Feykir - 30.06.1999, Blaðsíða 5
23/1999 FEYKIR 5
„Þetta var hrikalega
skemmtilegt og spennandi“
segir Smári Björn Stefánsson sem sigldi fyrstur íslendinga
niður Dimmugljúfur í Jökulsá á Brú
„Þetta var mjög erfitt að sigla þama niður og maður var alveg
búinn eftir að hafa farið niður ána bæði fóstudaginn og laug-
ardaginn, enda tók ferðin seinni daginn tólf og hálfan tíma
með stoppum fyrir myndatökumenn. En þetta var hrikalega
skemmtilegt og spennandi, þó svo að það væri svolítill ugg-
ur í manni allan tímann. Samt var þessi óttatilfmning ekki
eins sterk og ég hafði reiknað með fyrirfram. Helsta hættan
fyrir okkur fólst í gijóthmninu, en það hrundi mikið úr bjarg-
inu í gilinu. Einn myndatökumaðurinn sagði okkar að það
hefði fallið stór skriða úr því á einum stað, um 10 mínútum
eítir að við vorum komnir framhjá. Maður var samt tiltölulega
rólegur þar sem björgunarsveitarmennirnir voru tilbúnir
þama rétt fyrir ofan okkur, ef eitthvað skyldi bera út af’, seg-
ir Smári Bjöm Stefánsson kajak-siglingamaður hjá Æfinfyra-
ferðum-Hestasports, en hann var fyrsti íslendingurinn sem
Bjöm. Aðspurður hvort að sú
umfjöllun sem þessi ferð hefur
fengið gæti orðið til þess að auka
áhuga á „rafti” hér á landi, sagði
Smári að hann ætlaði rétt að vona
það.,Fólk hefur haldið að þetta
sé stórhættulegt og ekki nema á
færi léttgeggjaðs fólks, en það er
það ekki. Ekkert hættulegra en
hvað annað þegar rétt er að hlut-
unum staðið”.
Þeir Ævintýramenn hafacsð-
ið mikla reynslu af siglingum á
Jökulsá vestri og eystri í Skaga-
fírði. Siglingar á þessum ám em
mjög vinsælar, og þykir sú
eystri sérlega ögrandi. ,,Það er
búið að vera mikið að gera hjá
Smári Björn ásamt Rajendra Gurung Nepalbúanum sem
fylgdi honum á kajak niður ána.
okkur í vor og stefnir í mikia mót var siglt nánast upp á hvem
aukningu frá síðustu tveimur einasta dag. Síðan er feiða-
summm. Við emm að sigla upp mannatímabilið að koma á fullu
íþrjárferðirádagogffámiðjum inn núna”, segir Smári Bjöm
maí í vor og fram yfir mánaða- Stefánsson.
sigldi niður Dimmugljúfur í Jökulsárgili á Brú, en fólk frá
Ævinfyraferðum fylgdi leiðangri Fjallavinafélagsins Kára
sem „raítaði” niður ána um næstsíðustu helgi. Björgunarsveit-
armenn Ifá Garðabæ vom til taks á gilbarminum.
Segja má að þrír siglinga-
menn frá Nepal, sem unnið hafa
hjá Ævintýraferðum-Hesta-
sports síðustu tvö sumur, hafi
verið forsendan fyrir því að fé-
lagar í Fjallavinafélaginu Kára
gátu skipulagt og farið þessa feið
í Dimmugljúfur, sem er einstök
og þótti hreinasta fífldirfska.
Þeir Nepalmenn hafa þjálfað
menn í kajaksiglingum og raft-
ing, en fylgdarmenn á kajak er
forsendan fyrir því að unnt sé að
„raftá’ á erfiðum ám. ÞeirÆvin-
týramenn könnuðu
Dimmugljúfur einmitt á liðnu
hausti á kajökum og endurtóku
síðan leikinn daginn áðuren þeir
Kárafélagar, 11 að tölu á tveim
bátum, „röftuðu” laugardaginn
19. júní.
„Við sáum þama á föstudeg-
inum að vatnið í ánni mátti ekk-
ert vera meira og vorum búnir að
ákveða að ef að það hefði aukist
seinni daginn, þá færum við
ekkert. Okkur sýndist það vera
svipað þegar við fórum ofan í
gilið, en þegar niður var komið
var augljóst að talsvert hafði vax-
ið í ánni, en þá var ekki aftur
snúið. Fallhæðin í ánni er mikil
og straumurinn einnig, og
straumþunginn hafði vitaskuld
vaxið mikið við það að vatnið hafði
um tvöfaldast í ánni á tæpum
sólarhring”, segir Smári Bjöm.
Einn Nepalbúanna fylgdi
Smára á kajak, en hinir tveir
stjómuðu áhöfn sitthvors báts-
ins. Það var Rajendra Gumng
sem sigldi á kajaknum. Hann
segir þessa ferð hafa verið ein-
staklega skemmtilega og eftir-
minnilega. „Þetta var „töff’ sigl-
ing og mjög erfið. Við höfúm
siglt vatnsmeiri ár, en þá er hægt
að velja úr leiðum. Þama getur
þú bara farið eina leið gegnum
þröngt gljúfrið og stórgrýtið er
sérlega hættulegt að því leyti að
það er miklu oddhvassaraen við
eigum að venjast. Ef þú missir
bát utan í steinana þá ertu lík-
lega búinn að sprengja og það
var á tveimur stöðum í gilinu
sem hættan var sérstaklega mik-
il. Ofarlega í gilinu er djúp hola
við bakkann öðm megin. Þama
var geysilegt hringstreymi og
hætta á að festa bátinn með ófyr-
irsjáanlegum afleiðingum. Síðan
um mitt gilið vom mjög erfiðar
flúðir sem sérstaklega þuríti að
vara sig á”, sagði Rajendra.
, ,Þessi erfiðasti hluti var allur
á einum 150 metra kafla einmitt
þar sem gilið er hvað dýpst, hátt
í tvö hundmð metrar. En sumar
þessara flúða vom ófærar vegna
þess hve mikið hafði vaxið í ánni
og við urðum að kippa bátunum
framhjá á spottum”, sagði Smári
Bjöm, sem á varla orð til að lýsa
hrikaleik og fegurð gljúíúrsins á
þessum slóðum.
„Þetta er ferð sem verður
lengi í minnum höfð, enda á ég
ekki von á því að þessi á venði
sigld í framtíðinni”, sagði Smári
Feykir kemur næst út
miðvikudaginn 14. júlí
Hefurðu kynnt þér kosti KOSTABÓKAR
BÚNAÐ ARB ANKAN S
Vextir hækka í þrepum eftir lengd bindingar
8,25% 30 mán. þrep
8,00%
7,75%
7,25%
6,75%
5,75%
24 mán.þrep
18 mán.þrep
12 mán. þrep
6 mán. þrep
Gmnnþrep. Innistæða ber vexti í samræmi við hve lengi hún hefur
staðið inni.
Innistæða er bundin í sex mánuði, en eftir það laus.
Hægt er að „kaupa sig inn á “ hærra þrep gegn lengri upphafsbindingu.
KOSTABÓK tryggir þér góða vexti
Búnaðarbanki íslands hf
ÚTIBÚIÐ Á SAUÐÁRKRÓKI
Afgreiðslurnar Hofsósi og Varmahlíð