Feykir


Feykir - 26.11.1997, Side 4

Feykir - 26.11.1997, Side 4
4 FEYKIR 41/1997 Sendibréf frá Brasilíu María ásamt félögum sínum á baðströndinni. María Hjaltadóttir er 18 ára Sauðkrækingur sem gerðist skiptinemi á vegum AFS- samtakanna s.l. sumar og dvelur nú í Brasilíu. Hún hef- ur fengið sendan Feyki til að geta fylgst betur með heima í Skagafirði og sendi nú á dög- unum dálítinn pistil um lífiö sunnan við miðbaug. Mig langaði að gerast skiptinemi á fjarlægu landi, læra nýtt tungumál og kynnast menningu ókunnrar þjóðar og ég gat látið drauminn rætast. Uppáhaldslandið mitt í bam- æsku varð fyrir valinu, Brasilía. Þann 23. júlí s.l. héldu 8 ung- menni frá íslandi sem árs- skiptinemar til Brasilíu og var ég ein þeirra. Við urðum sam- ferða alla leið til stærstu borgar Brasilíu, Sao Paulo, með milli- lendingu í New York. I Sao Paulo skildust leiðir og hver skiptinemi hélt til síns dvalar- staðar á vit nýrra og spennandi ævintýra. Ég lenti á norðausturströnd Brasilíu stutt sunnan við mið- baug í fallegri borg, sem heitir Natal. Það þýðir jól á Portú- gölsku. Þar fékk ég heimili hjá góðri og efnaðri fjölskyldu. Na- tal er ferðamannaborg við sjó- inn, þekkt fyrir einstaklega gott loftslag, náttúrufegurð og falleg- ar sandstrendur. Ibúafjöldi er um 900 þúsund og eykst talsvert í desember og janúarmánuði þegar ferðamannatíminn stend- ur sem hæst. í Natalborg er hit- inn um 25-30 stig upp á hvem dag, en sem betur fer alltaf haf- gola og hún er mikið hlýrri en á Króknum. Sumarið er ffá októ- ber og ffam í maí. Ekki er mik- ill munur á hitastigi sumars og vetur, helst að meira rigni á vet- uma. Loftmengun er furðulítil og ekki mikið um iðnaðarverk- smiðjur. Landslagið er að mestu flatt og engin fjöll eða firðir í ná- lægð. Við ströndina er gróður- inn grænn og fallegur og pálma- tré víða. Avextir, maís og sykur em helst ræktaðir í sveitunum, að ógleymdu kaffinu, en annars María H jaltadóttir. er norðausturhluti Brasilíu erfið- ur til ræktunar vegna hita og þurrka. Hér rignir sjaldan og gróður skrælnar. Það er erfitt að vera bóndi hér eins og á íslandi og margir flýja sveitimar í leit að betra h'fi í borgunum. Yfirleitt byija skólamir í ágústbyrjun og standa til nóv- emberloka. Þá tekur við sumar- fri og skólinn hefst aftur í byrj- un febrúar og er til júnfioka. Flestir Brasilíumenn em kaþ- ólskrar trúar og ég geng í fjöl- mennan, kaþólskan einkaskóla. Nemendur em skyldugir að klæðast skólabúningi og sækja morgunmessur, sem haldnar em nokkmm sinnum í kapellu skól- ans. Það skiptir foreldra miklu að senda bömin sín í einkaskóla. Kennararríkisskólannaem minna menntaðir og fá lægri laun. Kennslan er samkvæmt því. Brasilía er gríðarlega stór, 80 sinnum stærri en ísland. Segja má að hvert ríki Brasilíu hafi sína sérstöðu og menningu. Ég hef ekki gert mér grein fyrir hver geysilegar fjarlægðir skilja á milli staða hér. Hlutfallslega hafa fáir íbúar Norður-Brasilíu heimsótt Rió de Janero eða Sao Paulo. Það gera vegalengdimar og kostnaðurinn. Þetta er dálítið annað en í Skagafirðinum að skreppa til Reykjavíkur. Brasilía er land mikilla and- stæðna. Hér er fólk, sem dettur í hug að skreppa til Sviss að kaupa skó, svo aðrir sem lepja dauðann úr skel. Fátækt og fólksfjöldi er viðurkennt vanda- mál í Brasilíu og engin undan- tekning á því þar sem ég bý. Það er algeng sjón að sjá heilu fá- tækrahverfin og betlíira á hveiju strái. Böm allt niður í 3-4 ára þekkja ekkert annað en betla eða selja og hafa þetta að lifi- brauði. Það er sama hvort verið er á fótboltaleik, beðið í bfi í umferðinni, í almenningsvagni eða á veitingastöðum. Alls stað- ar er verið að betla peninga. Ég fór fyrir stuttu með vinkonu minni á pizzustað og við feng- um engan frið að borða fyrir ágangi ungs drengs að selja dag- blöð. A endanum sagði hann: „Gefðu mér að borða, ég bið þig. Ég gaf honum síðustu pizzu- sneiðina. I þorpunum hangir fólk fyrir utan hrörleg húsin sín allan daginn í iðjuleysi og steikjandi hita í öllu atvinnuleysinu. Brasilíumenn em almennt dökkir yfirlitum og heldur lág- vaxnari en við Islendingar. I Norður- og Norðaustur-Brasilíu em svertingjar fjölmennari. I Suður-Brasilíu er meira um hvítt fólk af erlendum uppmna og þar svipar menningunni meira til þeinar evrópsku. Bras- ilíumenn em vingjamlegir, opn- ir og almennt ekki feimnir, mik- ið fýrir líkamlegar snertingar og alltaf að faðmast og kyssast. Þegar ég t.d. hitti einhveija manneskju í fyrsta sinn er það talin almenn kurteisi að heils með kossi á sínhvora kinnina. Foreldrar í miðstéttum vinna yfirleitt mikið og hafa lítinn tíma til að sinna heimilisstörf- um. Flest brasilísk heimili hafa vinnukonur sem elda, þvo og þrífa, yfirleitt blökkukonur, sem er ódýrt vinnuafl. Ég bjó mig út með talsvert af myndum og o.fl. efni um ísland og hef líka stundum þurft að kynna landið mitt. Fólk er áhugasamt um ísland. Ég hef fengið að heyra margar spum- ingar eins og t.d. í hvaða heims- álfu landið sé. Em bfiar eða ávextir þama? Búið þið í hús- um? Fyrirflestumeríslandeitt- hvað óþekkt og spennandi, en fáir hafa heyrt landsins getið. Fólk gretúr sig bara þegar ég læt það heyra íslensku eða les upp úr Njálu. Ibúar Brasilíu tala Portú- gölsku, en það er mállýskumun- ur frá því sem er í gamla land- inu. Eftir rúmlega þriggja mán- aða dvöl í Brasilíu er ég alveg farin að skilja og tala tungumál- ið, nota almenningsvagna ein og tala við innfædda í síma. Því fljótari sem við skiptinemamir emm að læra málið, því fýrr verðum við sjálfbjarga á ókunn- um stöðum og eigum auðveld- ara með að bregðast við óvænt- um atburðum. Mér finnst Bras- ilíumenn tala við mig núna eins og ég sé innfædd. Það reynir stundum á hugann að fylgja hraðanum og ég þarf oft að biðja þá um að tala hægar. „Fala devagar, por favor.” Ég man varla eftir að hafa fundið neitt sameiginlegt með Islandi og Brasilíu. Það er sama hvort talað er um fólk, landslag, veðráttu, tungumál, menningu, mat eða efnahag. Allt er öðm- vísi en heima á Islandi. Þess vegna er þetta mikið ævintýri og skemmtilegt og lífsreynsla sem aldrei gleymist. En hér em ýms- ir hlutir sem maður verður að sætta sig við að mega ekki. T.d. em hér miklu fleiri glæpamenn en heima og hættulegt að vera ein(n) úti að næturlagi, sérstak- lega fyrir stelpur. I Natalborg er þó óhætt að vera með veski og bera skaitgripi, en stórvarasamt í stærri borgum eins og Sao Paulo eða Rio de Janero. Nú fer að líða að jólum og hásumar í nánd. Það verður skrýtin tilfinning að eyða jólum í 30 stiga hita og sól, sjá engan snjó, ekki einu sinni rigningu. Það er ótrúlegt hvað hugur- inn þroskast mikið og nýtt við- horf kemur á marga hluti eftir aðeins þriggja mánaða dvöl í fjarlægu landi. Við verðum að búa í viðkomandi landi til að öðlast skilning á hvers vegna aðstæðumar em svona og svona og þýðingarlaust að vera alltaf með samanburð við ísland. Hér em andstæðumar svo miklar. Að læra nýtt tungumál og fá dýpri skilning á menningu ann- arrar þjóðar tekur lengri tíma en nokkrar vikur eða mánuði. Það er allt öðmvísi að vera ferða- maður en íbúi. Ferðamaðurinn kynnist aðeins glansmyndinni, en það er svo margt undir yfir- borðinu, bæði kostir og gallar, gott og vont. En þetta ár verður mér sérstakt og lærdómsríkt og svo frábmgðið öllum öðmm sem ég hef lifað og mun aldrei gleymast. Ég sendi öllum vinum og kunningjum mínar bestu kveðj- ur heima og í Fjölbrautaskólan- um á Króknum. Húni II í rómantískar siglingar Húni II eitt þekktasta skip Húnvetninga, sem Björn Pálsson á Löngmýri gerði eitt sinn út frá Skagaströnd, en fór síðan á flakk og var t.d. um tíma gerður út frá Horna- firði, hefur enn á ný fengið nýja heimahöfn, en það er Fjörukráin í Hafnarfirði. Þorvald- ur Skaftason bjargaði þessum bát undan bál- inu fyrir nokkrum árum og gerði algjörar endurbætur á honum. Hann gerir nú bátinn út til rómantískra siglinga frá Fjörukránni í samvinnu við Jóhannes Bjamason veitinga- mann. Fyrsta veislan í þessari útgerð Húna II var vel heppnuð. Fyrir gestina var spiluð tónlist á harmonikku og þeir sem vildu komast í kyrrðina og njóta útsýnisins gátu farið upp á þilfar á milli rétta. Borgarljósin vom falleg í húminu og hafgolan og ómur af tónlistinni að neðan gáfu rómantíska tilfinn- ingu, þannig að verstu hörkutól milduðust, samkvæmt lýsingu blaðamanns Morgun- Þorvaldur Skaftason sér sjálfur fyrir harm- onikkuleiknum um borð. blaðsins. Þegar á land var komið biðu vikingar á bryggjunni, brugðu blysum á loft og bleika lýstu grund. A Fjörukránni hélt veislan áfram og hver rétturinn á fætur öðrum var framreiddur.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.