Feykir


Feykir - 17.09.1997, Blaðsíða 5

Feykir - 17.09.1997, Blaðsíða 5
31/1997 FEYKIR 5 Ungur námsmaður úr Húna- þingi bjargar sér vel ÍKína Magnús Björnsson 28 ára Húnvetningur frá bænum Hólabaki í Vatnsdal hefur síðustu tvo vetur stundað nám í kínversku við háskóla í Peking. Nú er Magnús ný- byrjaður á þriggja ára mastersnámi í stjórnmála- fræði við annan háskóla í sömu borg. Samfara náminu hefur Magnús dundað sér við ýmis- legt. M.a. komið fram í sjón- varpsmyndum, kvikmyndum og auglýsingum. Stærsta hlut- verkið er í kung-fu kvikmynd sem verið er að vinna að í sam- starfi Kínveija og Taívana. Þar leikur hann evrópskan mafíósa sem á í höggi við kínverskan bardagamann. „Það er mikið af útlending- um í skólanum og þangað er oft leitað tíl að fá útlend andlit í kín- verskar bíómyndir. Ég komst í kynni við fólk sem var að leita að andlitum fyrir kvikmynda- gerðamenn”, segir Magnús um tílurð þess að að hann var feng- inn til að koma fram í þessum myndum. Kvikmyndaleikurinn hefur verið góð búbót íyrir Magnús meðfram náminu, sem reyndar hefúr verið styrkt af kínverskum og íslenskum stjómvöldum sem Magnús Björnsson frá Hólabaki. hlutí af stúdentaskiptum. Hann segist stundum hafa náð mánað- arlaunum kennara sinna á tveimur tíl þremur dögum. Hann segir ekki ólíklegt að hann haldi áffam að gefa kost á sér í myndir eða auglýsingar, meiri tími muni þó fara í námið en hingað tíl. „Þetta er búin að vera ótrú- lega skemmtilegur tími. Ég hefði alls ekki viljað missa af honum. Ég hef náð góðum tök- um á kínverskunni og er reiðu- búinn að heija annað nám. Stefnan er sett á stjómmálaffæði og eitthvað því tengdu, hitt er á- gætis hobbí. Á síðustu tveimur árum hefur maður fundið fyrir miklum breytingum í Kína. Landið hefur orðið fyrir sterk- um vestrænum áhrifum, því miður verð ég að segja”. Marka - Leifi Á uppvaxtarárum mínum á Sauðárkróki og lengur (1913- 1943) var off talað um Marka- Leifa, er hét fullu nafni Hjör- leifur Sigfússon og mun hafa verið einn þekktasti maður á Norðurlandi vestra. Viðumeffú sitt fékk hann fyrir kunnáttu sína á mörkum bænda. Sagt var að hann hafi þekkt mörk allra Skagfrrðinga og Húnvetn- inga og mörk margra í Ámes- sýslu og Borgarfjarðarsýslu. Hann var viðurkenndur mark- ffóðasti maður er sögur fara af. Marka-Leifi var með af- brigðum fjárglöggur maður og kom það sér vel fyrir bændur, en fyrir þá vann Marka-Leifi fyrst og fremst. Hann var fæddur 12. maí 1872 og em því 125 ár frá fæðingu hans. Ég kynntist Marka-Leifa nokkuð er hann kom erinda bænda á vinnustofu foður míns og ég tel hann merkan og trú- verðugan heiðursmann. Þess vegna rita ég þessar línur tíl að minna bændur á að þeir raun- vemlega standa í mikilli þakk- arskuld við Hjörleif Sigfússon Hjörleifur Sigfússon, Marka- Leifi. og þeir mega ekki gleyma hon- um. Þess vegna legg ég til að Búnaðarfélögin heiðri minn- ingu hans með því að reisa honum minnismerki, t.d. við Reynistaðarrétt. Bændur! Nú standa yfir göngur og réttir. Ræðið málið. Ég er viss um að þið takið þessu vel og hefjist handa. Með sérstakri kveðju til skagfirskra bænda. Franch Michelsen. Bifvélavirki óskast! Árvirkni ehf. Norðurlandsvegi 4, Blönduósi óskar eftir að ráða bifvélavirkja eða mann vanan viðgerðum á bílum og landbúnaðartækjum. Upplýsingar gefur Gestur í síma 452 4750. Sunnan féð sækir að girðingimum „Mitt starf felst í því að fara með varnargirðingunum á hverjum degi og reka fé í burtu sem sækir að girðing- unum. Það er einkum sunn- an að sem féð sækir á. Það eru kindur úr Biskupstung- um sem hafa verið að þvæl- ast hérna skammt frá Hvera- völlum í sumar”, sagði Sig- urður Öm Eyjólfsson vörður hjá Sauðfjárveikivörnum þegar tíðindamaður Feykis hitti hann við Hveravelli í lið- inni viku. Sigfús hefur í sumar annast vörslu girðingarinnar milli Hofsjökuls og Langjökuls sem er um 60 km löng. Við starfið hafði Sigfús nokkur hross og hund sér til aðstoðar og einnig gat hann farið á bíl hluta leiðar- innar meðfram girðingunni. Einnig sá Sigfús um að selja hestamönnum hey sem fara um Hveravelli og sagði hann að um þúsund hross hefðu farið þar um í sumar. Sigfús Öm er frá Blönduósi og er þetta fyrsta sumarið sem hann er í þessu starfi. Hann lét vel af dvölinni á fjöllunum í sumar þrátt fyrir að tíðin hafi verið mjög vætusöm. Hann byijaði 1. júlí skömmu áður en farið var að aka fé á afrétt og síðasti vinnudagurinn var 8. september. Þá vom gangna- menn úr Svínavatnshreppi væntanlegir til að smala Auð- kúluheiði og bjóst Sigfús við að taka þátt í smalamennskunni með þeim allt til byggða. Auglýsing í Feyki ber árangur Glæsivagninn á götuna Þorvaldur G. Óskarsson bifvélavirki og stórsöngvari frá Sleitustöðum var aldeilis ekki illa akandi þegar hann brá sér í eina kaupstaðafcrðina á Krókinn fyrir skömmu. Þorvaldur var þarna að færa til skoðunar Mercedes Bens árgerð 1953 sem hann hafði nýlokið að gera upp og endurbyggja fyrir Sigurjón Sæmundsson fyrrverandi bæjarstjóra og prentara á Siglu- firði. Það er ljósmyndara og tíðindamanni Feykis til efs að slíkur „antikvagn“ hafi birst á götum Sauðárkróks nú í sumar og þeir voru margir sem horfðu öfundaraugum til Þorvaldar þegar hann ók um bæinn.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.