Feykir


Feykir - 19.11.1997, Side 8

Feykir - 19.11.1997, Side 8
19. nóvember 1997,40. tölublað, 17. árgangur. Sterkur auglýsingamiðill I — — - sTTMnn þjónustar þig allann sólahringinn! Landsbanki íslands í forystu tll framtíðar Útibúlð á Sauðárkrókl - S: 453 5353 Það er líf og fjör í ævintýrinu Trítíll sem verður frumsýnt í Bifröst á föstudagkvöldið. Frumsamið ævintýri með söngvum frumsýnt í Bifröst Undanfarið hafa staðið yfir æfingar hjá Leikfé- lagi Sauðárkróks á ævintýrinu Trítill sem er eftir hjónin og gleðigjafana Hilmi Jóhannesson og Huldu Jónsdóttir við tónlist eftir son þeirra Eirík. Nú er komið að frumsýningu er verður í Bifföst nk. föstudagskvöld kl. 20. Ingunn Ásdísardóttir leikstýrir Trítli. Leikendur eru rúmlega 30 talsins, flestir ungir að árum og að stíga sín fyrstu spor á leiksviði. Stjómandi 7 manna hljómsveitar er Rögnvaldur Valbergsson. Trítill er ævintýri með söngvum fyrir alla fjöl- skylduna. Það voru ærsl og læti í Bifröst þegar blaðamaður Feykis leit þar inn í fyrrakvöld. Greini- legt er að hér er skemmtileg sýning í uppsiglingu. Auk frumsýningar verður sýnt á laugardag og sunnudag um helgina. Karlakór Bólstaðahliðarhrepps Nýi geisladiskurinn kominn Karlakór Bólstaðahlíðarhrepps sendi nýlega frá sér geisladisk og snældu með 20 lögum. Norð- lenskar nætur heitir diskurinn og F L I S A R EFNI T I L FLÍSA Aðalsteinn J. Maríusson Víðihlíð 35. s: 453 5591 Fars: 853 0391 kl. 17-19 eöa samkomulagi r-' ' Umboð fyrir V, Traustar Flísar Múrvið- gerðarefni - flotgólf o.fl. er þetta önnur hljóðritunin sem kemur frá kómum, en platan „Tónar í tómstundum” kom út 1985. Karlakór Bólstaðahlíðar- hrepps var stofnaður árið 1925. Fyrstu áratugina var kórinn nær eingöngu skipaður bændum úr hreppnum, en við batnandi sam- göngur bættust Svínvetningar og fleiri nágrannar í hópinn. Það er Sveinn Ámason á Víðimel sem hefur stjómað kómum síðustu árin og undir- leikari erTómas Higgerson. Ein- söngvarar kórsins em Sigfús Guðmundsson og Svavar Jó- hannsson. Á Norðlenskum nóttum syngja einnig einsöng Jóna Fanney dóttir Svavars, og er þetta í fyrsta sinn sem hún syng- ur á hljómplötu, og Jóhann Már Jóhannsson, sem er sem kunnugt er Konnari eins og þau feðginin. Margt kunnra og skemmti- lega laga er á þessum nýja geisla- diski. Auk titillagsins sem þeir Sigfús og Svavar syngja má nefna: Hvert liggja mín spor, Sunnudagur selstúlkunnar sem Jóna Fanney syngur, Hóladans sem Jóhann Már syngur, Osísis og Osíris úr Töfraflautunni sem Sigurður Ingvi Bjömsson syngur, Sprettur, Nótt, Kveðja farmanns- ins, Blökkustúlkan (Mandalei) ,íslandslag og Til vorsins, lag Þorvaldar G. Oskarssonar, þar sem þeir syngja þrísöng Brynj- ólfur Friðriksson, Halldór Mar- íusson og Þorleifur Ingvarsson. Þá syngur Sigfús Guðmundsson lagið „I öræfadal” sem kórinn fékk í afmælisgjöf frá höfundun- um Eiríki Jónssyni og Sigurði Hansen. □ Hlvsiávareldið Máki Mildalaxstöðin þykir í góðu ásigkomulagi Tap á rekstri hlýsjávareldisins Máka nam 3,5 milljónum á síð- asta ári og er það litlu hærri upphæð en vaxtakostnaður fyrirtækLsins. Það ár sem senn er liðið er fyrsta framleiðsluár- ið hjá Máka. Tilraunasending- ar hafa farið á markað frá miðju sumri og þessa dagana er sala á mörkuðum að fara í gang af fullum krafti. Forráða- menn Máka eru bjartsýnir á gott skilaverð fyrir framleiðsl- una sem þykir mjög góð. Frá upphafi hafa ýmsir byrjun- arörðugleikar komið upp í barraeldinu, en líklegt er talið að þeir hafi nú verið yflrstaðnir og tæknilega séu allir mögu- leikar til að framleiða hágæða vöru með góðum ábata. Skortur á fjármagni hefúr hins vegar háð starfsemi Máka og á að- alfundinum var samþykkt heimild til stjómar um að bjóða til sölu nýtt hlutafé fyrir 25 milljónir króna. Þá var eitt af meginefnum aðalfúndarins athugun á hlýsjávar- eldi í Miklalaxstöðinni í Fljótum á vegum Máka. Fram kom á fund- inum að algjör forsenda þess að eldið verði hagkvæmt við Mikla- vatn, sé að borholan gefi í framtíð- inni þá 17 sekúntulítra af heitu vatni sem hún gefur í dag. Það þyrfti að rannsaka betur og hefur Byggðastofnun, eiganda stöðvar- innar, verið kynnt sú staða máls- ins. Aðalfundurinn veitti stjóm Máka heimild til að vinna að Mildalaxmálinu áffam, enda yrði kallaður saman hluthafafundur ef ákveðið yrði að ráðast í verkefnið. Guðmundur Öm Ingólfsson ffamkvæmdastjóri Máka segir að margt bendi til þess að Miklalax- dæmið sé mjög álitlegt, og joeim áædunum sem þar liggja fyrir hafi verið tekið sem umræðugmnd- velli. Haraldur J. Haraldsson einn stjómarmanna, betur þekktur sem Haraldur í Andra, sagði stöðina líta mjög vel út og hann hafi orð- ið undrandi að sjá þessi mannvirki og það væri mjög spennandi að geta nýtt þau. Haraldur sagði ljóst að ef ráðist yrði í eldi á þessum stað, væri um gríðarlegt stökk að ræða í barraeldinu. Eldið við Freyjugötuna sé í ffemur smáum stfl, en yrði komið á verksmiðju- gmndvöll í Miklalaxstöðinni. Áætlanir gera ráð fyrir að það muni kosta 180 milljónir að breyta seiðaeldisstöðinni og byggja yfir helming matfiskeldisins og 350 milljónir að byggja yfir öll eldiskör við Miklavatn. Áárinu 1996vomþrír starfs- menn í fullu starfi hjá Máka og stöðugildi í árslok vom 4. Launa- greiðslur námu 6,2 milljónum. Fjárfestingar í tækjum, búnaði og húsnæði vom upp á tæpar 20 milljónir á árinu. Hlutafé félags- ins var í bytjun árs 1996 32,3 milljónir og skiptist á 82 hluthafa. Á árinu var hlutafé aukið um 8,2 milljónir og nam í árslok 40,4 milljónum. Fjöldi hluthafa var þá orðinn 91 og á einn þeirra, Hita- veita Sauðárkróks, 22,9% hlut í félaginu og er það eini hluthafínn sem á yfir 10% eignarhlut í félag- Samkeppni tengt átaki Eitt af því sem bryddað er upp á í tilefni umferðarátaks á Sauðárkróki, er samkeppni í gerð veggspjalda um umferðina í bænum sem efnt er til í öllum bekkjum gmnnskólans. Keppn- in stendur út þennan mánuð og verkin verða síðan til sýnis í Safnahúsinu föstudaginn 5. og laugardaginn 6. desember. Á laugardeginum 6. des. kl. 14 verður tilkynnt val á bestu vegg- spjöldum nemenda Bamaskól- ans og Gagnfræðaskólans. Gæðaframköllun GÆÐAFRAMKOLLUN BQKABÚÐ BBmJARS

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.