Feykir


Feykir - 20.10.1999, Side 3

Feykir - 20.10.1999, Side 3
35/1999 FEYKIR 3 Spjallað og spurt um jarðhitann á Sauðárkróki ,„,Ef íslendingar nýttu hver- ina sem hafa starfað um aldir, gætu þeir haft vetrargarða og gróðurhús, soðið kjötið af sauðun- um ókeypis og selt súpuna, eða að minnsta kosti hitað hús sín og fjós, veitt því á tún og þ vegið sig í vatninu sem streymir til spillis við húsgaflinn”. Hveiju er hægt að bæta við þessa 135 ára gömlu framtíðarsýn bresks ferðalangs nú þegar við nálgumst þúsaldar- mótin?,”, sagði Sverrir Þórhalls- son verkfræðingur hjá Orku- stofnun í upphafi erindis síns um „ýmsa möguleika varðandi nýtingu jarðhita” á landsráð- stefnu um jarðhita sem haldinn var á Sauðárkróki sl. föstudag. Ráðstefhan var mjög athyglis- og áhugavað, og voru um eitthund- rað ráðstefnugestir í bóknáms- húsinu og fylgdust með fróðleg- um erindum og líflegum fyrir- spumatímum að þeim loknum. Einnig hafa trúlega fjölmargir fylgst með útsendingunni af byggðabrúnni um land allt. Sverrir varí hópi sérfræðinga sem fjölluðu um hina ýmsu þætti. Ragna Karlsdóttir jarð- ífæðingur fjallaði um niðurstöður rannsókna sem gerðar hafa verð á jarðhita í Skagafirði. Ragna sagði Skagfirðinga eiga mikla auðlind sem jarðhitinn væri, og notaði orðið „ótrúlega” í því sam- bandi. Það hefur væntanlega komið mörgum á óvart sá mikli fjöldi staða sem Ragna nefndi, þar sem fundist hefur jarðhiti í Skagafirði. Sverrir Þórhallsson fjallaði einnig um boranir og virkanir á ráðstefnunni og svaraði þeirri spumingu sem brann á margra vömm, er möguleiki að knýja raforkuver með jarðvarmaorku í Skagafirði? Sverrir sagði líkur til þess nánast engar, enda teldist „Ótrúleg auðlind sem Skagfirðingar eiga“ sagði Ragna Karlsdóttir jarðfneðingnr Erindi Rögnu Karlsdóttur jarðffæðings um niðurstöður rannsókna á jarðhita í Skaga- firði var einkar forvitnilegt, og trúlega hefur það komið mörg- urn á óvart, sá mikli fjöldi staða sem jarðhiti hefúr greinst í ein- hveiju magni. Þeir vom ömgg- lega á seinni tugum hundraðs- ins staðimir sem Ragna taldi upp. Jarðhitinn er sérlega mik- ill í vestanverðum Skagafiiði, allt frá Reykjum á Reykja- strönd og Skíðastöðum í Laxár- dal fram í Skagafjarðardali. í austanverðum Skagafirði skera Fljótin sig hins vegar nokkuð úr. Jarðhitasvæðin ermun minni og færri að austanverðu. Ragna talaði í upphafi máls síns um ótrúlega auðlind sem Skagfirðingar eiga, og raunar gæú auðlindin verið mun stærri en hún virðist, vegna þess að við bomn og frekari rannsóknir mundi sjálfsagt ýmislegt koma í ljós. Þannig var t.d. áður en farið var að bora á veitusvæði Hitaveitu Sauðárkróks við As- hildarholtsvatn. Ragna sagði magnið mikið víða um héraðið, víða frá 10-20 sekúntuítrum upp í 50 af sjálfrennandi vatni, hitastigið víða 60-70 gráður og yfirleitt ekki nýtt nema til húsa- hitunar. I Varmahlíð er hitastig vatnsins mest 94°, við Langa- hús í Fljótum 82°, Hofsvelli í Lýtingsstaðahverfi 77°, Reykj- arhóli á Bökkumn 75°, Áshild- arholt 70° og Varmilækur 68°. I engu hverfi héraðsins er jarðhitinn jafn víða og í Lýt- ingsstaðahverfi, og sérstaklega er svæðið víðfemt við Reyki og Steinsstaði í Tungusveit. Ragna sagði frá því þegar bændur á Reykjum ætluðu að virkja læk til að hita kirkjuna upp með. Þá hefði strax komið vatn upp í holunni sem grafinn var þegar veita átti læknum, svo ekki þurfti að veita læknum. Þegar síðan var grafið fyrir staur þar skammt frá kom einnig upp vatn, og einnig með stögunum sem sett voru frá staumum. Þetta er dæmi um að raunar er heitt vatns rétt neðan yfirborðs jarðar á þessu svæði. Þá nefndi Ragna að með- fram bökkum Svartár bullaði víða út jarðhiti. Þannig væri sprunga yfir ána milli Hverhóla og Bakkakots, þar flæddi út a.m.k. 50 sekúntulítrar af heitu vatni og oft viki áin fyrir þess- um straumum úr iðrum jarðar. Möguleikamir sem fælust í nýtingu alls þessa heita vatns í Skagafirði, sagði Ragna mikla. En þar væri það hugmyndaflug og útsjónarsemi manna sem mestu réði um hvemig til tæk- ist. Um eitt hundrað manns fylgdust með ráðstefnunni í sal Bóknámshússins. Skagafjörður ekki til háhitasvæð- is. Einar Valur Ingimundarson jarðfræðingur fjallaði um jarð- vegshitun. Einar Valur vakti máls á háu orkuverði til ylrækt- ar hér á landi og nauðsyn þess að ylræktarbændur fengju orkuna á hagkvæmara veiði. Urðu fleiri til að taka undir þetta sjónarmið hans, m.a. Hjálmar Ámason al- þingismaður og Guðni Ágússon landbúnaðarráðherra. Einar Valur sagði hugsanlegt að lækkun orku- kostnaður gæti þýtt það að hægt væri að afnema vemdartolla á innfluttu grænmeti, og þar með auka neyslu á grænmeti í þjóðfé- laginu, sem manneldissfræðing- ar teldu mjög til bóta. Magnús Ágústsson kennari viðGaiðyrkjuskólann á Reykjum greindi frá innanlandsmarkaðn- um og kom fram að Sunnlend- ingar standa þar langfremstir, og hlutur Skagfuðinga, með allan sinn jarðvarma, er rýr. Steinar Frímannsson fjallaði um bygg- ingu gróðurhúsa, útfærslu og kostnað og miðað við upplýsingar þeirra Magnúsar og Steinars, virðist Varmahlíð álitlegasti stað- urinn í Skagafiiði, ef Skagfirðing- ar hyggðu á ylrækt í stómm stíl. Hilmar Magnússon, sem hef- ur mikla reynslu að ylrækt er- lendis, og meðal annars starfaðað tómatarækt í Hollandi, fjallaði urn erlenda markaðinn. Hilmar hafði á sínum tíma áform um framleiðslu á tómötum í stórum stíl hér á landi, nánar tiltekið í landi Grindavikur. Hilmar fjall- aði um þessar áætlanir í erindi sínu og á máli hans var ekki ann- að að heyra en hægt væri að stunda ylrækt hér á landi með stórfelldan útflutning í huga, ef allir þættir gengju upp. Hilmari og félögum tókst hins vegar ekki að Ijúka ætlunarverki sínu, og kom þar ýmislegt til, m.a. það að þeir félagar hurfu til annnarra starfa á undirbúningstímanum. Guðmundur Öm Ingólfsson framkvæmdastjóri Máka varsíð- asti sérfræðingurinn sem talaði á ráðstefnunni. Umfjöllunarefni Guðmundar var fiskirækt og önnur ylrækt. Guðmundur greindi frá Máka-verkefninu og verkefnum því tengdu sem hann hefur tekið þátt í ásamt fleirum, verkefnum sem Evrópusam- bandið hefur styrkt, og er það nýjasta, Mistral-Mar, að heíjast innan skamms. Guðni Ágússson landbúnað- arráðherra átti lokaorð ráðstefn- unnar. Guðni þakkaði Skagfiið- ingum að efna til ráðstefnu að þessu tagi, en vék síðan í gaman- sömum tóm að því hvað Sunn- lendingar væru Skagfirðingum miklu snjallari, aðhafanýttjarð- hitann meðan Skagfirðingar hefðu sofið á honunt allan þenn- an tíma. Guðni talaði um „nýja stóriðju” og vék þar að mögu- leika á nýtingu jarðhitans á landsbyggðinni. Landbúnaðanáö- herra taldi brýna nauðsyn á að snúa byggðaþróuninni við og kvaðst vera kominn á þá skoðun að vænlegasta úrræðið í þá veru, væri að stýra sköttum á þann veg að þeir jöfnðuðu mun höfúðborg- arsvæðisins og landsbyggðarinn- ar. Þetta væri svo sem ekki ný lausn á byggðavanda, hún þekkt- ist í öðmm löndum sem hefðu átt við sama vanda að etja. Náttúrustofa Norðurlands vestra Forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra Laus er til umsóknar staða forstöðumanns Náttúrustofu Norðulands vestra sem staðsett er á Sauðárkróki. Forstöðumaður er ráðinn af stjórn Náttúrustofunnar frá 1. janúar 2000. Hlutverk forstöðumanns skv. 7.gr. reglugerðar nr. 96 frá feb. 1998 um skipulag og starfsemi Náttúrustofu Norðurlands vestra. Forstöðumaður stjórnar daglegum rekstri stofnunarinnar, gerir ljárhags- og starfsáætlarnir, fer með fjármálaleg samskipti fyrir hönd stjórnar, ræður henni starfslið með samþykki stjórnar og er í forsvari fyrir stofnunina. Forstöðumaður skal hafa háskólapróf í náttúrufræði eða sambærilega þekkingu. Um laun fer samkvæmt kjarasamningi við Félag íslenskra náttúrufræðinga. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fý-rri störf, berist eigi síðar en 01.12.1999 til formanns stjórnar Náttúrustofu, Guðrúnar Sighvatsdóttur, Grenihlíð 14,550 Sauðárkróki, sem jafnframt veitir frekari upplýsingar. Stjórn Náttúrustofu Norðurlands vestra

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.