Feykir


Feykir - 07.04.1999, Side 1

Feykir - 07.04.1999, Side 1
rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU 1 SAUÐÁRKRÓKI Áhersla mótuð í vegagerð á næstu árum Fyrsti áfanginn yfir Þverárfjallið boðinn út á næsta áti Eindæma veðurblíða var hér nyðra dag hvem um páskana og fjöldi fólks naut blíðunnar í skíðabrekkunum og til fjalla. Biðröð var við skíðalyftur eins og þessi mynd frá skíðasvæði Tindastóls sýnir og fjöldi fólks var á gönguskíðum út um alla heiði. Talnaglöggir menn telja að um 500 manns hafi verið á svæðinu þegar fjöldinn var hvað mestur. Mynd/hing. Atvinnuþrómwsjóður stoftiaður í kjördæminu á næstunni Segja má að áfomi um bygg- ingu Þverárfjallsvegar hafi feng- ið byr undir báða vængi þegar þingmenn og samgöngunefnd kjördæmsins ákváðu, samkvæmt tilmælum Vegagerðar ríkisins, að aukafjárveiting frá ríkinu til vegagerðar, 140 milljónir í þetta kjördæmi, yrði varið í Þverár- fjallsveginn. Gunnar Guðmunds- son umdæmisstjóri vegagerðar- innar á Norðurlandi vestra er bjartsýnn á að unnt verði að bjóða út fyrsta áfanga verksins á næsta ári, en hann verður svo- kallaður Skagavegur frá Skíða- stöðum í Laxárdal yfir Þverár- fjall að Þverá, fremsta bænum í Norðurárdal. Fjárveitingar af vegaáætlun, að viðbættri aukaíjárveitingunni, gera ráð fyrir 306 milljónum í Þverárfjallsveginn á næstu þrem- ur ámm. Alls er áætlað að Þver- Lokun ákveðiii í Loðskinni Nú um mánaðamótin var öllu starfsfólki Loðskinns hf sagt upp störfum. Var þetta gert í ljósi þess að ákveðið hefur verið að stöðva starfsemi fyrirtækisins í maflok. Vonir standa til þess að unnt verði að hefja starfsemi að nýju ef markaðir opnist. Um 20 manns starfa enn hjá Loðskinni, en fólki þar hefur fækkað jafnt og þétt síðustu mánuðina. I ljósi ástandsins hefur fólk leitað sér að vinnu annars staðar. árfjallsvegurinn muni kosta um 700 milljónir, en hann verður 38 km frá Skagastrandarvegi til Sauðárkróks. Gunnar Guðmuds- son kveðst vonast til að sú fjár- veiting sem nú liggi fyrir dugi það vel fyrir fyrsta áfanganum að afgangur verði, sem síðan mundi nýtast í næsta áfanga, sem vænt- anlega yrði frá Sauðárkróki yfir Laxárdalsheiði, en í þeim áfanga er gerð nýrrar brúar á Göngu- skarðsá sem staðsett verður rétt ofan ósa árinnar. „Við getum því miður ekki séð fyrir hvenær gerð vegarins lýkur. Hinsvegar er ljóst að fjár- festingin nýtist illa þar til búið er að fullgera veginn frá báðum endum”, segir Gunnar Guð- mundsson og hann hefur trú á því að gerð vegarins verði hrað- að eins og ffekast er kostur. Lengi hefur verið rætt um Þverárfjallsveg sem mjög mikil- vægt samgöngumannvirki til að tengja saman þrjá þéttbýlisstaði í kjördæminu og svæðin þar í grennd, Sauðárkrók, Skaga- strönd og Blönduós, og mynda þannig stórt atvinnusvæði. Sem dæmi þá verður leiðin Skaga- strönd-Sauðárkrókur 52 km um Þverárfjall í stað 96 um Langadal og Vatnsskarð, og Blönduós - Sauðárkrókur styttist í 47 km úr 74. Þá verður 17 km styttra fyrir Siglfirðinga og Ólafsfirðinga að aka Þverárfjall á suðurleiðinni en að velja leiðina um Vatnsskarðið, þannig að umferð í gegnum Sauðárkrók kemur til með að aukast við þessa breytingu, hvort sem bæjarbúar telja það nú kost þegar til lengdar lætur. Á næstunni verður stofnað í Norðurlandi vestra eignar- haldsfélag sem áformað er að verði grundvöllur atvinnu- þróunarsjóðs. Bjarni Þór Einarsson framkvæmda- stjóri SSNV segir að ekki liggi fyrir skrifleg svör frá sveitar- stjórnum með þátttöku, en jákvæð svör hafí engu að síð- ur borist frá öllum stærstu þéttbýlisstöðunum nema Siglufirði. „Mér sýnist ljóst að okkur ætli að takast að stofna þetta félag”, segir Bjami, en Invest hefur verið falið að ganga frá stofnun félagsins og er þessa dagana að kynna málið fyrir forsvarsmönnum- Siglufjarðar og minni sveitar- félaga í kjördæminu. Hvatinn að stofríun félagsins er frumvarp um stefnu í byggðamálum 1998-2001, stjómarfrumvarp frá forsætis- ráðherra sem afgreitt var á síð- asta þingi. Þar er gert ráð fyrir fjárveitingum til atvinnuþróun- arfélaga í hveiju kjördæmi landsins næstu þijú árin. Gert er ráð fyrir að til þessa verkefnis fari 300 milljónir á ári. Bjami Þór Einarsson segir að með stofnun félagins séu menn að tryggja það að þessi fjárveiting komi til ráðstöfunar inn á þetta svæði. Áætlað er að stofrífé væntanlegs eignarhalds- félags og atvinnuþróunarsjóðs í kördæminu verði 100 milljónir og sá möguleiki verði fyrir hendi að efla sjóðinn um 100 milljónir á ári næstu tvö árin. Frá ríkinu komi 40% í gegnum Byggðastofnun, eignarhald sveitarfélaga í kjördæminu verði 40% og 20% komi frá at- vinnufyrirtækjum. Bjami Þór sagði með vísan til þess sem segir hér að fram- an, að áform Skagfirðinga um stofnun atvinnuþróunarfélags og þróunarsjóðs, komi þessu máli ekki við. Hins vegar hefðu menn á tímabili óttast að Skag- fírðingar ætluðu að kljúfa sig út úr þessu samstarfi, en slíkt væri ekki raunin, enda hefðu Skag- firðingar ákveðið að vera með. „Það er hið besta mál og mik- ilsvert að ekkert af stærri sveit- arfélögunum skerist þama úr leik”, segir Bjami Þór. —KTen^iM cNjDI— JfMfTibílaverkstæði Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 Æ JLÆ.M-Æ. sími: 453 5141 • ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Sæmundargata lb 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140 • FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA ^Bílaviðgerðir 0 Hjólbarðaviðgerðir • BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA 0 Réttingar # Sprautun

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.