Feykir - 26.11.1997, Side 8
26. nóvember 1997,41. tölublað, 17. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
i .J
Lilli og mýsnar fimm taka lagið og gæða sér á góðgæti frá Hérastubb bakara.
Dýrin í Hálsaskógi á svið
hjá Blönduósingum
Á laugardaginn kemur, þann
29. nóvember, frumsýnir Leikfé-
lag Blönduóss hið sígilda og sí-
vinsæla leikrit Torbjöms Egners
um Dýrin í Hálsaskógi. Þar
koma við sögu hinir frábæm
fjandvinir Lilli klifunnús og
Mikki refur auk allra hinna dýr-
anna. Mikið gengur á áður en öll
dýrin sættast á að vera vinir og
hætta að éta hvert annað. En þá
tekurekki betra við því maðurinn
og konan í bænum ræna Bangsa
litla þegar hann er að leika sér úti
í skógi við íkomabörnin og það
fréttist að þau ætli að selja hann
í fjölleikahús og fá mikla peninga
fyrir. Þá taka dýrin til sinna ráða.
Þetta er viðamikil sýning, því
F L I S A R
T I L
FLÍSA
AOalsteinn J. Maríusson
Víðihlíð 35.
s: 453 5591
Fars: 853 0391
Opiðkl. 17-19 eða
'ttir samkomulagi
Umboð fynr
Traustar Flísar
Tr. Múrviö-
v / gerðarefni
y ' - flotgólf o.fl.
28 leikarar taka þátt í henni, auk
6 ntanna hljómsveitar. Helming-
ur þátttakenda stundar nám við
Gmnnskóla Blönduóss og
nokkrir við Tónlistarskólann á
staðnum. Það em feðginin Jón
Ingi Einarsson og Lára Kristín
Jónsdóttir sem fara með hlutverk
Mikka og Lilla. í hlutverki Héra-
stubbs bakara er gestaleikarinn
Steindór Haraldsson frá Leik-
klúbbi Skagastrandar. Æfingar
hafa staðið yfir frá því í septern-
ber bæði í leikhúsinu og í tónlist-
arskólanum, en nú er Hálsaskóg-
ur sprottinn upp á sviðinu og um-
hverfið allt orðið hið ævintýra-
legasta í útfærslu Ingjalds Kára-
sonar. Unnur Kristjánsdóttir
hannaði búninga iyrir sýninguna.
Kári Gíslason er ljósahönnuður.
Tónlistarstjóm annast Skarphéð-
inn Einarsson. Leikstjóri er Sig-
rún Valbergsdóttir.
Olíuhreinsunarstöð
við Skagafjörð?
Á miðstjómarfundi Framsóknarflokksins, sem haldinn var í
Reykjavík um síðustu helgi, kynnti Finnur Ingólfsson iðnaðarráð-
herra hugmyndir og áform um uppbyggingu orku- og iðjuvera í
landinu. í máli iðnaðarráðherra kom fram að talið er álitlegt að
setja af stað athuganir á möguleikum þess að reisa iðjuver við inn-
anverðan Skagaíjörð, en aðstæður þar virðast á margan hátt góð-
ar. í þessu sambandi er helst horft til þess að þar rísi olíuhreinsun-
arstöð sem veita mundi urn 200 manns atvinnu.
Stefán Guðmundsson alþingismaður greindi Feyki frá þessum
fregnum og sagði að þriðjudaginn 2. desember kl. 20,30 yrði al-
mennur fundur á Kaffi Krók á Sauðárkróki þar sem Finnur Ingólfs-
son iðnaðarráðherra mun m.a. kynna þessar hugmyndir.
„Fundurinn er að sjálfsögðu öllum opinn og verður sjálfsagt
mörgum forvitnilegur, enda er hér án efa hreyft einu allra stærsta
máli er varðar atvinnuuppbyggingu í Skagafirði”, sagði Stefán
Guðmundsson. Aðspurður sagði hann að menn horfðu á stað við
fjörðinn þar sem aðdýpi væri mikið, t.d. við Hegranestá, en annars
yrðu þeir kostir rannsakaðir frekar.
Nýr bátur á Hofsós
Uni Pétursson og synir á
Hofsósi eru að færa út kvíamar.
Um helgina kom til hafnar á
Hofsósi 14tonnabátur semþeir
keyptu vestan af Isafirði. Bátur-
inn hefur fengið nafnið Bergey
SK 7 en hét áður Mímir ÍS.
Bergey fer á snurvoð innan
skamms. Það er Ómar Unason
sem verður skipstjóri, en Svalan,
sem er Sómi 800 bátur er til sölu.
Uni segir kaupin gerð til að
bæta vinnuaðstöðuna. Til muna
rýmra sé í Bergeynni en Svöl-
unni. Þá segir Uni í athugun að
breikka Berghildi 14 tonna bát
sem þeir feðgar eiga, og er aðal-
lega haldið til rækjuveiða á firð-
inum. Jafnvel komi til greina að
kaupa annan bát í stað Berghild-
ar.
Uni segir útgerðina ganga
ágætlega. Synir hans róa með
honum og hafa þeir allir mennt-
að sig eitthvað varðandi sjósókn.
„Það er grundvöllurinn að fjöl-
skyldan vinnur að þessu. Annars
gengi þetta ekki, jxi svo að við
fiskum alltaf vel. Eg er líka hepp-
inn núna að geta leigt húsnæði
undir skelvinnsluna. Svo þetta er
allt á réttum sveig”, segir Uni.
Uni Pétursson ásamt sonum: Þiðrik, Reginn, Ómar, Kristinn
Uni og Pétur Arnar.
Kosningar tíl Búnaðarþings í Skagafírði
Framfarasinnaðir
bændur í bæði sætin
Listi íramfarasinnaðra bænda
bar sigur úr býtum í Búnaðar-
þingskosningum í Skagafirði
sem fram fóru 20.-31. október
sl. og hreppi bæði sætin sem í
boði voru. Sigurinn var afger-
andi en hins vegar munaði ein-
ungis nokkrum atkvæðum að
fyrsti maður á skagfirska
bændalistanum, Rögnvaldur
Ólafsson í Flugumýrar-
hvammi, kæmist inn.
Kosningu til Búnaðarþings
hlutu þau Jóhannes Helgi Rík-
harðsson Brúnastöðum og Anna
Margrét Stefánsdóttir Hátúni.
Varamenn þeirra em Sigþór
Smári Borgarsson Goðdölum
og Trausti Kristjánsson Syðri-
Hofdölum.
Á kjörskrá vom 276. At-
kvæði greiddu 239 eða 86,6%.
Auðir og ógildir seðlar vom 7.
F-listi framfarasinnaðra bænda
hlut 157 atkvæði (67,7% gildra
atkvæða) og S-listinn skagftrski
bændalistinn 75 atkvæði (32,3%
gildra atkvæða).
Gæðaframköllun
BÓKABÚÐ
BKmJARS
GÆÐAFRAMKÖLLUN