Feykir - 30.06.1999, Side 7
23/1999 FEYKIR 7
Jón Rögnvaldur Jónsson +
fæddur 19. mars 1936, dáinn 17. júní 1999
Nonni Jós var einstaklingur
sem öllum var hollt að kynnast og
eiga samskipti við; og kom margt
til. Hér er þess ekki kostur að
skrifa um Nonna á þann hátt sem
verðugt væri. Þetta eru fáein
kveðjuorð um þennan ljúfa dreng
sem í hljóðri hógværð sinni sýndi
þá fádæma karlmennsku að
minnisstætt verður þeim er fylgd-
ust með.
Nonni Jós - eins og Króksarar
kölluðu hann - hét fullu nafni Jón
Rögnvaldur og var fæddur á
Hofsósi en kom ellefu ára gamall
hingað á Krókinn. Kom það árfi
sem Krókurinn hlaut kaupstaða-
réttindi. Þá var mikill fram-
kvæmda- og framfarahugur í
mönnum. Kynslóðimar næstu á
undan Nonna, hans kynslóð og
næsta á eítir stóðu fyrir mikilli
uppbyggingu hér á Krók. Og stóð
sú uppbygging allt fram á þenn-
an áratug. Þessar kynslóðir höfðu
ákveðna samfélagssýn og töldu
sig hafa verk að vinna og unnu
þau verk. Persónulegur metnaður
var látinn víkja og eins hvar
menn rákust í pólitískum hjörð-
um þegar tekið var tíl þeirra verka
sem samfélaginu voru nauðsyn-
leg. Þessum kynslóðum tókst því
vel til. I þessu starfi öllu tók
Nonni virkan þátt, stundaði útgað
og var skipstjóri um árabil og
fórst það farsællega sem annað í
lífi sínu. Þegar hann lét af skip-
stjóm hóf hann störf hjá Útgað-
arfélagi Skagfirðinga hf, því fyr-
irtæki sem um árabil var hom-
steinn uppbyggingarinnar. Þegar
Nonni hætti hjá ÚS, tók hann við
störfum hafnarvarðar og gegndi
því þar til starfsævinni lauk.
Úndirritaður hafði þann starfa
nokkur sumur að leysa af hafnar-
verði. Þar kynntist hann nýjum
Nonna Jós, öðmm en þeim sem
heilsað var á götum í framhjá-
hlaupi. Af hálfu Nonna vom
þessi kynni öll á einn veg; þau
vom einstök. Á ljúfan einfaldan
hátt setti hann undirritaðan tíl
starfa. Gekk síðan eftir því að
störf væm unnin svo sem reglur
sögðu íyrir um og lagði áherslu á
snyrtimennsku utan húss sem
innan. Sjálfur vann hann öll sín
störf af mikilli alúð og átti því létt
um að gera kröfur til annarra.
Nonni var velgefinn til sálarinnar
og hafði þá greind sem nefna má
farsæla. Hann átti í fómm sínum
góðan og sérkennilegan húmor
sem birtist í skemmtilegum at-
hugasemdum um menn og mál-
efni lfðandi stundar. Stundum gat
þó bmgðið tíl norðaustanáttar í
þessum húmor og hann orðið út
að austan eins og stundum er sagt
hér. Innihaldslaust skopskyn er
reyndar lítíls virði.
Það fór ekki milli mála að
Nonni háði harða baráttu við ill-
vígan sjúkdóm. Þess gætti þó
ekki í daglegri umgengni. Hann
tók þessu af því einstaka æðm-
leysi og þeirri karlmennsku sem
hann átti í svo rikurn mæli. Flest
emm við annað en séð veiður.
Nonni var aldrei annað en það
sem hann sýndi; að öllum sam-
skiptum við hann mátti ganga
vísum. Þeir sem áttu Nonna að, er
missirinn sár. En sá einn missir
sem átt hefur og sá sem átti
Nonna Jós að átti mikið og í
minningunni um hann felst ein-
stakt fordæmi.
Yfir síðustu samfundum við
Nonna ríkir falleg minning. Á
haustheiðum degi við Vesturós
bar fundum saman. Kom hvor úr
sinni áttinni. Þama við Ósinn
snérist orðræða Nonna um önnur
efni en við aðra samfundi. Hún
fjallaði um þessa einstöku náttúru
og fegurð landsins og hvað býr að
baki tilveru okkar. Síðustu sam-
fundimir vom yfir jólaglöggi í
góðum hópi, þegar menn vom
hreyfir og létt í sinni. Og verður
minning um góðan dreng úr
Skagafirði betur vaiðveitt en frá
stund í fegurð haustsins við Ósinn
og af mannamóti þar sem hin
glaða orðræða gey sar?
Ég sendi aðstandendum
Nonna, móður hans, eiginkonu,
sonum og þeirra fjölskyldum,
systkinum hans, mér kær, og
þeirra Ijölskyldum mínar innileg-
ustu kveðjur á þessum tímamót-
um.
Lífinu er stundum líkt við sigl-
ingu um óravegu hafsins. Og öll
tökum við höfn að lokum. Ég
kvíði ekki þeirri stund að stíga
fæti á hafnarbakka þar sem hafn-
arvörður er Nonni Jós.
Jón Ormar Ormsson.
Dagar, mánuðir og ár skilja
eftir minningar hjá okkur, mis-
jafnar að birtu, styrk og hljómi, en
saman verður þetta að þeirri lífs-
leið sem við göngum hvert og eitt.
Samferðamenn, stuttan eða lang-
an spöl, fylgja mér alla leið héðan
af, eins þó að þeir hafi hellst úr
lestinni, minningamar geymi ég
líkt og bam gullin sín, get tekið
fram, skoðað, gaumgæft og
skemmt mér við, þegar hugurinn
gimist.
Ég get með sanni sagt að kynni
mín af Nonna Jós verða til á-
nægjuauka hvenær sem ég kem
til með að rifja þau upp, en tilefni
þessara lína er þó eftirsjáin, og
vissan um að sporin liggja ekki
Iengur sömu slóðina.
Jón Rögnvaldur Jósafatsson
var drengur góður. Hann var al-
veg laus við sýndarmennsku eða
löngun tíl að gera, segja eða ffam-
kvæma annað en honum þótti
rétt, þetta var honum alsendis á-
reynslulaust, því fylgdi hvorki
frekja eða sjálfsánægja. Hann lét
aðra í friði með sínar skoðanir, en
vékst aldrei undan því að segja
það sem honum bjó í brjósti og
geiði það öfga- og hrokalaust.
Sjálfsagt em það ellimerki en
núorðið þykir mér of margir strit-
ast við að vera eins og þeir halda
að umhverfið æthst til og glata
þannig sjálfum sér í hlutverki
þess sem hlær við öllum og get-
ur því ekki grátið með neinum. -
Slíkur var Jón ekki, það er fjall-
grimm vissa fyrir því.
I fomsögunum segir af Hall-
dóri syni Snorra goða er fékk
þann vitnisburð hjá Haraldi kon-
ungi Sigurðssyni að - ,Jtann hefði
veriðmeðhonum allra manna svo
síst brigði við vofeiflega hluti
hvort sem að höndum bar mann-
háska eða fagnaðartíðindi þá var
hann hvorki glaðari né óglaðari.
Eigi neitti hann matar eða drakk
eða svaf meira né minna en vandi
hans var tíl hvort sem hann mætti
blíðu eða stríðu”.
Af þessari lýsingu finnst mér
meiga ráða það að Halldór Snorra-
son hafi verið maður svipaðrar
gerðar og Jón Rögnvaldur
Jósafatsson og má af því marka
að karlmennska er ekki útdauð hjá
okkur. Þegar Nonni Jós varð sex-
tugur sendi ég honum nokkrar
vísur og þó þær væm létt kveðn-
ar, sé ég að hægt er að ljúka þess-
um línum með þeirri síðustu, en
lesa má hana nú á annan máta, í
ljósi þeirra breytínga sem tíminn
sífellt stillir okkur andspænis.
Þess óskum aföllu hjarta,
að eigirðu framtíð bjarta,
við ölwn þá von.
Jón Jósafatsson.
Hetja sem kann ekki að kvarta.
Með innilegri kveðju tíl fjöl-
skyldunnar.
Hilmir Jóhanncsson.
Okeypis smáar
Hlutir óskast!
Oska eftir velmeðfömum
tjaidvagni, helst Cpmbi Camp
family. Upplýsingar í síma453
6648.
íbúð óskast!
Ungur reglusamur maður
óskar eftír húsnæði til leigu á
höfúðboigarsvæðinu fra 20. ágúst
nk., annað hvort lítilli íbúð eða
stóm herbergi með aðgangi að
eldhúsi og þvottahúsi.
Upplsýsingar í síma 453 5729.
Einbýlishús til sölu!
Einbýlishús tíl sölu við
Suðurgötu á Sauðárkróki, þtjár
hæðirsamtals 151 m2. Hagstætt
áhvflandi lán. Upplýsingar í
síma453 6844.
Sólgarðaskóli í Fljótum
Staður fyrir ættarmót og aðrar samkomur.
Gisting ,svefnpokapláss og uppbúin rúm.
Upplýsingar í síma 467 1060 eða 467 1054.
íbúð til sölu!
Til sölu er fjögurra herbergja, 91 fermetra íbúð, á efri
hæð við Lindargötu 15, Sauðárkróki. íbúðin er í góðu
ástandi.
Strimill ehf. fasteignasala
Suðurgötu 3, Sauðárkróki
Sími 453 5900, fax 453 5931.
Vörufhitningar
Sauðárkrókur - Skagaíjöróur
Vörumóttaka í Reykjavík hjá
Aðalflutningum Héðinsgötu 2
Sími 581 3030
Bjarni Haraldsson sími 453 5124.
Sveitarfélagið Skagafjörður
Menningar-, æskulýðs-
og íþróttafulltrúi
Starf menningar-, æskulýðs- og íþróttafulltrúa í
Sveitarfélaginu Skagafirði er laust til umsóknar.
Menningar-, æskulýðs- og íþróttafulltrúi hefur umsjón
með og ber ábyrgð á starfsemi Sveitarfélagsins
Skagafjarðar á sviði menningar-, æskulýðs- og
íþróttamála.
í Skagafirði er öflugt menningar-, æskulýðs- og
íþróttastarf sem sveitarfélagið styður myndarlega.
Það er markmið sveitarstjórnar að Skagafjörður sé í
fararbroddi á öllum sviðum og þá ekki síst hvað
varðar menningar-, æskulýðs- og íþróttamál.
Gerð er krafa um háskólamenntun eða aðra
sambærilega menntun.
Reynsla í stjórnun og rekstri, svo og þekking á
menningar-, æskulýðs og íþróttamálum er nauðsynleg.
Hæfni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg sem
og frumkvæði, skipulagshæfileikar og stjálfstæði í
vinnubrögðum.
Æskilegt er að væntanlegur menningar-, æskulýðs- og
íþróttafulltrúi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 16. júlí nk. og skal umsóknum
skilað á skrifstofu Skagafjarðar, Faxatorgi 1,550
Sauðárkróki.
Allar nánari upplýsingar gefur sveitarstjóri, vinnusími
453 5133,heimasími 453 5184.
Sveitarstjórinn í Skagafirði.