Feykir - 10.12.1997, Síða 7
43 /1997 FEYKIR 7
Sigurjón Þóroddsson
Sauðárkróki
Elsku afi minn!
Nú hefur þú kvatt og það er
margs að minnast. Fyrst langar
mig að þakka þér fyrir allar
stundimar sem við áttum sam-
an. Þær vom mjög ánægjulegar
og einnig mjög lærdómsríkar
oftast nær. Það var alltaf nota-
legt að koma til þfn og ég gat oft
gleymt mér við að spjalla við
þig. Eg leit upp til þín því þú
vars svo vel lesinn og ffóður um
margt. Eg lærði því svo mikið
að ræða við þig.
Það var svo gott að vita hvað
þú fylgdist vel með mér og allri
fjölskyldunni? Þú vildir alltaf
vita hvemig staðan væri og
hvert ég stefndi. Við áttum mjög
hreinskipt samband og gátum
rökrætt þó svo að við væmm
ekki alltaf sammála. Eg bjó nú
hjá þér og ömmu í tvö ár og
hafði ntikið gott af því. Þú lagð-
ir mikla áherslu á að fólk
menntaði sig og fengi eins mik-
ið út úr lífinu og það gæti.
Mér þótti afar gott að ég, Jón
Amar og strákamir okkar tveir
vomm hjá þér og ömmu þegar
þú kvaddir þennan heim. Afi ég
reyndi að gera mitt besta til að
hjálpa þér þennan dag.
Það var margt sem gerðist í
þessari sunnudagsheimsókn á
svo stuttum tíma sem var samt
svo lengi að líða. Þessi reynsla
sem þú færðir mér þenan
sunnudag gerir mér betur kleift
að sætta mig við að þú sért far-
inn. Þú náðir að sanna fyrir mér
að það tæki eitthvað við á eftir
þessu lffi. Þú sýndir mér einnig
að sá heimur er mjög fallegur,
a.m.k. það fallegur að þú gast
ekki hætt að horfa á hann.
Heimur fullur af rauðum rósum
og hér eftir á rauð rós alltaf eft-
ir að minna mig á þig afi.
Elsku afi! Þegarég náði í þig
á sjúkrahúsið á föstudeginum þá
langaði þig svo að sjá litlu strák-
ana þína eins og þú kallaðir þá.
Þá varst þú að tala um syni mína
Krister Blæ og Tristan Frey og
ég lofaði þér því að koma með
þá til þín um helgina. Eg er
mjög þakklát fyrir að hafa náð
að uppfylla þessa ósk þína og
þú náðir að kveðja strákana sem
okkur em svo kærir. Þennan dag
varst þú svo hress og ég hugs-
aði: „Afi minn er nú ekkert að
kveðja á næstunni”, og þá var
ég svo glöð yfir því. Þetta var í
raun eiginhagsmunasemi í mér
því ég vissi hvað þú varst orðinn
þreyttur, því þú varst farinn að
tala um það.
Ég hef alltaf átt svo erfitt
með að sætta mig við dauðann
og litið á hann sem óréttlátan
hlut í lffinu. Þegar ég hugsa til
baka þá var það svo margt sem
þú færðir okkur þennan dag
sem gaf til kynna að þú ættir að
kveðja. Þú sagði við okkur: ,,Nú
er þetta búið”. Þú vissir alveg
hvert stefndi.
Elsku afi. Ég er afar þakklát
fyrir að hafa átt þig sem afa. Við
náðum mjög vel saman og vor-
um svo lík að mörgu leyti. Ég
hef sama húmor og þú og reglu-
semina kunnum við bæði vel að
meta. Þegar ég var að bogra úti
í skúr hjá þér þá var svo gott að
finna hvað þú treystir mér vel
fyrir öllum áhöldunum þínum.
Þér var ekki sama hver gengi
um hlutina þína og það var svo
gott að ganga um allt sem þú
átúr, því allt var svo skipulagt.
Elsku afi. Ég veit þú fylgist
með mér og strákunum mínum
og mér finnst gott að vita til
jjess. Þú fylgist alltaf með Jóni
Amari í tugþrautinni og ég veit
að þú átt eftir að gera það áfram
og hjálpa honum í gegnum
keppnina. Þú tókst Jóni Amari
opnum örmum frá fyrstu kynn-
um ykkar og ég veit þið kunnið
vel að meta hvom annan. Þú
gerðir miklar kröfur til þín og
þær sömu til annarra og ég veit
að það vom ekki allir sem stóð-
ust kröfumar þínar.
Elsku afi minn. Ég elska þig
og mun ætíð gera það en þykir
verst hvað strákamir mínir em
ungir þegar þú kveður. Ég veit
þó að þeir eiga eftir að kynnast
þér síðar. Þín frænka (dóttur-
dóttur) eins og þú kallaðir mig
oft.
Hulda Ingibjörg Skúladóttir.
Ársfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum
Vill að Landsvirkjun dragi
hækkanir sínar til baka
Ársfúndur Samtaka sveitarfé-
laga á köldum svæðum sem
haldinn var á Hótel Sögu nýlega
krefst þess að dregnar verði til
baka fyrirhugaðar hækkanir á
gjaldskrá Landsvirkjunar og
skorar á iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra að beita sér fyrir aukn-
ingu niðurgreiðslna á raforku til
húshiuinar. A fúndinum var dreg-
in fram sú staðreynd að 42%
tekna Landsvirkjunar af sölu raf-
orku til almenningsveitna em
greiddar af íbúunt á veitusvæði
Rarik, um 24% þjóðarinnar. Þetta
fólk tekur þar með hlutfallslega
meiri þátt í niðurgreiðslum
skulda Landsvirkjunar og arð-
greiðslum til eigenda fyrirtækis-
ins en aðrir landsmenn.
Fundurinn minnir á þann mun
sem er á orkukostnaði til húshit-
unar milli þeirra sem nýta raf-
orku og hinna sem hafa aðgang
að hagstæðum hitaveitum. Með
hækkunum á gjaldskrám Lands-
virkjunar mun þessi munur
aukast enn. Fundurinn varar við
beinni tengingu raforkuverðs og
byggingarvísitölu þar sem að
hækkun á raforkuverði myndi
leiða til hækkunar vísitölunnar.
Arsfundur Samtaka sveitarfé-
laga á köldum svæðum skorar á
ríkisstjómina að veita árlega um-
talsverðum fjárveitingum til að
gera átak í skipulegri jarðhitaleit
á köldum svæðum. Fundurinn
telur nauðsynlegt að orkusjóður
verði styrktur og honum beitt í
þessum úlgangi.
„Árlega er varið 400-500
milljónum króna til niður-
greiðslna á raforku til húsahitun-
ar. Fyrirsjáanlega munu þessar
niðurgreiðslur aukast ef ná á því
markmiði að jafna húshitunar-
kostnað í landinu. Er þá bæði lit-
ið til þess að raforkuverð mun
einungis lækka óverulega á
næstu 10-15 árum og hins vegar
að á því árabili munu hitaveitur
verða ódýrari vegna afskrifta og
lækkunar skulda”, segir einnig í
ályktun fundarins. Formaður
Samtaka sveitarfélaga á köldum
svæðum er Magnús B. Jónsson
sveitarstjóri á Skagaströnd.
Ókeypis smáar
TU sölu!
Til sölu Toyota Corolla XL
áig. ‘92. Upplýsingarísíma453
6263 á kvöldin.
Tú sölu Ford Sierra áig. ‘88.
Selst á góðu verði. Upplýsingar
í síma 453 61764 e. kl. 18.
Til sölu Lada Samara árg.
‘87, ekinn 94.000. km.
Upplýsingar í síma 451 2676.
Er að rífa Subaru ‘80-’91,
Mazda626 ‘83-’87, Mazda323
‘81-’87, BMX318, Bens allar
gerðir, Tercel, Lancer, Colt, L-
200, Galant, Volvo 244/240,
Peugot 505, Saab 900, Taunus
allar gerðir, Bronco, bæði stóri
og liúi. Sími 453 8845.
Húsnæði tíl leigu!
Til leigu smáíbúð í Hlíðar-
hverfi fyrir einstakling eða
nægjusamt par. Sérinngangur.
Laus frá og með 20. des. Upp-
lýsingar ísíma 453 5632.
Hlutir óskast!
Áttu gömul jólakort? Áttu
kort ffá Vesturheimi. Hringdu í
síma453 6173.
Byggðasafn Skagfirðinga.
Kökubasar!
Kökubasar Glaumbæjar-
kirkju verður í anddyri Skag-
firðingabúðar föstudaginn 12.
desemberkl. 15.
Tapað - fundið!
Vínrauð kápa með svörtum
kraga var tekin í misgripum
fyrir vínrauðan jakka á Hótel
Mælifelli sl. laugardagskvöld.
Upplýsignar í síma 453 5511.
íbúð til sölu!
Til sölu er tveggja herb. 42 ferm. íbúð við
Brekkugötu 3, Sauðárkróki. íbúðin er heppileg
fyrir einstakling eða par. Mjög gott útsýni er
frá íbúðinni. Gott verð fyrir traustan kaupanda.
Strimill ehf. fasteignasala, Suðurgötu 3,
Sauðárkróki, sími 453 5900, fax 453 5931.
Áshús fyrir jólin!
Opið kl. 16 - 20 laugard. 13. simnud. 14.
og föstud. 19.des.,
og kl. 16 - 22 laugard. 20. og sunnud. 21. des.
Hefðbundnar veitingar og dagskrá.
Jólastemmning!
Bændur og hestamenn athugið!
Tek í tamningu og þjálfun frá og með 1. jan. Tek einnig að
mér jámingar. Vönduð og góð vinna. Upplýsingar í síma 453
6764eftirkl. 18. Stefán Steinþórsson, Kýrholti.
Góðir áskrifendur!
Þeir sem enn eiga ógreidda innheimtuseðla
vegna áskriftargjalda eru vinsamlegast beðnir
að greiða hið allra fyrsta. Feykir.
Skagfirskar æviskrár
Skagfirskar æviskrár 1910-1950, III bindi er nýkomið út.
Bókin er 360 bls. með 105 æviskrárþáttum búenda og húsráðenda í
Skagafirði á fyrri hluta aldarinnar.
Fæst hjá útgefanda í Safnahúsinu á Sauðárkróki og kostar þar kr. 5.500.
Sögufélag Skagfirðinga
Sími 453 6640.