aldrei stóridómur". Þar
hafið þið það, aðferðin er ekki óraunhæf,
en spumingin er hversu raunhæf er hún?
Dæmi hver fyrir sig.
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi
Feykir hf. Skrifstofa Aðalgötu 2, Sauðárkróki.
Póstfang: Pósthólf 4, 550 Sauðárkróki. Sími
45 35757. Myndsími 453 6703. Ritstjóri Þór-
hallur Asmundsson. Fréttaritarar: Sesselja
Traustadóttir og Öm Þórarinsson. Blaðstjórn:
Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guð-
brandssgn, Sæmundur Hermannsson, Sig-
urður Agústsson og Stefán Arnason.
Askriftarverð 160 krónur hvert tölublað
m/vsk. Lausasöluverð 180 kr. m/vsk. Setning
og umbrot Feykir. Prentun Sást hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og
héraðsfréttablaða.