Feykir - 02.07.1997, Blaðsíða 8
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra
2. júlí 1997, 24. tölublað, 17. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
Tvö félög fljúga á
íslandsflug hóf áætlunarflug
til og frá Sauðárkróki í gær.
Mikil samkeppni er nú kom-
in í flugfargjöld í innanlands-
flugi og hafa þau Iækkað tals-
vert frá því áður var. I sumar
er boðið upp á 20 ferðir á
viku í gegnum Sauðárkrók,
íslandsflug verður með 11
ferðir og Flugfélag íslands
með 9.
íslandsflug efndi til kynning-
ar á starfsemi sinni á Alexand-
ersflugvelli sl. sunnudag. Mikill
íjöldi fólks mætti og aðeins h'tið
brot af gestunum komst í útsýn-
isflugið yfir ljörðinn, en boðið
var upp á tvær ferðir. Þá var sýnt
fallhlífarstökk. Að sögn Krist-
jáns Blöndals umboðsmanns ís-
landsflugs á Sauðárkróki hafa
líklega mætt hátt í 1000 manns
og miðar hann þar við þann
ijölda af pylsum og happdrætt-
ismiðum sem mnnu út, en 7o0
pylsur hurfu ofarn skarann eins
og dögg fyrir sólu. Sama dag
var einnig kynning hjá félaginu
á Akureyri og Isafirði og ljóst að
Krókurinn átti þama vinning-
KJÖRBÖK £
....Enn betri bók fyrir þig S: 453 5353 Landsbanki íslands Banki allra landsmanna
Krókinn
inn.
Kristján segir að þegar séu
bókanir komnar vel af stað og
menn séu mjög bjartsýnir á að
flugfarþegum eigi eítir að fjölga
til muna með lægri fargjöldum,
beinum ferðum og góðri þjón-
ustu. „Krókurinn hefur staðið
neðarlega miðað við aðra staði
í farþegafjölda yfir sumarið,
vegna þess að lítill hluti ferða-
manna fer hér í gegn. Við emm
að vona að þetta muni breytast
við lækkun fargjalda og fjölgun
ferða”, sagði Kristján.
Talið er að hátt í 1000 manns hafi mætt á kynningima hjá ís-
landsflugi á Sauðárkróki sl. sunnudag.
Húsnæðisvandi Bamaskóla Sauðáf króks
Samþykkt að kaupa tvær
lausar kennslustofur
Húsnæðisvandi Barnaskóla
Sauðárkróks hefúr verið til
umfjöllunar í skólanefnd
Grunnskóla Sauðárkróks að
undanförnu og hafa þau mál
aldeilis snúist á víxl Tillaga
kennara við barnaskólann
um að kaupa tvær Iausar
kennslustofur sem komið
verði fyrir á lóð skólans var
felld á jöfnu í liðinni viku.
Bæði minni og meirihluti
skólanefndar klofnaði þá við
afgreiðslu málsins. Þessi til-
laga var síðan tekin fvrir aftur
á fundi skólanefndar í gær
og þá samþykkt
I ljósi afgreiðslu tillögunnar á
fúndinum í liðnni viku kom fram
úllaga frá Karli Bjamasyni um að
mm R EFNI
FLÍSA L A G N A
Borgarflöt 5.
s: 453 5516
Aðalsteinn J.
Umboð fyrir
Flísabúöina við
Gullínbrú
Fí Traustar Flísar
Múrvið-
k // gerðarefni
/ - flotgólf o.fl.
efsta bekk Bamaskólans, 5. bekk,
yrði kennt í húsnæði Gagn-
ffæðaskólans næsta vetur. Þeirri
tillögu var frestað. Bjöm
Bjömsson skólastjóri og Hall-
fríður Sverrisdóttir yfirkennari
við Bamaskólann lögðu fram
bókun á þessum fundi skóla-
nefndar, senr felur í sér að þau
vildu kanna alla hugsanlega
möguleika á því að unnt verði
að rúma alla 5 bekki Bamaskól-
ans j skólanum næsta vetur.
Á fundi skólanefndar í gær
höfðu mál skipast á þann veg að
tillaga um að kenna 5. bekk
Bamaskólans í húsnæði Gagn-
ffæðaskólans var felld og aðeins
Karl Bjamason greiddi þeirri
tillögu atkvæði. Karl sagðist í
samtali við Feyki í gærkveldi
hafa séð sig knúinn til að taka
upp tillögu kennara í BSS um
kaup á tveimur lausum kennslu-
stoftim og var sú tillaga sam-
þykkt samhljóða. Karl Bjama-
son segir að þrátt fýrir þessa
niðurstöðu sé þetta mál ekki
búið. Það sé nú komið á bæjar-
ráðsplanið. „Það hefur nú
komið í ljós að það er dýrt að
vera með skólann tvískiptan
undir stjóm tveggja skólastjóra.
Ef gmnnskóli Sauðárkróks væri
undir einni skólastjóm hefði
þessi vandi ekki komið upp“,
segir Karl.
Bamaskóh Sauðárkróks hef-
ur verið tvísetinn undanfama
vetur og næsta vetur blasti við
sú staða að 13 bekkjardeildir
yrðu um 6 kennslustofur.
Talið er að tvær lausar
kennslustofur með öllum
búnaði muni kosta a.m.k. 15
milljónir króna.
Röð landsmóta LH ákveðin
Vindheimamelar
mótsstaður 2002
Landsmót í Reykjavík árið 2000
Stjórn Landssambands
hestamannafélaga ákvað á
fundi sínum nýlega röð
næstu landsmóta á eftir
Iandsmótinu sem haldið
verður á Melgerðismelum í
Eyjafirði næsta sumar.
Landsmótið árið 2000 verð-
ur lialdið í Reykjavík, sem
það ár verður ein af menn-
ingarborgum Evrópu.
Landsmót árið 2002 verður
síðan á Vindheimamelum í
Skagafirði. Framvegis verða
landsmót haldin á tveggja
ára fresti og fjórðungsmót
leggjast af. Það síðasta var
haldið á Kaldármelum á
Vesturlandi um helgina.
Sem kunnugt er hefur und-
anfarin ár staðið nokkur styrr
um staðsetningu landsmóta á
Norðurlandi. Hestamenn á
Norðvesturlandi höfðu uppi
kenningu um það að þegar
hestamannafélög á höfuðborg-
arsvæðinu studdu það að næsta
landsmót yrði haldið á Mel-
gerðismelum, þýddi það að
landsmótið þar á eftir yrði hald-
ið í Reykjavík, sem hefur kom-
ið á daginn.
Breyta þarf félagssvæði
Fáks verulega til að mótið geti
farið fram í Reykjavík. Gert er
ráð fyrir að 180 milljónir þurfi
til að koma því í landsmótshæft
horf, en innifalið í því er um-
talsverð vegagerð um svæðið
auk frágangs við Reiðhöllina.
Reiknað er með að Reykjavík-
urborg leggi fram verulegt fjár-
magn til jressara ffamkvæmda,
segir í nýjasta hefti Eiðfaxa.
Birgir Siguijónsson formað-
ur LH segir að með þessu fái ís-
lenski hesturinn góða kynn-
ingu, þar sem gert sé ráð fyrir
miklum fjölda erlendra gesta í
Reykjavík á þessum tíma. „-
Þetta góða tækifæri úl að kynna
hestinn ásamt stuðningi
Reykjavikurborgar við mótið
og Fák var ein af ástæðunum
fýrir því að stjóm LH valdi
þennan mótsstað”, segir Birgir.
Gæðaframköllun
BÓKABÚÐ
BRYNcJARS