Feykir - 02.07.1997, Blaðsíða 2
2FEYKIR 24/1997
Ásta Páls sýnir í
Safnahúsinu
Þessa dagana er verið að
koma upp myndlistarsýn-
ingu í Safnahúsinu á Sauðár-
króki. Það er burtfluttur
Króksari, Asta Pálsdóttir,
sem ætlar að opna sýningu á
laugardnginn kemur 5. júU.
Sýningin mun standa til loka
afmælisársins og verða opin
alla daga kl. 14-22, nema
opnunardaginn kl. 16-22.
Þetta er önnur einkasýning
Ástu á Sauðárkróki, en sú fyrri
var fyrsta einkasýning hennar,
árið 1982 eða fyrir 15 árum, og
síðan hefur hún haldið fimm
einkasýningar auk fjölda sam-
sýninga.
Að þessu sinni sýnir Ásta 70
myndir, flestar rammskag-
firskar. Meðal annars syrpu er
geymir 20 myndir, sem hún
nefnir „Leiftur frá liðnum
tíma”. Þar gefur að líta mörg
þekkt hús og fólk af Króknum.
Og myndir Ástu eru góðar og
nákvæmar, litameðferð og upp-
bygging myndar ffábær. „Beðið
eftir síldinni”, heitir ein mynd-
in og Skagfirðingur einn sem sá
Ásta Pálsdóttir.
hana átti ekki erfitt með að
þekkja konumar, þótt mótívið
sé ffemur smátt.
Margar myndanna em ný-
legar. Meðal annars mynd af
Bjama Haraldssyni kaupmanni
í sínu rétta umhverfi og lands-
lagsmyndir margar mjög glæsi-
legar. Ekki er nokkur vafi á því
að þessi sýning Ástu Pálsdóttur
á effir að hljóta verðskuldaða at-
hygli. Þar er margt sem gleður
augað.
„Ríðum heim til Hóla“
ný sýning á Hólum
Nýlega var opnuð á Hólum í
Hjaltadal sýning sem hlotið
hefur nafnið „Ríðum heim til
Hóla”. Á sýningunni eru
reiðver af ýmsu tagi og sagt
frá notkun hestsins í tímans
rás. Byggðasafn Skagfírð-
inga setur upp sýninguna í
anddyri skólahússins að Hól-
um.
Á sýningunni verða reiðver
af ýmsu tagi og stiklað á langri
sögu hvað varðar notkun hests-
ins í hinu daglega amstri fyrr á
tímum. Sýningin er samansett
með munum frá safninu, text-
um og myndum. Má þar nefha
hnakk með undirrekki, söðul
ffá 19. öld, beisli, þófa, reiðing,
klifbera, reipi, torfkróka, hrip
og margt fleira. Með breyttum
atvinnuháttum um miðja þessa
öld glötuðu flestir þessir hlutir
hlutverki sínu og nú er svo
komið að fáir þekkja þessi nöfh
né vita til hvers hlutir eins og
klifberi og þófi voru notaðir. Á
sýningunni er því lögð áhersla
á aðgengilegar skýringar
þannig að áhorfendur geti auð-
veldlega áttað sig á því hvemig
þessir munir voru notaðir fyrr á
tímum, segir í tilkynningu
vegna sýnignarinnar.
Þá verður einnig í sumar
vatnalífssýningin „Líf í fersku
vatni” á Hólum. Hlaut hún al-
mennt lof ferðamanna á síðasta
sumri, en þá sóttu um 6000
manns sýninguna, þar sem að
gefur að líta fjölbreytt dýralíf úr
íslenskum vötnum.
Gístíheímilíð Mikligarður
Kírkjutorgi 3, Sauðárkróki,
Sími 453 6880
Útibú Búnaðarbankans á Sauðárkróki fékk nýjan svip á dögunum þegar nýbyggingin birtist
nýmáluð og er hún nú að mestu frágengin að utan. Gert er ráð fyrir að húsnæðið verði tekið í
notkun með haustinu.
Á þriðja hundrað manns á
alþýðusönghátíð á Sauðárkróki
Þrátt fyrir mikla veðurblíðu
sl. laugardag mættu 250
manns á „Alþýðusönghátíð”
sem afmælisnefnd Sauðár-
króks stóð fyrir í Bóknáms-
húsinu. Áhuginn á söng er
greinilega mikill en þarna
sungu Álftagerðisbræður,
Karlakór Dalvíkur, Svana
Bcrglind Karlsdóttir, Karla-
kórinn Heimir, Kirkjukór
Sauðárkróks, Þuríður Þor-
bergsdóttir og Jóhann Már
Jóhannsson.
Hátíðin hófst með því að
lagður var blómsveigur að leiði
Stefáns Islandi í Sauðárkróks-
María Gréta Ólafsdóttir, Halldóra Helgadóttir, Elsa Jóns-
dóttir og Guðný Axelsdóttir taka lagið.
kirkjugarði. Um kvöldið var
síðan dagskrá í Bifröst sem
nefndist „Listaskáld bæjarins”.
Kenndi þar ýmsra grasa, bæði
gamalla og nýrra. Það var Jón
Ormar Ormsson sem hafði
umsjón með dagskránni og
naut þar aðstoðar margra lista-
manna bæjarins.
Þuríður Þorbergsdóttir
syngur við undirleik Rögn-
valdar Valbergssonar.
Blönduóskírkja annaðkvöld
Jóna Fanney með einsöngstónleika
Nú í vor lauk einn af okkar ungu söngvur-
um, Jóna Fanney Svavarsdóttir frá Litladal í A,-
Hún. 8. stigi í söng, en síðustu tvö ár hefur hún
verið við nám í Söngskólanum í Reykjavík hjá
Elísabetu F. Eiríksdóttur söngkennara og Láru
S. Rafnsdóttur píanóleikara. Jóna Fanney, sem
er af miklu söngfólki komin, ætlar nú að halda
sína fyrstu einsöngstónleika í heimabyggð.
Verða þeir í Blönduóskirkju fimmtudagskvöld-
ið 3. júlí kl. 20,30. Miðaverð er kr. 1000 fyrir
fullorðna og frítt fyrir böm og eru allir vel-
komnir.
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf.
Slaifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box 4,
550 Sauðárkróki. Súnar: 453 5757 og 453 6703.
Myndsími 453 6703. Netfang: feykir @ krokur. is.
Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson. Fréttaritarar: Sesselja
Traustadóttir og Öm Þórarinsson.
Blaðstjórn: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guð-
brandsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður
Ágústsson og Stefán Ámason.
Áskriftarverð 160 krónur hvert tölublað ineð vsk.
Lausasöluverð: 180 krónur með vsk. Setning og
umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svart hl'.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og liéraðs-
fréttablaða.