Feykir - 02.09.1998, Side 6
6 FEYKIR 29/1998
Magnús
Jónsson
Kveðja
Við kveðjum þig nú vinur,
þó vegir skilji að sinni.
Víst er margt að þakka
og muna á kveðjustund.
Við óskum allra heilla
í síðustu sjóferðinni,
sólin gylli eyjar
og Ijómi umfjörð og sund.
Aðfárast yfir hlutum
var fjarri þínu geði,
feillaus voru handtökin
öll til sjós og lands.
Vissulega falslaus
oft var þín veiðigleði,
þó vœri ekki lífið
á stundum rósadans.
Þegar þú núferð
yfir hafið bylgjubreiða.
Sem bíður okkar allra
að sigla eitthvert sinn.
Þá Landsins verndarvœttir
þér götu munu greiða.
Guðstrú þín var örugg.
Ég kveð þig vinur minn.
Hilmir og Hulda.
Körfuboltinn byrjaður
Hraðmót á Sauðárkróki um næstu helgi
Úrvalsdeildarlið Tindastóls í
körfubolta er þegar komið á
fullt með undirbúning fyrir
keppnina í vetur. Um næstu
helgi stendur körfuboltadeild-
in fyrir miklu hraðmóti á
Sauðárkróki þar sem einnig
taka þátt úrvalsdeildarlið
Þórs á Akureyri, Snæfeils úr
Stykkishóbni, Skallagríms, Is-
firðinga og Skagamanna.
Keppnin hefst kl. 12 á laugar-
dag og á sama tíma daginn eftir.
Tindastóll er í riðli með Skalla-
grími og Þór. Mótið hefst með
leik KFI og ÍA, þá leika kl. 13
Tindastóll og Þór, þvínæst
Skagamenn og Snæfell, Skalla-
grímur við Þór, KFÍ og Snæfell
og Tindastóll og Skallagrímur
eigast síðan við í síðasta leik
riðlakeppninnar kl. 17. Keppnin
á sunnudag hefst síðan á leik um
5.-6. sætíð, þá er keppt um 3. og
4. sætið og mótinu lýkur síðan
með úrslitaleiknum.
Tindastóll keppti um helgina
á hraðmóti Vals í Reykjavík. Val-
ur Ingimundarson þjálfari lagði
mikið upp á því að skoða sem
flesta leikmenn og var að prófa
ýmsa hluti. Tindastóll vann tvo
leiki á mótinu, Skagamenn og Is-
firðinga, en tapaði fyrir Grind-
víkingum, Val og KR. Banda-
ríkjamaðurinn John Wood þótti
koma vel út hjá Tindastóli og
ýmislegt jákvætt í leik liðsins,
þótt fleiri leikir töpuðust en unn-
ust.
Slakt gengi að undanförnu hjá
Tindastóli og KS í fótboltanum
Hvorki Tindastólsmenn né
KS-ingar hafa átt góðu gengi að
fagna í 2. deildinni að undan-
fömu, en engu að síður sigla liðin
lygnan sjó um miðja deild. KS-
ingar em nú í ijórða sæti með 23
stig og Tindastóll er í því fimmta
með 21 stig. Tindastólsmenn
vom komnir f mjög góða stöðu
þegar liðið mætti Ægi sl. laugar-
dag. Þrátt fyrir að sunnanmenn
byrjuðu betur og næðu að skora
strax á fýrstu mínútunum, komust
Tindastólsmenn yfir með því að
skora tvo mörk rétt fyrir leikhlé.
Þeir bættu síðan tveim mörkum
við í upphafi seinni hálfleiks og
það stefndi í stórsigur, en þá var
eins og Tmdastólsmenn héldu að
sigurinn væri í höfn, gestimir
gengu á lagið, náðu fljótlega að
skora og síðan bæta við tveimur
mörkum. Það síðasta kom fimm
mínútum fyrir leikslok og áhorf-
endur á Króknum óttuðust að
gestimir mundu skora sigurmark-
ið undir lokin, en jafntefli varð
staðreynd, 4:4. I sama tíma töp-
uðu Siglfirðingar fýrir Selfýssing-
um syðra, 3:6.
Munið eftir áskriftargjöldunum
Áskrifendur góðir! Vinsamlegast munið að greiða
áskriftargjöldin. Þeir sem hafa glatað greiðsluseðlum og
eiga ógreiddar áskriftir er bent á að hægt er að millifera
inn á reikning nr. 1660 í útibúi Búnaðarbankans á
Sauðátkróki.
Nú finnst oss ei nóttín
löng í Akrahreppnum
Maðurinn hugsar-guð ræður.
(Homo cogitat deus disponit)
Á fýrsta fundi sínum á þessu
ári samþykkti hreppsnefnd
Akrahrepps tillögu þess efnis að
greiða skyldi úr sveitarsjóði kr.
100.000 fyrir hvem krakka sem
fæddist í hreppnum. Flutnings-
menn vom þeir Þórarinn Magn-
ússon Frostastöðum og Agnar á
Miklabæ. Sagt er að Agnar
hefði talað gmnsamlega vel og
rösklega fyrir tillögu þessari,
enda vissi enginn þá til þess að
hann ætti von á bami í Blöndu-
hlíð. En stuttu seinna birtist frétt
í blaðinu Feyki um að ungt par í
Akrahreppi eigi von á bami, á-
samt Agnari Gunnarssyni á
Miklabæ. Þótti þá sýnt að hann
hefði verið með hagsmuni sína í
huga, ekki síður en annarra þeg-
ar hann talaði fyrir tillögunni.
Enginn veit ennþá hve margir
krakkar hafa komið undir í
Akrahreppi síðan fýrrgreind til-
laga var fiutt og samþykkt, en
talið er víst að margir muni not-
færa sér þá möguleika sem
þama bjóðast til að auka tekjur
sínar.
Gæta verður þess vandlega
að engir glæponar gangi lausir í
sveitinni meðan verið er að upp-
fylla Akrahrepp, sem ekki ætti
að taka mjög langan tíma, því
að ekki má spilla þeim ágæta
kynstofni sem enn er til staðar í
hreppnum, þrátt fýrir brotthlaup
þeirra sem þaðan fóm fyrir
skömmu. „Þeim sem náttúran
fær ekki haldið til skyldunnar
verður að bægja ffá illgjörð með
þunga hegningar“. Það er álit
(sentiment) mitt og margra ann-
arra að beita verði öllum brögð-
um til að fjölga fólki á lands-
byggðinni. Því segjum vér yður
þér konur Akrahrepps: „Ef
bamið er ekki þegar komið í
yður þá gangið út og aflið þess“.
Þegar þetta er ritað þá er ný-
lega fætt fyrsta bamið í Blöndu-
hlíð sem borgað er út á úr
hreppssjóði. I tilefni af því var
ortur sálmur, sem ekki verður
birtur að svo stöddu. Upphaf
hans er á þessa leið:
I Blönduhlíð er bams oss fœtt
bam oss fætt.
Þvífagnar gjörvöll Agnars œtt
halelúja halelúja.
Vér undir tökum Agnars söng
Agnars söng.
Og nú finnst oss ei nóttin löng
halelúja halelúja.
Sigurjón Runólfsson,
áður bóndi í Blönduhlíð
Skagafirði.
Athugasemd
vegna fréttar um
skólamál á Hofsósi
Vegna fréttar um ráðningu
skólastjóra í Gmnnskólann á
Hofsósi sem birtist í síðasta
tölublaði Feykis og tilvísunar
til minnar afstöðu til málsins,
vill undirrituð koma eftirfar-
andi á ffamfæri.
Það er sannfæring mín að í
öllum tilvikum sé það eðlilegt
og rétt að auglýsa þær stöður
sem losna hjá sveitarfélaginu.
Hvað varðar ráðningu skóla-
stjóra á Hofsósi þá var umsókn
Jóhanns Stefánssonar tekin
fyrir á skólanefndaifundi þann
31. júlí þar sem henni var haíh-
að. í ffamhaldi af því talaði
formaður skólanefndar um að
auglýsa stöðuna á ný svo fljótt
sem auðið yrði. Á nafn Bjöms
Bjömssonar var ekki minnst
einu orði á þessum fundi. Á
næsta fundi þann 10. ágúst var
fýrsta mál á dagskrá tillaga for-
manns nefndarinnar þess efnis
að Bjöm yrði ráðinn í stöðuna.
Málið virtist þá frágengið af
hendi formanns, varaformanns
og sveitarstjóra.
Á fundinum tók ég skýrt
fram að ég hefði langt í ffá
nokkuð út á Bjöm að setja í
þetta embætti en mér þætti
ekki eðlilega að málinu staðið.
Ég gerði nefndinni grein fyrir
að með því að auglýsa stöðuna
aftur hefði verið hægt að koma
í veg fýrir að fólk tengdi sam-
an starfslok Jóhanns og að
Bjöm ætti þessa stöðu vísa. Jó-
hann virðist vera mjög ósáttur
með sín starfslok og hefur m.a.
fengið lögffæðing til að kanna
hugsanlega málshöfðun á
hendur sveitarfélaginu.
Að lokum vil ég ítreka að
ég er ekki í vafa um að Bjöm
muni leysa störf sín vel af
hendi á Hofsósi. í mínum huga
snýst málið aðeins um þá sjálf-
sögðu reglu að auglýsa þær
stöður sem losna hjá sveitarfé-
laginu.
Virðingarfýllst
Stefanía Hjördís Leifs-
dóttir, fúlltrúi Skagafjarðarlist-
ans í skólaneffid.