Feykir - 26.04.2000, Blaðsíða 2
2 FEYKIR 16/2000
Nörd frumsýndur
á sunnudagskvöld
Leikfélag Sauðárkróks hef-
ur að undanförnu staðið í
ströngu við æfingar og uppsetn-
ingu Sæluvikusýningarinnar
sem að þessu sinni er gaman-
leikurinn „Nörd” eftir banda-
ríska leikritaskáldið Larry
Shue. Með helstu hlutverk fara
Styrmir Gíslason, Guðbrandur
Guðbrandsson, Sigurlaug Vor-
dís Eysteinsdóttir og Sigurður
Halldórsson. Leikendur eru sjö
og leikstjóri er Guðjón Sig-
valdason.
Komið er að frumsýningu
sem verður í Bifröst nk. sunnu-
dagskvöld og nokkrar sýningar
verða síðan í Sæluvikunni.
Efniviðurinn í þetta leikverk er
m.a. sótt í afleiðingar stríðs,
nánar tiltekið í Víetnam. Það
fjallar um stórskringileg og
spaugileg samskipti nokkurra
persóna og úr verður heljarinn-
ar „kómedía” sem leikhúsgest-
ir í Bifröst eiga væntanlega eft-
ir að hafa hina bestu skemmtun
af. Þess má geta að nafn verks-
ins, Nörd, er skammstöfun á
setningunni „næröldungis rugl-
aður drengur”.
Tilboð opnuð í þrjú
verk hjá vegagerðinni
Fjörður Skagafirði, Borgar-
verk Borgamesi og G.H. verk-
tak Reykjavík voru með lægstu
tilboð í verk hjá Vegaverðinni á
Norðurlandi vestra sem opnuð
voru í síðustu viku.
Fjörður bauð 73,3% af
kostnaðaráætlun í ræsi og tví-
breiðan 0,66 km veg um
Grafará á Siglufjarðarvegi.
Verkinu á að vera lokið 1.
október í haust. Fimm tilboð
bárust í verkið, tilboð Króks-
verks var svipað tilboði Fjarðar.
Borgarverk bauð 83,3% í
klæðningar á Norðurlandi
vestra, tæpar 27 millj. Fimm
tilboð bárust og voru Rækt-
unarsamband Flóa- og Skeiða
og Klæðning í Garðabæ með
litlu hærra tilboð en Borgar-
verk. GH verktak í Reykjavík
var með eina tilboðið í
landgræðslu á Norðurlandi
vesta fyrir þetta og næsta ár.
Það er upp á rúmar tvær
milljónir eða 116% af
kostnaðaráætlun.
Sverrir söng til sigurs syðra
,jNei ég átti ekki von á þessu,
en Binni var alveg viss um að
við myndum vinna”, sagði
Sverrir Bergmann Magnús-
son fulltrúi Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á Sauðár-
króki, en Sverrir sigraði með
glæsibrag í Söngvarakeppni
framhaldsskólanna sem fram
fór í Reykjavík 15. aprfl.
Hann söng að mikilli innlifun
lagið Always eftir Bon Jovi,
sem í textagerð þeirra
Brynjars Elevsen og Auðuns
Blöndals heitir „An þín”.
Brynjar lék undir á gítar.
„Þetta var mjög spennandi
og tók svolítið á og léttirinn var
hvílíkur þegar úrslitin vom ljós,
reyndar svolítið spennufall”,
sagði Sverrir Bergmann sem
fagnaði ntikið þégar fyrsta á-
fanganum var náð í forkeppn-
inni í félagsheimilinu Bifröst á
Króknum og fögnuðurinn var
ekki minni í aðalkeppninni fyr-
ir sunnan, en þangað fylgdi 100
manna stuðningslið frá FNV.
„Nei það verður ekki leiðin-
legt að koma í skólann á mið-
vikudaginn (í dag)”, sagði
Sverrir, en sigurlaunin voru af
ýmsum toga, s..s GSM-sími,
ferðavinningur frá Úrval/Út-
sýn, peningaverðlaun frá
Landsbanka íslands og einn
upptökudagur í Stúdíó Sýr-
landi, sem er víst með betri
hljóðverum hér á landi.
Aðspurður sagði Sverrir að
hann og Brynjar mundu hik-
laust taka upp eitthvað efni, en
þeir félagar gáfu út geisladisk á
síðasta hausti í 50 eintökum.
Svenir segist hiklaust stefna á
að halda áfram í dægurlaga-
söng og reyna að komast þar
lengra. Þessi sigur ætti eitthvað
að hjálpa til. Hvort hann ætli í
söngnám eða jafnvel klassískan
söng? Nei, það er ekki á döf-
inni, bara halda áfram í dægur-
lagasöngnum.
íslandsgangan á skíðasvæði
Tindastóls á laugardaginn
Unnendur skíðagöngu og
útivistar ættu að fá eitthvað við
sitt hæfi á laugardaginn kemur
þegar fram fer almennings-
ganga á skíðasvæðinu í Tinda-
TINDASTÓLL AFTUR TIL
ÞÁTTTÖKU í SÆLUVIKU
Laugardagskvöldið 29. apríl og sunnudagskvöldið 7. maí
kl. 21 til 01 verður Jarlsstofa opin í Sæluviku að skagfirskum hætti.
Jón Ormar rekur söguTindastóls og Sæluviku.
Eyjajarl segir sögur. Muni leikur á liljóðfæríð. Almemiur söngur.
Aðeins 50 manns komast að í hvort sinn. Aðgangseyrir kr. 1.000.
Miðapantanir í síma 4536362.
Pétur og Svanfríður.
stóli, en þar er enn nægur snjór.
Klukkan 14 á laugardaginn
verða ræstir keppnisflokkar í Is-
landsgöngu Skíðasambandsins
sem kennd er við styrktaraðil-
ann Bakkavör í Njarðvík. Þar
verða gengnir 20 km í karla og
kvennaflokkum. Jafnhliða fer
fram trimmganga án tímatöku,
þar sem fólk getur valið urn að
ganga 3 eða 10 km. Almenning-
ur er hvattur til að vera með og
taka þátt.
Talsverður áhugi er fyrir
þessari göngu hjá skíðagöngu-
mönnum í landinu enda er þetta
í fyrsta skipti sem keppt er í
þessari íþrótt á Sauðárkróki og
lýrsta opinbera skíðamótið sem
þar fer fram. Til dæmis er vitað
til þess að besta skíðafólk ísfirð-
inga og Strandamanna ætlar að
mæta og er búist við a.m.k. 20
manna hóp að vestan.
Aðstaða til skíðagöngu er
mjög góð í Tindastóli. Þar hag-
ar svo skemmtilega til að
göngubrautin sést að langstærst-
um hluta frá veginum og bíla-
stæðinu við skálann og því ætti
fylgdarliðið að geta fylgst með
sínu fólki í göngunni á laugar-
daginn og ástæða til að hvetja
fólk að mæta og fylgjast með,
en keppni hefur verið mjög jöfn
og spennandi meðal bestu
göngumanna landsins í vetur.
Hægt er að skrá sig í göng-
una hjá Birgi í símunt 455 4020
eða 453 6111 og Þórhalli í síma
453 5729 eða 453 5757. Æski-
legt er að skráningar berist fyrir
föstudagskvöld, en einnig er
hægt að skrá sig á staðnum
klukkutíma íýrir gönguna.
Aukakílóin burt! Ný öflug vara!
Náðu varanlegum árangri í eitt skiptið fýrir öll. Eg missti 7 kg.
á fimm vikum. Síðasta sending seldist upp. Persónuleg ráðgjöf
og stuðningur. Hringdu strax. Helma & Halldór sími 557
4402 og 587 1471. grima@centrum.is
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf.
Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box4,
550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703.
Myndsími 453 6703. Farsími 854 6207. Netfang:
feykir @ krokur. is. Ritstjóri: Þórhallur Ásntundsson.
Fréttaritari: Öm Þórarinsson.
Blaðstjórn: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guð-
brandsson, Sæmundur Hennannsson, Sigurður
Ágústsson og Stefán Árnason.
Áskriftarverð 170 krónur hvert tölublað nteð vsk.
Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og
umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svait hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs-
fréttablaða.