Feykir - 02.07.1997, Blaðsíða 1
Ákvörðun stjórnar Vinnumálastofnunar
Svæðisvinniuniðlun
verði á Blönduósi
Stjórn Vinnumálastofnunar
hefur gert það að tillögu sinni
að skrifstofa Svæðisvinnu-
miðlunar á Norðurlandi
vestra verði staðsett á Blöndu-
ósi. Gert er ráð fyrir því að
Páll Pétursson félagsmála-
ráðherra, sem hefur með
málefni vinnumiðlunar að
gera, staðfesti þessa niður-
stöðu stjórnar Vinnumála-
stofnunar á næstu dögum.
Á síðasta löggjafarþingi
voru samþykkt ný lög um
vinnumarkaðsaðgerðir. Mark-
mið þeirra laga er að stuðla að
jafnvægi milli ffamboðs og eft-
irspumar eftir vinnuafli í land-
inu. Lögin gera ráð fyrir landinu
sem einu vinnusvæði, en svæð-
isvinnumiðlanir starfi á ákveðn-
um svæðum. Hlutverk þeirra er
í stómm dráttum að annast
vinnumarkaðsrannsóknir, ráð-
gjöf til atvinnulausra og at-
vinnuleysisskráningu.
„Félagsmálaiáðherra ákveð-
ur umdæmi þeirra og staðsetn-
ingu að fengnum tillögum
stjómar Vinnumálastofnunar.
Staðarval skal miðast við að
sem flestir íbúar umdæmisins
eigi greiðan aðgang að þjónustu
svæðisvinnumiðlunar. Svæðis-
ráð svæðisvinnumiðlunar
ákvarðar nánari fyrirkomulag
skráningar atvinnulausra innan
svæðisins”, segir orðrétt í lög-
unum.
Ljóst er að Skagfirðingar em
ekki ánægðir með þessa niður-
stöðu stjómar Vinnumálastofn-
unar. Einn forráðamanna Sauð-
árkróksbæjar sem blaðið hafði
tal af en vildi ekki tjá sig opin-
berlega um málið, taldi að rang-
lega væri farið með túlkun laga-
bókstafsins varðandi staðarval-
ið.
Þrjár bílveltur á
mánudag
Mikil umferð var um Húna-
þing um helgina og hratt ekið
að sögn lögreglu. Alls voru 47
teknir fyrir of hraðan akstur.
Tvö umferðaróhöpp urðu á
mánudag, bflveltur í Vestur-
hópi og Víðidal. Fólk slapp
án meiðsla í þessum óhöpp-
um en bflar eru miídð
skemmdir.
Bílvelta varð skammt ffá
Sleitustöðum í Skagafirði síð-
degis á mánudag. Fólksbíll
snérist á miðjum vegi og haln-
aði á hvolfi utan vegar. Tvennt
var í bílnum og slasaðist fólkið
ekki alvarlega en bíllinn er tal-
inn ónýtur. Rólegt var hjá lög-
reglunni á Sauðárkróki um
helgina.
Þó starfinn sé ærinn hjá krökkunum í Vinnuskóla Sauðárkróks, þá getur verið freistandi að
setjast og sleikja sólskinið, þegar þannig viðrar. Á einum af örfáum sólskinsdögum rakst ljós-
myndari Feykis á þennan hóp við Skagfirðingabrautina. Þarna var Auðunn verkstjóri að segja
einhverjar lífsreynslusögur.
Vöru- og þjónustusýning á Sauðárkróki um aðra helgi
Á fímmta tug fyrirtækja og
reiknað með 4-5000 gestum
Reiknað er með 4-5000 gest-
um á vöru- og þjónustusýn-
ingu sem haldin verður á
Sauðárkróki um aðra helgi,
11.-13. júlí. Á fimmta tug fyr-
irtækja tekur þátt í sýning-
unni; fyrirtæki í sjávarút-
vegi, matvælaiðnaði og öðr-
um framleiðsluiðnaði, auk
þjónustufyrirtækja og bfla-
og vélaumboða sem verða
með bása á sýningunni. Mikið
verður að gerast á Króknum
um þessa helgi, m.a. ráðst-
efna um heilsu og heilbrigða
lífshætti, Krókshlaup og í-
þróttadagur fjölskyldunnar,
Flugleiðamót í golfi, götumót
í körfubolta og hringferð
Flugfélags íslands um Iandið.
Það er atvinnumálanefnd
Sauðárkróks sem stendur fyrir
sýningunni en hún fer fram í
íþróttahúsinu. Sýningarplássið
nær inn í nýrri hluta íþróttahúss-
ins, en stækkun þess er komin
vel á veg og verður tekin í notk-
un í haust. Magnús Jónsson
framkvæmdastjóri sýningarinn-
ar segir að ljóst sé að mikið
verði að gerast á sýningarsvæð-
inu og margt að sjá. Þá verða
bæði Rás 2 og Bylgjan með
beinar útsendingar frá sýning-
unni.
Sýningin, sem haldin er í til-
efni afmælisárs á Sauðárkróki,
hefst kl. 17,00 á föstudag og
verður opin til 10 um kvöldið.
Opnunartími á laugardag er 10-
22 og á sunnudag 10-18. Sýn-
ingarbásar verða á rúmlega 200
fermetrum. Enn eru örfáir sýn-
ingarbásar eftir til ráðstöfunar,
en sýningin er ekki svæðis-
bundin þó áhersla hafi verið
lögð á þátttöku aðila af Norður-
landi vestra, að sögn Magnúsar.
—KJcH^íf! eUlÁ—
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
• VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
yivii
Æ IU sími: 453 5141
Sæmundargala lb 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
bílaverkstæði
# Bílaviðgerðir ÍÉ Hjólbarðaviðgerðir
fíéttingar ^Sprautun