Feykir


Feykir - 07.04.1999, Blaðsíða 5

Feykir - 07.04.1999, Blaðsíða 5
12/1999 FEYKER 5 Hagyrðingarnir láta gamminn geysa: Sigurðin- Hansen, Þórey Helgadóttir og Arni Bjarnason ásamt Hafsteini Lúðvíkssyni, sem stjómaði hagyrðinga- þættinum. Rökkurkórinn hélt upp á 20 ára afmæli með glæsiveislu Rökkurkórinn í Skagafirði fagnaði 20 ára afmæli á glæsilegri afmælishátíð sem fram fór í Miðgarði í Varmahlíð laugardaginn 27. mars sl. Dagskráin var fjölbreytt og boðið var upp á glæsilegt kaffihlaðborð. Salurinn í Miðgarði var þéttskipaður eins og jafnan þegar þar fara fram söng- skemmtanir, en með ólíkindum er hvað Skagfirðingar og gestir þeirra em duglegir að sameinast í söngnum. Trúlega er hvergi í landinu jafn kröft- ugt sönglíf og í Skagfirði. Þar eru starfræktir tveir fjölmennir kórar auk allra kirkjukóranna. Sveinn Ámason frá Víðimel hefur Stefán Reynisson syngur einsöng í laginu „Á Hildarseli“ eftir Eirík Jónsson og Sigurð Hansen. stjómað Rökkurkómum lengst af og í vetur er undirleikari með kómum Pál Szabo. Kórfélagar em 55 talsins og ein- söngvarar em Gerður Geirsdóttir, Hall- fríður Hafsteinsdóttir, Einar Valur Val- garðsson, Hjalti Jóhannsson og Stefán Reynisson. Þá var meðal skemmtiatriða á afmælishátíðinni, hagyrðingaþáttur af skagfirskum hætti sem Ámi Bjamason stjómaði, kvennasönghópur söng og Bjami Pétur Maronsson flutti létt gam- anmál. Það var haustið 1978 sem nokkur hópur söngglaðs fólks úr héraðinu kom saman og var tilefnið að efna til afþrey- ingar í söng. Fæstir í þessum hópi munu hafa vænst þess að svo gott framhald yrði á þessum félagsskap sem raunin hefur orðið. Mikill kraftur hefur ætíð verið í starfi Rökkurkórsins og á síðustu ámm hefur kómum bæst aukinn liðs- styrkur. Haustið 1996 kom úr fyrsti geisladiskur kórsins. Á honum er ein- göngu að fínna ljóð og lög eftir skag- firska höfunda. Árdís Maggý Bjömsdóttir formaður gat þess í ávarpi sínu á afmælisfagnað- inum að í tilefni tímamótanna væri áætl- að að veita kórfélögum umbun fyrir óeigingjamt starf með því að fara í söng- og skemmtiferð til Portúgal í haust. Þar mun kórinn einnig taka þátt í kóramóti. Rökkurkórinn tekur vel undir í lagi Péturs Sigurðssonar „Ætti ég hörpu“. Kvennakórnum tókst ekki síður vel upp í nokkrum vel völdum lögum. Trésmiðir óskast! Óska eftir trésmiðum eða laghentum mönnum til að vinna að endurbótum á Hótel Tindastóli á Sauðárkróki. Upplýsingar gefur Pétur Einarsson í síma 899 8631.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.