Feykir - 26.04.2000, Síða 3
16/2000 FEYKIR 3
Velheppnuð sagna-
ráðstefna í Skagafírði
Þær voru margar sögumar
sem sagðar voru og mál þeim
tengd krufin til mergar á mikilli
sagnaráðstefnu sem haldin var í
Skagafirði helgina 15.-16. apríl
sl. Reyndar átti ráðstefnan að
hefjast á föstudagskvöld í Hóla-
dómkirkju, þar sem til stóð að
doktor Gísli Gunnarsson héldi
opnunarfyrirlestur um atvinnu
og allra handa fólk í Skagafirði í
aldanna rás. En slæmt veður
þennan dag setti strik í reikning-
inn. Sextíu manna rúta með
fólki að sunnan, þar á meðal
Gísla, kom ekki í fjörðinn fyrr
en um þrjú leytið um nóttina, og
þegar sýnt var hvert stefndi brá
Gísli á það ráð að flytja íyrirlest-
urinn í bflnum. Hólar voru hins-
vegar heimsóttir í lok ráðstefn-
unnar á sunnudag.
Ráðstefnan var haldin í bók-
námshúsinu og hana sóttu um
eitt hundrað manns, þar af 20
heimamenn, en fólk kom
hvaðanævaaf landinu. Ahuginn
var greinilega mikill og sagna-
fýsn meðal þjóðarinnar, en fjöl-
margir athyglisverðir fyrirlestr-
ar vom fluttir á ráðstefnunni.
Það vom forráðamenn safnanna
í Skagafirði ásamt Helga Hann-
essyni kennara við Fjölbrauta-
skólann sem stóðu að undirbún-
ingi ráðstefnunnar í samvinnu
við Sagnfræðingafélag íslands,
Félag þjóðffæðinga, Félag sagn-
fræðinema og Félag þjóðfræði-
nema.
Ráðstefnan hét íslendingar á
faraldsfæti og segir Sigríður
Sigurðardóttir forstöðumaður
Byggðasafns Skagfirðinga, að
efni ráðstefnunnar hafi verið í
þeim anda sem byggðasafnið
hefur lagt áherslu á í sýningum
sínum, en rauði þráðurinn í sýn-
ingunum í Vesturfarasetrinu á
Hofsósi og á Hólum er um
ferðalög og flutninga fólks. f
Vesturfarasetrinu um flutninga
fólks milli landa, og í sýning-
unni á Hólum, Ríðum heim til
Hóla, er fjallað um reiðver og
klifjareiðskap.
Sigríður segir að þátttakend-
ur hafi verið mjög ánægðir með
Nevtendasamtökin kanna verð matvöru
Lægst á Siglufírði í
Norðurlandi vestra
Samkvæmt vetðkönnun Neyt-
endasamtakanna sem gerð var í
samvinnu við verkalýðsfélögin á
landsbyggðinni 12. apríl sl. virð-
ast Siglfirðingar nú um stundir
búa við lægsta matvörðuverðið
af neytendum í Norðurlandi
vestra, en Skagfirðingar koma
þar skömmu á eftir, þá viðskipta-
vinir Verslunarinnar Vísis á
Blönduósingar, en nokkru lakari
er útkoman hjá viðskiptavinum
KH á Blönduósi, Kaupfélags
Vestur - Húnvetninga og Versl-
unarinnar Borgar á Skagaströnd.
í könnuninni var um beinan
verðsamanburð að ræða, en ekki
lagt mat á þjónustustig sem er
mismunandi. „Þessi könnun er
fýrst og fremst ætluð til að neyt-
endur á hverjum stað sjái hvem-
ig „þeirra” verslun kemur út
samanborið við aðrar verslanir
sem í könnuninni em”, segir í til-
kynningu.
Kannað var verð á ísafirði,
Hvammstanga, Blönduósi,
Skagaströnd, Varmahlíð, Sauðár-
króki, Hofsósi, Siglufirði, Akur-
eyri, Egilsstöðum, Eskifirði,
Stöðvarfirði, Breiðdalsvík, Nesj-
um og Höfn í Homafirði, samtals
25 verslunum sem em af öllum
tegundum matvömverslana.
í tilkynningunni segir að hafa
beri í huga þegar niðurstöður em
skoðaðar, að hér er um að ræða
verslanir allt frá stórmörkuðum
til lítilla verslana með lítið vöm-
úrval og litla veltu. Kannað var
verð af lista með 98 tegundum.
Minnsta úrvalið var hjá Hraðbúð
Essó Nesjum, KS Hofsósi, Bón-
us ísafirði, Hjá Jönnu Breiðdals-
vík og Kf. Stöðvfirðinga Breið-
dalsvík. Hjá þessum verslunum
fengust innan við 70 atriði af list-
anum. Röð verslana miðið við
meðalverð var þessi:
Bónus ísafirði........79,3
KEANettó Ak...........84,7
Hagkaup Ak............91,8
Úrval, Hrísal. Ak.....93,2
10-11 Kaupv.Ak........94,8
10- 11 Egilsst........95,9
11- 11 Höfn..........96,1
KFH Egilsst...........97,9
Strax, Sigluf.........98,8
Samkaup, ísaf.........98,8
Skagf.búð Skr.........99,3
Hh'ðark. Skr..........99,7
KS, Hofsósi..........100,7
Spark. Eskif.........100,8
KÁ, Homaf............100,9
KS Varmahl...........101,4
Vísir Blönd..........101,6
KH, Blönd............103,8
Homab. Höfn..........104,3
KVH, Hvammst.........105,7
Esso, Nesjum.........106,9
Borg Skagastr........108,0
Janna, Breiðd.v......112,6
KFS, Breiðd.v........114,3
KFS, Stöðv.f.........118,1
Um eitt hundrað manns sóttu ráðstefnuna sem haldin var í bóknámshúsinu.
ráðstefnuna og mikill fengur sé
af þessum viðburði íýrir heima-
aðila. Þetta sé gott innlegg í það
sem safnafólk í héraðinu er að
fást við. Mikill akkur sé í því að
sagnfræðingar og þjóðfræðing-
ar sýni héraðinu áhuga og það
geti nýst í framtíðinni, en
Skagafjörður var einmitt valinn
sem ráðstefnustaður þar sem
héraðið er í þjóðbraut þverri og
um það hafa leikið ferskir vind-
ar frá öndverðu. Sigríður í
Glaumbæ sagðist líka vera sér-
staklega stolt af því hvað heima-
aðilar hefðu tekið vel og rausn-
arlega á móti ráðstefnugestum
og nefni þar t.d. forsvarsmenn
sveitarfélagsins og fyrirtækja
þess.
Hefurðu kynnt þér kosti KOSTABÓKAR
BÚNAÐ ARBANKAN S
Vextir hækka í þrepum eftir lengd bindingar
10,60% 30 mán. þrep
10.35%
10,10%
9,60%
9,10%
8,10%
24 mán.
18 mán. þrep
12 mán. þrep
6 mán. þrep
Grunnþrep. Innistæða ber vexti í samræmi við hve lengi hún hefur
staðið inni.
Innistæða er bundin í sex mánuði, en eftir það laus.
Hægt er að „kaupa sig inn á “ hærra þrep gegn lengri upphafsbindingu.
KOSTABÓK tryggir þér góða vexti
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
ÚTIBÚIÐ Á SAUÐÁRKRÓKI
Afgreiðslurnar Hofsósi og Varmahlíð