Feykir


Feykir - 24.09.1997, Blaðsíða 1

Feykir - 24.09.1997, Blaðsíða 1
rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU1 SAUÐÁRKRÓKI Upplýsingamiðstöð ferðamála í Varmahlíð Gífurleg aukning gesta frá síðasta sumri Gífurleg aukning varð á fjölda gesta í upplýsingamiðstöð ferðamála í Varma- hlíð sl. sumar. Alls komu 10.278 manns og þar af voru 67% íslendingar, en frá því upplýsingamiðstöðin var opnuð árið 1991 hafa innlendir ferðamenn verið í minnihluta. Gestafjöldinn var þrefalt meiri í sumar en sumarið 1996, þá var fjöldi gesta 3.470, þar af 31 % fs- lendingar. En erlendum ferðamönnum fjölgaði líka á liðnu sumri, þeir voru nú 3.369 og slöguðu hátt upp í það þegar þeir voru flestir sumarið 1995, en þá voru þeir 3.487. Upplýsingamiðstöðin var í sumar starf- rækt í nýju og glæsilegu húsi og Halldóra Bjömsdóttir forstöðumaður segir að það hafi greinilega dregið að: „Þetta nýja hús virðist hafa skapað lukku því aðsókn er margföld svo og miklu fleiri íslendingar, sem e.t.v. má einnig skýra með að til okk- ar í upplýsingamiðstöðina var fleira að sækja en eingöngu upplýsingar, þar sem að nú er þar einnig til sölu og sýnis hand- verk “, segir Halldóra. Upplýsingamiðstöðin var fyrst opnuð 1991 þá í húsnæði KS Varmahlíð þar sem hún var til húsa fýrstu tvö árin. Síðan var hún í Shellskálanum þar til nú í sumar. Að- sóknin hefur verið upp og ofan þessi ár en áberandi langmest sl. sumar. Árið 1991 vom gestir 3.392,1992 fjölgaði í 3.841, og enn fjölgaði árið efdr. Þá vom gestir 4.886, gestum fækkaði síðan á árinu 1994 í 3.664, en ljölgaði síðan aftur á árinu 1995 og fór þá yfir 5.000 manns. Fundur um virkjunarmál á Sauðárkróki í gær Aðilar einhuga að vinna saman að Villinganesvirlqiin Virkjun Jökulsár í Skagafirði við Vill- inganes var viðfangsefni fundar á Sauð- árkróki í gær þar sem saman voru komnir fulltrúar Rafmagnsveitna ríkis- ins, Akrahrepps og Lýtingsstaðahrepps sem land eiga að fyrirhuguðum virkjun- arstað, héraðsnefndar Skagafjarðar, bæjarstjórnar Sauðárkróks og Kaupfé- lags Skagfirðinga. Niðurstaða fundarins var að aðilar eru einhuga um að vinna áfram í sameiningu að framgangi máls- ins. Hilmir Jóhannesson bæjarstjómarmað- ur á Sauðárkróki sagði að fundurinn hefði verið gagnlegur en menn gerðu sér grein íyrir því að þrátt fyrir einbeittan vilja allra aðila væri málið flókið og ýmislegt þyrfti að gerast áður en menn gætu farið að virkja. Það hefði t.d. greinilega komið fram í þehn útskýringum sem lögfræðing- ur Rafmagnsveitna rfkisins gerði á fundin- um. Aætlun um virkjun við Villinganes ger- ir ráð fyrir 32 MW virkjun. Samkvæmt lögum á Landsvirkjun virkjunarréttinn, en Rafmagnsveitur rikisins hafa sýnt virkjun- inni áhuga eins og reyndar fleiri virkjunar- kostum sem menn þar á bæ hafa til skoð- unar. □ Kristbjörg ÞH sem Dögun kaupir í stað Hafarnaríns sem verður seldur. Dögun kaupir stærra og öflugra skip Rækjuverksmiðjan Dögun á Sauð- árkróki hefur fest kaup á Krist- björgu ÞH-44 187 lesta skipi sem áður var í eigu útgerðarfélagsins Korra á Húsavík. Kristbjörgin er 5 metrum lengri og 40% stærri í rúmmetrum talið en Haförninn, sem verður nú settur á söluskrá. Kristbjörgin var afhent á Húsavík í fyrradag og var siglt þaðan til Akra- ness, þar sem hún fer í slipp. Kristbjörg var smíðuð í Noregi árið 1966 og síðan yfirbyggð 1986 auk fleiri endurbóta sem þá vom gerðar á skipinu. Til gamans má geta þess að hún á systurskip hér á landi sem heitir einmitt Agúst Guðmundsson, alnafni framkvæmdastjóra Dögunar. Agúst í Dögun segir að kaupin á Kristbjörgu hafi þá kosti að þama sé um mun öflugra skip að ræða en Haf- öminn. Hráefnisöflunin verði tryggari, þar sem unnt sé að sækja lengra og vetrarveður og sjóalög setji minni strik í reikninginn en áður. Haföminn verð- ur seldur kvótalaus og veiðiheimildir fluttar af honum yfir á Kristbjörgina sem keypt var án kvóta. Eldur og reykur í stigahúsi Mikill reykur varð af eldi í bama- vagni í fjölbýlishúsinu að Víðigrund 22 á Sauðárkróki á sunnudagsmorgun. Bamavagninn var í hjólageymslu á neðstu hæð og lagði reykinn upp stiga- ganginn. Flytja þurfti aldraða konu úr einni íbúðinni á sjúkrahús vegna snerts af reykeitrun. Aðra íbúa stigagangsins sakaði ekki. Slökkviliðið kom fljótt á vettvang og réð niðurlögðum eldsins á svip- stundu en lítið brann utan bamavagns- ins, en tjón er mikið í hjólgeymslunni vegna reyks, sót er á veggjum stiga- gangsins og talsverðan reyk lagði inn í tvær íbúðir hússins. Þetta var þriðji eldsvoðinn í fjöl- býlishúsi á Sauðárkrók á einum mán- uði og annað tilfellið þar sem að elds- upptök em rakin til fiktst bama með eldfæri. I þriðja tilfellinu kviknaði í út frá eldavél. G3 v* —Kjen^itt cN|DI— —k Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 o • ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA O • FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA ö) • BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA Æa bílaverkstæði simi : 453 5141 Sæmundargata lb 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140 ♦ Bílaviðgerðir & Hjólbarðaviðgerðir Réttingar ^Sprautun

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.