Feykir - 30.06.1999, Blaðsíða 2
2 FEYKIR 23/1999
Hilmar Hjartarson ritstjóri Harmonikkunnar ásamt sínu fólki á ijölskylduhátíð harmonikku-
unnenda í Húnaveri.
Harmonikkuunnendur með
fjölskylduhátíð í Húnaveri
Segja má að stórhljómsveit
harmonikkuspilara hafi verið
samankomin á mótsvæðinu í
Húnaveri 11.-13. júní sl. en þá
stóð Félag harmonikkuunnenda í
Skagafirði og Húnavatnssýslu
fyrir fjölskylduhátíð. „Þetta var
mjög vel mætt og skemmtilegt
og íjömgt. Við stefnum að því að
gera þetta mót að árlegum við-
burði”, segir Gunnar Agústsson
formaður félagsins, en 150-200
manns mættu á svæðið núna. „VÐ
byijuðum á þessu í íyrra. Vomm
þá um jónsmessuna, en ákváð-
um að flýta þessu núna og finna
helgi þar sem minna er um að
vera”, segir Gunnar.
Mótið hófst á föstudagskvöldi
og það kvöld var harmonikkuball
í Húnaveri, sem og á laugardags-
kvöldið. A laugardag var stans-
laus dagskrá ffá ki. 14-17 og léku
þá harmonikkufélagar á öllum
aldri, að sögn Gunnars, og einnig
bmgðu söngvarar sér á sviðið. Þeir
vom víst á ýmsum aldri líka, eða
allt niður í átta ára. Síðdegis var
svo haldin grillveisla og um há-
degi á sunnudag fór fólk síðan að
tygja sig til heimferðar.
Gunnar Ágústsson lét mjög
vel yfir mótssvæðinu í Húnaveri,
sagði aðstöðu alla þar mjög góða.
Eitthvað var um að harmonikku-
félagar annars staðar af landinu
heimsóttu mótið og blaðamaður
Feykis leit inn í tjaldið hjá Hilm-
ari Hjartarsyni fyrrverandi for-
manni Félags harmoikkuunn-
enda í Reykjavík og ritstjóra
tímaritsins Harmonikkunnar.
Hilmar sagði að móúð hefði verö
mjög skemmtilegt og greinilega
væri mikil gróska hjá hannon-
ikkuleikumm í Húnavatssýslum
og Skagafirði.
Um næstu helgi verður síðan
landsmót harmonikkuunnenda
haldið á Siglufirði. Þar er búist við
ntiklu íjölmenni og má reikna
nteð að ómar harmonikkunnar
berist langt út á fjörð.
■j Heilbrigðisstofnunin
W'
^ Sauðárkróki
SJÚKRALIÐAR
Óskum að ráða sjúkraliða til starfa á hjúkrunar- og dvalardeild frá l. september 1999. Stöðuhlutfall eftir samkomulagi. Allar nánari upplýsingar veitir Herdís Klausen hjúkrunarforstjóri í síma 455 4000 fyrir hádegi.
- REYKLAUS VINNUSTAÐUR -
„Heyr himnasmiður“
á Hólum í Hjaltadal
Næstkomandi laugardag
þann 3. júlí verðuropnuðkirkju-
sýningin „Heyr himnasmiður”
skagfirskar kirkjur og skrúð, á
Hóluin í Hjaltadal. Sýningin er
sett upp í tilefni 1000 ára af-
mælis kristni á Islandi og er
samstarfsverkefni Kristnihátíð-
amefndar Skagafjarðarprófasts-
dæmis, Hólastaðar, Byggðasafns
Skagfirðinga og Þjóðminjasafhs
íslands. Allir em velkomnir.
Sýndir verða dýrgripir úr
skagfirskum kirkjum og kirkju-
legt hlutverk þeiira kynnt. Til-
gangur sýningarinnar er að
vekja áhuga á sögu og hlutverki
kirkjunnar í þúsund ár. Kort-
lagðir em yfir 100 kirkjustaðir í
Skagafirði, getið um skólahald á
Hólum og prentverk, og meðal
annars Ijallað um hin vígðu emb-
ætti kirkjunnar, liti hennar,
kirkjuskrúða, messusöng og
sálmaskáld og um guðshúsin
sjálf.
Dagskráin þann 3. júlí hefst
kl. 14 á helgistund í Hóladóm-
kirkju í umsjón séra. Bolla
Gústavssonar. Hallgnmshópur-
inn flytur sálma eftir Hallgrím
Pétursson og Gerður Bolladótt-
ir flytur sálm Kolbeins Tuma-
sonar ffá 1208. Undirleikari er
Sveinn Amar Sæmundsson.
Að lokinni athöfn í kirkjunni
verður gengið yfir í skólahúsið.
Þar ntun séra Dalla Þórðardóttir
prófastur opna sýninguna og Hr.
Karl Sigurbjömsson biskup og
Þór Magnússon þjóðminjavöið-
ur flytja ávörp. Karlakórinn
Heimir syngur nokkur lög.
Sýningin verður opin alla
daga 3. júlí - 15. ágúst, en sá
dagur ntarkar upphaf Hólahátíð-
ar, sem er hin formlega opnun
kristnihátíðarársins í Hólastifti.
Athugasemd og
leiðrétting við frétt
„I síðasta Feyki var ffétt um
aðsveitarstjóm Skagafjarðíir hafi
samþykkt tillögu um að hækka
ekki laun svetiarstjómarmanna í
Skagafirði í samræmi við hækk-
un þingfarakaups.
Þetta er ekki rétt. Sveitar-
stjóm Skagaijarðar samþykkti
með 9 atkv. gegn 2 atkv. að vísa
umræddri tillögu til Byggðaráðs.
Meirihluti sveitarstjómar hafði
þannig ekki kjark til að segja já
eða nei í þessu máli. Málið er
því alls ekki afgreitt.
Tillaga okkar Ingibjargar
Hafstað hlaut því ekki af-
greiðslu. I gildi er því sú sam-
þykkt sveitarstjómar frá því í
september 1998 að laun svetiar-
stjómarfulltrúa og nefndar-
manna skuli hækka um þessi
30% eða til samræmis við þing-
farakaup.
Munlegt samkomulag var
þó gert seint í maí (um 20.) að
mínu fmmkvæði að þessi 30%
hækkun kæmi ekki til ffam-
kvæmda um mánaðarmótin
maí/júní til að gefa mönnum
tíma til að svara þessu máli. Til-
lagan sem þú vitnar svo til var
lögð ffam á sveitarstjómarfundi
1.6. og var afgreidd með þess-
um hætti. Við lögðum hana
fram þar sem ekkert bólaði á
viðbrögðum meirihlutans í
þessu máli annað en að taka
þessa 30% hækkuiT.
Feyki barst svofelld athuga-
semd og leiðrétting ffá Snorra
Styrkárssyni öðmm fulltrúa
Skagaljarðarlistans í sveitar-
stjómar Skagaijarðar. Blaða-
maður Feykis beðst velvirðingar
á þeim mistökum að hafa ekki
veitt eftirtekt afgreiðslu sveitar-
stjómar á fyrrgreindum fundi.
Muníð eftir áskriftargi öldunum
Áskrifendur góðir! Vinsamlegast munið að
greiða áskriftargjöldin. Þeir sem hafa glatað
greiðsluseðltun og eiga ógreiddar áskriftir er
bent á að hægt er að millifæra inn á reikning nr.
1660 í útibúi Búnaðarbankans á Sauðárkróki.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra
---------------------------------,----------------------
Kemur út á miðvikudögunt. Utgefandi Feykir hl.
Skrifstofa: Ægisstíg 10. Sauðárkróki. Póstfang: Box4,
550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703.
Myndsími 453 6703. Farsími 854 6207. Netfang:
feykir @ krokur. is. Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson.
Fréttaritari: Örn Þóraiinsson.
Blaðstjórn: Jón F. Hjartarson, Guðbnuidur Þ. Guð-
brandsson, Sæmundur Hennannsson, Siguiður Agústs-
son og Stefán Ámason.
Áskriftarverð 170 krónur hveit tölublað með vsk.
Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og
umbrol: Feykir. Prentun: Hvítt & Svart hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs-
fréttablaða.