Feykir


Feykir - 19.11.1997, Qupperneq 2

Feykir - 19.11.1997, Qupperneq 2
2FEYKIR 40/1997 Fleiri á móti en með í Akrahreppi „Við erum nokkrir sérvitr- ingar hérna sem vildum að hreppsbúum gæfist kostur á að kjósa um sameininguna. Hins vegar er þetta ekki það stór hóp- ur að ég get ekki séð annað en sameiningin hefði verið felld með nokkrum mun hefði verið Stuðull Tölvubúnaður Borgarmýri 1, sími 453 6676 Viðgerðarþj ónusta á sjónvörpum, myndbandstækjuni, tölvuni, prenturum ogöðrum rafeindatækjunL Tilboð á tölvuleikjum 10-70% afsláttur PC - PSX - MAC Ortek lyklaborð Win ‘95 samhæft PS/2 og AT tengi Armhvíla Ábrenndir íslenskir stafir Nett lögun Verð aðeins kn 2.990,- Ódýr Ijósritun Gerum tilboð í stærri verk kosið hér. Það virðist vera svo útbreitt að fólk sé á móti sam- einingu”, segir Jón Sigurðsson bóndi á Stóru-Ökrum III í Blönduhlíð. Nágrannar Blönd- hlíðinga í norðri, í Viðvíkur- sveitinni, samþykktu hins vegar sameininguna með mest afger- andi hætti í Skagafirði, 97% sögðu já. Jón á Ökrum á síður von á því að sameiningarmálin komi til með að setja svip sinn á kosn- ingamar í hreppnum að vori. Hreppsnefndin muni ekki verða látin gjalda þess þó hún hafi ákveðið upp á sitt eindæmi að taka ekki þátt í kosningum vegna sameiningar, en engin formleg eða óformleg athugun fór fram í hreppnum hvort fólk- ið vildi kjósa um sameiningu eða ekki. ,JÉg geri ráð fyrir því að fólk hér fylgist vel með því hvemig til tekst í nýju sameinuðu sveit- arfélagi og sjálfsagt verður ein- hver samanburður gerður á því. Ef þetta kemur vel út kemur ör- ugglega þrýstingur héðan um sameiningu, en tíminn leiðir þetta í ljós”, sagði Jón á Ökmm. □ Hundahreinsun Samkv. samþykkt um hundahald á Sauðárkróki ber hundaeigendum að láta hreinsa hunda sína árlega og sýna þá kvittun fyrir greiðslu á hundaskatti. Athugið: Skrá skal alla hunda eldri en 3ja mánaða. Hreinsun hunda 1997 skal lokið íyrir 14. desember nk. Er eigendum hunda bent á að panta tíma hjá héraðsdýralækni í síma 453 5259 kl. 8-10. Vegna skráðra og óskráðra hunda, sem ekki koma til hreinsunar, verða gerðar viðeigandi ráðstafanir samkvæmt samþykkt þar um. Bæjarstjóri. Kosningar Kosningar um sameiningu Staðarhrepps, Fremri-Torfustaðahrepps, Ytri-Torfustaðahrepps, Hvammstangahrepps, Kirkjuhvammshrepps, Þverárhrepps og Þorkelshólshrepps í Vestur - Húnavatnssýslu Kosið verður um sameiningu allra sveitarfélaga í Vestur- Húnavatnssýslu laugardaginn 29. nóvember 1997. A kjörskrá skulu þeir vera sem eru með lögheimili samkvæmt þjóðskrá í viðkomandi sveitarfélagi í Vestur - Húnavatnssýslu, fimm vikum fyrir kjördag sbr.19. gr.l. nr.8/1986. Kjörskrár munu liggja frammi á skrifstofum hreppanna eða hjá oddvitum, nema annað verði auglýst, eigi síðar en 1 8 nóvember 1997 Vegna þessara kosninga mun utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefjast föstudaginn 31. október 1997 og Ijúka 29. nóvember 1997. Hægt er að kjósa utan kjörfundar á skrifstofum sýslumanna og umboðsmanna þeirra um land allt. Þeir sem samþykkja tillöguna skrifa „Já" á atkvæðaseðilinn, en þeir sem ekki samþykkja tillöguna skrifi „Nei" á atkvæðaseðilinn. Framkvæmdanefnd um sameiningu sveitarfélaga í Vestur-Húnavatnssýslu. Sameiningar- kosningarí V.-Hún. Kynningar- fiindir vel sóttir „Urslitin þama hjá ykkur gefa okkur byr undir báða vængi. Það er jákvætt að þetta hafi runnið svona beint í gegn. Við vorum með hörkufund héma í gærkveldi. Þetta var síð- asti fundurinn, sameiginlegur fundur fyrir allt svæðið, líflegar umræður og hlutimir á jákvæðu nótunum”, segir Þorvaldur Böðvarsson formaður fram- kvæmdanefndar um samein- ingu sveitaifélaga í Vestur- Húnavatnssýslu. Um 230 manns mættu á fundinn á Hvammstanga á mánudagskvöldið. Hann fór frekar rólega af stað og fólk dá- lítið seint að taka við sér, en síð- an fór einn og einn að tínast í pontu og fundurinn stóð í fjóra tíma. Kynningarfúndimir í V.-Hún vom þokkalega sóttir. Aðspurð- ur sagði Þorvaldur Böðvarsson að þeir hefðu verið fremur fáir sem töluðu gegn sameiningu á fundunum, en einhver þó á hveijum fúndi. Á fúndinn í Ytri- Torfustaðahreppi mættu t.d. fjórir af fimm hreppsnefndar- mönnum og töluðu allir á móti sameiningu. „Það var náttúrlega vitað að andstaðan gegn sameiningu yrði þar mest, en ég tel greini- legt að þar hafa hlutimir eitt- hvað verið að breytast bara síð- ustu tvær vikumar. Menn em já- kvæðari þar gangvart samein- ingu en áður”, segir Þorvaldur. Leiðrétting I grein Rúnars Kristjáns- sonar „Undir Borginni” í næstsíðasta blaði féll niður stafur í fyrstu línu limrunnar, sem breytti talsvert merkingu hennar. Rétt er hún svona: ,,Að sjálfstæðum sveitum þeir kreppa”. Er beðist velvirð- ingar á þessum mistökum. Járningar! Tek að mér járningar. Vönduð og góð vinna. Sann- gjarnt verð. Upplýsingar í síma 453 6764 hs. eða 453 5220 vs. Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf. Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðítrkróki. Póstfang: Box 4. 550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703. Myndsími 453 6703. Netfang: feykir @ krokur. is. Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson. Fréttmitarar: Sesselja Traustadóttir og Örn Þórarinsson. Blaðstjóm: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guð- brandsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður Ágústsson og Stefán Ámason. Áskriftarverð 170 krónur hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svait hf. Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs- fréttablaða.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.