Feykir


Feykir - 19.11.1997, Page 3

Feykir - 19.11.1997, Page 3
40/1997 FEYKIR 3 Af götunni Fríríkið Akrahreppur Á sama tíma og margir Skagfirðingar biðu þess hvað kæmi upp úr kjörkössunum í sameiningarkosningunum slógu Akrahreppingar upp hjónaballi í félagsheimili sínu Héðinsminni. Sumir vildu reyndar kalla þetta lýðveldishátíð. Þegar úrslitin í kosningunum spurðust og gestir komu á dansleikinn var að sjálf- sögðu tekið á móti þeim með virktum og þeir boðnir vel- komnir í „frírikið Akrahrepp”. Hentu menn gaman að þessari niðurstöðu mála og skemmtu sér vel á ballinu. Nýjar nafngiftir Og eins og við var að búast voru gárungamir ekki seinir á sér að gefa þessum verðandi sveitarfélögunum í Skagafirði nafn. Sagt er að Blöndhlíðingar hafi ekkert verið of hrifnir af því að nýja sveitarfélagið ætlaði að hrifsa til sín nafnið Skagafjörð- ur. Sauðabyggð, væri besta nafnið á nýja hreppinn, fyrst að menn hefðu verið svona vitlaus- ir að samþykkja sameininguna. Á hinn bóginn þykir lítið til þessarar óþægðar Blöndhlíðinga koma, að þeir skuli ekki hafa viljað vera með. Og sagt er að búið sé að skýra sveitina upp á nýtt. Hún heiti nú Gaulveijabær. Tveir auðir í Lýdó Þegar úrslitin voru tilkynnt í Lýtingsstaðahreppi og í ljós kom að tveir seðlar voru auðir og ógildir, urðu forsvarsmenn kosninganna því mjög fegnir að þessir tveir seðlar voru auðir en ekki úrskurðaðir ógildir. Það hefði nefnilega getað kostað þref ef sú hefði verið raunin, þar sem svo mjótt var á munum. Sameiningaralda Mikil sameiningaralda virð- ist gengin yfir. Stutt er síðan sameining var samþykkt á Dal- vík, í Hrísey og á Árskógsströnd og þá hafði skömmu áður verið samþykkt sameining Egilsstaða, Valla og Skriðdals ásamt ein- hverjum fleiri sveitum fyrir aust- an. Þá var um síðustu helgi einnig samþykkt að sameina Norðfjörð, Eskiljörð og Reyðar- ijörð, auk stóru sameiningarinn- ar í Skagafirði. Nú eru einungis nokkrir dagar þar til gengið verður til kosningar um samein- ingu allra hreppa í V.-Hún. Menn spyija sig hvort þessi greinilega sameiningaralda hafi þareinhver áhrif. Það styttist til jóla! Ef þú lesendi góður býrð yfir einhverju góðu efni sem ætti heima í jólablaði Feykis, þá er það vel þegið. Ritstjóri. Bæjarstjórn Blönduóss Villað þróunar- sviðið verðiá Króknum Bæjarstjóm Blönduóss fagnar þeirri ákvörðun stjóm- ar Byggðastofnunar að þróun- arsvið stofnunarinnar verði staðsett á Sauðárkróki, og tel- ur þessa ákvörðun stjómar- innar mikilvægt skref í þeirri fyrirsjáanlegu þróun að þjón- usta opinberra stofnana verði í auknum mæli dreift um landið. Með þeim hætti verði tryggt að sem flestir lands- menn geti átt greiðan aðgang að þjónustu hins opinbera á jafnréttisgrunni. Á ályktun sem gerð var á fundi bæjarráðs Blönduóss nýlega segir að ráðið vilji nota þetta tilefni til að skora á rík- isstjómina að taka nú af skar- ið og tryggja að ríkisstofnan- ir sem nú em staðsettar á höf- uðborgarsvæðinu, og telja megi eðliligt og hagkvæmt að flytja út á land, verði fundinn nýr staður. Bæjarráð Blönduóss hvet- ur sveitarstjómir á lands- byggðinni að þrýsta á um að- gerðir í þessum málum og að þau sýni hvert öðm samstöðu og skilning þegar kemur að staðarvali fyrir opinbera þjón- ustu. Valur Valsson bankatjóri íslandsbanka, Valgeir Þorvaldsson framkvæmdastjóri Vesturfara- setursins og Ragnar Önundarson framkvæmdastjóri bankans, virða fyrir sér muni í setrinu. Menningarsjóður íslandsbanka styrkir Vesturfarasetrið „Framlag ykkar til varð- veislu menningarverðmæta er athyglisvert og því fannst okkur í stjórn Menningar- sjóðs Islandsbanka þessi stofnun fyllilega verðskulda fjárstuðning frá sjóðnum”, sagði Valur Valsson banka- stjóri Islandsbanka þegar hann afbenti Snorra Þor- finnssyni ehf. eina milljón króna styrk í síðustu viku. Styrkurinn var afhentur í kaffisamsæti sem haldið var í Vesturfarasetrinu á Hofsósi. Þar vom mættir frá Islandsbanka auk Vals, Ragnar Önundarson framkvæmdastjóri bankans og útibússtjóramir Guðjón Stein- dórsson og Sigurður Hafliða- son. Frá Snorra Þorfinnssyni vom Valgeir Þorvaldsson fram- kvæmdastjóri og Leifúr Agnars- son stjómarformaður, auk þess nokkrir gestir. Valur gerði í stuttu máli grein fyrir starfsemi menningarsjóðs bankans sem hann sagði að hefði síðustu ár stutt með styrk- veitingum ýmsa starfsemi í landinu, einkum þó á sviði menningar og lista. Ekki tíðkað- ist að sótt væri um framlög úr sjóðnum heldur væm þau veitt að fmmkvæði sjóðsstjómar. Valur gat þess að þetta framtak á Hofsósi væri einmitt af þeim toga sem sjóðurinn teldi þess virði að styðja við og óskaði hann að þessi fjárhæð yrði til eflingar starfsemi Vesturfaraset- ursins. Valgeir Þorvaldsson þakkaði þessa höfðinglegu gjöf og sagði að vissulega kænii hún fyrirtæk- inu vel. Hann rakti við þetta tækifæri nokkuð starfsemina til þessa og sagði að oft hefði íjár- hagssaðan verið þröng á upp- byggingartímanum en vonandi væm nú mestu erfiðleikamir að baki. Valgeir gat þess að útlit væri fyrir að gestir setursins á þessu ári yrðu um 10 þúsund talsins. Talsvert er um fyrir- spumir frá fólki í Kanada og Bandaríkjunum varðandi ætt- ingja hér á landi sem það vill gjaman komast í samband við og er reynt að veita aðstoð við slíkt eftir því sem tök em á. ■ KS-bókin er ijieð 5,50% vextl; bundííTl ’i!" JlWftgTFrötrYggð Samvinnubökin er með lausri bindingii, nafnvextir ^,95%, , ársvöxtun síðasta ár ö,()4% ^ -T Innlán

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.