Feykir


Feykir - 24.09.1997, Blaðsíða 2

Feykir - 24.09.1997, Blaðsíða 2
2FEYKIR 32/1997 Mikið tap hiá FISK á síðasta ári En gert ráð fyrir hagnaði á þessu ári Rekstur Fiskiðjunnar Skag- firðings gekk verulega erfiðlega Stuðull Tölvubúuaður Borgarmýri 1, sími 453 6676 Viðgerðarþjónusta á sjónvörpum, myndbandstækjum, tölvum, prenturum og öðrum rafeindatækjum. PlayStation Verð kr. 16.900 Úrval af nýjum leikjum Nokia l6ll Frábær GSM sími 140 tíma rafhlaða Tilhoð kr. 24.900 á síðasta ári. Tap af reglulegri starfsemi var 337.560.981, en þegarreiknaðerinn 177,8 millj- óna hagnaður af sölu eigna og tæplega 66 milljóna verðfelling afurða, er tapið 262.271.880. Eigið fé FISK í árslok nam 608,7 milljónum og hafði lækkað um 247,1 milljón króna á árinu. Tapið er aðallega rakið til erfið- leika í landvinnslu auk þess sem árangur af veiðum í Smugunni varð mun minni en árið á undan. Á aðalfundi Fiskiðjunnar Skagfirðings sl. fimmtudag kom fram að útlit er lyrir mun betri afkomu á þessu ári og rekstraráætlun fyrir þetta kvóta- ár sem einnig er rekstrarár FISK, 1. sept.-31. ágúst, gerir ráð fyrir liðlega 60 milljóna hagnaði. Framtíðarsýn stjóm- enda FISK beinist m.a. að því að auka sjófrystíngu afurða og í því skyni er nú tíl athugunar að breyta Skagfirðingi í frystískip. Stjóm Fiskiðjunnar var end- urkjörin: Þórólfur Gíslason er formaður og aðrir í stjóm eru Stefán Guðmundsson, Stefán Gestsson, Knútur Aadnegaard og Siguijón Rafnsson. Litli og stóri Það er gríðarlegur stærðar- munur á traktorunum hans Áma bróður á Sölvabakka. Ferguson 1958, 30 ha er sá minni, en sá stærri Massey- Ferguson 1997,90 ha. Sannar- lega nýi og gamli tíminn, en sá gamli gengur eins og nýupp- trekkt klukka. Sig. Kr. Sameining hitavcitnanna á Sauðárkróki og í Varmahlið Tenging Skarðs- og Staðar- hrepps líklegri eftir en áður Páll Pálsson framkvæmdastjóri Hitaveitu Sauðárkróks segir að ennþá sé ekkert farið að skipuleggja framkvæmdir vegna stækkunar dreifikerfis hitaveitunnar, sem fyrirsjáanlegar em við stofnun Hitaveitu Skagafjarðar um næstu áramót, byggðasamlags um rekstur hitaveitu Sauðárkróks og Seyluhrepps. „Enda hafa samningarnir ekki verið undir- skrifaðir til fulls, þó samþykkt liggi fyrir í báðum sveitarstjórnum”, segir Páll. Aðspurður sagðist hann telja að hitaveita í Skarðshrepp og Staðarhrepp væri líklegri eftir Aðalfundur Fiskiðjunnar -Skagfírðings Stjórnin bretti upp ermar Ámi Guðmundsson íyrrverandi íram- kvæmdastjóri Skjaldar, og einn af stofn- endum Útgerðarfélags Skagfirðinga á sínum tíma, sagðist hreinlega vera „púnteraður” eftír að hafa séð tölumar um hina slæmu afkomu FISK á síðasta ári. Að sínu mati hefði stjórn sem legði fram slíka reikninga um tvennt að velja; annaðhvort að segja af sér eða bretta upp ermamar og reyna að rétta við rekstur fyrirtækisins. Það sýndust stjómarmenn ætla að gera og litist sér vel á það. Einnig kvaðst Ámi vera feginn því að hugmynd- ir ráðamanna FISK um að stækka Skag- firðing í frystiskip, væru ekki stærri en svo, að útlit væri fyrir að skipið kæmist inn í höfnina. - En í þessu sambandi má geta þess að Húsvíkingar keyptu á dög- unum skip sem ristir svo djúpt að dýpka verður höfnina þar svo það komist til heimahafnar. Könnun á Blönduósi íbúar Blönduóss vom ánægðastir með þær lagfæringar sem gerðar vom á tjaldsæði bæjarins en óánægðastir með kaup bæjarins á hlutafé í fólksflutninga- fyrirtækinu Halli Hilmarssyni ehf. Þetta var meðal þeirra mála sem spurt var um varðandi gjörðir bæjarstjómar Blönduóss á þessu kjörtímabili. Félagsvísindastofnun gerði í vor könnun að beiðni bæjarins meðal íbú- anna um mat þeirra á gæðum ýmissar þjónustu sem bærinn veitír og kostí bú- setu. Þá vom einnig lagðar fram nokkr- ar spumingar um einstök bæjarmál sem upp hefðu komið. Svæðisútvarpið skýrði frá niðurstöðum þessarar könnunar í fféttatíma sínum í gærkveldi, en vikið verður ffekar að þeim í Feyki á næstunni. sammna veitnanna og yrði síðan sameiningin samþykkt í þessum sveitarfélögum væri engin spuming um að dreifikerfi hitaveitunnar mundi ná um þær áður en langt um líður. Hvemig orka borholanna við Sauðárkrók og Varmahlíð verði nýtt, sagði Páll að þar yrðu hagkvæmnisathugan- ir látnar ráða ferðinni. Að sögn Sigurðar Haraldssonar oddvita Seyluhrepps hefur talsvert verið þrýst á með það að hitaveitan stækki dreifikerfi sitt. Grasköggla- verksmiðjan er að tengjast veitunni og sam- kvæmt samstarfssamningi veitnanna er for- gangsverkefni að bæimir í Vallhólma tengist hitaveitunni strax næsta vor. Þá hafa Akrahrepp- ingar verið að kanna hagkvæmni þess að tengj- ast hitaveitunni, og að sögn Sigurðar yrði það fýsilegur kostur að bæta jreiin við veituna eftír að lögnin er komin á Vallhólmabæina, en orkan úr nýju holunni er það mikil að talið er að sjálfrenn- andi vatn fáist á dijúgan hluta Akrahrepps, teng- ist hann veitunni. Að loknu Sauðárkróksralli Átján til tuttugu frændur og frænkur þessara ræfla lágu í valnum á milli Sölvabakka og Blöndubakka, þrátt fyrir aðvaranir, eftír að ökumenn rallýsins höfðu farið þar um. Sig. Kr. Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf. Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box 4, 550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703. Myndsími 453 6703. Netf'ang: feykir @ krokur. is. Ritstjórí: Þórhallur Ásmundsson. Fréttaritarar: Sesselja Traustadóttír og Öm Þómrinsson. Blaðsljóm: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guð- brandsson, Sæmundur Hennannsson, Sigurður Ágústsson og Stefán Ámason. Áskriftarverð f60 ki'ónur hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 180 krónur með vsk. Setning og umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svart hl'. Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs- fréttablaða.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.