Feykir - 02.09.1998, Síða 8
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra
2. september 1998, 29. tölublað, 18. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
Norðvesturbandalagið
KJORBOK
Vinsœlasti sérkjarareikningur íslendinga
- með hœstu ávöxtun í áratug!
W Landsbanki
Jk Ísland&í
j til framtfðar
Útibúið á Sauðárkróki - S: 453 535J
Áætlað að rúmlega 90.000
fjár verði slátrað í haust
Haustslátrun sauðfjár hefst
hjá Norðvesturbandalaginu nk.
þriðjudag 8. september. Að
sögn Kolbeins Þórs Bragason-
ar framkvæmdastjóra er gert
ráð fyrir því að slátrað verði
rúmlega 90 þúsund íjár og um
240 manns muni starfa við
slátrunina, en reyndar vantar
enn nokkuð af fólki á sláturhús-
in, sérstaklega á Hólmavík.
Norðvesturbandalagið er
stærsti sláturleyfishafi landsins.
Slátrað er á þrem stöðum:
Hvammstanga, Hólmavík og
Búðardal. Vestur-Húnvetning-
ar, Strandamenn, Dalamenn og
Vestfirðingar slátra öllu sínu fé
hjá bandalaginu, en einnig
kemur sláturfé úr A.-Hún og
Snæfellsnes- og Hnappadals-
sýslu.
„Það er eins og það verði
alltaf erfiðara og erfiðara að
manna húsin, sérstaklega vant-
ar okkur fólk á húsið á Hólma-
vfk. Við slátruðum hátt í 1000
fjár í sumarslátmninni og stefn-
um að því að slátra heldur fleira
en í fyrra í haustslátruninni, en
þá slátruðum við um 92.000.
Þá slátrum við alltaf vikulega
35 hrossum á ítalíumarkað og
sendum kjötið þangað ferskt’’,
Landssíminn styrkir
Jón Amar Magnússon
vegna þátttöku í Ol í Sydney árið 2000
Jón Amar Magnússon gerði
styrktarsamning við Landssím-
ann um helgina og er reiknað
með að samningurinn nemi allt
að þremur milljónum króna.
Greiðslumar hækka eftir því
sem Jón Amar nær betri árangri
á þeim mótum sem framundan
em fram að Olympíuleikum í
Sydney árið 2000. Enginn ís-
lenskur fijálsíþróttamaður hefur
fengið annan eins stuðning frá
heimaaðilum og fyrirtækjum til
að ná hámarks árangri á alþjóða
vettvangi. Jón Amar er nú í
þriðja sæti í tugþrautarkeppni
IAAF, bestu manna í heimin-
um. Erki Nool Eistlandi stendur
efstur með 8655 stig, Chris
Huffins USA er næstur með
8630 og Jón Amar með 8569
stig. Heimsmethafinn O’Brien
er ekki með í sdgakeppninni.
hing.
Myndavélar skemmdar
Aðfaranótt síðasta laugardags
var farið inn á heimavist
fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra og unnar skemmdir á einni
af eftirlitsmyndavélum sem
komið hefúr verið upp í vistinni.
Lögreglan á Sauðárkróki vinnur
að rannsókn málsins og að sögn
Bjöms Mikaelssonar yfirlög-
regluþjóns miðar henni vel.
sagði Kolbeinn Þór, en slátur-
húsið og kjötvinnsla KVH á
Hvammstanga er eina slátur-
húsið og kjötvinnslan í landinu
sem hefur útflutningleyfi á EB.
Að sögn Kolbeins Þórs fer
mikið magn gegnum húsið á
Hvammstanga til útflutnings,
allt hrossakjötið af fúllorðnu fer
út og útlit er fyrir að útflutn-
ingsskyldan á dilkakjöti verði
um 15% í haust. Stefnt er að
því að sauðfjárslátrun ljúki á
öllum húsunum þremur um 20.
október og þá hefst folalda og
stórgripaslátrunin.
Austur-Húnavatnssvslur
Tæplega 400
minkar og refir
drepnir á þessu ári
Um 190 refir og rúmlega
200 minkar hafa verið unnir í
A.-Hún. á þessu ári af um hálf-
um öðmm tug veiðimanna. 19
refagreni vom unnin með 34
fullorðnum dýmm og 74 yrð-
lingum, en 81 refur var skotínn
við æti í vetur. Er auðvelt að
gera sér hugmyndir um hve við-
koma hlaupadýranna hefði get-
að orðið ef þau hefðu lifað og
tímgast, því gera má ráð fyrir að
hvert refapar gefi af sér u.þ.b. 4
yrðlinga, þó dæmi séu um að
fast að tugur yrðlinga sé í sama
greni. Ekki er fyrir hendi sund-
urliðun á fullorðnum minkum
og hvolpum, en hvorutveggja
refir og minkar em dreifðir um
alla sýsluna. Ekki er greitt tíma-
kaup fyrir refaveiðar, en skot-
verðlaun fyrir hvert fullorðið
dýr er 7000 krónur, 1600 krón-
ur fyrir hvem yrðling. Tíma-
kaup er greitt fyrir leit af minka-
grenjum. Veiðimenn fá auk þess
1200 krónur fyrir hvert unnið
dýr, fullorðið og hvolpa.
Af minka- og refaveiði-
kostnaði greiðir ríkið helming
upp að 7000 krónum íyrir hvem
ref, en tíl mun vera að sveitarfé-
lög bæti nokkuð við greiðslu
fyrir unnin hlaupadýr tíl þess að
hvetja menn til veiðanna. Veiði-
menn em sammála um að bæði
refa- og minkastofninn sé í
vexti. Húnavatnsþing er kjör-
lendi fyrir minkinn vegna
fiskauðgi í ám og vötnum og
báðar tegundimar eyða mjög
fúglalífi, s.s. gæsum og mófugli,
sem mjög fer fækkandi svo til
auðnar horfi á sumum svæðum.
Athygli vekur hvað báðar teg-
undimar, refir og minkar, gera
sig heimakomna nærri manna-
bústöðum, gera sig jafúvel greni
í yfirgefnum eða hálfföllnum
húsum, en hvað það snertir tek-
ur minkurinn refnum ffam.
gg/ruv.
Konur funda
í Skagafirði
Nýlega kom stjóm Lána-
tryggingarsjóðs kvenna saman
í Skagafirði og fór þar yfir
verkefni og fundaði bæði á
Sauðárkróki og í Fljótum. Á
Sauðárkróki þáðu stjómarmenn
leiðsögn heimamanna um stað-
inn og var myndin tekin við
útsýnisskífuna á Nöfunum. Frá
vinstri talið Guðrún Ögmunds-
dóttir deildarstjóri í félagsmála-
ráðuneytinu, Guðrún Þórðar-
dóttir útibússtjóri Múlaútibús
Landsbankans, Stefán Guð-
mundsson alþingismaður, Jón
Ormar Ormsson rithöfúndur og
sagnaþulur, Snorri Bjöm Sig-
urðsson bæjarstjóri, Steinunn
Valdís Óskarsdóttir borgarfull-
trúi og núverandi formaður
stjómar lánatryggingarsjóðsins
og Herdís Sæmundardóttír fyrr-
verandi formaður stjómarinnar.
Gæðaframköllun
BÓKABUÐ
BRYNcJARS